Morgunblaðið - 20.07.2003, Síða 6

Morgunblaðið - 20.07.2003, Síða 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ L iðin í röndóttu búningunum mætast í dag. Blaðamaður er í Öl- veri og ætlar að hitta köttarana, rómaða stuðningsmenn Þrótt- ara. En þar er aðeins gamall Víkingur, tveir erlendir ferða- menn og barþjónn í brasilíska landsliðsbúningnum. Víkingurinn heyrir erindi blaðamanns og skyrpir út úr sér: – Ég hata KR-inga. Í mígandi rigningu liggur leiðin á KR-völlinn. Knattspyrnumenn hita upp við taktfast dropafallið og galeiðulagið Eye of the Tiger. Stuðnings- menn hafa komið sér fyrir, þó enn sé langt í leik. – Þeir vilja ekki missa af upphituninni, segir glaðbeitt stúlka í hliðinu. – Hefur þú alltaf verið KR-ingur? spyr blaðamaður. – Ég? Ég held með ÍA, svarar hún. – En ég er KR-ingur í húð og hár, segir strákurinn við hlið hennar, eins og til að bæta upp fyrir trúvilluna. Í félagsheimili KR-inga verður Bubbi Morthens á vegi blaðamanns. Talið berst að KR-laginu. – Ég fór í fýlu af því tónlistin var svo léleg fyrir leiki, segir Bubbi. Ég leitaði í smiðju Alexandre Dumas, Einn fyrir alla, allir fyrir einn. Og Kim Larsen, Vi er røde, vi er hvide. Svo hjólaði ég með gítarinn í KR-heimilið, spilaði lagið á stjórnarfundi og spurði hvort ég mætti gefa KR lagið. Já, kváðu þeir við. Önnur lið hafa leitað til mín, en ég vil aðeins gera þetta fyr- ir KR. Annars missir lagið merkingu sína. Nú er ég að velta fyrir mér öðru lagi, um fjölskyldu sem er að búa sig undir leik. – Og sækir í eigin reynslusarp? – Já, það er mikilvægt að fjölskyldan standi saman og hvetji liðið sitt. Hjá okkur gilda fimm reglur. Það má ekki hallmæla andstæðingnum, ekki blóta, ekki svívirða dómarann, það verður að klappa fyrir andstæðingnum ef hann gerir vel og skilja reiði og ergelsi eftir á vellinum í leikslok. – Ég hef tvær reglur, ekki hallmæla andstæðingnum og ekki heldur dómaranum, segir Elísabet Jökulsdóttir. En í sumar er ég farin að endur- skoða þetta með dómarann, bætir hún við og brúnin þyngist. Í Þórólfsstofu eru KR-ingar í hrókasamræðum. – Af hverju ertu ekki í treyju? spyr einn KR-ingur annan. – Ég þorði ekki að mæta í KR-treyjunni, af því ég gleymdi henni í síð- asta leik. – Auðvitað breytir maður engu eftir sigurleiki, segir skilningsríkur KR- ingur og kinkar kolli. Maður mætir í sömu sokkum, leggur bílnum í sama stæði og situr á sama stað. Leikurinn er byrjaður og í raun þarf ekkert að horfa. Það er nóg að hlusta á hrópin. Oftast eru þau eitt atkvæði eins og hryglur í frummönnum: – Nei! – Búúhh! – Spjald! Það orð sem oftast er hrópað er ekki „skjóta“ eða „skora“ heldur: – Dómari! Þeir sem eru sjóaðir hrópa lengri setningar: – Ef þú spjaldar ekki þá halda þeir að þeir megi þetta! Í hálfleik rekst blaðamaður á stúlku sem hann hefði aldrei órað fyrir að hefði áhuga á fótbolta. – Ert þú KR-ingur? – Nei, ég tók manninn með mér í Reykholt í gær. Ég varð að gera eitt- hvað í staðinn, svarar hún einlæglega. – Hvað finnst þér um leikinn? – Mér finnst KR-ingar standa sig vel. Þeir eru nú búnir að eiga þrjú skot framhjá. Í seinni hálfleik lenda Þróttarar undir, þó köttararnir beri sig vel. – Hverjir eru á toppnum! hrópar stuðningsmaður fremst. – Þróttur! – Það er kalt á toppnum, segir vondaufur köttari ofar í stúkunni. Og þegar einhver meiðist, hvort sem það er KR-ingur eða Þróttari, þá syngja köttararnir: – Jafna sig, jafna sig, jafna sig. Leikurinn er að líða undir lok. Spennan leynir sér ekki ef fylgst er með höndum áhorfenda. Þær eru á látlausu iði. Klappað. Krepptar hendur í bænastellingu. Rótað í skeggi. Húfan löguð. Armurinn hvíldur á öxl ást- vinarins. Áhyggjurnar síga í. Veifað. Bent, svo dómarinn sjái. Nagaðar neglur. Mæðgur haldast í hendur. Japlað á súkkulaðibréfi. Hendur á loft í spurn. Köttari grúfir sig niður. Fitlað við barkakýlið þegar dómarinn flautar til leiksloka. Þróttur tapar. – Við stöndum saman allir sem einn, syngur Bubbi. Leikmönnum klappað lof í lófa. Svo tínast áhorfendur á braut, Þróttarar með hendur í vösum. Svarthvítir og rauðhvítir regnbogar í rigningunni. Sem hverfa inn í bílana. Gleði og vonbrigði eftir á vellinum. Og allir deila sömu umferð- arteppunni. Morgunblaðið/Árni Torfason Regnbogar í rigningunni SKISSA Pétur Blöndal fór á fótboltaleik LÖNGUNIN til þess að svífa um eins og fugl hefur fylgt mann- inum frá örófi alda. Í dag geta menn, fyrir nokkuð hóflegan kostnað, látið drauminn rætast á góðum og sólríkum sumardögum. Allt sem þarf er örlétt svifhlíf og hugrekki til þess að hlaupa út í loftin blá. Tveir svifhlífakennarar eru staddir hér á landi og kenna þeir íslenskum svifmönnum ýmsar list- ir og tækni sem getur nýst vel þegar nýta þarf uppstreymi og „loftbólur“. Hitta þeir íslenska fé- laga sína uppi á Hafrafjalli, sem er vinsælasti staðurinn á Íslandi fyrir svifflugmenn. Góðar aðstæður til svifs Old Sam er frá Bandaríkjunum og hefur lengi haft áhuga á flugi. „Pabbi minn var listflugmaður og ég fékk snemma mikinn flug- áhuga. Ungur smíðaði ég fyrsta svifdrekann minn úr vírum og alls kyns skrani og flaug honum ofan af alls konar hólum og hæð- um. Pabbi eyðilagði hann þegar ég var búinn að brotlenda í tutt- ugasta trénu. Þá tók ég mér hlé í rúman áratug, þangað til fyrir átta árum þegar ég kom til Ís- lands og sá allt þetta frábæra landslag, sem er eins og sér- hannað til að leika sér á svif- græjum. Fjöllin hér og hlíðarnar eru skóglaus, vindarnir blása mjög skemmtilega og landið í heild sinni er alveg frábært til þessarar iðju. Vinur minn kenndi mér þá á svifhlífar og ég hef leik- ið mér að þessu síðan,“ segir Sam, sem hefur komið til Íslands mánuð í senn síðustu fjögur ár til þess að kenna íslenskum svif- mönnum. „Það er kalt að fljúga nakinn“ Sam þykir gaman að vera nak- inn og er því kallaður strípaling- urinn. „Ég hef einu sinni flogið nakinn, það var kalt að fljúga nakinn, en gaman. Svo fékk ég fría gistingu á hótelinu þar sem ég gisti því að eigandinn hafði svo gaman af svona uppá- tækjum.“ Roman Iacobucci frá Austurríki kennir ýmsar fluglistir, sem kall- aðar eru „aerobatics“. Hann lenti í slysi fyrir ári og braut báða fæt- ur sína á mörgum stöðum og gengur enn með stafi sér til stuðnings. „Auðvitað eru hættur, en maður harkar það af sér. Mér var sagt að ég gengi ekki aftur, en ég er farinn að ganga.“ Roman segir Ísland vera afar sérstakt til svifflugs. „Fyrir utan skógleysið, vindinn og landslagið hér er líka hægt að fljúga fram yfir miðnætti á sumrin. Það er hvergi hægt annars staðar, þetta er frábært.“ Hlífasvif varð til sem íþrótt í kringum 1985 þegar fjall- göngumenn fóru að nota fallhlífar til að komast niður fjöllin á þægi- legri máta, því oft geta menn lent í klandri á niðurleiðinni. Það þró- aðist mjög fljótt yfir í tóm- stundagaman sem hefur vaxið hratt úti um allan heim. Kristján B. Arnarson, íslenskur svifmaður, bendir á að hlífasvif sé ódýrasta flugíþróttin sem fólk getur stund- að. „Þetta kostar undir 200.000 krónum, eins og ágætis byrj- endasett í golfi. Þetta er líka ört vaxandi og margir að bætast við, sérstaklega vegna þess að þetta er ekki næstum því jafnfyrirferð- armikil og krefjandi íþrótt og svifflug.“ Morgunblaðið/Jim Smart Hópur svifmanna í blíðunni uppi á Hafrafjalli. Gamli Sam stríplast og Roman styðst við staf. Svifmaðurinn á leið upp. Rétt áður var jörðin kvödd með léttum tá- kossi. Gamli Sam lét sig svífa örfáa metra yfir ljósmyndara og stýrði svifhlíf- inni af furðulegri nákvæmni. Svifið tignarlega hlið við hlið í svifhlífunum. Skemmti- legt áhugamál í örum vexti PERSÓNUVERND hefur gert ýmsar kröfur til Lyfju hf. og Lyfja og heilsu hf. í kjölfar úttektar sem gerð var á vinnslu persónuupplýsinga á vegum fyrirtækjanna. Hafa lyfsölufyrirtækin fengið frest til 1. janúar á næsta ári til að fara eftir fyrirmælunum. Fyrirmælin felast meðal annars í því að taka upp innra eftirlit, tryggja að þeir starfsmenn undirverktaka eða þjónustuaðila, sem kunna að fá vitneskju um við- kvæmar persónuuplýsingar í störfum sínum, undirriti trúnaðarheit, tryggja öryggi í gagnaflutningi og sjá til þess að persónugreinanlegum merkingum af umbúðum lyfja verði eytt áður en umbúðirnar eru afhentar förg- unaraðila. Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar, seg- ir að úttekt hafi verið gerð á fyrirtækjunum þar sem þau geymdu viðkvæmar upplýsingar sem varði stóran hóp manna. „Það er mjög mikilvægt að öryggi í vinnslu slíkra upplýsinga sé tryggt. Hins vegar eru þetta alls ekki einu aðilarnir sem unnið er að úttektum hjá. Það eru margir aðilar í úttektarferli og er niðurstaðna að vænta fljótlega,“ segir Sigrún. Gerir athugasemdir við vinnslu persónuupplýsinga HÓPUR foreldra í Vesturbænum í Reykjavík hefur hafið söfnun undirskrifta gegn fyrirhugaðri lokun gæsluvallarins við Frostaskjól. Í áskorun til borgaryf- irvalda segir m.a. að gæsluvöllurinn sé mikið notaður að sumarlagi þegar leikskólar séu lokaðir. Ljóst sé að gangi fyrirætlanir borgarinnar eftir verði enginn gæsluvöllur í vesturbæ Reykjavíkur frá og með 15. ágúst. Að sögn Þorsteins Siglaugssonar, íbúa í hverfinu, hefur undirskriftasöfnunin gengið vel og hafa um 200 manns ritað nafn sitt á listann. „Það er mjög mikil óánægja með þetta vegna þess að þetta er það mikilvæg þjónusta fyrir fólk í hverf- inu,“ segir Þorsteinn. Undirskriftalistar liggja frammi á gæsluvellinum við Frostaskjól, í Nóatúni við Hringbraut, Mela- búðinni og KR-heimilinu. Stefnt er að því að afhenda undirskriftirnar í lok júlí. Foreldrar í Vesturbæ safna undirskriftum Mótmæla fyrir- hugaðri lokun gæsluvallar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.