Morgunblaðið - 20.07.2003, Side 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Ingvar
Helgason notaðir bílar
Ingvar Helgason hf. · Sími 525 8000 · Sævarhöfða 2
ih@ih.is · www.ih.is/notadir · opið virka daga kl. 9-18
GÓÐUR
NOTAÐUR BÍLL
BMW S5 4.4i
Verð 6.230.000 kr.
Skráður 06/2001, ekinn 102.000 km.
Landsmót línudansara
Diskóskotin
kántrýgleði
ÍSLENDINGAR hafanú dansað línudans ítæpan áratug og hef-
ur áhuginn á þessu
skemmtilega dansformi
farið ört vaxandi ár frá
ári. Línudans er svokall-
aður „country“ eða dreif-
býlis-dans og er ættaður
frá Nashville í Tenness-
ee-fylki Bandaríkjanna.
Línudansinn er eitt
vinsælasta dansform
Vesturlanda og þykir
hann nokkuð létt og
fjörug blanda af sveita-
stemningu fortíðarinnar
og diskótekastemningu
stórborgarlífsins. Þannig
má segja að gamlir tímar
og nýir mætist á dans-
gólfinu í léttri sveiflu.
Sigurbjörn Hreindal,
betur þekktur sem Böddi, og
eiginkona hans, Elsa Skarphéð-
insdóttir, reka dansklúbbinn
Línudansarann í Kópavogi sem
stendur fyrir Landsmóti línu-
dansara um verslunarmanna-
helgina.
– Hversu lengi hefur línudans
verið stiginn hér á landi?
„Hér er búið að dansa línu-
dans í ein átta ár en það var
fyrst núna í vetur að línudansinn
varð hluti af Dansíþróttasam-
bandi Íslands, hann er því orð-
inn íþrótt eins og annar dans.
Dansklúbburinn Línudansar-
inn hefur verið starfræktur í ein
sjö ár, við vorum svona með
þeim fyrri til að læra línudans.
Við bjóðum Reykvíkingum upp á
námskeið yfir vetrarmánuðina
en á landsbyggðinni eru víða
starfræktir dansklúbbar. Dans-
kennarar eins og Óli Geir og Jó-
hann Örn Ólafsson hafa verið
duglegir við að halda námskeið
út á landi en Jóhan Örn lagði
einmitt upp í hringferð um land-
ið á mánudaginn. Línudansinn
verður sífellt vinsælli og æ fleiri
stunda hann, sérstaklega úti á
landi.“
– Hverjir dansa línudans?
„Í Íslandsmeistaramótinu
núna í maí tóku hundrað og sjö-
tíu manns þátt, af þeim voru
hundrað og þrjátíu fullorðnir en
fjörutíu börn og unglingar.
Dansararnir voru á aldrinum
átta ára upp í áttrætt svo aldurs-
bilið er mjög breitt. Konur eru í
meirihluta línudansara, ætli það
séu ekki áttatíu til níutíu pró-
sent þeirra kvenfólk.“
– Hafa íslenskir línudansarar
dansað út fyrir landsteinana?
„Tuttugu til fimmtíu manna
hópar hafa síðastliðin þrjú ár
farið á „kántrí“-hátíðina Ayr á
Skotlandi. Í hópnum síðastliðið
haust voru fjörutíu og fimm
manns. Þá hafa tveir hópar farið
til Nashville.“
Hvernig kom það til að ákveð-
ið var að halda landsmót línu-
dansara ?
„Þetta er annað landsmót
línudansara, fyrsta landsmótið
var haldið á Fáskrúðsfirði í
fyrra. Austfirðingar
hafa undanfarin ár
haldið fjórðungsmót
en ákváðu síðan að
breyta því í landsmót.
Þeir vörpuðu því bolt-
anum til okkar í ár en Lands-
mótið verður fjölmennara en í
fyrra þar sem að fólk mun koma
til okkar víðsvegar af landinu.
Ástæðan fyrir því að farið var út
í þetta er einnig sú að í ár verður
ekki haldin eiginleg kántrí-hátíð
á Skagaströnd, þangað sem línu-
dansarar hafa mikið sótt.“
– Hvert skal halda og hvað
verður hægt að gera ?
„Landsmótið verður haldið á
Borg í Grímsnesi föstudaginn
fyrsta ágúst til mánudagsins
fjórða ágúst. Reynt var að að
velja mótinu stað nokkuð mið-
svæðis, tiltölulega stutt frá
Reykjavík og hæfilega langt úti í
sveit. Fólk frá Austurlandi kem-
ur suður svo og frá Akranesi,
Ólafsvík, Suðurnesjunum og
fleiri stöðum. Þetta verður nátt-
úrlega lengra fyrir fólkið að
norðan en það er nú erfitt að
velja stað sem er nálægt öllum.
Það verður ýmislegt á dag-
skránni, á föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld verður
línudansball. Síðan verður línu-
danskeppni á léttu nótunum og
karaoke ef einhver treystir sér í
það. Boðið verður upp á dans-
kennslu fyrir byrjendur jafnt
sem lengra komna frá klukkan
tvö til fjögur laugardag og
sunnudag þar sem gestakennari
mun kenna og myndbönd verða í
boði fyrir börnin.
Góð tjaldsvæði eru við Borg
og á svæðinu er bæði kaffihús,
bar og verslun.“
– Er línudans hinn eiginlegi
sveitasöngvadans?
„Hvað varðar tónlistina hefur
það nú breyst í gegnum árin.
Fyrir nokkrum árum var bara
dansað við kántrí-músík eins og
hún er kölluð sem slík en síðan
hefur hún þróast í gegnum tíð-
ina. Á tímabili gætti áhrifa
írskrar tónlistar, blús og rokks í
kántrí-tónlistinni. Nýjasta nýtt
eru diskó áhrif, eldri lög eru
endurgerð og sett í diskó útgáfu.
Tískusveiflurnar hafa borist
hingað frá Bandaríkjunum og
Englandi auk þess sem hingað
hafa komið þekktir kennarar frá
Evrópu sem við höfum kynnst á
hátíðum úti, t.d. Liz Clarke og
Kate Sala. Það gerist líka stund-
um á æfingum að einn úr hópn-
um kemur með nýjan
dans, sem hann hefur
ef til vill séð erlendis
og kennir þá hinum.
Stærsti plúsinn við
línudansinn er sá að
hann er hópdans, einstaklingur-
inn getur dansað án þess að
þurfa að hafa einhvern á móti
sér.
Mótsgjald á hátíðina verður
4.500 kr. fyrir fullorðna og er
tjaldsvæði innifalið í því, átta til
átján ára í fylgd með foreldrum
greiða 1.000 kr. Allar nánari
upplýsingar má nálgast á vef-
slóðinni www.islandia.is/elsas.“
Sigurbjörn Hreindal
Sigurbjörn Hreindal er fædd-
ur 7. janúar 1950. Hann hefur
rekið Dansklúbbinn Línudans-
arann ásamt eiginkonu sinni,
Elsu Skarphéðinsdóttur, frá
árinu 1996.
Fólk á öllum
aldri dansar
línudans
BIRGIR Jakobsson læknir hefur ver-
ið ráðinn forstjóri St. Görans sjúkra-
hússins í Stokkhólmi í Svíþjóð en það
er jafnframt
fyrsta einkarekna
sjúkrahúsið með
bráðamóttöku í
Svíþjóð.
Birgir hefur
starfað sem sviðs-
stjóri Huddinge-
háskólasjúkra-
hússins síðastliðin
fjögur ár en hann
hefur búið í 25 ár í
Svíþjóð. „Það er ákveðin áskorun að
taka við þessu starfi en mér hefur allt-
af líkað það vel að taka áskorunum.
Því fylgir mikið álag og þetta væri ef-
laust auðveldara ef efnahagurinn
væri betri hér í Svíþjóð.“
Birgir, sem er sérfræðingur í
barnalækningum, ætlar að vinna að
ýmsum breytingum á sjúkrahúsinu í
svipuðum anda og hann hefur unnið
að á Huddinge. „Það er kominn tími
til að vinna öðruvísi að þessum mál-
um. Til dæmis þarf að auka samvinnu,
brjóta niður veggi og múra og nýta
hæfni fólks betur en nú er gert.“
Hann segir nauðsynlegt að brjóta nið-
ur þá goggunarröð sem einkennir
margar sjúkrastofnanir.
Mismunandi
væntingar lækna
Birgir telur tíma einkarekinna
sjúkrahúsa kominn í Svíþjóð. Yngri
læknar hafa aðrar væntingar og fyr-
irætlanir í sínu starfi og 87% þeirra
geti vel hugsað sér að starfa í sinni
eigin stofu eða á einkareknum vinnu-
stað og er það merki um hugarfars-
breytingu gagnvart einokun sænska
ríkisins á heilsugæslu.
Eiginkona Birgis, Ásta Arnþórs-
dóttir, rekur ferðaskrifstofu í Stokk-
hólmi. Þau eiga þrjú uppkomin börn.
Íslenskur sjúkrahúss-
forstjóri í Stokkhólmi
Ákveðin
áskorun
Birgir Jakobsson
ÞAU voru rösk handtökin hjá starfsmönnum Véltækni
þegar þeir voru að vinna við að steypa vegkant við
Njarðarbraut í vikunni. Miklar framkvæmdir hafa ver-
ið við Fitjar í Njarðvík, enda svæðið aðalinnkoman í
bæinn og hefur umhverfið tekið miklum stakkaskiptum
frá því að verkið hófst.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Umhverfið tekur stakkaskiptum