Morgunblaðið - 20.07.2003, Qupperneq 52
52 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
Sýnd kl. 4.10, 6.10, 8.10 og 10.10. B i. 12 Sýnd kl. 4, 7 og 10.
with english subtitles
Sýnd kl. 3.50. Ensk. texti
Fyndnasta Woody Allen myndin til þessa.
Sjáið hvernig meistarinn leikstýrir stórmynd
frá Hollywood blindandi.
Mike Clark/
USA TODAY
Peter Travers
ROLLING STONE
i l
I
Sýnd kl. 5.30 og 8. B.i. 12
YFIR 42.000 GESTIR!
GH
KVIKMYNDIR.COM
"Besta hasarmynd
sumarsins það
sem af er"
t r
r i
f r"
„Líklegast best heppnasta
ofurhetjumynd allra tíma!
Sá græni rokkar.“
B.Ö.S. Fréttablaðið
í l
j ll í !
i .
. . . l i
KVIKMYNDIR.IS
SG. DV
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B i. 12
X-IÐ 97.7
DV
KVIKMYNDIR.COMKVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
HL MBL
SG DVRoger Ebert
Miðaverð kr. 800.
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 4.
Sýnd kl. 10. Bi.14.
SG. DV
AKUREYRI
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.45, 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
FRUMSÝNING
Það er erfitt að falla inn í hópinn þegar
þú skerð þig svona hrikalega úr
Rómantísk gamanmynd með Amanda Bynes og ColinFirth
(Bridget Jones´s Diary)
YO LA TENGO er hljómsveitsem helst höfðar til tónlist-arpælara og -fræðinga; húner ekki líkleg til að ná al-
mennum vinsældum þó að tónlistin
sé á köflum létt og grípandi, þægileg
fyrir eyrað, þá er stundum salt í syk-
urkarinu og á eftir sannkallaðri dæg-
urperlu kemur skælifetlavein og
skruðningar.
Yo La Tengo hefur verið að í tæpa
tvo áratugi; fyrir nítján árum aug-
lýstu þau Ira Kaplan, sem lék á gítar
og söng, og Georgia Hubley, sem lék
á trommur og söng, eftir samstarfs-
mönnum sem áttu vissulega að
kunna á hljóðfæri en tónlistarsmekk-
urinn skipti meiru; þeir einir áttu að
sækja um sem höfðu dálæti á Soft
Boys, Mission of Burma og Love.
Nokkrir léku með þeim Kaplan og
Hubley næstu árin en 1985 var loks
komin mynd á sveitina, auk þeirra
Kaplan og Hubley voru liðsmenn gít-
arleikarinn Dave Schramm og
bassaleikarinn Mike Lewis. Þannig
skipuð tók sveitin upp fyrstu smá-
skífuna og síðan breiðskífuna Ride
the Tiger. Sú skipan stóð þó ekki
lengi því rétt þegar plantan var kom-
in út hættu þeir Schramm og Lewis.
Á næstu plötu, New Wave Hot Dogs,
sem kom út 1987, lék Stephen
Wichnewski á bassa en hann entist
ekki nema eina plötu heldur. Næsti
bassaleikari var Gene Holder sem
stýrði einnig upptökum á plötunni
President Yo La Tengo, sem kom út
1989, en vann var bara gestur, ekki
fastráðinn. Schramm sneri aftur til
að leika með Yo La Tengo inn á plöt-
una Fakebook, sem á var safn laga
eftir aðra listamenn og einnig ný lög
eftir sveitina og endurgerð á einu
gömlu Yo La Tengo-lagi.
Mannaskipan loks fullmótuð
Það var svo ekki fyrr en á fimmtu
breiðskífunni, May I Sing With Me
sem kom út 1992, að mannaskipan
var loks fullmótuð; James McNew
tók að sér bassaleikinn og hefur ver-
ið í sveitinni síðan. Painful kom 1993,
Electr-o-Pura 1995, tveggja diska
safn af b-hliðalögum og sjaldheyrð-
um og útgefnum lögum sem kallaðist
Genius + Love = Yo La Tengo 1996,
snilldarskífan I Can Hear the Heart
Beating as One kom 1997, And Then
Nothing Turned Itself Inside Out
2000, The Sounds of the Sounds of
Science 2002 og svo Summer Sun
fyrr á þessu ári.
Væntanlega kannast einhverjir við
sveitina úr myndinni I Shot Andy
Warhol, en í henni leikur Yo La
Tengo hljómsveitina Velvet Und-
erground, sem henni hefur reyndar
iðulega verið líkt við, þá helst af þeim
sem ekki þekkja báðar sveitirnar.
Undanfarin ár hefur sveitin líka
verið iðin við sitthvað annað; getið er
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Sykur og salt
Bandaríska hljómsveitin Yo La Tengo höfðar lík-
lega helst til tónlistarpælara og -fræðinga, en flest-
ir finna þó eitthvað við sitt hæfi á skífum hennar.
Ný plata Yo La Tengo er Summer Sun.
HRAFN Jökulsson hefur verið í far-
arbroddi í átaki skákfélagsins
Hróksins við að auka veg skák-
íþróttarinnar. Hann vinnur um
þessar mundir að útgáfu tímarits
um nýlega ferð Hróksins til Græn-
lands þar sem haldið var veglegt
skákmót en hann er einnig nýsnú-
inn úr ferð um Snæfellsnes,
Strandir og Vestfirði þar sem boð-
að var „fagnaðarerindi skáklistar-
innar,“ eins og hann segir sjálfur.
Hvað ertu með í vösunum?
Ég er með lyklana að himinblárri
Mözdu, sem gegnir hinu mikilvæga
hlutverki skákbíls og klink sem á
að duga fyrir fyrsta capuccino
dagsins á Vegamótum á eftir. Hvað
þarf maður meira til að byrja dag-
inn?
Uppvaskið eða skræla kartöflur?
Uppvaskið tvímælalaust. Ég fæ oft
innblástur yfir uppvaskinu en aldrei
þegar ég skræla kartöflur.
Ef þú værir ekki skákfrömuður og
blaðamaður, hvað myndirðu þá
helst vilja vera?
Bóndi í fjarlægri sveit. Ég var sjö
sumur í sveit þegar ég var pjakkur
og verð forsjóninni sífellt þakklátari
fyrir þann tíma. Þar lærði ég að
vinna en hafði líka nægan tíma til
að hugsa.
Ég held að hugsunin sé aldrei tær-
ari en þegar maður er tíu ára eða
svo.
Hefurðu tárast í bíói?
Já, rökkvaðir bíósalir eru kjörinn
vettvangur til að veita tilfinningun-
um ærlega útrás. Reyndar hef ég
bara komist einu sinni eða tvisvar
á bíó síðasta árið, og því verið fátt
um tár.
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir
sem þú fórst á?
Ég byrjaði að sækja tónleika um
1980 þegar rokk og pönk skók
Reykjavík. Ég á nokkrar ógleyman-
legar myndir í huganum frá Mel-
arokki, tónleikum á Melavellinum
þar sem Þjóðarbókhlaðan stendur
nú.
Hvaða leikari fer mest í taugarnar
á þér?
Enginn sérstakur. Ég fæ hins vegar
alltaf óbeit á þeim persónum sem
eru með einhver leiðindi við Jodie
Foster. Ég er búinn að halda með
henni síðan við vorum bæði lítil.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Eftir að ég hætti að drekka vín eru
það aðallega súkkulaðikökurnar
sem ég á erfitt með að standast.
Finndu fimm orð sem lýsa per-
sónuleika þínum vel.
Reynir Traustason, samstarfsmað-
ur minn við skipulagningu Græn-
landsmótsins, hefur haldið margar
ræður til að sýna fram á að ég sé
kröfuharður þrælahaldari þegar
hlutirnir þurfa að gerast. Ég hugsa
að það sé rétt, en kröfuharkan nær
reyndar til sjálfs mín líka.
Flest lýsingarorð
eiga einhvern-
tíma við mig,
en ég reyni að
vera oftar
skemmtilegur
en leiðinlegur.
Bítlarnir eða
Stones?
Ég var að koma
úr landsbyggðar-
reisu ásamt skák-
drottningu
okkar
Hróksmanna, Regínu Pokorna. Bítl-
arnir voru með í för og sungu.
Hver var síðasta bók sem þú last
tvisvar?
Ég hef verið að lesa bók Willards
Fiskes um skáksögu Íslands, sem
prentuð var í Flórens á Ítalíu árið
1905, ári eftir dauða hans. Merki-
leg bók eftir ennþá merkilegri
mann. Fiske var líklega mesti vel-
gjörðarmaður sem Íslendingar hafa
eignast. Minningu hans þarf að
sýna sóma, og það gerum við best
með því að starfa í anda hans.
Hvaða lag kveikir blossann?
Haukur Morthens klikkar ekki. Að
mínu viti var hann einn flottasti
söngvari norðan Alpafjalla.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
Ég keypti heilan bunka af diskum
þegar ég kom við í 12 tónum. Þar
valdi Jóhannes Ágústsson ofan í
mig nýjasta skammtinn, en hann
er sérfræðingur minn á þessu
sviði. Ég segi honum í hvernig
skapi ég er og hann finnur viðeig-
andi tónlist.
Hvert er þitt mesta prakk-
arastrik?
Ég gleymi prakkarastrikum jafnóð-
um og verð alltaf jafnhissa þegar
ég er minntur á einhver gömul af-
rek á því sviði. Þegar ég var strákur
langaði mig að setja starfsheitið
prakkari í símaskrána. Prakkarar
eru ómissandi til að gefa lífinu lit
og fjör.
Hver er furðulegasti matur sem
þú hefur borðað?
Það voru súrsuðu selshreifarnir
sem ég bruddi í rökkvuðu eldhúsi
í Ingólfsfirði á Ströndum fyrir
tveimur áratugum eða svo. Veru-
lega bragðvondur matur, en hitt
gerði þó máltíðina enn ógeðfelldari
að mér þótti sem ég væri að
borða mannshendur.
Fær innblástur yfir uppvaski
SOS
SPURT & SVARAÐ
Hrafn
Jökulsson
Morgunblaðið/Ómar