Morgunblaðið - 20.07.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 . TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
ALLARVERSLANI
R
OPNARÍDAG
FRÁ13-18
280.000
smákóngar
Miyako Þórðarson skrifar bók
um Íslendinga fyrir Japani 14
Fagnaðarerindi
fortíðarinnar
Kristján Runólfsson á Sauðárkróki
safnar öllu gömlu 10
Þetta er
ekki ég
Atli Albertsson er ekki vitund líkur
Alla í auglýsingunum Fólk 50
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, hitti
forsætisráðherra Japans, Junichiro Koizumi, í
gær á fyrsta degi opinberrar heimsóknar sinnar til
Asíu. Andlát dr. Davids Kellys, ráðgjafa bresku
stjórnarinnar um
vopnaeign Íraka og
mögulegs heimildar-
manns BBC fyrir um-
deildri frétt um að
bresk yfirvöld hefðu
átt við skýrslu um
gereyðingarvopna-
eign Íraka, varpar
skugga á heimsókn-
ina. Blair kallaði lát
hans „skelfilegan
harmleik“ við komuna
til Tókýó í gær og
lagði áherslu á að
draga þyrfti „stað-
reyndir málsins“ fram
í dagsljósið með
„óháðri rannsókn“. Hann fór þess enn fremur á
leit við breska stjórnmálamenn og fjölmiðla að
þeir gættu hófsemi í umfjöllun sinni um málið og
sýndu hinum látna virðingu.
Forsætisráðherrann í kreppu?
Að því er breskir fjölmiðlar greindu frá í gær
gæti líkfundurinn á föstudag hrundið af stað
mestu kreppu sem Blair hefur staðið frammi fyrir
þau sex ár sem hann hefur gegnt embætti for-
sætisráðherra en hann hefur þegar verið harðlega
gagnrýndur fyrir þau rök sem hann beitti er hann
réttlætti þátttöku Bretlands í Íraksstríðinu.
Ekki hafði fengist staðfest að um lík Kellys væri
að ræða þegar Morgunblaðið fór í prentun en haft
var eftir breskum lögregluyfirvöldum á föstudag
að allt benti til þess að líkið sem fannst væri af hon-
um.
Við upphaf fundar leiðtoganna tveggja þakkaði
Blair japanska forsætisráðherranum sérstaklega
fyrir að hafa beitt sér fyrir því að Japan yrði ekki
aðeins efnahagslegt veldi heldur tæki jafnframt
öflugan þátt á pólitískum vettvangi. „Ég gleðst yf-
ir því að loks sé samstarf Bretlands og Japans
jafnmikið á pólitískum og efnahagslegum vett-
vangi,“ sagði hann. Blair og Koizumi ræddu fyrst
og fremst meinta kjarnorkuvopnaáætlun Norður-
Kóreu og hugsanlega þátttöku Japana í uppbygg-
ingarstarfi í Írak á fundi sínum.
Að því er fram kemur á fréttavef BBC sagði
Blair á fundi með 300 leiðtogum í japönsku við-
skiptalífi í gærmorgun að Bretland myndi gæta
langtímahagsmuna sinna best með því að taka upp
evruna. Um helmingur allra fjárfestinga Japana
innan Evrópusambandsins (ESB) er í Bretlandi.
Blair segir
lát Kellys
„skelfilegan
harmleik“
London, Tókýó. AFP.
Junichiro Koizumi og
Tony Blair við upphaf
fundar þeirra í gær.
HUGI Jóhannesson hafði tekið fram árar
og bát og afráðið að róa í átt að vitanum í
Gróttu í blíðviðrinu í liðinni viku þegar
ljósmyndari átti leið hjá. Móðir hans beið í
landi og hafði skiljanlega nokkrar áhyggj-
ur af honum, hélt jafnvel að hann ætlaði
að róa alla leið til Afríku, en sá stutti var
ekki lengi að snúa við þegar hún hafði
kallað á hann.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Róið við Gróttu
RÚMLEGA 88 þúsund tonnum
hefur verið landað af síld það sem
af er sumarvertíðinni á íslenskum
skipum. Kvótinn er rúmlega 91
þúsund tonn og því lítið eftir til
skiptanna. Tæplega 253 þúsund
tonn hafa borist á land af kol-
munna, tæplega fjórðungur frá
erlendum skipum, og rúmum 141
þúsund lestum af loðnu hefur ver-
ið landað, tæpum tveimur þriðju
frá íslenskum skipum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Samtökum fiskvinnslustöðva
höfðu íslensku skipin landað
88.500 tonnum af síld úr norsk-
íslenska stofninum að
morgni 18. júlí. Heild-
arsíldarkvóti Íslands
utan lögsögu Noregs
er 91.234 tonn. Af
þessu hefur 1.740
tonnum verið landað
erlendis og 15.510
tonnum úr vinnslu-
skipum. Því voru á
föstudag ekki eftir af
kvótanum nema 2.686
tonn. Að auki er ís-
lenskum skipum heimilt að veiða
12.000 tonn af síld innan norsku
lögsögunnar. Mestu af ferskri
síld hefur verið landað
hjá Síldarvinnslunni í
Neskaupstað, 13.969
tonnum, og hjá Eskju
á Eskifirði, 10.269
tonnum.
Kvótinn kláraður
utan lögsögu
Að sögn Inga Jó-
hanns Guðmundsson-
ar, framkvæmda-
stjóra Gjögurs ehf.
sem gerir m.a. út Hákon EA, á
Hákon eftir einn túr á síld. Ingi
reiknar ekki með að Hákon verði
látinn veiða innan norsku lögsög-
unnar heldur muni kvótinn klár-
aður fyrir utan. Að því búnu verði
farið á kolmunnann, þar sé af
nógu að taka.
Heildarúthlutun Fiskistofu er
547.000 tonn af kolmunna og eru
rúm 356 þúsund tonn eftir af
kvótanum.
Loðnuafli sem landað hefur
verið skiptist þannig að íslensk
skip hafa landað 85.556 tonnum
og erlend tæpum 56.000 tonnum.
Loðnukvóti til bráðabirgða er
362.345 tonn og því nóg eftir af
honum, tæp 277 þúsund tonn.
Lítið eftir af síldarkvótanum
Skipin eru nú flest að fiska úr mesta kolmunnakvóta sögunnar
GEIMFARINN Júrí Malentsjenkó
hætti í gær við að kvænast unnustu
sinni vegna þrýstings frá rússnesku
geimferðastofnuninni. Malen-
tsjenkó, sem staddur er í Alþjóð-
legu geimstöðinni (ISS) sem er á
sporbraut umhverfis jörðu, hafði
fengið sendan smóking og gifting-
arhring með birgðaflaug sem flutti
eldsneyti til geimstöðvarinnar í
júní. Hann ætlaði að verða fyrstur
manna til að gifta sig í geimnum og
hafði fengið leyfi ríkisstjóra Texas
til þess en ekki leyfi yfirmanna
sinna.
„Það verður ekkert brúðkaup í
geimnum,“ sagði Sergei Gorbunov,
talsmaður rússnesku geim-
ferðastofnunarinnar, í samtali við
rússneska dagblaðið Izvestia gær.
Að sögn Gorbunovs fara geimfarar
eftir siðareglum sem gilda úti í
geimnum og stjórna lífi þeirra og
starfi. „Gifting er ekki hluti af þeim
skilmálum,“ sagði hann. „Við get-
um ekki leyft að opinberar fjar-
skiptarásir verði notaðar með þess-
um hætti og það geta
Bandaríkjamenn ekki heldur.“
Malentsjenkó, sem er 41 árs gam-
all, er ofursti í rússneska hernum
og verður að fá leyfi hersins til þess
að kvænast Jekaterinu Dmitriev, 26
ára, sem fluttist til Bandaríkjanna
þegar hún var fjögurra ára og er
búsett í Houston í Texas.
Geimbrúðkaup afboðað
Moskvu. AFP.