Morgunblaðið - 08.08.2003, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Án nokkurs vafa hefur þú
mikla hæfileika á ýmsum
sviðum. Vegna þessa átt þú
oft erfitt með að gera upp
við þig hvað þú kýst að
leggja fyrir þig.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Samræður við foreldra eða
yfirmenn geta skipt sköpum
fyrir þig í dag. Þú mátt bú-
ast við óvæntri uppákomu.
Vertu á varðbergi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur sterka löngun til
þess að losna úr viðjum
hversdagsins. Þú þarft að
breyta aðeins til og gera
eitthvað óvenjulegt. Láttu
verða af því.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Reyndu eftir fremsta megni
að gera eitthvað í sambandi
við fjármál þín. Þessar að-
gerðir þínar þola enga bið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Staða himintunglanna gerir
það að verkum að þú þarft
að leggja meira á þig en aðr-
ir í dag. Þetta ætti ekki að
reynast þér um megn.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gerðu allt sem í þínu valdi
stendur til þess að koma
skipulagi á hlutina, bæði í
vinnunni og heimafyrir.
Þetta mun létta þér lífið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það mun að öllum líkindum
koma þér á óvart ef einhver
daðrar við þig í dag. Þetta er
ekkert alvarlegt. Þú ættir ef
til vill að svara í sömu mynt!
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft að beina sjónum
þínum að heimilinu í dag. Þú
hefur látið félagslífið í fyrsta
sæti en nú þarfnast fjöl-
skyldan þín.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Í dag væri kjörið að ræða
við ættingja og vini. Það
væri ekki úr vegi að gera sér
dagamun og fara að versla.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú gætir komið auga á tæki-
færi til þess að vinna þér inn
peninga á óvenjulegan hátt.
Ef þetta verður að veruleika
mun tækifærið ekki vara
lengi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Tunglið er í merki þínu í
dag, kæra steingeit. Það gef-
ur þér forskot í öllum þínum
aðgerðum. Ekki hika við að
nota það.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú leggur ætíð hart að þér í
starfi. Hafðu það þó í huga
að allir þurfa einhverja
hvíld. Nú er svo komið að þú
þarft að hvíla þig. Gerðu
það.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Kvenkyns vinur gæti reynst
þér vel í dag. Ef þú hefur
einhverjar hugmyndir varð-
andi eitthvað mikilvægt
skaltu bera þær undir vini
þína.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
STÖKUR
Blessuð sólin elskar allt,
allt með kossi vekur,
haginn grænn og hjarnið kalt
hennar ástum tekur.
Geislar hennar út um allt
eitt og sama skrifa
á hagann grænan, hjarnið kalt:
Himneskt er að lifa.
Hannes Hafstein
LJÓÐABROT
50 ÁRA afmæli. Gunn-ar Hermannsson,
rafiðnfræðingur, Eikjuvogi
22, Reykjavík, er fimm-
tugur í dag föstudaginn 8.
ágúst. Hann og eiginkona
hans Ingibjörg Pálsdóttir
taka á móti fjölskyldu og
gestum á heimili sínu í
Eikjuvogi frá kl. 18:00 á af-
mælisdaginn.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 8. ágúst,
er fimmtug Guðbjörg Halla
Björnsdóttir, Jötunsölum 2,
Kópavogi. Sonur hennar er
Jón Björn Marteinsson.
Guðbjörg tekur á móti vin-
um og vandamönnun í fé-
lagsheimi Sjálfsbjargar,
Hátúni 12, frá kl. 16 í dag.
1. c4 Rf6 2. Rc3 c5 3. g3 e6
4. Rf3 b6 5. e4 Bb7 6. d3
d6 7. Bg2 Be7 8. O-O O-O
9. Rg5 Rfd7 10. h4 h6 11.
Rh3 Rc6 12. f4 Rd4 13.
Be3 Hb8 14. Kh2 Bc6 15.
Bxd4 cxd4 16. Rb5 Bxb5
17. cxb5 Rf6 18. Rg1 Dd7
19. a4 a6 20. bxa6 Da7 21.
Bh3 Dxa6 22. Rf3 b5 23. a5
Da7 24. g4 Rh7 25. g5 hxg5
26. hxg5 g6 27. Dd2 b4 28.
f5 Hb5 29. a6 Hb6 30. fxg6
fxg6 31. Bxe6+ Kg7 32.
Bd5 Hxa6 33. Hac1 Dd7
34. Dg2 Hf4 35. Dg3 Hg4
Staðan kom upp í ofur-
mótinu í Biel
sem lauk fyrir
skömmu. Sigur-
vegari mótsins,
Alexander Mor-
ozevich (2679),
hafði hvítt gegn
Christopher
Lutz (2631). 36.
Re5! dxe5
36...Hxg3 gekk
ekki upp vegna
37. Hf7+ Kh8
38. Rxg6+ Kg8
39. Hxe7+ og
hvítur vinnur.
37. Hf7+ Kh8
38. Hxh7+!
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Kxh7 39. Dh3+ og svartur
gafst upp enda mát eftir
39...Kg7 40. Dh6#. Loka-
staða mótsins varð þessi: 1.
Alexander Morozevich
(2679) 8 vinninga af 10
mögulegum. 2.-3. Etienne
Bacrot (2645) og Ilya Smir-
in (2656) 6 ½ v. 4. Yannick
Pelletier (2602) 5. Christ-
opher Lutz (2631) 3 v. 6.
Viktor Kortsnoj (2628) 2 v.
Boðsmót Taflfélags
Reykjavíkur hefst í dag, 8.
ágúst kl. 19.00 í húsakynn-
um félagsins, Faxafeni 12.
Öllum er velkomið að taka
þátt en um helgarmót er að
ræða sem lýkur sunnudag-
inn 10. ágúst. Nánari upp-
lýsingar um mótið er að
finna á skak.is.
EDDIE Kantar teiknaði
upp verkefni dagsins, sem
er að spila sjö spaða í suð-
ur. Kantar lét þau orð
fylgja að hann gæti ekki
fengið sig til að skrifa upp
sagnröð til að réttlæta vit-
leysuna, því auðvitað eiga
NS heima í sjö laufum.
Norður
♠ DG
♥ Á843
♦ ÁK42
♣ÁKD
Suður
♠ ÁK876
♥ 2
♦ 65
♣G10943
Kantar hefði getað gert
tvennt: Til dæmis logið því
að þetta væri tvímenn-
ingur, eða vitnað í Göltinn
grimma, hetju Mollos, sem
segir það dauflegan brids
að spila alltaf besta samn-
inginn. En nú er það alvar-
an – hvernig eigi að spila
sjö spaða með hjarta-
drottningu út?
Ef trompið er 4-2 verður
stíflan í laufinu vandræða-
leg. Segjum að sagnhafi
taki DG í spaða, stingi
hjarta og spili svo spaðaás.
Spilið er búið ef báðir
fylgja, en ella þarf að taka
síðasta trompið. En laufið
er læst eins og Ríkið á
sunnudögum og tveir
laufslagir heima fara fyrir
lítið.
Norður
♠ DG
♥ Á843
♦ ÁK42
♣ÁKD
Vestur Austur
♠ 10532 ♠ 94
♥ DG107 ♥ K965
♦ G983 ♦ D107
♣2 ♣8765
Suður
♠ ÁK876
♥ 2
♦ 65
♣G10943
Stíflan í laufinu er
hreinsuð með stæl. Sagn-
hafi tekur DG í spaða, síð-
an laufdrottningu (af fag-
urfræðilegum ástæðum),
trompar hjarta og tekur
ÁK í spaða. Í hæstu
trompin fara hæstu laufin
úr borði – laufás í spaðaás
og laufkóngur í spaðakóng.
Þá er leiðin greið fyrir
G1094 heima.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
Ljósmynd/Stúdíó Sissa
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í Háteigskirkju 21. júní sl.
María Sigurðardóttir og Kjartan Hrafn Kjartansson. Með
þeim á myndinni er Orri Hrafn Kjartansson.
Grafarvogskirkja. Al-Anon fundur kl. 20.
Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9. Samkom-
ur alla laugardaga kl. 11. Bænastund alla
þriðjudaga kl. 20. Biblíufræðsla allan sól-
arhringinn á Útvarpi Boðun FM 105,5. Allir
alltaf velkomnir.
Morgunblaðið/ÓmarKópavogskirkja
Safnaðarstarf
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Nú, þetta! Tja, mér finnst
svo gott að slappa af við
trommurnar á mánudögum.
STJÓRN Hvalaskoðunarsam-
taka Íslands hafa sent frá sér
ályktun þar sem er hörmuð sú
„einhliða ákvörðun íslenskra
stjórnvalda að hefja veiðar á
hrefnum hér við land án sam-
þykkis Alþjóðahvalveiðiráðsins
og okkar helstu viðskiptalanda.“
Í ályktuninni segir að stjórnin
líti á þessa ákvörðun stjórn-
valda sem beina aðför að grein-
inni og bendir á að hvergi í
heiminum sé verið að sýna og
skjóta sömu hvalategund eins
og áform séu uppi um hér við
land. Hvalaskoðun á Íslandi
byggist að langmestu leyti á að
sýna hrefnur.
„Hvalaskoðunarsamtök Ís-
lands hafa ávallt lagt áherslu á
að hvalveiðar hér við land verði
ekki hafnar nema í sátt við al-
þjóðasamfélagið og viðeigandi
stofnanir. Að öðrum kosti verði
meiri hagsmunum fórnað fyrir
minni. Stjórnin telur að þessi
ákvörðun sjávarútvegsráðherra
komi til með að skaða ferða-
þjónustuna á Íslandi almennt og
hvalaskoðun með beinum hætti.
Samtökin krefjast þess að
stjórnvöld endurskoði afstöðu
sína nú þegar og fresti öllum
áformum um hvalveiðar þar til
fullt samráð hefur verið haft við
Samtök ferðaþjónustunnar, okk-
ar helstu viðskiptalönd og Al-
þjóðahvalveiðiráðið.“
Hvalaskoðunarsamtök Íslands
Harma ákvörð-
un stjórnvalda