Morgunblaðið - 11.07.2003, Síða 42
DAGBÓK
42 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Caronia kemur og fer í
dag. Mánafoss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Orlik og Haukur koma
í dag, Rán fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14.
Árskógar 4. Smíða-
stofan er lokuð til 11.
ágúst. Handa-
vinnustofan er lokuð
vegna sumarleyfa.
Púttvöllur opinn mánu-
dag til föstudags kl. 9–
16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
frjálst að spila í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við böðun, hár-
greiðslustofan opin.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
applikering, kl. 10–13
opin verslunin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9.30
gönguhópur, allir vel-
komnir, kl. 9–12 bað, kl.
9–16 opin vinnustofa.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 „opið
hús“spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Skrifstofan er lokuð frá
og með 30. júní til 6.
ágúst. Viðvera í Gjá-
bakka fellur niður á
sama tíma.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Billjard
kl. 13.30, brids kl 13,
púttæfingar á Hrafn-
istuvelli kl 14–16.
Púttmót við Púttklúbb
Hrafnistu á þriðjudag-
inn 15. júlí, mæting kl.
13.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Útvarp Saga
94,3 þáttur um málefni
eldri borgara. S.
588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað vegna sum-
arleyfa til 12. ágúst.
Sund og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug á
mánudögum, mið-
vikudögum og föstu-
dögum kl. 9.30.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, leiðbeinandi á staðn-
um kl. 9.30–16. Kl.
13.15 brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Gullsmári, Gullsmára
13. Lokað vegna sum-
arleyfa til 5. ágúst.
Hárgreiðuslustofan og
fótaaðgerðarstofan
verða opnar.
Hraunbær 105. Kl. 9
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
10 pútt.
Hvassaleiti 58–60.
Hársnyrting fótaað-
gerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
17, hárgreiðsla.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl. 13.30–
14.30. Sungið við flyg-
ilinn, kl. 14.30–16 dans-
að í aðalsal.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30 morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerð, kl. 13.30 bingó.
FEBK. Brids spilað kl.
13.15 í Gjábakka.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Minningarkort
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eft-
irtöldum stöðum: í síma
588-9220 (gíró) Holts-
apóteki, Vesturbæj-
arapóteki, Hafnarfjarð-
arapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elías-
dóttur, Ísafirði.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd á
skrifstofutími í síma
552-4440 frá kl. 11–15.
Kortin má einnig panta
á vefslóðinni: http://
www.parkinson.is/
sam_minning-
arkort.asp
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s. 562-
5605, bréfsími 562-
5715.
Minningarkort
Krabbameinsfélags
Hafnarfjarðar (K.H.),
er hægt að fá í Bókabúð
Böðvars, Reykjavík-
urvegi 64, 220 Hafn-
arfirði s. 565-1630 og á
skrifstofu K.H., Suð-
urgötu 44, II. hæð, sími
á skrifstofu 544-5959.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félags-
ins eru afgreidd í síma
540 1990 og á skrifstof-
unni í Skógarhlíð 8.
Hægt er að senda upp-
lýsingar í tölvupósti
(minning@krabb.is).
Í dag er föstudagur 11. júlí, 192.
dagur ársins 2003. Benedikts-
messa á sumri. Orð dagsins: En
hjálparinn, andinn heilagi, sem
faðirinn mun senda í mínu nafni,
mun kenna yður allt og minna yð-
ur á allt það, sem ég hef sagt yður.
(Jóh. 14, 25.)
Andrés Magnússonblaðamaður brá sér
til Grænlands um dag-
inn. Það varð honum til-
efni til að skrifa um sam-
göngur á Íslandi og gerð
Héðinsfjarðarganga fyrir
norðan. „Göngin eiga að
liggja í gegnum tvö fjöll
og um botn Héðins-
fjarðar og tengja saman
Siglufjörð og Ólafsfjörð.
Herlegheitin eiga að
kosta 6,2 milljarða
króna, en á Siglufirði
búa um 1.500 manns og
á Ólafsfirði um 1.000
manns. Samtals eru íbú-
ar svæðisins því um
2.500, sem þýðir að
kostnaður við göngin á
hvern íbúa hefði að
minnsta kosti verið um
2,5 milljónir króna og
kostnaður á fjögurra
manna fjölskyldu þar
með um 10 milljónir
króna.“
Hann segir að gönginmuni raunar nýtast
Siglfirðingum mest. „[E]f
kostnaðinum er ein-
göngu deilt niður á þá
verður hann rúmar 4
milljónir króna á nef
hvert, eða ríflega 16
milljónir króna á hverja
fjögurra manna fjöl-
skyldu. Væri þá ekki ein-
faldara og ódýrara að
gefa hverri fjölskyldu
sérstaklega búinn glæsi-
jeppa? Þeir hjá Arctic
Trucks í Kópavogi hafa
farið á Suðurheimskautið
á jeppunum sínum og
slíkir ofurjeppar hljóta
að duga Siglfirðingum.“
Andrés setur þetta íannað samhengi og
ber þessar framkvæmdir
fyrir norðan við sam-
gönguframkvæmdir á
höfuðborgarsvæðinu. Ef
kostnaður á hvern íbúa
væri jafn mikill væri
hægt að ráðast í fram-
kvæmdir fyrir 450 millj-
arða króna. „Og þegar
menn eru farnir að tala
um aura af þeirri stærð-
argráðu fer rugl eins og
neðanjarðarlestarkerfi
eða ofurleiðarabraut til
Keflavíkur allt í einu að
meika sens. Og af hverju
að hætta þar? Af hverju
skyldu Íslendingar ekki
hleypa eigin geim-
ferðaáætlun af stokk-
unum? Ég gáði að því á
Netinu í gærkvöldi og
hvert flug geimskutl-
unnar kostar ekki nema
um 46 milljarða króna,
þannig að með sömu
kostnaðarréttlætingu og
menn hafa í flimtingum
vegna Héðinsfjarð-
arganga gæti höfuðborg-
arsvæðið eitt sent geim-
skutluna í tíu ferðir. Og
mér skilst að það sé
hægt að fá miklu betri
díla bæði hjá Kínverjum
og Rússum. Eða eiga
ekki allir fjórar millj-
ónir, sem þeir eru stein-
hættir að nota?
Það getur verið að Sigl-
firðingar séu svekktir yf-
ir frestun ganga-
gerðarinnar, en ég er
satt að segja enn meira
fúll yfir þeim degi þegar
lagt verður í hana. Ég er
byrjaður að finna til í
veskinu,“ segir Andrés
Magnússon.
STAKSTEINAR
Samgöngur í ógöngum
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI kom akandi til borg-arinnar eftir ferðalag um Suður-
land á dögunum og á Suðurlandsvegi,
skammt neðan Rauðavatns, voru ein-
hverjar framkvæmdir við veginn.
Þar ók Víkverji fram á skilti, þar sem
stóð „vinnusvæði lokið“. Ósjálfrátt
velti Víkverji því fyrir sér hvort
þarna vantaði eitt orð; kannski ætti
að standa þarna „vinnusvæði – lokið
hliðinu“ eða „vinnusvæði – lokið bíl-
glugganum.“ Ferðafélagar Víkverja
bentu honum hins vegar á að þetta
ætti líklega að þýða að þarna endaði
vinnusvæðið. Víkverja finnst þetta
skrýtin málnotkun. Lýkur vinnu-
svæðum? Enda þau ekki bara?
Myndi einhver segja: „Veginum lýk-
ur hér“? Bókum, kvikmyndum og
leikritum lýkur, jafnvel pistlum í dag-
blöðum. Málum, rannsóknum og deil-
um lýkur en Víkverji er alveg harður
á því að vinnusvæði og vegir enda
bara.
x x x
VÍKVERJI hefur hugboð um að ílandinu sé að störfum raðinn-
brotsþjófur, sem brýzt inn á veit-
ingastaði í júlímánuði á þriggja ára
fresti. Innbrotin virðast ekki framin í
auðgunarskyni, því að litlu eða engu
er stolið, en þau hafa augljósa vísun í
klassískar brezkar bókmenntir, nán-
ar tiltekið söguna af Hróa hetti. Ný-
lega brauzt þjófurinn inn á veitinga-
staðinn Tóka munk á Þingeyri. Ekki
er ljóst hvort neinu var stolið í því
innbroti, skv. frétt á mbl.is. Fyrir
réttum þremur árum, í júlí árið 2000,
birtist frétt í Morgunblaðinu undir
fyrirsögninni „Stolið frá Hróa hetti“.
Þar sagði frá því að brotizt hefði ver-
ið inn á flatbökustaðinn, sem ber nafn
útlagans sem forðum stal frá þeim
ríku til að gefa þeim fátæku – en þeg-
ar upp var staðið, kom reyndar í ljós
að litlu sem engu hafði verið stolið.
Víkverji vonar að lögreglan hafi
áttað sig á tengslum „Skírisskógar-
innbrotanna“ og sé á varðbergi gagn-
vart þessum bókmenntalega sinnaða
raðinnbrotsþjófi. Ef einhver á veit-
ingastað, sem heitir Litli-Jón eða Vil-
hjálmur skarlat, ætti hann líklega að
passa sig í júlímánuði 2006, sé kenn-
ing Víkverja rétt.
x x x
FLUGLEIÐIR hafa verið gagn-rýndar dálítið fyrir að gera út á
staðalmyndir af kynjunum í auglýs-
ingum sínum. Einhver hefði nú hald-
ið að nóg væri búið að berja á flug-
félaginu til þess að það væri farið að
passa sig í markaðssetningu sinni.
Kunningi Víkverja framsendi hon-
um tölvupóst frá Netklúbbi Flug-
leiða, þar sem boðið er upp á flug til
Barcelona. Þar er svo jafnframt getið
um viðburði í borginni: „Catalonian
Moto GP 15. júní – kappakstur fyrir
karlmennina. Tom Jones í Palau Sant
Jordi 15. júní – tónleikar fyrir kven-
mennina.“
Kunninginn, sem er karlkyns
aðdáandi Tom Jones en hefur lítinn
áhuga á kappakstri, var hneykslaður
á tölvupóstinum og fannst hann
benda til að Flugleiðafólk hefði lítið
lært.
Reuters
Tom Jones – bara fyrir kvenfólk?
Hættið að
barma ykkur
ÉG SEM ellilífeyrisþegi
fer fram á að ráðamenn
landsins hætti að væla um
hvað við gamla fólkið í
landinu séum mikill baggi
á öllum sviðum, að sjúkra-
kostnaður sé að sliga ríkið
og þar séu gamlir vandinn.
Hættið að barma ykkur.
Þið borgið þýsku forseta-
veisluna, en við ellilífeyr-
isþegar höfum engan
áhuga á fínustu og dýrustu
kjólunum.
Strípaður
ellilífeyrisþegi.
Þakkir til Helga í Góu
KONA ein hringdi í Vel-
vakanda og vildi koma á
framfæri þakklæti til
Helga hjá Góu. Hún vildi
þakka honum fyrir veittan
stuðning á Dýrafjarðar-
dögum og vonaði að hann
dafnaði sem lengst.
Þvílík skömm
ÖKUMENN góðir, nú
verðið þið allir að taka
ykkur á og fara að nota
stefnuljós. Ég þurfti að
taka leigubíl fyrir skömmu
og fór að rabba við bíl-
stjórann. Talið barst að
ökumönnum hér á landi.
Hann fræddi mig um það
að hann hefði lesið grein í
blaði um að könnun hefði
verið gerð í Bandaríkjun-
um. Niðurstaða könnunar-
innar var sú að þeir sem
ekki notuðu stefnuljós
hefðu lægri greindarvísi-
tölu en hinir sem það
gerðu. Þvílík skömm. Les-
andi góður, hver er þín
greindarvísitala? Nógu há
til þess að nota stefnuljós?
Stefnuljósanotandi.
Tapað/fundið
Bíllykill tapaðist
SUNNUDAGINN 29. júní
sl. týndist bíllykill á lykla-
kippu. Lykillinn týndist
líklega á Hellu, golfvellin-
um við Hellu, tjaldsvæðinu
Laugalandi eða á þessu
svæði. Þetta er þykkur
lykill og lyklakippan er
„mini-“útgáfa af svissnesk-
um hníf og er merkt RES-
INO. Finnandi vinsamleg-
ast hafi samband í síma
698 7576 eða skili honum í
afgreiðslu sundlaugarinnar
á Hellu.
Rautt veski tapaðist
HINN 5. júlí sl. tapaðist
rautt veski. Líkur eru á að
veskið, sem er leðurveski
úr Debenhams, hafi tapast
fyrir utan Smáralind eða
10/11 á Grensásvegi. Í
veskinu voru skilríki af
ýmsum toga. Veskið hefur
notagildi jafnt sem tilfinn-
ingagildi fyrir eigandann.
Skilvís finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 698 0273.
Dýrahald
Síamsfress
hljópst á brott
ÞESSI síamsfress tapaðist
frá Móbergi í Setbergs-
hverfi. Ef einhver verður
hans var er sá sami vin-
samlegast beðinn að hafa
samband í síma 565 2581
eða 899 0316.
.
Gráir, hvítir og
kassavanir
KETTLINGAR fást gef-
ins. Þeir eru gráir og hvítir
og kassavanir. Nánari upp-
lýsingar í síma 564 4025
eða 862 5103.
Þrír kettlingar
fást gefins
ÞRÍR kassavanir kettling-
ar fást gefins. Upplýsingar
í síma 663 5906.
Ólafía fæst gefins
KISAN mín er þrílit, þrifin
og gæf. Hún er 8 ára göm-
ul og þyrfti að komast á ró-
legt heimili. Hún getur
ekki dvalist á núverandi
heimili vegna ofnæmis.
Upplýsingar í síma
866 2352.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
LÁRÉTT
1 myndarleg, 8 ófram-
færni maðurinn, 9 minn-
ast á, 10 tala, 11 vitlausa,
13 raunin, 15 slátra, 18
búa til saft, 21 lengd-
areining, 22 skrifar, 23
viljuga, 24 brjóstbirtu.
LÓÐRÉTT
2 Asíuland, 3 skrika til, 4
sigruðum, 5 örðug, 6
gauf, 7 erta, 12 gljúfur,
14 geisa, 15 gamall, 16
smá, 17 ákveð, 18 mikli,
19 fáni, 20 eðlisfar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 þyrma, 4 hækil, 7 áburð, 8 ýlfur, 9 nár, 11 rótt,
13 ónáð, 14 ágeng, 15 jarl, 17 nema, 20 Ægi, 22 dapur,
23 læðan, 24 sárin, 25 tærar.
Lóðrétt: 1 þráir, 2 raust, 3 auðn, 4 hlýr, 5 kofann, 6 lær-
ið, 10 áfeng, 12 tál, 13 ógn, 15 Júdas, 16 rípur, 18 eiður,
19 Agnar, 20 æran, 21 illt.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16