Morgunblaðið - 11.07.2003, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2003 53
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.10 B.i. 12.
AKUREYRI
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
KVIKMYNDIR.COMKVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, og 8
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10
AKUREYRI
Sýnd kl. 6 og 8.
YFIR 16.000 GESTIR!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5, 8 og 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40.
X - IÐ DV
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5 OG 8.
YFIR 42.000 GESTIR!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.
!
!"
# $
% #
"
&!
! '( )
*+
)
%
,
'
*
!
-
-
.
" "
En þrátt fyrir þessa hollustu í garð
Marvels þá stendur Lee nú í mála-
ferlum við gamla fyrirtækið sitt og
sakar það um að hafa haft af sér
væna fúlgu fjár vegna velgengni
Köngulóarmannsins hans. Lee, sem
síðan þá hefur haft vaðið fyrir neðan
sig og komið betur út úr þeim Mar-
vel-myndum sem á eftir hafa fylgt,
þ.á.m. Hulk, segist þó í viðtalinu von-
ast til að lendingin í Köngulóar-
manns-málshöfðuninni verði vinsam-
leg því honum þyki enn afar annt um
fyrirtækið sitt gamla og þá sem þar
starfa. „Það er magnaður andi sem
ríkir þar og fyrirtækið býður upp á
óþrjótandi möguleika. Ég hef alltaf
verið á því að Marvel geti orðið næsta
Disney-veldi.“
Gríðarmikill hagnaður
Þegar komið var fram á tíunda ára-
tug síðustu aldar hafði dregið veru-
lega úr vinsældum Marvel-mynda-
sagnanna. Fyrirtækið var rekið með
tapi og Fortune-tímaritið spáði því þá
að þess biðu áframhaldandi örðug-
leikar og erfið lífsbarátta. Skuldirnar
hlóðust upp því sala á myndasögum
og myndaspjöldum af íþróttamönn-
um hafði þá nánast hrunið enda hafði
sölustöðum fækkað þá snarlega og
einskorðuðust orðið við litlar, sér-
hæfðar myndasögubúðir.
Í maí 2003 tilkynntu forsvarsmenn
Marvel-fyrirtækisins hinsvegar
hróðugir að hagnaður fyrirtækisins
fyrir síðasta ár hefði aukist stórum,
allt vegna himinhárra höfundarlauna
fyrir Köngulóarmanninn, X-mennin
og Ofurhugann – en myndirnar um
þessar Marvel-hetjur höfðu þá slegið
rækilega í gegn.
Þá þegar hafði Marvel grætt tölu-
vert á því að lána sköpunarverk sín í
sjónvarp og minni kvikmyndir. T.d.
naut sjónvarpsþáttur um Hulk tals-
verðra vinsælda á 8. áratugnum sem
og sjónvarpsmynd um Köngulóar-
manninn. En tekjurnar af þeim voru
smáaurar við hliðina á því sem sam-
vinnan við Hollywood-risana hefur
skilað fyrirtækinu. Og það þrátt fyrir
að fyrstu tilraunir hafi mislukkast,
myndir um The Punisher og Captain
America.
Vinsældir Köngulóarmannsins og
félaga hans sem birst hafa á hvíta
tjaldinu síðustu tvö árin hafa hins-
vegar leitt til stóraukins áhuga á
framleiðsu Marvels, ekki einasta
kvikmyndum heldur hefur sala á
myndasögunum tekið ágætis kipp.
Fyrirtæki sem fyrir fimm árum skil-
aði 608 milljóna króna árstapi er nú
farið að skila hagnaði sem nemur 3.1
milljarði króna og það einungis fyrir
fyrsta ársfjórðung þessa árs.
Enn sér ekki fyrir endann á vel-
gengni Marvels því framhaldsmynd-
irnar munu viðhalda þeim um ókomin
ár, sem og útgáfa á myndböndum,
mynddiskum og sala á ýmiskonar
varningi tengdum ofurhetjunum.
Hulk er ofurhetja ófullkomin, líkt og önnur sköpunarverk Stan Lee.