Morgunblaðið - 08.08.2003, Blaðsíða 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2003 33
✝ Gunnar HelgiBenónýsson
fæddist á Siglufirði
6. ágúst 1924. Hann
lést á fjórðungs-
sjúkrahúsinu á
Blönduósi 29. júlí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Benóný Benedikts-
son yfirvélstjóri, f.
21. júní 1892, d. 10.
desember 1950, og
Sólveig Þorkelsdótt-
ir húsmóðir, f. 26.
október 1892, d. 2.
febrúar 1977. Syst-
kini Gunnars eru: 1) Sóley, f.
1918, d. 1943. 2)Þorkell, f. 1920,
d. 1993. 3) Sigurður, f. 1922, d.
1946. 5) Anna, f. 1930, d. 1931. 5)
Anna Snjólaug, f. 1933.
Gunnar kvæntist 9. janúar
1953 Bergljótu Óskarsdóttur frá
Skagaströnd, f. 18. desember
1924, og bjuggu þau alla sína bú-
skapartíð á Skagaströnd. For-
1962, gift 17. júní 1989 Þorvaldi
Heiðarssyni sjómanni, f. 11. jan-
úar 1958. Þau eru búsett í Vest-
mannaeyjum og eiga fjögur börn
og eitt barnabarn. 4) Bergþór
vélsmíðameistari, f. 21. júní 1964,
barnsmóðir eitt er Björk Sveins-
dóttir, f. 1. apríl 1965, og eiga
þau eitt barn. Barnsmóðir tvö er
Selma Svarasdóttir, f. 17. ágúst
1962, og eiga þau tvö börn. Berg-
þór er búsettur í Reykjavík.
Stjúpdóttir Gunnars, dóttir Berg-
ljótar og Ólafs Veturliða Odds-
sonar bifreiðastjóra, f. 26. ágúst
1915 í Súgandafirði, d. 11. októ-
ber 1977 í Reykjavík, er Helga
Ósk, starfsstúlka, f. 30 janúar
1944, gift 24. október 1965 Jóni
H. Jónssyni verkamanni, f. 22.
september 1944, þau eiga fjögur
börn og tíu barnabörn.
Gunnar ólst upp á Siglufirði.
Hann starfaði til sjós jafnhliða
störfum hjá Síldarverksmiðju
ríkisins á Siglufirði og síðar á
Skagaströnd eftir að hann fluttist
þangað þar sem hann starfaði
þar til hann hætti sökum aldurs.
Útför Gunnars verður gerð frá
Hólaneskirkju á Skagaströnd í
dag og hefst athöfnin klukkan
11.
eldrar Bergljótar
voru Helga Vilhelm-
ína Sigurðardóttir
frá Stórabergi,
Skagaströnd, f. 15.
apríl 1907, d. 18.
mars 1974 í Grinda-
vík, og Óskar Laufdal
frá Skeggjastöðum í
Vindhælishreppi, f.
22. janúar 1882, d.
24. janúar 1946 á
Blönduósi. Börn
Gunnars og Bergljót-
ar eru: 1) Benóný
Þorsteinn sjómaður,
f. 8. febrúar 1953,
kvæntur 8. febrúar 2003 Evu
Jónsdóttur húsfreyju, f. 22. mars
1937. Þau eru búsett í Hafnar-
firði. 2) Hilmar Oddur bifreiða-
stjóri, f. 20. apríl 1954, kvæntur
31. ágúst 1986 Lilju Rafneyju
Magnúsdóttur húsfreyju, f. 24.
júní 1957. Þau eru búsett á Suð-
ureyri og eiga fjögur börn. 3)
Sólveig Anna húsfreyja, f. 10. júlí
Svo að lifa ég sofni hægt,
svo að deyja að kvöl sé bægt,
svo að greftrast sem guðs barn hér
gefðu, sætasti Jesú mér.
(Hallgr. Pét.)
Elsku tengdapabbi, nú ertu kom-
inn yfir móðuna miklu og getur
slegið á létta strengi með þeim sem
þar eru fyrir og taka vel á móti þér.
Það eru liðin þrjátíu ár frá því að
ég kynntist þér og kom með syni
þínum til Skagastrandar til að
vinna í fiski en dvölin var aðeins
sumarið því ég dró hann vestur til
Súgandafjarðar þar sem við erum
enn.
En áfram var Skagaströnd fast-
ur punktur í lífi okkar og við nutum
gestrisni ykkar Beggu tengda-
mömmu á hverju sumri.
Síðan komu börnin okkar fjögur
og öll eiga þau góðar minningar frá
veru sinni á Skagaströnd eða
Kántríbæ eins og yngsta dóttir
okkar kallar staðinn því þegar hún
var minni var hún viss um að
Skagaströnd væri alvöru kúreka-
bær og að þú og pabbi sinn hefðu
verið kúrekar hér áður fyrr.
Alltaf gafstu þér tíma til að glett-
ast við barnabörnin, dansa, val-
hoppa, fara í boltaleiki og ærslast
með þeim í leik.
Þessum minningum deilum við
saman og góðum samverustundum
með þér í gegnum árin og gott er
að ylja sér við þær nú þegar við
kveðjum þig, rétt að verða 79 ára
gamlan, þann 6. ágúst.
En þegar maður hugsar útí það
þá varstu aldrei gamall í þeirri
merkingu orðsins, því þú áttir létta
lund og þótt lífið væri ekki alltaf
dans á rósum og veraldlegur auður
ekki þinn lífsförunautur áttir þú
annað sem er meira virði, góða fjöl-
skyldu og eiginkonu sem stóð með
þér í blíðu og stríðu.
Eftir að sjúkdómur þinn greind-
ist í vetur og þú þurftir að ganga í
gegnum erfiðar meðferðir léstu
ekki slá þig út af laginu, varst
hress og sjálfum þér líkur og þegar
Begga veiktist var allur hugur þinn
bundinn við að hún næði heilsu á ný
sem hefur sem betur fer ræst úr.
Og í síðasta skipti sem ég sá þig
á sjúkrahúsinu á Blönduósi varstu
enn léttur í spori og glaður yfir því
að tengdamamma væri að hressast
og þið færuð að fara heim.
En þú vissir manna best að kallið
færi að koma hjá þér og tókst því
með æðruleysi og ró. Guð geymi
þig, kæri tengdapabbi. Hilmar, ég
og börnin þökkum þér allt það góða
í gegnum árin.
Lilja Rafney Magnúsdóttir,
Suðureyri.
Þínum anda fylgdi glens og gleði,
gamansemin auðnu þinni réði,
því skaltu halda áfram hinum megin
með himnaríkisglens við mjóa veginn.
Ég vona að þegar mínu lífi lýkur
ég líka verði engill gæfuríkur.
Þá við skoðum skýjabreiður saman
og skemmtum okkur, já, það verður
gaman.
(Lýður Ægisson.)
Mér finnst þessi erindi lýsa
stjúpa
mínum vel. Leiðir okkar Gunna
lágu fyrst saman þegar ég var níu
ára. Margt hefur gerst frá þeim
tíma. Hann var mér góður stjúp-
faðir. Börnum okkar og barnabörn-
um reyndist hann mjög vel. Gunni
hafði gaman af dansi og öllum
mannfagnaði, alltaf með bros á vör
og stutt í glensið.
Þó langt væri milli heimilanna
voru samskiptin stöðug. Alltaf var
tekið vel á móti okkur á Skaga-
strönd.
Gunni minn, hafðu hjartans þökk
fyrir samfylgdina.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku mamma og tengda-
mamma. Innilegar samúðarkveðj-
GUNNAR HELGI
BENÓNÝSSON
ur. Við biðjum algóðan guð að
styrkja
þig um ókomna tíð.
Helga og Jón.
Ævitíminn eyðist,
unnið skyldi langtum meir.
Síst þeim lífið leiðist,
sem lýist, þar til út af deyr.
Þá er betra þreyttur fara að sofa,
nær vaxið hefur herrans pund,
en heimsins stund
líði í leti og dofa.
(Björn Halld.)
Hinn 6. ágúst hefðir þú elsku afi
orðið 79 ára gamall og þetta ljóð
lýsir þér vel og hvernig þú tókst
hlutunum. Þú lifðir fyrir daginn í
dag og varst ekkert að velta þér
upp úr hlutunum heldur tókst þeim
eins og þeir komu. Það var alltaf
stutt í húmorinn og glensið og það
var alltaf gaman að vera í kringum
þig.
Það hefur alltaf verið gaman að
heimsækja þig og ömmu á Skaga-
strönd og að hitta ykkur þegar þið
komuð í bæinn og eigum við syst-
kinin margar góðar minningar frá
þeim tímum. Fyrr á þessu ári hjá
Bergþóri frænda sagðir þú frá því
þegar þú varst nýkominn úr geisla-
meðferð og komst fram sönglandi.
Þá voru menn þar að furða sig á því
hvað þú værir í góðu skapi. En þá
sagðir þú bara að þér liði vel og að
þetta hefði gengið vel og sæir enga
ástæðu til annars og þetta lýsir því
vel hvernig þú varst og tókst veik-
indunum með miklu æðruleysi.
Elsku afi, við systkinin munum
sakna þín mikið og minnast allra
yndislegu samverustundanna sem
við áttum með þér.
Jófríður, Gunnar, Einar
og Harpa.
✝ Aðalbjörg Þor-valdsdóttir
fæddist á Skálum á
Langanesi 31. júlí
1914. Hún lést á
Hrafnistu í Hafnar-
firði 31. júlí síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Hall-
björg Daníelsdóttir
og Þorvaldur Krist-
ján Kristjánsson.
Systkini hennar eru:
Signý Sigurlaug
Margrét, f. 1916, bú-
sett í Keflavík, Vil-
hjálmur Sigurður, f.
1920, látinn, Þuríður, f. 1922, lát-
in, Ágúst Þorvaldur, f. 1927, lát-
inn, Anna Margrét, f. 1930, bú-
sett í Hafnarfirði, Friðrik
Þorgeir, f. 1931, látinn, og Jón, f.
1935, búsettur í Noregi.
Árið 1933 giftist Aðalbjörg
Þórhalli Birni Sigurjónssyni tré-
smið, f. 10.4. 1909, d. 27.6. 1993.
Þau eignuðust fimm börn. Þau
eru: 1) Ívar, f. 22.11. 1933, maki
Lovísa Sveinsdóttir, eiga þau
fimm börn, 11 barnabörn og þrjú
barnabarnabörn. 2) Indíana Sig-
ríður, f. 12.8. 1936,
maki Páll Hall-
dórsson, eiga þau
þrjú börn, átta
barnabörn og fjög-
ur barnabarnabörn.
3) Hallbjörg, f. 9.1.
1939, maki Gunnar
Finnbogason, skilin,
eiga þau fjögur
börn og fimm
barnabörn. 4) Sig-
urjón, f. 13.2. 1940,
maki: Helga Ingólfs-
dóttir, eiga þau
fjögur börn og þrjú
barnabörn. 5)
Dagný, f. 2.4. 1943, maki: Willi-
am Jeans, skilin, eiga þau fjögur
börn, sjö barnabörn og eitt
barnabarnabarn. Afkomendur
Aðalbjargar og Þórhalls eru alls
63.
Aðalbjörg var heimavinnandi
framan af ævinni, en hóf síðan
störf hjá Hraðfrystihúsi Þór-
kötlustaða í Grindavík og vann
þar fram á ellilífeyrisaldur.
Útför Aðalbjargar fer fram frá
Grindavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Elsku amma, þá er komið að
kveðjustundinni.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og gleyma.
(Ingibjörg Sig.)
Margar góðar minningar um
tímann okkar saman koma upp í
huga okkar systkinanna þegar við
hugsum til baka. Við vorum svo
lánsöm að alast upp í sama húsi og
þið afi bjugguð í á Austurveginum.
Alltaf vorum við velkomin til ykkar
og aldrei fannst okkur við vera að
trufla. Þú varst svo góð við okkur
og skemmtileg og oft kíktum við í
heimsókn til að athuga hvað þú
værir gera – hvort þú værir að
elda, baka, eða bara eitthvað ann-
að. Þú lést okkur hafa einhver
verkefni og fannst okkur þá við
vera mjög merkileg. Til dæmis
þegar þú tókst slátur á haustin, þá
fengum við gjarnan að skera mör,
hræra, eða eitthvað annað sem við
smáfólkið gátum ráðið við. Ekki
má gleyma að minnast á laufa-
brauðsbaksturinn enda bjó enginn
til eins góð laufabrauð og þú.
Við fengum líka að vera með í
því að skera út alls kyns munstur
og var oft smá metingur um það
hver gerði flottasta brauðið.
Jól og áramót eru mjög sérstök í
huga okkar systkinanna, því þá var
alltaf mikið um að vera á Austur-
veginum. Þú varst svo mikið jóla-
barn og bar húsið ykkar afa þess
merki og þar var sannur jólaandi.
Jólatréð þitt var alltaf mjög sér-
stakt því þú skreyttir það aðallega
með skrauti sem barnabörnin þín
höfðu föndrað og gefið þér og það
sem ekki komst á tréð fór upp á
vegg. Jafnvel eftir að við urðum
fullorðin gátum við enn skoðað
listaverkin eftir okkur og segir það
meira en mörg orð um það hvað
þér þótti vænt um barnabörnin
þín.
Árin liðu og við systkinin fluttum
af Austurveginum á Selsvellina og
var það mikil breyting fyrir okkur.
En ekki leið á löngu þar til þið afi
fluttuð í íbúðina ykkar í blokkinni
og þá var aftur orðið stutt á milli
okkar. Þið afi komuð oft í heim-
sókn og þú varst líka dugleg að
koma í kaffi þegar þú varst orðin
ein. Þá sagðir þú okkur gjarnan
sögur af þér þegar þú varst lítil
stelpa á Langanesi eða fórst með
ljóð. Lestur bóka og þá sérstaklega
ljóðabóka var þitt líf og yndi og
kunnir þú mörg ljóð utan að.
Þú varst alltaf sérstaklega dug-
leg að fylgjast með öllum þínum
börnum og barnabörnum og við er-
um viss um það að þar sem þú ert
núna munt þú halda því áfram að
vaka yfir öllum hópnum með
dyggri aðstoð afa.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma kæra,
nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá,
í hljóðri sorg, og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sig.)
Elsku amma, takk fyrir alla þá
ást og hlýju sem þú gafst okkur
systkinunum. Megi Guð geyma þig.
Þórhallur Ingi, Anna Þórunn,
Guðmundur og Atli Þór
Sigurjónsbörn.
Höfuð mitt er fullt af minningum
um þig, elsku amma, en samt svo
tómt. Þú sagðir oft að ég væri
fædd með pennann í höndunum, en
nú er eins og ég kunni ekkert með
hann að fara. Þú hefur alltaf verið
svo stór hluti af lífi mínu. Þú hvatt-
ir mig sífellt til dáða, fylltir mig
sjálfstrausti, lést mig finna að ég
væri einstök bara eins og ég er. Þú
gafst mér svo margt, en það dýr-
mætasta var tíminn sem við spjöll-
uðum, spiluðum og þegar þú
treystir mér, krakkanum, til að
leysa af hendi ákveðin verkefni
fyrir þig, t.d. pakka inn jólagjöfum
og skrifa á kort. Ég minnist Þor-
láksmessuhlaðborðsins þíns með
söknuði en þá hittist fjölskyldan, í
skötustöppu, hangikjötssmökkun
og ýmislegt fleira. Fólk var að
koma við allan daginn og alltaf var
nóg til. Þú varst svo gestrisin,
hafðir lítið fyrir því að slá upp
veislu hvenær sem var. Það var
með ólíkindum hvað eldhúsborðið
gat borið af kræsingum. Þú sagðist
aldrei baka, bara búa til ,,kota-
klessur“! En það voru hin bestu
vínarbrauð. Þú varst svo mikill
jafningi minn og góð vinkona,
hneykslaðist hvorki á mér né
gjörðum mínum. Þegar ég fór í
framhaldsnám, sagðir þú mér að
þig hefði dreymt um að verða ljós-
móðir þegar þú varst ung. Við
ræddum þá breytta tíma og ólík
tækifæri hjá kynslóðunum, ekki
léstu í ljós beiskju vegna þess sem
aldrei varð. Þegar ég fór svo í
snyrtifræði fékk ég endalaust að
æfa mig á þér að lita, plokka, lakka
o.s.frv.
Ég er þakklát fyrir að hafa feng-
ið tækifæri til að sýna þér stuðning
og veita þér hjálp á efri árum, þeg-
ar þú þurftir þess með. Við bjugg-
um þá hvor á sinni hæðinni í blokk,
nöfnurnar, þú ein og ég með Ívari
og Kristínu Margréti. En þá eins
og svo oft áður varst þú betri en
enginn í að hafa ofan af fyrir litlu
skottunni okkar. Það má með sanni
segja að þú, amma Bogga, hafir
verið fyrsti leikfélaginn sem Krist-
ín Margrét eignaðist. Hún var ekki
stór þegar hún fór að brölta milli
hæða til að ná í þig til að leika við
sig eða bjóða þér upp á hafragraut
með sér. En svo kom að því að þú
fluttir á Hrafnistu, þá urðu sam-
verustundirnar öðruvísi og færri
eins og gefur að skilja. Ég fór þó
með 9. sporshugleiðingu til þín og
var það mér dýrmætt. Að lokum
varstu hætt að þekkja mig, þá að
ákveðnu leyti kvaddi ég þig í hug-
anum. Auðvitað hefði ég viljað fá
þig aftur eins og þú varst, en svona
var nú það. Nú ertu búin að skila
þínum tíma hér í þessari jarðvist
og farin til afa, Sveins bróður og
allra hinna sem bíða okkar. Það
voru forréttindi að eiga þig að,
elsku amma. Takk fyrir að eiga
hlut í þeirri manneskju sem ég er í
dag. Þar til við hittumst á ný.
Þín nafna
Aðalbjörg.
Þú varst besta langamma í heim-
inum. Þú varst fyrsta vinkonan
sem ég eignaðist. Þegar við bjugg-
um saman í blokkinni varstu svo
dugleg að leika við mig. Takk fyrir
góðar stundir, elsku amma Bogga.
Ég man hvað okkur fannst gott að
hittast á morgnana og borða sam-
an hafragrautinn, sem mamma bjó
til handa okkur. Þú varst dugleg að
syngja fyrir mig og kenndir mér
margar vísur. Stundum kom ég
niður til þín og færði þér lyfin, þá
tókst þú svo vel á móti mér, þú átt-
ir alltaf ís eða eitthvað gott handa
mér. Nú ert þú komin til englanna
og ég veit að þeir passa þig vel.
Takk fyrir allt.
Þín
Kristín Margrét.
AÐALBJÖRG
ÞOVALDSDÓTTIR
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda fylgi með. Nánari upplýsingar eru
á mbl.is.