Morgunblaðið - 20.07.2003, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 15
ÞEGAR ég var með ung börn bless-
aði ég oft róluvellina. Þar undu þau
dagana langa þegar gott var veðrið
og þegar ég sótti þau voru þau
þreytt og sæl og
höfðu frá mörgu að
segja. Mín reynsla
var að á þessa velli
veldust yfirleitt
góðir starfsmenn
sem hugsuðu vel
um börnin. Rólu-
vellirnir (kallaðir
gæsluvellir nú)
voru þá sannarlega mikil björgun
þeim konum sem ekki voru með
fasta vinnu utan heimilis og þurftu
því ekki langa barnagæslu að stað-
aldri.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan þetta var og margt er breytt.
Meðal þess sem breyst hefur er að
áður kostaði ekki neitt að hafa börn
á gæsluvelli, síðar var farið að taka
gjald fyrir gæsluna og nú er það
gjald orðið svo hátt í Reykjavík að
mér þykir undrum sæta. Hálfur
dagur á gæsluvelli í Reykjavík kost-
ar nú 300 krónur – 600 krónur ef
barnið er bæði fyrir og eftir hádegi.
Þannig er gjaldskráin á róluvöllum
Reykjavíkurborgar. Enginn systk-
inaafsláttur er, hins vegar kostar 25
miða kort 5.000 krónur. Í Kópavogi
er þessi þjónusta mun ódýrari, þar
kostar 100 krónur að hafa barn á
gæsluvelli hálfan daginn, 200 krónur
allan daginn og hið sama á við um
gæsluvelli í Hafnarfirði. Hægt er að
kaupa 20 miða á 1.500 krónur í
Kópavogi en 25 miða á 2.000 krónur
í Hafnarfirði. Það er því freistandi
að fara með börn úr Reykjavík á
gæsluvöll í Kópavogi eða Hafnar-
firði. Þessi miklu munur á verðlagi
þessarar þjónustu milli sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu skiptir
töluvert miklu þegar í hlut eiga t.d.
systkini, tvö eða þrjú frá sama heim-
ili. Þetta er mikilvægt því þær konur
eru oftast heimavinnandi sem flest
lítil börn eiga. Kona þarf að hafa
mjög góð laun til þess að geta borg-
að dagheimilsvist eða vist hjá dag-
móður fyrir t.d. þrjú ung börn, auk
þess eru sumar konur þannig hugs-
andi að þær vilja vera heima með
ung börn sín.
Konur sem eru heimavinnandi
með þetta mörg börn á gæsluvall-
araldri hafa löngum haft mikið gagn
af gæsluvöllunum, slík gæsla opnar
þeim möguleika á að eiga dálitla
hvíldarstund og geta aðeins hreyft
sig án barnanna, t.d. farið í sund eða
verslað. En nú er þessi þjónusta
orðin svo dýr í Reykjavík að undrun
sætir.
Ég skil raunar ekki af hverju þarf
að taka gjald fyrir þessa þjónustu úr
því það þurfti ekki þegar miklu fleiri
börn nutu hennar.
Það er augljóst að ef konur taka
þann kost að vera heima hjá ungum
börnum sínum þá vinna þær sér ekki
inn mikla peninga á meðan. Heimilið
verður í þeim tilvikum að komast af
með það kaup sem heimilisfaðirinn
hefur – sem er auðvitað mishátt. Það
þarf ekki að skoða lengi kannanir
um laun til þess að sjá að margir
karlar, ekkert síður en konur, hafa
fremur lág laun. Ætla má því að á
mörgu barnmörgu heimili sé þröngt
í búi þau árin sem konan er heima-
vinnandi og heimilisfaðirinn sér einn
um framfærsluna. Þau heimili mun-
ar mikið um hverjar 600 krónurnar
sem eyðast dag frá degi. Ef þrjú
börn eru sett á róluvöll á daginn í
Reykjavík kostar það 1.800 krónur.
Á viku kostar gæslan 9.000 krónur,
á mánuði um 36 þúsund krónur. Ef
miðarnir eru keyptir kostar mánað-
argæslan 24 þúsund. Þetta gjald er
meira en svo að fólk sem á mörg
börn en hefur lítið handa á milli geti
sumt hvert nýtt sér þessa þjónustu.
En ég skil ekki hvað hefur breyst
síðan mín börn voru lítil. Ef eitthvað
er þá hefur þeim börnum fækkað
sem nota gæsluvellina að staðaldri.
Þeirri þróun hefur verið mætt með
því að fækka heldur gæsluvöllunum.
Kannski mætti fækka þeim enn
frekar en hafa gæsluna fría eins og
áður var, mjög margir hafa jú að-
gang að bíl?
Og hvers vegna er þessi miklu
munur á gæsluvallargjöldum á milli
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu?
Þessari þjónustu er ætlað að
mæta þörfum þeirra sem eru heima
með ung börn og það er vitað að þau
heimili hafa mörg heldur lakan fjár-
hag. Eitthvað í þessu fyrirkomulagi
sem nú er ríkjandi gengur því ekki
upp, þjónustan sem býðst á gæslu-
völlum er of dýr fyrir marga þá sem
eru heimavinnandi en er óþörf fyrir
þá sem vinna úti og hafa rýmri pen-
ingaráð því það fólk setur börn sín á
dagheimili eða í dagvistun. Ég held
að það þyrfti að hugsa þetta dæmi
upp á nýtt. Það er afleitt að halda úti
þjónustu sem ekki gerir það gagn
sem henni er ætlað.
ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Hvað hefur breyst?
Rándýr róló
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
Málning hf. hefur tekið þátt í viðamiklum rannsóknum á áhrifaþáttum
yfirborðsmeðhöndlunar með helstu sérfræðingum á þessu sviði hér
innanlands. Á rannsóknastofu Málningar er jafnframt haft strangt eftirlit með
framleiðslu og hráefnum og unnið kröftuglega að vöruþróun þar sem
nýjungar á sviði yfirborðsmeðhöndlunar með tilliti til íslenskra aðstæðna hafa
skapað málningu frá okkur algjöra sérstöðu.
ÞOL
- létt í notkun og myndar
sterka lakkfilmu.
- mikið veðrunarþol.
- fyrir bárujárnsþök og
aðra málmfleti utanhúss
Þakmálning sem þolir
íslenskt veðurálag
Akrýl - ÞOL
- létt í notkun.
- mjög gott veðrunarþol
- fyrir bárujárn, ýmsar gerðir af
klæðningum og aðra málmfleti
utanhúss.
Við erum sérfræðingar í útimálningu
fyrir íslenskar aðstæður.
Útsölustaðir Málningar:
Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfirði • Málningarbúðin Akranesi • Byko Akranesi •
Axel Þórarinsson, málarameistari, Borganesi • Verslunin Hamrar, Grundafirði • Litabúðin Ólafsvík • Núpur byggingavöruversl. Ísafirði
• Vilhelm Guðbjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki • Byko Akureyri • Versl. Valberg, Ólafsfirði •
Versl. Vík, Neskaupstað • Byko Reyðarfirði • Málningarþjónustan Selfossi • Miðstöðin Vestmannaeyjum • Byko Keflavík.
BMW X5 4.4I. 10/00. ekinn 35.þús.km. Steptronic. 19”álfelgur. Leðuráklæði.
Glertopplúga. Spól/skriðvörn. CD magasín. Loftkæling. Hiti í fram/aftursætum.
Símatengi. Regnskynjari. Rafm.í öllu. O.fl. o.fl. V=6300.þús.
Verð kr.
5.890.000