Morgunblaðið - 11.07.2003, Síða 46

Morgunblaðið - 11.07.2003, Síða 46
ÍÞRÓTTIR 46 FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ BJARKI Sigurðsson handknatt- leiksmaður hefur ákveðið að ganga til liðs við sitt gamla félag Víking, en Bjarki hefur leikið með Aftureldingu nær sleitulaust síðustu átta ár, aukinheldur verið þjálfari liðsins undanfarin þrjú ár. Samningur Bjarka við Aftur- eldingu rann út í vor og sagði Bjarki þá að hann ætlaði að taka sér frí frá þjálfun um einhvern ótiltekinn tíma og sú ákvörðun stendur. „Ástæðan er einfaldlega sú að mig langar til þess að ljúka ferl- inum hjá félaginu sem ég ólst upp í,“ sagði Bjarki í samtali við Morgunblaðið spurður um ástæðu félagsskiptanna. „Ég yfirgef herbúðir Aftureld- ingar í sátt við félagið og þá sem hjá því vinna. Í Aftureldingu hef- ur mér liðið vel, félagið hefur gert margt mjög gott fyrir mig á þeim tíma sem ég hef verið í því. Á móti kemur einnig að ég tel mig hafa skilað því til baka til Aftureldingar sem mér var mögulegt. Mig langar hins vegar að leika síðustu leiki mína á ferl- inum hjá því félagi sem ól mig upp sem handknattleiksmann frá barnsaldri til fullorðinsára,“ sagði Bjarki og bætti því við að hann væri ekki að kveðja Mos- fellsbæinn heldur aðeins hand- knattleikslið Aftureldingar. Bjarki var m.a. fyrirliði Aftur- eldingar vorið 1999 þegar liðið varð Íslands- og bikarmeistari. Bjarki Sigurðsson til Víkings FORSETI alþjóða knattspyrnu- sambandsins, FIFA, Sepp Blatter, vill fækka liðum í öllum deildum Evrópu niður í 16 lið til að forðast ofálag á leikmönnum. „Ég tel að þrjátíu deildarleikir sé nóg því ofan á deildarleikina bætast bikarleikir, Evrópuleikir og svo landsleikir hjá fjölda leikmanna. Ég ætla að flytja þessa tillögu á þingi sambandsins sem haldið verður í Katar í október. Í mínum huga verður að gera eitt- hvað í þessum málum því ef leik- menn eiga að leika endalaust mun það bitna á gæðum knattspyrn- unnar og leikmenn munu meiðast enn meira og jafnvel láta lífið. Ég veit að þessi hugmynd mín mun ekki falla alls staðar í kramið og slíkar breytingar eiga sér ekki stað á einni nóttu,“ sagði Sepp Blatter. Mikil umræða hefur verið um álag á knattspyrnumönnum eftir fráfall Marc Vivien Foe í leik Kamerúna og Kólumbíu í Alfu-keppninni sem fram fór í Frakklandi í júní mánuði. Krufning á Foe sýndi hins vegar að um hjartagalla væri að ræða og því ekki hægt að kenna álagi um. Sepp Blatter vill fækka liðum Reuters Sepp Blatter KNATTSPYRNA Efsta deild karla, Landsbankadeild Valur – Fylkir ...........................................1:0 Hálfdán Gíslason 67. KA – Grindavík.........................................1:2 Steinar Tenden 68. – Óli Stefán Flóvents- son 75., Ray Anthony Jónsson 81. ÍA – ÍBV .....................................................0:3 – Atli Jóhannsson 23., 49., Gunnar Heiðar Þorvaldsson 61. Staðan: Þróttur R. 9 6 0 3 17:11 18 Fylkir 9 5 1 3 13:7 16 Grindavík 9 5 0 4 14:15 15 KR 9 4 2 3 10:11 14 ÍBV 9 4 1 4 15:12 13 Valur 9 4 0 5 12:15 12 FH 9 3 2 4 14:15 11 ÍA 9 2 4 3 11:12 10 KA 8 2 2 4 10:11 8 Fram 8 2 2 4 10:17 8 Markahæstu menn: Björgólfur Takefusa, Þróttur R................. 9 Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV ............. 8 Jóhann H. Hreiðarsson, Valur ................... 5 Sören Hermansen, Þróttur R. ................... 5 Haukur Ingi Guðnason, Fylkir .................. 4 Jónas Grani Garðarsson, FH ..................... 4 Sinisa Kekic, Grindavík .............................. 4 Björn Viðar Ásbjörnsson, Fylkir............... 3 Guðjón H. Sveinsson, ÍA............................. 3 Hreinn Hringsson, KA ............................... 3 Sigurbjörn Hreiðarsson, Valur.................. 3 Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR .............. 3 Steinar Tenden, KA .................................... 3 Tommy Nielsen, FH ................................... 3 Veigar Páll Gunnarsson, KR...................... 3 Atli Jóhannsson, ÍBV.................................. 2 Ágúst Gylfason, Fram................................. 2 Grétar Rafn Steinsson, ÍA.......................... 2 Guðmundur A. Bjarnason, Grindavík ....... 2 Gunnar Þór Pétursson, Fylkir ................... 2 Hálfdán Gíslason, Valur.............................. 2 Hjálmar Þórarinsson, Þróttur R. .............. 2 Ingvar Ólason, Fram .................................. 2 Kristján Brooks, Fram ............................... 2 Ólafur Örn Bjarnason, Grindavík .............. 2 Óli Stefán Flóventsson, Grindavík ............ 2 Pálmi Rafn Pálmason, KA.......................... 2 Ray Anthony Jónsson, Grindavík.............. 2 Stefán Þór Þórðarson, ÍA........................... 2 Efsta deild kvenna, Landsbankadeild Stjarnan – ÍBV ..........................................0:0 Staðan: KR 9 8 1 0 44:6 25 Valur 8 6 1 1 29:10 19 Breiðablik 8 6 0 2 26:15 18 ÍBV 8 5 1 2 31:10 16 Stjarnan 8 2 1 5 11:18 7 FH 9 2 0 7 6:33 6 Þór/KA/KS 8 1 0 7 5:26 3 Þróttur/Haukar 8 1 0 7 7:41 3 1. deild karla HK – Haukar .............................................2:0 Hörður Már Magnússon 17., Davíð Magn- ússon 69. Njarðvík – Afturelding............................3:1 Jón Fannar Karlsson 25., Eyþór Guðnason 44., Sverrir Þór Sverrisson 50. – Andri Steinn Birgisson 4. Staðan: Keflavík 8 7 0 1 24:9 21 Þór 9 4 3 2 20:15 15 Víkingur R. 8 4 3 1 10:6 15 Njarðvík 9 3 2 4 15:16 11 Haukar 9 3 2 4 13:14 11 HK 9 3 2 4 11:12 11 Afturelding 9 3 2 4 11:16 11 Breiðablik 8 3 1 4 7:9 10 Stjarnan 8 1 4 3 10:13 7 Leiftur/Dalvík 9 2 1 6 9:20 7 Markahæstir: Jóhann Þórhallsson, Þór............................. 9 Magnús S.Þorsteinsson, Keflavík.............. 7 Þórarinn Kristjánsson, Keflavík................ 7 Stefán Örn Arnarson, Víkingi .................... 5 KÖRFUKNATTLEIKUR Hraðmót ÍR í íþróttahúsi Seljaskóla: ÍR – Grindavík ...................................... 79:87 KR – Fjölnir........................................ 101:74 Keflavík – Haukar .............................. 112:92 KNATTSPYRNA 1. deild karla: Stjörnuvöllur: Stjarnan - Breiðablik ........20 Víkingsvöllur: Víkingur - Keflavík ...........20 2. deild karla: Sauðárkróksvöllur: Tindastóll - ÍR ..........20 Þróttarvöllur: Léttir - Víðir.......................20 3. deild karla: Tungubakkav.: Deiglan - Víkingur Ó .......20 Skallagrímsv.: Skallagrímur - Drangur...20 Þorlákshafnarvöllur: Ægir - Leiknir R....20 Eyrarbakkavöllur: Freyr - Afríka............20 Sandgerðisvöllur: Reynir S. - Árborg ......20 Blönduósvöllur: Hvöt - Neisti H. ..............20 Grenivíkurvöllur: Magni - Vaskur ............20 Vopnafjarðarvöllur: Einherji - Huginn....20 KÖRFUKNATTLEIKUR Hraðmót ÍR í íþróttahúsi Seljaskóla: Keflavík - Grindavík...................................18 ÍR - KR...................................................19.30 Fjölnir - Haukar .........................................21 Í KVÖLD ÚRSLIT Strax í byrjun leiks sást að Stjarn-an ætlaði sér að spila sterkan varnarleik og reyna að beita skyndi- sóknum þegar færi gæfist. Gestirnir náðu ekki að skapa sér neitt marktæki- færi fyrr en á 22. mínútu þegar Margrét Lára Viðars- dóttir átti skalla af fimm metra færi sem María Björg Ágústsdóttir varði vel. Margrét var klaufi að gera ekki betur því hún skallaði beint á Maríu. Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks gerðist ekkert markvert og hvorugt liðanna var nálægt því að skora. Eyja- stúlkur voru miklu meira með bolt- ann, en Stjarnan hélt sig til baka og átti ekki í erfiðleikum með að brjóta á bak aftur sóknarlotur gestanna. Í síðari hálfleik var nánast það sama uppi á teningnum og í þeim fyrri. Fyrsta færið kom ekki fyrr en á 70. mínútu þegar besti leikmaður ÍBV, Karen Burke, átti ágætisskot sem María Björg náði að verja með naumindum. Fyrsta færi Stjörnunnar í leiknum kom tveimur mínútum síðar þegar Auður Skúladóttir átti skalla rétt framhjá marki ÍBV. Á 80. mínútu var Mhairi Gilmour klaufi að koma gestunum ekki yfir en þá fékk hún mjög gott færi en skaut yfir markið af 10 metra færi. Undir lok leiksins voru heimamenn nálægt því að tryggja sér stigin þrjú en þá fékk Guðrún Halla Finnsdóttir ágætisskotfæri, eftir vel útfærða aukaspyrnu Auðar Skúla- dóttur, en Rachel Brown, markvörð- ur ÍBV, varði vel fast skot Guðrúnar. Stjarnan spilaði leikinn mjög skyn- samlega og hefðu með smá heppni getað sigrað í leiknum. Varnarmenn- irnr með Auði Skúladóttur í farar- broddi léku mjög vel. ÍBV náði sér ekki á strik og hættulegasti sóknar- maðurinn, Olga Færseth, fékk ekkert færi í leiknum en hún var undir góðri gæslu varnarmanna Stjörnunnar. Morgunblaðið/Sverrir Karen Burke berst um boltann við Stjörnustúlkurnar Auði Skúladóttur og Elfu Björk Erlingsdóttur. Stjarnan og ÍBV skildu jöfn Atli Sævarsson skrifar STJARNAN og ÍBV gerðu markalaust jafntefli í bragðdaufum leik í Garðabæ í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Eyjastúlkur sóttu meira í leiknum en heimamenn héldu sig til baka og spiluðu sterkan varnarleik sem tryggði þeim eitt stig.  KNATTSPYRNUMAÐURINN Ív- ar Sigurjónsson er genginn til liðs við 1. deildarlið Breiðabliks frá Þrótti. Ívar, sem er 27 ára, verður í leikmannahópi Breiðabliks þegar Blikar halda í Garðabæinn í dag og leika við Stjörnuna.  ÞORVALDUR Makan Sigbjörns- son, fyrirliði KA, fór af leikvelli í gær eftir að hafa fengið höfuðhögg. Ástæða þótti til að láta líta á Þorvald og var hann fluttur með sjúkrabíl til skoðunar á sjúkrahús.  ÞEGAR leikmenn norska úvals- deildarliðsins Lillestrøm mættu á fyrstu æfingu sína eftir tveggja vikna sumarfrí fengu þeir skýr skila- boð frá forráðamönnum liðsins. Þar var þeim bent á þá staðreynd að ef þeir tækju ekki á sig verulega launa- lækkun væri útlit fyrir að félagið yrði gjaldþrota áður en langt um liði.  MEÐ liðinu leika fjórir íslenskir leikmenn, Indriði Sigurðsson, Rík- harður Daðason, Gylfi Einarsson og Davíð Þór Viðarsson. Per Mathisen talsmaður Lilleström segir við stað- arblaðið Romerikesbladet að nú séu flest sund lokuð og aðeins sameig- inlegt átak allra þeirra sem komi að félaginu geti komið félaginu yfir erf- iðasta hjallinn. Ef ekki þá blasi gjaldþrot við hjá félaginu.  KRISTJÁN Gissurarson, stangar- stökkvari úr Breiðabliki, vann í gær til silfurverðlauna á heimsmeistara- móti öldunga í frjálsíþróttum sem fram fer um þessar mundir á Púerto Ríkó. Kristján stökk 4,10 metra í flokki 50–55 ára og var 15 sentímetr- um á eftir Bretanum Allan Williams, sem vann til gullverðlauna.  CRISTIAN Chivu, sem lék með Ajax á síðustu leiktíð, mun ekki fá að ganga til liðs við Roma nema félagið greiði skuld sína gagnvart Sporting Cristal. Roma hefur ekki ennþá borgað Sporting fyrir leikmanninn Gustavo Vassallo Ferrari og því hef- ur FIFA ákveðið að Chivu fái ekki að ganga til liðs við Roma fyrr en liðið hefur gert upp skuld sína við Sport- ing.  ILIJA Petkovic hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Serbíu og Svart- fjallalands í knattspyrnu. Petkovic tekur við af Dejan Savicevic sem sagði starfi sínu lausu í júní mánuði eftir slakt gengi liðsins í undan- keppni Evrópumóts landsliða.  VICENTE DEL BOSQUE, fyrr- verandi knattspyrnustjóri Real Madrid, hefur greint frá því að for- ráðamenn Chelsea hafi haft sam- band við sig og athugað hvort hann hafi áhuga á að taka við Chelsea. Del Bosque ætlar ekki að íhuga það að taka við liðinu á meðan Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri Chelsea, er samningsbundinn félaginu. FÓLK Breytingar á UEFA-keppninni STJÓRN Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, tilkynnti í dag um stórfelldar breytingar á UEFA-keppninni sem taka gildi keppn- istímabilið 2004–2005 en þá verður tekin upp riðlakeppni og færri lið fá tækifæri til þess að taka þátt en áður. UEFA-keppnin verður þrískipt, í fyrstu verður útsláttarkeppni á milli 80 liða, en 96 lið hafa tekið þátt undanfarna áratugi. Það verða 40 lið sem komast áfram í riðlakeppni en riðlarnir verða alls átta. Þrjú efstu liðin úr hverjum riðli komast áfram og við þann hóp bætast átta lið sem falla úr leik í Meistaradeild Evrópu, alls 32 lið. Þau munu leika í útsláttarkeppni þar til úrslit ráðast í keppninni. Þau lið sem leika til úrslita leika 15 leiki í keppninni en í riðla- keppninni verður ekki leikin tvöföld umferð en þess í stað mætast liðin aðeins einu sinni í riðlakeppninni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.