Morgunblaðið - 11.07.2003, Side 29

Morgunblaðið - 11.07.2003, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 29 NÝLEGA kom út hjá Éditions du Scribe í Quebec í Kanada bókin „Em- bracing the Earth’s Wild Resources – A Global Conservation Vision“ eftir Eugène Lapointe. Bókin er kilja, 167 bls. Hún hefur einnig verið gefin út á frönsku og spænsku og er vænt- anleg á japönsku. Bókin hefur að geyma skoðanir og greiningu höfundar á nýtingu og vernd lifandi auðlinda í heim- inum og yfirlit yfir alþjóðasamninga, al- þjóðastofnanir og frjáls félagasamtök sem sinna þessum málum. Margháttaðar upplýsingar um sjávarspendýr er einnig að finna í bókinni. Höfundurinn Eugène Lapointe er Kanadamaður, fæddur og uppalinn í sveitahéraði í Quebec. Hann segir í for- málsorðum: „Sjö ára gamall var ég farinn að veiða fisk, fugl og héra til að afla fjöl- skyldunni matar en við bjuggum 50 kíló- metra frá siðmenningunni. Þarna lærði ég að til þess að lifa af verður maður að fara sparlega með gjafir móður náttúru. Við höfðum ekkert rafmagn, engar búðir, engan skóla. Við vorum náttúrunni háð um kjöt, fisk og eldivið. Við áttum henni líf að launa.“ Bókin er helguð sjálfbærri nýtingu lif- andi auðlinda náttúrunnar, ekki síst sjáv- arspendýra, en fiskistofnar og aðrar dýrategundir svo sem fílar, sæskjaldbök- ur og hákarlar koma einnig við sögu. Fáir eru betur til þess fallnir að fjalla um þessi mál en Eugène Lapointe. Hann hefur verið ötull baráttumaður fyrir sjálfbærri nýtingu í meira en tvo áratugi. Hann var yfirmaður skrifstofu CITES- samningsins um bann gegn viðskiptum með afurðir dýra í útrýmingarhættu, frá 1982 til 1990. Háttsettir bandarískir embættismenn og 28 samtök sem kenna sig við umhverfisvernd höfðu forgöngu um að hrekja hann úr starfi í nóvember 1990 með upplognum ásökunum um spill- ingu. Honum var lýst sem ótíndum glæpamanni, „spilltasta embættismanni Sameinuðu þjóðanna“ sem bæri ábyrgð á dauða allra fíla í Afríku. Meginástæðan fyrir aðförinni var sú að hann studdi sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda. Eug- ène Lapointe leitaði réttar síns og í mars 1993 skilaði nefnd dómara á vegum Sam- einuðu þjóðanna einróma niðurstöðu: Hann hafði í engu gerst brotlegur í starfi. Hins vegar hafði verið brotið alvarlega á honum með því að víkja honum úr starfi að tilefnislausu. Voru honum dæmdar miskabætur og mannorð hans hreinsað. Eugène Lapointe kaus að hverfa ekki aftur til starfa hjá CITES heldur gekkst hann fyrir stofnun IWMC – World Con- servation Trust(www.iwmc.org) en það er stofnun sem beitir sér fyrir sjálfbærri nýtingu lifandi auðlinda náttúrunnar og hefur mjög látið til sín taka á alþjóðavett- vangi undanfarin ár. Frá þessu segir nánar í 7. kafla bókarinnar. Í bókinni flytur hann mál sitt af sann- færingarkrafti þess sem gjörþekkir efnið og freistar þess að gefa heildarsýn yfir stöðu þessara mála í veröldinni í dag. Gagnrýni hans á öfgasamtök, sem kenna sig við náttúrvernd og beita ósannindum og hálfsannleik til að hafa fé af fólki, er sannfærandi, beinskeytt og vel rökstudd. Hann flettir ofan af hræsni og tvískinnungi sem einkennir málflutn- ing margra þessara samtaka. Í bókinni er gefin glögg mynd af því hvernig and- stæðingum sjálfbærrar nýtingar lifandi auðlinda hefur tekist að snúa tveimur al- þjóðasamningum um vernd og nýtingu dýrastofna upp í andhverfu sína. Þetta eru samningurinn um stjórn og þróun hvalveiða sem starf Alþjóðahvalveiði- ráðsins byggist á og CITES-samningur- inn. Lærdómsrík lesning. Ekki er síður fróðlegt að lesa skrif hans um hugsjónaárekstrana milli þeirra sem lifa í nánu sambandi við náttúruna og nýta hana sér til lífsviðurværis og borgarbúa vestrænna samfélaga sem sumir hverjir telja það villimennsku og jafnvel jaðra við mannát að neyta kjöts af sjávarspendýrum, – hvölum og selum. Margir íbúar Vesturlanda lifa svo langt frá náttúrunni og eru svo veruleikafirrtir að það hvarflar varla að þeim að það þurfi að deyða dýr til þess að þeir geti lagt sér kjöt til munns. Margir muna þegar Grænfriðungar eyðilögðu markað Grænlendinga fyrir selskinn og kipptu stoðunum undan at- vinnu og lífsviðurværi fjölmargra byggð- arlaga í Grænlandi þar sem lífið var sel- veiðar. Máttu svo ferðast um landið síðar og biðja Grænlendinga afsökunar. Þeir vissu ekki hvað þeir voru að gera. Það var of seint í rassinn gripið. Íbúar stórborganna í velmegunarsam- félögum Vesturlanda hafa engan rétt til þess að leggja öðrum lífsreglurnar í um- gengni við lifandi auðlindir náttúrunnar og þröngva malbikuðum skoðunum sín- um upp á þá sem lifa í sátt við náttúruna. Fyrir þjóð eins og Íslendinga sem á allt sitt undir sjálfbærri nýtingu lífrík- isins í hafinu umhverfis Ísland er þessi bók ekki bara fróðleg lesning, heldur greiðir hún leið nýjum skilningi á því sem er að gerast í þessum efnum í veröldinni. Þar á sér stað þróun sem við þurfum að gefa gaum og bregðast við. Þessi bók ætti að vera skyldulesning hjá stjórn- málamönnum og fjölmiðlamönnum. Höf- undurinn spyr til dæmis: Hvernig stend- ur á því að á fundum CITES-samningsins eru tugir fulltrúa frá alls kyns samtökum sem kenna sig við umhverfisvernd en eru í rauninni að berj- ast gegn sjálfbærri nýtingu, – vilja stöðva alla nýtingu og telja það af hinu góða, en á fundunum sést yfirleitt ekki einn einasti fulltrúi samtaka sem styðja sjálfbæra nýtingu. Þar er enginn frá samtökum fiskimanna og fiskvinnslu eða frá frumbyggjum. Þessu hafa fleiri velt fyrir sér sem hafa sótt þessa fundi og orðið vitni að vinnubrögðum svokallaðra náttúruverndarsinna þar. Bókin geymir greinargott yfirlit yfir það alþjóðastarf sem nú fer fram á þessu sviði svo og skrá yfir helstu frjáls félaga- samtök sem segjast starfa að náttúru- vernd. Þeim skiptir höfundur í þrjá flokka: a) Hin margræðu (stundum já- kvæð, stundum neikvæð). Í þann flokk setur hann World Wildlife Fund, sem með fjárframlögum hefur stutt hvala- skoðun á Íslandi. b) Öfgasamtök (einkum samtök sem kenna sig við réttindi dýr- anna). Þar í flokki eru m.a. Greenpeace og Animal Welfare Institute. c) Um- hverfis-hryðjuverkasamtök (Eco-terror- ists). Í þeim hópi eru PETA-samtökin (People for Ethical Treatment of Ani- mals), sem staðið hafa að margháttuðum skemmdarverkum og Sea Shepherd- samtökin, sem framið hafa ódæðisverk á Íslandi. Samtals hafa þessi samtök úr að spila tugum ef ekki hundruðum milljóna doll- ara á ári. Það er galli á bókinni, að í henni er ekki atriðisorðaskrá eða nafnaskrá. Þannig mundi hún nýtast enn betur sem upp- flettirit. Úr þeim ágalla verður vonandi bætt í næstu útgáfu. Jafnvel þeir sem telja sig þekkja sæmi- lega vel til þessara mála verða margs vís- ari við lestur þessarar bókar. Hún vekur okkur til umhugsunar um mál sem skipta sköpum fyrir okkur Íslendinga. Sjálfbær nýting lifandi auðlinda Eftir Eið Guðnason Höfundur er fyrrverandi umhverfisráðherra. eidur@sw2.com.cn Bókin „Embracing the Earth’s Wild Resources – A Global Conservation Vis- ion“ eftir Eugène Lapointe hefur að geyma skoðanir og greiningu höfundar á nýtingu og vernd lifandi auðlinda í heiminum og yf- irlit yfir alþjóðasamninga, alþjóðastofnanir og frjáls félagasamtök sem sinna þessum málum. sig síður úr hópnum en í almenna skóla- kerfinu. Báðir þessir valkostirnir höfðu kosti og galla. „Almenna grunnskólakerfið styður að því er virðist ekki nægilega við þessi ungmenni, hvorki námslega né félagslega. Þar geta fatlaðir einstaklingar orðið meira og meira utanveltu og upplifað sig eina. Þeir geta líka orðið fyrir einelti, sem er einkenni á grunnskólanum en miklu síður framhaldsskólunum, þar sem þeim getur hins vegar fundist þau nær ósýnileg.“ Þau eru samt sem áður líklegri til að enda á „þjóðveginum“ og taka virkari þátt í dag- legu lífi í samfélaginu. Börn sem eru alltaf í sérdeildum, sérskólum, sérsumarbúðum og vernduðum vinnustöðum taka hins vegar lítinn sem engan þátt í daglegu samfélagi. Þeir einstaklingar úr þeim hópi sem Dóra talaði við upplifðu sig oft sem valdalitla eða alveg valdalausa og lifðu í mjög lokuðum heimi án raunverulegs möguleika á því að verða fullorðnir á venjulegan hátt. Umhyggja verður að forræðishyggju Dóra segir það vera sér sérstakt áhyggjuefni þegar fólk heldur að það viti hvað geri aðra hamingjusama, þvert á vilja þeirra sjálfra, sama hversu vel fólk meinar. Hún segir það eiga jafnt við fag- fólk svo sem lækna og sérkennara, starfs- fólk sérstofnana og foreldra. „Það er vel meinandi, gott fólk sem tel- ur sig vera að gera fötluðu fólki gott. En foreldraástin eða umhyggja fagmannsins getur farið yfir í það að halda að maður telji sig vita hvað öðrum er fyrir bestu. Dæmi eru um það í gögnum að foreldrar og aðrir ráðskist með vináttu, ást og kynlíf ungmennanna. Umhyggjan getur breyst í forræðishyggju sem verður þá eins og aukabaggi á einstaklingnum.“ „Við getum kannski aldrei komið í veg fyrir þetta, en ég held að við getum lært afskaplega margt af því að hlusta á raddir til dæmis þessara ungmenna sem ég talaði við. Þau eru svo sannarlega sérfræðingar í því hvað það er að vera fatlaður á Íslandi.“ Þurfa fjölbreytileika samfélagsins Menningarleg merking þess að verða fullorðinn virðist ekki vera innan seilingar fyrir allan þorra unga fólksins sem Dóra ræddi við, á sama hátt og fyrir ófatlaða Ís- lendinga. Sumir velja þó þá leið að gerast meðlimir í menningarsamfélagi fatlaðs fólks sem það stýrir sjálft. „En það að ger- ast meðlimur í sérstakri menningu fatlaðs fólks getur haft bæði jákvæðar og nei- kvæðar hliðar.“ Annars vegar greiða slík samfélög fyrir gagnkvæmum stuðningi, samhyggð og viðurkenningu á því sem gerir viðkomandi „öðruvísi í stóra samfélaginu“. Hins vegar má færa rök fyrir því að með því að læra að meðtaka og virða margbreytileika mannlegs samfélags þá sé lagður grunnur að umburðarlyndara og öflugra lýðræð- issamfélagi fyrir okkur öll. „Ef til vill ligg- ur svarið í því að fatlað fólk þurfi hvort tveggja, aðild og viðurkenningu innan eig- in raða og innan meginstraums sam- félagsins,“ segir Dóra að lokum. og jafnvel kærasta eða kærustur. Þau áttu hins vegar næstum enga ófatlaða vini og vegna þess að lífi þeirra er mjög mikið stýrt er erfitt fyrir þau að hitta vinina ut- an skóla, þá gjarnan við einhverjar að- stæður sem foreldrar og fagfólk skipu- leggur og stýrir.“ „Þessi ungmenni hugsa um sig sem yngri en þau eru, þau hafa sömu drauma og við flest hin, en kannski síður von um að þessir draumar rætist fljótlega, upp- fylling þeirra er í fjarlægri framtíð. Mér sýndist þau hugsa um sig eins og þau væru að hefja unglingsárin og umhverfið kemur fram við þau eins og þau séu það.“ Dóra segir að þessi hópur sé staddur í ein- hvers konar tilbúnum heimi þar sem þau geta í raun verið börn allt sitt líf. Þau sögðu henni oft frá draumum um að búa ein, með maka og jafnvel eignast börn, en ólíkt ófötluðu fólki á þeirra aldri eru þetta fjarlægir draumar sem þau eiga ekki von á að verði fyrr en í fjarlægri framtíð. „Á milli þessara tveggja vega eru svo sjö ungmenni sem ég talaði við í rann- sókninni minni sem ég líki við hirðingja. Þau komast upp á hvorugan veginn, eru hvorki með í sérsamfélaginu né í almenna samfélaginu,“ segir Dóra. Þessir ein- staklingar reika um og reyna oft að kom- ast upp á annan hvorn veginn án mikils árangurs. „Þetta unga fólk hafði allt reynslu af allskyns skólum. Foreldrum þeirra svip- aði til foreldra ungmenna í hinum hóp- unum, nema að því leyti að foreldrar unga fólksins í þessum hópi virtust síður sam- mála um það hvernig best væri að haga fjölskyldulífi og samskiptum við fagfólk.“ Einkennin á því unga fólki sem tilheyrir þessum hópi er að þau virðast flakka á milli brautanna en tilheyra hvorugri. Þau áttu enga raunvörulega vini, aðeins „laun- aða vini“ og „hæ-vini“. Ákvarðanir foreldra skiptu höfuðmáli Ákvarðanir sem foreldrar fötluðu ung- mennanna sem Dóra talaði við tóku skiptu mestu fyrir það á hvaða vegi börn þeirra lentu síðar í lífinu. „Það fyrsta sem hafði áhrif á eftir hvaða vegi þau fóru eru þær ákvarðanir sem foreldrar tóku, jafnvel þegar börnin voru mjög ung. Af þessari rannsókn sýnist mér að eðli stuðnings við foreldra og hver veitir þennan stuðning, hvort það er fagfólk eða fjölskyldan, það hefur mikil áhrif á hvernig foreldrarnir velja.“ „Hluti af foreldrum valdi það úr sér- þjónustunni sem passaði við þeirra heim- ilishald og fjölskylduaðstæður en annað ekki. Þessir foreldrar voru líklegri til að notfæra sér stærri skammta almennrar þjónustu en sérþjónustu og setja börnin sín í almenna kerfið. Svo var líka hluti af foreldrum sem fengu enga þjónustu og höfðu ekkert val annað en að setja barnið sitt í almenna kerfið. Síðan tók almenna kerfið við og þar sköpuðust allskonar tengsl milli barna og fullorðinna og milli fatlaðra og ófatlaðra barna innbyrðis.“ Aðrir foreldrar tóku aðrar ákvarðanir um hvað þeim fannst vera barni sínu fyrir bestu. Þeir völdu oft allan þann sérhæfða stuðning og sérkennslu sem barnið átti möguleika á og vildu frekar að barnið þeirra væri með öðrum fötluðum börnum þar sem þau voru ekki „öðruvísi“ og skáru þessarar myndlíkingar t fólk sem hafði verið í sér- heldur en í almennum kerf- gt að segja að þetta fólk öngum og oft skjólgóðum u voru frekar í sérdeildum, sumarbúðum og einhverjir daða vinnustaði. Mörg þess- voru afskaplega sátt við líf ini innan þessara sérkerfa við Oslóarháskóla á þjóðhátíðardaginn 17. júní er að sár n til þess að nu með þeim jarnason s heyrast og í r hún frá rsritgerð Morgunblaðið/Jim Smart ra S. Bjarnason varði dokt- na í fötlunarfræðum við a í Noregi. brjann@mbl.is Presslink ra nemandi við há- dinn í hjólastól og þarf tar athafnir daglegs gði með Lárusi vini sín- ig var í háskóla og s við að aðstoða Þór. taf verið svo heppinn. nn að ég kynntist kum í framhaldsskól- álpuðu mér. Þeir voru var sérstaklega hepp- st Lárusi ... Að hugsa yldi endast ... að hann oma hingað í skóla ... ægt að eiga betri 1 árs kona með þroska- ún stundar nám á veg- sfræðslu fatlaðra. gslynd og á marga vini, og stelpur.Við hittumst á kvöldin. Vinir mínir ð að gera [eru í skipu- ömmum]. Við hittumst í á daginn, en erum oft- völdin. Ég hringi oft í ún í mig. Við heimsækj- a, ef þau keyra ... Mér aman að hlusta á tón- m um allt mögulegt, ég únu ef mér líður illa, og a sagt mér það. Hún er óð við mig.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.