Morgunblaðið - 20.07.2003, Qupperneq 45
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 45
Fyrirtæki til sölu
Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma
Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því
ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og
kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur.
Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er
hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is
Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en
við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:
Mjög gott bakarí í stóru sveitarfélagi á landsbyggðinni.
Ísbúð, videó og grill á góðum stað í austurbænum. Gott tækifæri.
Höfum ýmis góð sameiningatækifæri fyrir stærri fyrirtæki.
Hálendismiðstöðin Hrauneyjum. Hótel og veitingastaður með mikla sér-
stöðu. Rekstrarleiga með kauprétti kemur til greina fyrir vandað fólk.
Stór og þekkt brúðarkjólaleiga með ágæta afkomu. Miklir möguleikar.
Glæsileg snyrtivöruverslun í miðbænum.
Vörubílaverkstæði með föst viðskipti. Auðveld kaup.
Söluturn og videóleiga í Hafnarfirði, tilvalið sem fyrsta fyrirtækið, verð
4,5 m. kr.
Mjög vinsæll næturklúbbur í miðbænum, tryggur kúnnahópur.
Rótgróinn lítill matsölustaður í Hafnarfirði. Mjög gott fyrirtæki fyrir kokk
eða fólk sem kann að elda góðan heimilismat.
Framleiðslubakarí í Hafnarfirði með eða án verslunar.Tilvalið fyrir bakara
sem langar í eigin rekstur.
Glæsileg efnalaug í góðu hverfi. Eigið húsnæði.
Rótgróið og vel arðbært gistihús miðsvæðis í Reykjavík. 30 herbergi og
lítil íbúð fyrir eiganda.
Stór austurlenskur veitingastaður í miðbænum. Mikil velta, góður
hagnaður. Eigið húsnæði.
Glæsileg videósjoppa í vesturbænum með langa og góða rekstrarsögu.
60 m. kr. ársvelta. Möguleiki á grilli og ísbúð.
Þekkt dömuverslun með náttföt og sundfatnað. Eigin innflutningur. Auð-
veld kaup.
Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
Lítið en efnilegt framleiðslu- og þjónustufyrirtæki í málmiðnaði. Velta
síðasta árs 40 m. kr. og stefnir í tvöföldun á þessu ári.
Snyrtilegur og fallegur söluturn með videó, gott tækifæri fyrir samhenta
fjölskyldu. Verð 8 m. kr.
Hjólbarðaverkstæði og bifreiðaverkstæði, vel tækjum búið.
Innflutnings- og þjónustufyrirtæki með kælitæki o.fl. Góður rekstur og
miklir möguleikar. Tilvalið fyrir vélstjóra.
Matvöruverslun, bensínsala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið hús-
næði. Ársvelta er nú tæpar 200 m. kr. og hefur farið vaxandi með hverju
ári. Góður hagnaður um margra ára skeið og mjög heilbrigður rekstur.
Sérstaklega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón.
Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur með góðri aðstöðu fyrir dans-
leiki, veislur og fundi. Ársvelta 40—50 m. kr. Gott tækifæri fyrir fag-
menn. Rekstrarleiga möguleg.
Stórt arðbært þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði.
Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu
fyrirtækjadeildar: www.husid.is
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, GSM 820 8658
Algjör bylting gegn aukakílóunum!
Sló öll sölumet í Bandaríkjunum árið 2002
thermo complete
Ný vara frá Herbalife
Nú geta ALLIR sem þurfa losað sig við
aukakílóin - hvað sem þau eru mörg
Nánari upplýsingar í síma 515 8899
Geymið auglýsinguna
ÞAÐ er dá-lítið erfittað segjatil um íhvaða röð
Jesús kallaði læri-
sveinana til sín, því
guðspjöllunum ber
ekki alveg saman
um það. En í Jó-
hannesarguðspjalli
virðist Andrés
fyrstur og með hon-
um einhver annar,
ónefndur. Orðrétt
segir þar:
Daginn eftir var Jóhann-
es [skírari] þar aftur
staddur og tveir læri-
sveinar hans. Hann sér
Jesú á gangi og segir:
„Sjá, Guðs lamb.“ Læri-
sveinar hans tveir heyrðu
orð hans og fóru á eftir
Jesú. Jesús sneri sér við,
sá þá koma á eftir sér og
sagði við þá: „Hvers leitið þið?“ Þeir svara:
„Rabbí (það þýðir meistari), hvar dvelst
þú?“ Hann segir: „Komið og sjáið.“ Þeir
komu og sáu, hvar hann dvaldist, og voru
hjá honum þann dag. Þetta var síðdegis.
Annar þessara tveggja, sem heyrðu orð Jó-
hannesar og fóru á eftir Jesú, var Andrés,
bróðir Símonar Péturs.
Flestir hallast að því, að hinn sé
Jóhannes, frumhöfundur um-
rædds guðspjalls, er sökum hóg-
værðar og lítillætis vill ekki troða
sér inn í frásögnina undir nafni,
hvorki þarna né annars staðar.
Það styður ennfremur þessa til-
gátu, að í öllu skrifinu er ekki
heldur minnst á Jakob, eldri bróð-
ur hans.
Þeir voru Galíleumenn, eins og
Andrés og Pétur, og sömuleiðis
fæddir í Betsaída. Foreldrar
þeirra voru Salóme, móðursystir
Jesú, að því er virðist, og útgerð-
armaðurinn Sebedeus.
Jóhannes er talinn hafa verið
yngstur postulanna. Hann er einn
af þeim fjórum sem virðast hafa
tilheyrt innsta kjarna lærisveina-
hópsins. Jesús gaf Sebedeusar-
sonum viðurnefnið boanerges,
sem er gríska og merkir „þrumu-
synir“. Kannski var þetta í gamni
sagt, en þeir bræður voru á fyrstu
lærisveinaárum sínum ákafamenn
í lund og miklir fyrir sér (Mark-
úsarguðspjall 9:38; Lúkasarguð-
spjall 9:52-56). E.t.v. lá þó dýpri
merking í orðum hans.
Jóhannes stóð einn postulanna
við kross Jesú, á Golgata á föstu-
daginn langa, og kom fyrstur
þeirra að gröfinni að morgni
páskadags.
Elsta heimild um tilvist þessa
lærisveins er Bréf Páls til Galata-
manna (2:9), sem ritað er árið 53;
hann er þar, ásamt Jakobi og
Pétri, sagður einn af mátt-
arstólpum safnaðarins í Jerúsal-
em.
Talið er að Jóhannes hafi eftir
dauða meistarans, upprisu og
himnaför verið áfram í Jerúsalem
og þar um slóðir, mun lengur en
hinir, og ekki fyrr en í kring um 60
lagt af stað með boðskapinn til
Litlu-Asíu og sest að í Efesus, bú-
ið þar í mörg ár, en verið einn dag-
inn snemma á valdatíma Domet-
íanusar keisara (81–96) tekinn
höndum og sendur til Rómar og
þaðan í útlegð til grísku eyj-
arinnar Patmos, við strönd núver-
andi Tyrklands, þar sem hann rit-
aði Opinberunarbókina, í félags-
skap arnar, árið 95 eða svo. Eftir
dauða keisarans, þegar annar
hafði tekið við stjórnartaumunum,
Nerva (96–98), fékk postulinn að
snúa heim til Efesus, og lifði þar
til hárrar elli, eða fast að 100 ár-
um, jafnvel lengur, ólíkt félögum
sínum og vinum ellefu, sem allir
liðu píslarvættisdauða. Og þar í
borg á guðspjallið að hafa orðið til.
Ekki eru þó allir sammála þess-
ari atburðarás. Sagnir eru nefni-
lega til um það, að Jóhannes hafi
verið deyddur ásamt Jakobi bróð-
ur sínum einhvers staðar á ára-
bilinu 42-45. En sú frétt þykir
ekki eins sannfærandi, ýmissa
hluta vegna. En nóg um það.
Þrjú bréfa Nýja testamentisins
eru við hann kennd, talin rituð á
árabilinu 90–100.
Sagt er, að þegar kraftar Jó-
hannesar voru á þrotum og hann
gat ekki lengur komist óstuddur
til kirkju, hafi vinir borið hann
þangað, og ræða hans verið:
„Litlu börn, elskið hvert annað.“
Einkennistákn Jóhannesar er
m.a. kaleikur, eins og sést glöggt
á myndinni sem fylgir þessum
pistli og er eftir flæmska listmál-
arann Sir Anthony Van Dyck
(1599–1641). Stundum fylgir með
vængjaður höggormur eða dreki.
Helgisagan þar á bak við segir, að
prestur einn við hof gyðjunnar
Artemisar eða Díönu í Efesus hafi
ætlað að byrla Jóhannesi eitur, en
þegar postulinn signdi yfir bik-
arinn hljóp þar upp naðra (Satan)
og hvarf á braut.
Nafnið Jóhannes er hebreskt að
uppruna, Jochanan, og merkir
eiginlega „Guð hefur sýnt mis-
kunn“. Það sést fyrst í rituðu máli
hér á landi á 15. öld. Í manntali
1703 var bara einn nafnberi.
En hinn 31. desember 2001
báru 929 Íslendingar það sem
fyrsta eiginnafn, og 159 sem ann-
að. Af því eru leidd nöfnin Jóhann
(1965+608), Jón (5567+891), Jens
(234+124), Hannes (423+69) og
Hans (158+71).
Jóhannes er verndardýrlingur
Litlu-Asíu. Messudagur hans í
vesturkirkjunni er 27. desember,
en í austurkirkjunni 8. maí og 26.
september. Á íslensku nefnist
hann Jónsdagur.
Jóhannes
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Jóhannes Sebedeusson rís einna hæst allra
postulanna í minningunni, vegna hjartalags
síns og allra verka. Sigurður Ægisson fjallar í
dag um þann mann, sem flestir telja að hafi
verið „lærisveinninn, sem Jesús elskaði“.
Lærisveinarnir 12
SÆLL og blessaður, gamli vinur,
Kjartan Lárusson.
Mér er bæði ljúft og skylt að svara
bréfi þínu til mín sem birtist í Mbl.
17. júlí sl. Þú segist þar vera að
svara níðgrein minni um Íslands-
glímuna síðustu. Rétt er það að
grein mín fjallaði um níðið, mestu
meinsemd glímunnar fyrr og síðar,
níðið sem stundum setur svartan
blett á okkar ágætu þjóðaríþrótt.
Þú nefnir þrjú atriði rangt með
farin í grein minni og þar hefur þú
tekið rétt eftir. Ég sá þau reyndar
sjálfur meðan greinin beið birtingar
og sendi leiðréttingu til Mbl. nokkru
áður en greinin birtist sem því miður
komst ekki til skila.
Mér þykir leitt að þú skulir ekki
átta þig á að skrif mín um glímu hafa
ekki þann tilgang að kasta rýrð á
persónu einstakra glímumanna. Ég
er að gagnrýna frammistöðu glímu-
manna og dómara í þeim tilgangi að
menn hugleiði hvað hægt sé að gera
til úrbóta og koma í veg fyrir að við-
ureignir í glímu vinnist með níði eða
á annan ósanngjarnan hátt. Það er
að sjálfsögðu ekki hægt að gagnrýna
glímu án þess að nefna nöfn glímu-
manna. Ég hef til dæmis gagnrýnt
glímulag núverandi glímukóngs,
Ólafs Sigurðssonar. Þetta á ekkert
skylt við persónu hans og utan
glímuvallar er Ólafur á margan hátt
til fyrirmyndar. Hann hefur hins
vegar tileinkað sér þá aðferð við
glímu sem nú er mjög í tísku t.d. í
boltaíþróttum; að ganga eins langt
og dómarar leyfa og helst lengra.
Slík aðferð býður níðinu heim og þá
kemur til kasta dómara að stemma
stigu við því. Þar fannst mér dóm-
urum síðustu Íslandsglímu ekki tak-
ast vel til þrátt fyrir hástemmdar
lofræður þínar um þá.
Þeim til afbötunar má segja að fá-
ar íþróttir er jafnerfitt að dæma og
glímuna og mörkin milli hins leyfi-
lega og ólöglega eru stutt og stund-
um erfitt að festa auga á þeim. Til-
laga mín um að banna handstuðning
fram á báðar hendur er til þess að
skýra þessi mörk og auðvelda dóm-
urum störf sín og koma í veg fyrir að
níðið verði verðlaunað með sigri.
Þú viðurkennir í bréfinu til mín að
einn byltudóm síðustu Íslandsglímu
mætti rökræða eftir að hafa skoðað
hann á myndbandi. Þar er væntan-
lega um að ræða dóminn í úrslita-
glímunni þegar Ólafi var dæmdur
sigur gegn Pétri Eyþórssyni. Ég
trúi ekki að óreyndu að þú, Kjartan
Lárusson, sért sáttur við að slík
bylta, ólögleg eins og hún var, hafi
ráðið úrslitum í Íslandsglímunni
2003.
Þú segir, Kjartan minn, að ég hafi
skrifað níðgreinar um ágæta glímu-
menn á undanförnum árum. Ég
kannast ekki við það. Ég hef í mín-
um greinum hrósað mörgum ágæt-
um glímumönnum fyrir sína glímu
og einn besta eiginleika góðs glímu-
manns tel ég vera þann að forðast að
níða andstæðing sinn. Þeir sem ekki
forðast að níða andstæðinginn eru
ekki nógu góðir glímumenn að mínu
mati og líklega þarf ég ekki að nafn-
greina þá fyrir þig því ég held að þú
þekkir þá mætavel. Og það er rétt
hjá þér að tillögur mínar að glímu-
lagabreytingum miða að því að þeir
sem leggja lag sitt við níðið verð-
launist ekki.
Að síðustu, Kjartan, gamli vinur.
Hafi ég gleymt því þá vil ég nú
þakka þér kærlega fyrir stuðninginn
við endurkjör mitt sem formanns
GLÍ á sínum tíma alls fimm sinnum
og einnig góða samvinnu okkar að
glímumálum allan þann tíma og
bæði fyrr og síðar. Von mín er sú að
okkur takist saman að vinna að því
að útrýma níðinu úr glímunni og
leiða góða glímu og drengilega til
öndvegis í þjóðaríþrótt okkar Ís-
lendinga.
JÓN M. ÍVARSSON,
fyrrverandi formaður
Glímusambands Íslands.
Íslands-
glíman og
níðið
Frá Jóni M. Ívarssyni:
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
alltaf á föstudögum