Morgunblaðið - 26.07.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 200. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Stærstu útsölulokin
götumarkaður alla helgina
Síðustu dagar
stjórnarinnar
Lífverðir Saddams lýsa atburða-
rásinni er Bagdad féll | Erlent 14
Sumarlögin gefa mynd af
haustútgáfunni | Fólk 42
Fyrirboði
haustsins
Hið nýja
veldi
Kommúnistaávarp
21. aldarinnar? | Lesbók 10
MEÐ algjöru banni við
rjúpnaveiðum hefur fót-
unum verið kippt undan
framleiðslu fyrirtækis-
ins Hlaðs á Húsavík sem
hefur framleitt 100–300
þúsund skot á ári. Sport-
vörugerðin sér einnig
fram á milljónatjón.
Forsvarsmenn fyrir-
tækjanna gagnrýna harðlega hversu skammur fyr-
irvari var á banninu. Þegar þeir lögðu inn pantanir
var gert ráð fyrir því að veiðitíminn yrði styttur en
veiði ekki bönnuð með öllu.
„Í fyrra var rætt um að taka tíu daga framan og
aftan af veiðitímabilinu. Það hefði í sjálfu sér verið í
fínu lagi en nú sit ég uppi með hráefni og vöru í mörg
ár,“ sagði Jónas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri
Hlaðs, í samtali við Morgunblaðið í gær. Fyrirtækið
muni einnig sitja uppi með margs konar veiðivörur
fyrir tugi milljóna. „Þetta er allt á lánum og maður
veit alveg hvernig það endar,“ sagði hann.
Ásgeir Halldórsson hjá Sportvörugerðinni tók í
sama streng, en hann situr uppi með 200 þúsund
rjúpnaskot. Hann gerði ráð fyrir því að selja skot til
smásala fyrir um sjö milljónir. Nú þurfi hann að
huga að geymslu fyrir þau næstu þrjú árin en
geymslukostnaður verði vart undir einni og hálfri
milljón króna.
Framleiðandi og seljandi
rjúpnaskota verða fyrir stórtjóni
Gagnrýna
skamman
fyrirvara
Gífurlegt/4
KREPPAN í færeysku fiskeldi, ann-
arri stærstu útflutningsgreininni, er
nú farin að segja til sín í öllu sam-
félaginu með vaxandi atvinnuleysi og
taprekstri í bönkunum. Bendir flest
til, að góðærið, sem nú hefur staðið í
um áratug, sé á enda.
Føroya Banki, sem kom mjög við
sögu í erfiðleikunum fyrir rúmum
áratug, var rekinn með 274 millj. ísl.
kr. halla eftir skatt á fyrra misseri
þessa árs en allt frá árinu 1993 hefur
Í skýrslu síðarnefnda bankans er því
spáð, að tekjur landstjórnarinnar
muni minnka á næstunni og atvinnu-
leysi aukast. Með öðrum orðum, að
góðærinu sé líklega lokið í bili. Hefur
nú verið hnykkt á því með tilkynn-
ingu frá landstjórninni um að at-
vinnurekendur og launþegar skuli
greiða 0,75% af launum í atvinnu-
leysissjóðinn en skömmu fyrir síð-
ustu áramót var þessi prósenta
lækkuð úr 1,25% í 0,5%.
hann skilað góðum hagnaði. Er
ástandið enn verra hjá hinni stóru
fjármálastofnuninni, Føroya Spari-
kassa, en þar var tapið á fyrra helm-
ingi ársins um 643 millj. kr. Ástæðan
er ástandið í laxeldinu, mjög lágt
verð og ILA-veikin, alvarlegur
veirusjúkdómur.
Til að búa sig undir vaxandi áföll í
fiskeldinu hefur Føroya Banki lagt
til hliðar rúmlega 7,2 milljarða kr. og
Føroya Sparikassi 1,64 milljarða kr.
Kreppir að í Færeyjum
Þórshöfn. Morgunblaðið.
ÓBREYTTIR borgarar í
Monróvíu, höfuðborg Líberíu,
skoruðu í gær á erlend ríki að
stöðva blóðbaðið í borginni en
miklir bardagar geisuðu þar í
gær. Talið var, að nokkrir tugir
manna hefðu fallið, þar á meðal
fólk, sem hafði leitað skjóls í
skólahúsi. George Bush Banda-
ríkjaforseti hefur skipað svo fyr-
ir, að herskip verði send upp að
ströndum landsins en ekki er
ljóst hvort það er undanfari
beinna afskipta af óöldinni í
landinu.
Bush sagði að hlutverk hers-
ins yrði takmarkað og hann yrði
einungis á staðnum þar til frið-
argæslusveitir SÞ kæmu á vett-
vang. Þjóðarleiðtogar víða um
heim fögnuðu ákvörðun Banda-
ríkjastjórnar að senda skip til
landsins, meðal annarra Kofi
Annan, framkvæmdastjóri SÞ,
sem sagði hana mikilvægt skref
í átt að stöðugra ástandi.
Dagurinn í gær var einn sá
blóðugasti í langan tíma og
sprengikúlum rigndi yfir borg-
ina. Óbreyttir borgarar flýðu úr
einu hverfinu í annað í leit að
einhverju hæli eða að vatni og
mat en vatnskerfið er ónýtt og
matarbirgðir þrotnar.
Samtökin Læknar án landa-
mæra reyna enn að sinna særðu
fólki við erfiðar aðstæður og
talsmenn Flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna skoruðu
enn í gær á erlend ríki að sker-
ast í leikinn. Leiðtogar Vestur-
Afríkuríkjanna ætla ekki að
ákveða neitt um það fyrr en í
næstu viku og hingað til hefur
Bandaríkjastjórn ekkert viljað
segja um fyrirætlanir sínar.
„Ef blóðbaðið verður ekki
stöðvað eigum við eftir að verða
vitni að ólýsanlegum hörmung-
um,“ sagði Marc Destanne de
Bernis, fulltrúi SÞ í Líberíu.
Fyrir utan manndrápin eru þeg-
ar fréttir um mikinn kóleru- og
malaríufaraldur.
AP
Ákallar Guð og Ameríku
LÍBERÍSK kona stendur fyrir framan varnarmúr
bandaríska sendiráðsins í Monrovíu og biður ann-
aðhvort Guð eða Ameríku að bjarga sér. „Ég grát-
bið George Bush að stöðva þenna hrylling strax.
Það er verið að drepa fólk, konur og börn,“ sagði
Emmanuel Sieh, annar íbúi, en rétt hjá safnaðist
grátandi fólk saman við rústir skólahúss, sem
hafði orðið fyrir sprengju. Þar féllu sjö manns. Lík
unglingspilts lá í rústunum og kona með tveggja
ára barn grét yfir líki systur sinnar.
Varað við ólýsanlegum
hörmungum í Líberíu
Monróvíu. AP, AFP.
Bandarískum herskipum
stefnt til landsins
HELSTA ástæðan fyrir búferlaflutningum hérlend-
is er aðdráttarafl þéttbýlisins, en hátt fasteignaverð
á höfuðborgarsvæðinu heldur aftur af frekari bú-
ferlaflutningum. Þetta kemur fram í grein hagfræð-
inganna Gylfa Zoëga og Mörtu G. Skúladóttur sem
birtist í nýjasta hefti Fjármálatíðinda.
Þar kemur fram að nálægðin við stóra þéttbýlis-
kjarna valdi því að fólk flytji til höfuðborgarsvæð-
isins. Í þéttbýli sé fjölbreytileikinn meiri og auðveld-
ara fyrir fólk að fá störf við hæfi. Munur á
fasteignaverði sé hins vegar það mikill að það haldi
aftur af þróuninni.
Í greininni kemur jafnframt fram að framkvæmd-
ir á Austurlandi muni valda samdrætti annars stað-
ar á landinu og þær geti jafnvel dregið úr fram-
kvæmdum á öðrum svæðum.
Fasteignaverð
helsta bremsan
Fasteignaverð/10
♦ ♦ ♦
BANDARÍKJAHER hand-
tók 13 menn, sem sumir
hverjir eru taldir vera líf-
verðir Saddams Husseins, í
húsi við Tíkrit, heimaborg
einræðisherrans fyrrver-
andi, í gær. Talið er að 5–10
þeirra hafi tilheyrt einkalíf-
varðasveit Saddams en Ray
Odierno, háttsettur hers-
höfðingi, sagði of snemmt
að segja til um hvort þeir
hafi nýlega verið með Sadd-
am eða geti veitt upplýsing-
ar um dvalarstað hans.
Íraskur maður gaf hern-
um upplýsingar um dvalar-
stað mannanna sem héldu
sig í húsi sunnan við bæinn.
„Hringurinn þrengist óð-
um,“ sagði Odierno.
Tugir þúsunda sjía-músl-
ima söfnuðust saman við
mosku í hinni heilögu borg
Najaf í gær og hlýddu á
herskáan klerk, Moqtada
Sadr, krefjast þess að
Bandaríkjaher hefði sig á
brott frá borginni og að
stjórnarráð sem þeir hafa
skipað yrði lagt niður.
Handtóku
lífverði
Saddams
Bandaríkjaher/14
Washington, Bagdad. AP, AFP.