Morgunblaðið - 11.07.2003, Page 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LEIKSKÓLAR í Kópavogsbæ hafa
um nokkurra ára skeið verið lokaðir í
fjórar vikur yfir sumarleyfistímann.
Gerður Guðmundsdóttir, leikskóla-
ráðgjafi hjá Kópavogsbæ, segir að
lokanirnar hafi komið nokkuð vel út,
bæði fyrir starfsfólk sem og börn og
foreldra.
„Við lokum ekki leikskólunum öll-
um í einu en þetta skarast þannig að
í hálfan mánuð eru allir skólarnir
lokaðir,“ segir Gerður. Hún segir að
í þeim tilfellum sem mjög erfitt sé
fyrir foreldra að fá frí á sama tíma og
leikskóli barnsins sé lokaður, eigi
þeir kost á að flytja barnið í einhvern
þann leikskóla sem opinn sé. Það er
þó ekki mögulegt í þær tvær vikur
sem leikskólarnir eru allir lokaðir.
Gerður segir það heyra til undan-
tekninga að foreldrar noti þennan
möguleika. Yfirleitt virðist þeir vera
nokkuð sáttir við fyrirkomulagið
eins og það er og segist hún ekki
hafa fengið neinar kvartanir inn á
borð til sín vegna lokananna.
Erfitt að fá afleysingafólk
Gerður segir að fyrir nokkrum ár-
um hafi verið gerð tilraun til að hafa
opið allt sumarið á einum leikskóla
bæjarins en horfið hafi verið frá því
fyrirkomulagi. Hún segir ástæðuna
meðal annars þá að börnunum geti
reynst erfitt að vera í leikskólanum á
þeim sem tíma sem það starfsfólk
sem þau tengjast hvað best sé jafn-
vel í fríi og jafnframt vinirnir. „Það
verður líka að horfa til þess að við er-
um með stóran starfsmannahóp inni
í leikskólunum sem á frá fjórum og
allt upp í sex vikna orlofsrétt þar
sem við erum með mikið af gamal-
reyndu fólki sem búið er að ávinna
sér 30 daga orlofsrétt. Þá er orðið
nokkuð erfitt að brúa bilið hvað varð-
ar afleysingar,“ segir Gerður. Hún
segir lokanirnar alltaf tilkynntar
með góðum fyrirvara, yfirleitt í jan-
úar eða febrúar til þess að fólk geti
gert viðeigandi ráðstafanir. Þá sé
ákveðin röð á því hvenær sumars frí-
ið sé í hverjum skóla og þannig viti
flestir við hverju er að búast með
löngum fyrirvara.
Fjögurra vikna sumarlokanir leikskóla í Kópavogi
Fyrirkomulagið gott
Kópavogur
FRAMKVÆMDIR við Reykjanes-
braut við Kirkjugarðinn í Hafn-
arfirði eru nú í fullum gangi. Verið
er að stækka kirkjugarðinn og
stefnt á frekari stækkun en með
þeim stækkunum er reiknað með að
hann dugi næstu 15 árin, segir Arn-
ór Sigurðsson kirkjugarðsvörður.
„Það er verið að stækka hann til
suðvesturs og svo þegar fram-
kvæmdirnar verða búnar þá fáum
við smásvæði til norðurs,“ segir
Arnór. Hann segir stjórn kirkju-
garðsins hafa falast eftir nýju landi
til afnota þegar plássið klárast, til
dæmis í Kjóadal, en ekki fengið
nein svör enn sem komið er.
Aðkoman að kirkjugarðinum er
öll í uppnámi vegna fram-
kvæmdanna, segir Arnór: „Það er
verið að gera nýja innkeyrslu í
garðinn sem verður beint á móti
þar sem Hvammabrautin er núna.“
Áætlað er að flytja Reykjanes-
brautina út fyrir garðinn, og verð-
ur þá Reykjanesbrautin eins og hún
er í dag innanbæjargata í Hafn-
arfirði.
Unnið að stækkun kirkjugarðsins
Morgunblaðið/Jim Smart
Framkvæmdir við Reykjanesbraut eru komnar nálægt Kirkjugarði Hafnarfjarðar.
Hafnarfjörður
BARNAVERND Reykjavíkur bár-
ust í fyrra yfir tvö þúsund tilkynn-
ingar vegna barna. Tilkynningarnar
voru allar á grundvelli nýrra barna-
verndarlaga sem eiga að tryggja
börnum viðunandi uppeldisskilyrði.
Í málum 60% þeirra barna, sem
fengu aðstoð í fyrra á grundvelli
barnaverndarlaganna, barst tilkynn-
ing til Barnaverndar. Þetta kemur
fram í nýútkominni ársskýrslu Fé-
lagsþjónustunnar í Reykjavík fyrir
árið 2002.
Tilkynningar sem bárust vegna
barna eldri en 13 ára voru fleiri en
tilkynningar vegna barna yngri en
13 ára, eða 1.130 á móti 882.
Flestar vegna gruns um
glæpsamlega hegðun
Langflestar tilkynningar vegna
eldri barnanna bárust vegna gruns
um afbrot, skemmdarverk eða árás-
arhneigð barnsins, eða 519 tilkynn-
ingar. Næst á eftir komu tilkynning-
ar vegna gruns um vanrækslu barns,
eða 100 tilkynningar. Vegna yngri
barnanna komu flestar tilkynningar
vegna gruns um áfengis- eða vímu-
efnaneyslu foreldra, eða 306 tilkynn-
ingar og þar á eftir komu 262 til-
kynningar vegna gruns um
vanrækslu barns.
Flestar tilkynningar
frá lögreglu
Tilkynningar vegna gruns um að
barn væri beitt kynferðislegu ofbeldi
voru alls 90, 55 vegna barna yngri en
13 ára og 35 vegna barna eldri en 13
ára. Tilkynningar vegna gruns um
að barn væri beitt líkamlegu ofbeldi
voru alls 83, 56 vegna barna yngri en
13 ára en 27 vegna barna eldri en 13
ára.
Langflestar tilkynningar bárust
frá lögreglu, eða 936. Þar á eftir
komu tilkynningar frá nágrönnum
eða vinum, eða 255, og þá 186 til-
kynningar frá foreldrum barns. Til-
kynningar bárust annars víða að,
meðal annars frá heilbrigðisstarfs-
mönnum, ættingjum, starfsmönnum
félagsþjónustu, skóla og leikskóla.
Ársskýrsla Félagsþjónustunnar í Reykjavík
Yfir tvö þúsund tilkynn-
ingar til Barnaverndar
Reykjavík
www.nowfoods.com
VINNU við sameiningu dreifikerfa
Og Vodafone í Eyjafirði og nágrenni
er nú lokið, en eftir samruna Íslands-
síma og Tals rak félagið tvö kerfi á
svæðinu. Tæknimenn félagsins hafa
að undanförnu unnið að sameining-
unni og er henni nú lokið á þann hátt
að viðskiptavinir Og Vodafone eru nú
allir í einu og öflugra kerfi norðan
heiða. Helstu breytingar felast í því
að sendum á svæðinu hefur verið
fjölgað og afkastageta þeirra sem fyr-
ir voru aukin til muna. Fram kemur í
frétt frá félaginu að þeir sem áður
nýttu sér kerfi Tals finni strax mun á
bættri þjónustu í miðbæ Akureyrar, á
Glerártorgi og þegar ekið er á milli
Akureyrar og Dalvíkur. Þeir sem aft-
ur nýttu sér kerfi Íslandssíma á
Norðurlandi munu hins vegar strax
njóta betri þjónustu í Fnjóskadal,
Þelamörk og Húsavík. Þannig hafa
styrkleikar beggja kerfa verið sam-
einaðir í eitt sem að sögn verður við-
skiptavinum til hagsbóta.
Og Vodafone hefur einnig aukið
þjónustu sína og sölustarf á Akureyri
með því að opna verslun við göngu-
götuna í Hafnarstræti en þar er hægt
að kaupa alla helstu þjónustu félags-
ins.
Unnið hefur verið að því frá liðnu
hausti er félögin voru sameinuð að
sameina farsímakerfin. Því er nú sem
áður segir lokið á Norðurlandi og á
Suðurnesjum og vinna stendur yfir á
Suðurlandi, en fram undan er samein-
ing á höfuðborgarsvæðinu.
Og Vodafone í Eyjafirði
Dreifikerfið eflt
SÝNING á myndum eftir Daða Guð-
björnsson verður opnuð í Safnasafn-
inu – Alþýðulistasafni Íslands á Sval-
barðsströnd, Eyjafirði, á morgun,
laugardaginn 12. júlí kl. 14.
Daði hefur um árabil verið einn af
atkvæðamestu listamönnum þjóðar-
innar og verið virkur í umræðum og
sýningarhaldi segir í frétt um sýn-
inguna. Einnig að hann hafi vakið at-
hygli fyrir beinskeytta nálgun við yf-
irborð hlutanna og svipt hulunni af
því sem þar leynist undir, draumum,
kenndum og væntingum. „Á sýningu
Daða er úrval af uppáhaldsmótífum
hans, þ.á m. beib, bíll og broskall,“
eins og segir í tilkynningu.
Safnasafnið – Alþýðulistasafn Ís-
lands er í stórum garði við hringveg-
inn, 12 kílómetra norðan við Akur-
eyri en þar eru árlega settar upp
margar sýningar, bæði úti og inni.
Safnið er opið daglega frá kl. 10 til
12, en hægt er að panta tíma fyrir
hópa á morgnana og kvöldin.
Daði Guðbjörnsson
sýnir í Safnasafninu
FJÖLBREYTILEG dagskrá verð-
ur á vegum Minjasafnsins á Ak-
ureyri á Íslenska safnadeginum
sem er næsta sunnudag, 13. júlí.
Minjaganga um Þingmannaveg
yfir Vaðlaheiði verður farin frá
Minjasafninu kl. 10 um morgunin.
Leiðsögumaður verður fornleifa-
fræðingurinn Sigurður Bergsteins-
son sem sýnir fyrst minjar á Vaðla-
þingi og síðan fleiri minjar sem
verða á vegi göngufólks yfir heið-
ina.
Í Laufási verður sýning á munum
sem gamla bænum hafa borist á
þessu ári og kennir þar margra
grasa. Í gamla prestshúsinu verða
þjóðlegar og staðgóðar veitingar til
sölu.
Í Minjasafninu á Akureyri hefur
sumarsýningin Dansi, dansi dúkkan
mín notið mikilla vinsælda hjá ung-
um sem öldnum. Í safinu er, auk
fastasýninganna um Eyjafjörð og
Akureyri, leikfangahorn fyrir börn-
in þar sem þau geta horfið í leik inn
í tíma íslenska sveitasamfélagsins
um miðja síðustu öld.
Skráning í ferðina er á skrifstofu
Minjasafnsins en henni lýkur á
föstudag, 11. júlí, kl. 16. Minjasafn-
ið er opið alla daga yfir sumartím-
ann frá kl. 11–17 og gamli bærinn í
Laufási er opinn frá kl. 10–18.
Minjaganga um
Þingmannaveg
MIKIÐ hefur verið um það undanfar-
ið að erlendir ferðamenn hafi komið á
skrifstofu Ferðafélags Akureyrar og
beðið um göngukort en þau eru ekki
til. Sigurbjörg Árnadóttir, starfsmað-
ur félagsins, sagði við Morgunblaðið
að þau ættu til kort af Glerárdalnum,
Vaðlaheiði og Öskjuveginum.
„En við eigum ekki til göngukort
eins og erlendir ferðamenn eru vanir
að vera með í ferðum sínum, það er að
segja kort með hæðarlínum. Ég held
að fyrsta kortið sem er svona útbúið
komi í sumar en það verður af Trölla-
skaganum. Hann er nokkurs konar
alpar Íslands og það er ekki hægt að
láta ferðafólk ganga eftir venjulegum
kortum þar. Það er mjög lítið af
merktum gönguleiðum og því eru góð
kort nauðsynleg,“ sagði Sigurbjörg.
„Við bjóðum bæði upp á stuttar
ferðir í nágrenni Akureyrar sem og
lengri ferðir. Í sumar förum við til
dæmis tvisvar Öskjuveginn, þann 21.
og 25. júlí, en þetta eru sjö daga ferðir
sem eru mjög vinsælar hjá útlending-
um. Ferðafélagið er í fyrsta skipti að
fara í ferð í Reykjafjörð á Ströndum.
Þetta er fimm daga ferð sem hefst í
Norðurfirði á Ströndum þann 23. júlí.
Þátttakendur verða að koma sér
þangað á eigin vegum, en þaðan verð-
ur siglt í Reykjafjörð. Þrír heilir
göngudagar eru í ferðinni og ætlunin
er að ganga einn daginn yfir Reykja-
fjarðarháls að rústum bæjarins í
Þaralátursfirði og síðan út fyrir Þara-
látursnesið og til baka í Reykjafjörð.
Einnig verður vaðið yfir Reykjafjarð-
arósinn, gengið upp Geirólfsgnúp og
farið í Skjaldabjarnarvík og í þriðju
gönguferðinni verður gengið á
Drangjökul. Þessi ferð kostar fé-
lagsmenn 22.000 kr. en fyrir aðra
kostar 25.000. Hægt er að fá nánari
upplýsingar á skrifstofunni hjá okkur
sem er opin virka daga frá 16–10 og í
síma 462-2720. Áhugasamir geta líka
haft samband við Jakob Kárason,
sem verður fararstjóri í ferðinni.“
Þörf á góðum
göngukortum