Morgunblaðið - 11.07.2003, Side 44
KNATTSPYRNA
44 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„ÉG held að þetta séu fyrstu skot
mín á markið í sumar,“ sagði
Eyjamaðurinn Atli Jóhannson
sem skoraði tvívegis gegn Skaga-
mönnum í gær og var besti maður
liðsins í 3:0 sigurleik gegn ÍA.
Þess ber að geta að þetta eru
fyrstu mörk Atla í sumar í Lands-
bankadeildinni. „Magnús (Gylfa-
son) þjálfari okkar lagði áherslu
á að við héldum stöðum okkar á
vellinum og við áttum að berjast
um hvern einasta bolta og það
tókst afbragðsvel. Það var á
brattann að sækja fyrir ÍA eftir
að þeir urðu manni færri en við
nýttum vel þau færi sem við feng-
um í þessum leik. Ég held að liðið
sé að slípast betur saman og ég
er bjartsýnn á framhaldið, náum
við að leika af sömu getu í næstu
leikjum,“ sagði Atli.
Gerðum flest rétt
Magnús Gylfason þjálfari ÍBV
viðurkenndi fúslega að hann hefði
vel getað unað við jafntefli á
Akranesi en var ánægður með
hvernig herbragð hans hefði
lukkast. „Við gerðum flest rétt í
þessum leik og ég er afar ánægð-
ur með að hafa náð þremur stig-
um. Það var markmiðið að halda
hreinu og það hefur verið okkar
sterkasta hlið það sem af er og ég
tel að við höfum ekki gefið nein
færi á okkur í þessum leik.“
Magnús var ekki viss um að lið
hans væri í toppbaráttunni með
13 stig er mótið væri hálfnað en
væri á þeim stað sem hann hefði
vonast til áður en mótið hófst.
„Eigum við ekki að segja að við
séum um miðja deild og við erum
á þeim stað sem við ætluðum okk-
ur enda vitað að sumarið gæti
orðið okkur erfitt. Ég er sáttur
við 13 stig og nú er bara að tak-
ast á við næstu verkefni með
sama hugarfari. Þetta var fínn
leikur hjá okkur enda höfum við
átt í vandræðum með að skora
eftir að Steingrímur Jóhannesson
meiddist á höfði og það er óvíst
hvort eða hvenær hann verður
með á ný. En það var gaman að
sjá hvernig við leystum okkar
vanda í þessum leik,“ sagði Magn-
ús þjálfari Eyjamanna eftir sig-
urinn góða á Skagamönnum.
„Bjartsýnn á framhaldið“
ÍA 0:3 ÍBV
Leikskipulag: 4-3-3 Landsbankadeildin,
9. umferð
Akranesvöllur
Fimmtudaginn 10. júlí 2003.
Aðstæður:
Strekkingsvindur af norð-
austri, þurrt, skýjað, völlurinn
góður.
Hiti um 12 stig.
Áhorfendur: 1.015.
Dómari:
Garðar Örn Hinriksson, Þrótt-
ur R., 4.
Aðstoðardómarar:
Ólafur Kjartansson, Eyjólfur
Finnsson.
Skot á mark: 9(3) –8(4)
Hornspyrnur: 5 – 3
Rangstöður: 5 – 4
Leikskipulag: 4-4-2
Þórður Þórðarson
Pálmi Haraldsson
Reynir Leósson
Gunnlaugur Jónsson
Aleksandar Linta
Baldur Aðalsteinsson
(Guðjón H. Sveinsson 29.)
Grétar Rafn Steinsson M
Julian Johnsson M
Ellert Jón Björnsson
(Kári Steinn Reynisson 53.)
Garðar Gunnlaugsson
(Hjörtur J. Hjartarson 68.)
Stefán Þór Þórðarson
Birkir Kristinsson
Unnar Hólm Ólafsson M
Tryggvi Bjarnason M
Ian Jeffs M
(Pétur Runólfsson 83.)
Hjalti Jóhannesson M
Andri Ólafsson
(Bjarni Rúnar Einarsson 75.)
Bjarnólfur Lárusson M
Bjarni Geir Viðarsson M
Tom Betts
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
(Hjalti Jónsson 88.)
Atli Jóhannsson MM
0:1 (23.) Ian Jeffs fékk knöttinn óvænt við vítateig Skagamanna, lék upp að
endamörkum og gaf fyrir markið þar sem Atli Jóhannsson var mættur
við markteig og skoraði af stuttu færi.
0:2 (49.) Eftir mikið klafs í vítateig ÍA eftir hornspyrnu ÍBV barst knötturinn til
Atla Jóhannssonar sem skallaði hann í markið af stuttu færi.
0:3 (61.) ÍBV fékk innkast við miðlínu, knötturinn barst til Atla Jóhannssonar
sem gaf stungusendingu inn fyrir flata vörn ÍA og hljóp Gunnar Heiðar
Þorvaldsson alla vörn ÍA af sér og skoraði frá vítateigslínu. Þórður
Þórðarson markvörður íA hafði hendur á knettinum en það dugði ekki
til.
Gul spjöld: Stefán Þór Þórðarson, ÍA (45.) fyrir brot. Guðjón H. Sveinsson, ÍA (56.) fyrir
brot. Aleksandar Linta, ÍA (71.) fyrir brot. Gunnlaugur Jónsson, ÍA (76.)
fyrir brot.
Rauð spjöld: Stefán Þór Þórðarson, ÍA (45.) fyrir mótmæli.
Hápunktar fyrri hálfleiks voru ná-kvæmlega þrír, upphafsspyrna
Gísla Gíslasonar, bæjarstjóra Akra-
ness, sem setti þar
með formlega írska
daga sem verða á
Akranesi næstu
daga, mark Atla Jó-
hannssonar á 23. mínútu og tvö gul
spjöld Skagamannsins Stefáns Þórð-
arsonar á 45. mínútu og þar með léku
heimamenn einum færri í síðari hálf-
leik. Reyndar var Stefán ekki enn
kominn í búningsherbergi ÍA áður en
flautað var til leikhlés og staðan var
slæm hjá heimamönnum.
Leikmenn ÍBV flýttu sér hægt í öll-
um sínum aðgerðum frá fyrstu mín-
útu og ætluðu sér ekki að glata stiginu
sem þeir höfðu með sér þegar leik-
urinn hófst en seigla þeirra skilaði sér
þegar á leið. Vörn ÍBV var þétt fyrir
og fengu leikmenn ÍA ekkert svigrúm
til þess að athafna sig í sóknarleikn-
um. Sóknir ÍA voru máttlausar og er
greinilegt að sjálfstraust leikmanna
liðsins er í lágmarki og mátti heyra
saumnál detta á Akranesvelli þegar á
leið leikinn enda yfir litlu að gleðjast –
og reyndar voru flestir stuðnings-
menn ÍA farnir áður en leikurinn var
úti.
Í upphafi síðari hálfleiks gerði Atli
Jóhannsson nánast út um leikinn er
hann bætti við öðru marki fyrir ÍBV á
49. mínútu og eftir markið hertu gest-
irnir tökin í vörninni og einbeittu sér
að því að halda fengnum hlut. Skaga-
menn fengu þrjú færi í síðari hálfleik
sem eitthvað reyndi á vörn ÍBV, Bjar-
nólfur Lárusson bjargaði á línu eftir
hornspyrnu, Julian Johansson skall-
aði í hliðarnetið á 56. mínútu og vara-
maðurinn Hjörtur Hjartarson átti
fínt færi undir lok leiksins.
Hápunktar síðari hálfleiks urðu að-
eins tveir, mark Atla á 49. mínútu og
mark Gunnars Heiðars Þorvaldsson-
ar á 61. mínútu, áttunda mark Gunn-
ars í deildinni.
Herbragð ÍBV heppnaðist fullkom-
lega í gær og áttu heimamenn engin
svör gegn leikaðferð gestanna. Sókn-
in var bitlaus þrátt fyrir að menn
hefðu verið færðir til í stöðum og aðrir
fengju tækifæri á að sanna sig.
„Erum í botnbaráttunni“
Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði ÍA,
var ekki að skafa af hlutunum í bún-
ingsherbergjum liðsins eftir leikinn
og sagði að menn þar á bæ þyrftu að
girða sig í brók. „Við verðum að horf-
ast í augu við það að við erum í botn-
baráttunni og munum ekki gera stór-
kostlega hluti á þessu Íslandsmóti
eins og staðan er í dag. Við höfum
fengið tækifæri til þess að laga stöðu
okkar í deildinni í sl. fjórum umferð-
um en höfum ekki nýtt okkur þá
möguleika. Ég veit ekki hvað er að
hjá okkur en það lítur út fyrir að við
leikum ekki saman sem lið, við erum
11 einstaklingar úti á vellinum sem ná
ekki saman. Við verðum að kippa
þessu í liðinn fyrir næsta leik okkar
gegn FH,“ sagði Gunnlaugur Jóns-
son.
kvað að átti Paul McShane en
hann hitti ekki markið.
Áhorfendur reyndu að hressa
sig í hléinu með kaffi og kakói og
vonuðust eflaust eftir að tesopinn
margfrægi myndi gera slíkt hið
sama fyrir leikmennina. Seinni
hálfleikur hófst hins vegar á svip-
uðum nótum og einkenndu þann
fyrri. Markskotum fór hins vegar
smám saman fjölgandi og munaði
þar mestu um að Grindvíkingar
voru óhræddir við að láta vaða
undan norðankaldanum. Hins veg-
ar var það KA sem náði forystunni
með laglegu skallamarki Steinars
Tenden á 68. mínútu og næstu
mínútur voru heimamenn með frís-
kasta móti. En áður en þeir náðu
að láta kné fylgja kviði jöfnuðu
gestirnir og þann stundarfjórðung
sem eftir lifði leiks voru þeir
sterkari aðilinn. Jafnframt lifnaði
yfir leiknum og liðin fóru að leggja
meiri áherslu á að sækja. Það voru
Grindvíkingar sem náðu að gera
sér meiri mat úr sínum sóknum en
Aðstæður til knattspyrnuiðkun-ar voru nöturlegar; norðan-
átt, rigning og skítakuldi. Enda
var knattspyrnan
sem í boði var ekki
upp á marga fiska
og leikurinn hrein-
lega leiðinlegur á
að horfa lengst af. Fyrri hálfleikur
var skelfilega illa leikinn; leik-
mönnum varð hvað eftir annað
fótaskortur á blautum og hálum
vellinum og tilburðir til samleiks
fóru að mestu út um þúfur. Greini-
legt var að hvorugt liðið vildi tapa
leiknum og engin áhætta var tekin.
Fyrsta markfærið kom um miðjan
hálfleikinn þegar Ólafur Gott-
skálksson bjargaði í horn skoti
Þorvalds M. Sigbjörnssonar KA-
manns. Heimamenn voru illskárra
liðið í hálfleiknum og fengu annað
færi skömmu fyrir hlé þegar Pálmi
Rafn Pálmason skaut aftur fyrir
sig af markteig en boltinn fór yfir.
Grindvíkingar ógnuðu marki KA
lítið og eina skotið sem eitthvað
KA og sigurmarkið sem Ray Anth-
ony Jónsson skoraði var glæsilegt
og yljaði áhorfendum nokkuð. Að
minnsta kosti þeim sem voru á
bandi Grindvíkinga. Ray hefði átt
að skora annað mark í blálokin
þegar hann komst einn gegn Sören
markverði en skaut hárfínt
framhjá.
Grindvíkingar fögnuðu að vonum
vel í leikslok og staða þeirra í
deildinni er nú orðin allt önnur en
fyrir nokkrum vikum. Liðið virtist
traust, vörnin gaf fá færi á sér og
þótt knattspyrnan væri ekki alltaf
áferðarfalleg gáfu aðstæðurnar
ekki tilefni til neinna hundakúnsta.
Liðsmenn KA voru vonsviknir í
leikslok, enda áttu þeir lengst af
síst minna í leiknum. Liðið fær fá
mörk á sig, reyndar næstfæst allra
liða í deildinni það sem af er, en
mætti stundum vera beittara fram
á völlinn. Þorvaldur Örlygsson lék
ekki með þeim að þessu sinni og
skarð hans á miðjunni er geysilega
vandfyllt. Auk þess voru reynslu-
boltarnir Hreinn Hringsson og
Slobodan Milisic á bekknum og
báðir hresstu þeir upp á liðið þeg-
ar þeir komu inn á. En á meðan
liðið nær ekki stigum úr jöfnum
leikjum verður róðurinn erfiður
hjá því.
Fylkismennirnir Kristján Valdimarsson, Finnur Kolbeinsson og
Helgi Valur Daníelsson reyna hér að aftra Valsmanninum
Matthíasi Guðmundssyni frá að ná knettinum í leik liðanna á
Hlíðarenda í gær þar sem Valur fór með sigur af hólmi.
Fjórði sigur
Grindavíkur í röð
GRINDVÍKINGAR héldu sigurgöngu sinni í úrvalsdeild karla áfram í
gærkvöld þegar þeir báru sigurorð af KA á Akureyri, 2:1. Þetta var
fjórði sigurleikur þeirra í röð og að hálfnuðu móti hafa þeir skotist
upp í þriðja sæti deildarinnar, eftir dapra byrjun. KA-menn sitja
hins vegar á botninum, ásamt Fram, en liðin eiga eftir að leika
frestaðan innbyrðisleik.
Valur
Sæmundsson
skrifar
Eyjamenn skelltu
andlausu liði ÍA
Leikgleði, barátta, áræðni og vilji einkenndu aðeins annað liðið í
viðureign ÍA og ÍBV í 9. umferð Landsbankadeildar karla í knatt-
spyrnu í gær. Heimamenn sýndu engin merki um að þeim langaði í
stigin þrjú sem í boði voru á meðan leikmenn ÍBV gerðu það sem
gera þurfti og skoruðu þrjú mörk gegn engu. Botnbaráttan er því
hlutskipti ÍA þessa stundina enda er liðið í áttunda sæti með 10 stig
á meðan ÍBV andar í hálsmálið á liðunum í „efri hluta“ deildarinnar
með 13 stig og er liðið í fimmta sæti.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar