Morgunblaðið - 11.07.2003, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 51
VIÐKUNNANLEGIR tónar óma á
ótrúlegustu stöðum í borginni í
sumar. Þar er á ferð Lúðrasveit
lýðsins, þriggja manna hljómsveit
sem hefur það að markmiði að
koma með tónlistina til almenn-
ings, eins og Guðmundur Steinn
Gunnarsson, forsprakki hópsins,
segir. Hér er á ferð verkefni á
vegum Hins hússins og sækir
bandið heim vistmenn á elliheim-
ilum, leiskóla, sjúkrahús, versl-
unarmiðstöðvar og jafnvel sund-
laugar.
Hópurinn er að starfa í fyrsta
skipti í sumar og segir Guð-
mundur frá: „Stefna hópsins er að
spila stutt frumsamin alþýðulög
sem hljóma eins og enginn hafi
samið þau. Í stað þess að láta fólk
koma til okkar komum við til
fólksins og spilum sérstaklega á
stöðum þar sem fólk hefur oft
ekki tækifæri til að sækja tónlist-
arviðburði.“
Lög hópsins eru þannig samin
af þeim sjálfum og segir Guð-
mundur að þau falli allstaðar í
kramið: „Við höfum tekið upp á
því að spila mikið niðri í bæ og til
dæmis á strætóstöðvum eins og
Hlemmtorgi og í Mjódd við góðar
undirtektir. Það er líka gaman að
sjá hvað fólk verður hissa þegar
við spilum á stöðum þar sem fólk
á annars ekki von á tónleikum,
eins og í sundlaugunum.
Guðmundur er sjálfur í námi
við Listaháskóla Íslands og spilar
á gítar. Ásamt honum eru í
Lúðrasveit lýðsins þau Einar Hall-
grímur Jakobsson og Sandra Ósk
Snæbjörnsdóttir. Einar er við
nám í Tónlistarskólanum í
Reykjavík og ber þann virðulega
titil aðstoðarformaður Lúðra-
sveitar Reykjavíkur þar sem hann
leikur á trompet. Sandra er að
hefja nám í kennaradeild FÍH og
er djass-sellóleikari.
Á hverjum stað velja þau tón-
listardagskrá við hæfi og hafa
einnig tekið upp á því að halda
sérstaklega upp á þjóðhátíð-
ardaga annarra þjóða: „17. júlí
næstkomandi er til dæmis þjóðhá-
tíðardagur Íraks. Þá ætlum við að
spila írösk þjóðlög í kántrí-
útsetningu í tilefni af samskiptum
Bandaríkjanna og Íraks.“
Þau reyna að jafnaði að vinna 8
tíma vinnudag og eru síspilandi
allan þann tíma. Þannig reyna
þau að hafa æfingar fyrri hluta
dags en halda síðan tónleika
seinni partinn og eru jafnvel að
halda 7 tónleika á dag, oft
klukkustund í senn og tekur Guð-
mundur undir að þau séu oft „út-
spiluð“ þegar þau koma heim að
loknum vinnudegi.
Í dag, föstudag, tekur Lúðra-
sveit lýðsins þátt í Föstudags-
bræðingi Hins hússins með flutn-
ingi í samstarfi við hóp sem
kallast Ljóðaleikur.
Frumsamin ljóð og fjörug lög
verða flutt til skiptis og brætt
saman við bakka Reykjavíkur-
tjarnar kl. 13.
Lúðrasveit lýðsins spilar á ólíklegustu stöðum
Tónlistin
til fólksins
Morgunblaðið/Sverrir
Leikið fyrir lýðinn: Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir, Einar Hallgrímur Jak-
obsson og Guðmundur Steinn Gunnarsson mynda saman Lúðrasveit lýðs-
ins. Hér spila þau fyrir íbúa elliheimilisins Skógarbæjar.
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Kvikmyndir.com
X-ið 977
HJ MBL
HK DV
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 6.
POWE
R
SÝNIN
G
KL. 10
.50.
Sýnd kl. 6.10, 6.50, 8.30, 9.10 og Powersýning kl. 10.50.
YFIR 16.000 GESTIR!
I
. .
.
Súlumót frá formaco
● úr pappa
● einföld og þægileg í notkun
● fæst í mörgum lengdum
og breiddum
Gylfaflöt 24-30 • 112 Reykjavík
Sími 577 2050 • Fax 577 2055
formaco@formaco.is • www.formaco.is
Sýnd k. 4, 6.30, 9 og 11.15. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
www.laugarasbio.is
Ef þú hélst að þú værir
heimskur, þá hefurðu ekki hitt
Harry og Lloyd.
Sýnd kl. 3, 6, 9 og Powersýning kl. 11.30.
YFIR 16.000 GESTIR!
POWERSÝnINGkl. 11.30.Á STÆRSTA THXtJALDI LANDSINS
ÚTSALA
38
ÞREP
Laugavegi 49 / sími 561 5813
ROBERT Wagner hefur krafist
hlutdeildar í hagnaði kvik-
myndanna Englar Kalla (Charl-
ie’s Angels). Wagner krefst helm-
ings þess hagnaðar sem hefur
fallið í hlut framleiðanda vegna
þátttöku sinnar í þróun sam-
nefndra sjónvarpsþátta, sem
sýndir voru á áttunda áratug 20.
aldar. Hann telur sig eiga rétt á
hundruðum milljóna króna, sem
kvikmyndirnar hafa nú skilað í
hagnað.
Wagner segir að hann hafi aldr-
ei fengið hlutdeild í umræddum
hagnaði en það er Sony-risinn
sem á réttinn á myndunum.
Sony hefur ekki svarað kröfum
Wagners.
Wagner
ásælist
englana
Hinir upprunalegu englar.