Morgunblaðið - 30.09.2003, Side 4

Morgunblaðið - 30.09.2003, Side 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ „VIÐ byrjuðum með um 20 tonn af bókum og bætum svo við eftir þörf- um daglega,“ segir Bragi Kristjóns- son um bókamarkað Bókavörð- unnar, sem hófst í fyrrum Íslands- bankahúsinu á Laugavegi 105 í gær. Bragi segir að hann hafi byrjað með svona bókamarkað fyrir 15 ár- um og þar sem viðtökurnar hafi verið góðar hafi hann haldið upp- teknum hætti árlega síðan. „Við lít- um á þetta sem skemmtun fyrir við- skiptamenn okkar og okkur sjálfa í hálfan mánuð og bjóðum helmings- afslátt en þær bækur sem ekki eru verðlagðar kosta hundrað kall,“ segir Bragi. „Það eru alls konar happdrætti í þessu sem fólk kann að meta og við erum ekki með neina smámunasemi.“ Meðan bókamarkaðurinn stend- ur yfir er Bragi jafnframt með 50% afslátt á bókum í verslun sinni á Vesturgötu 17. Hann segir að í boði séu allir flokkar bóka og nóg hafi verið að gera fyrsta daginn. „Fólk kemur og lýkur sér af fyrir árið, kaupir 20 til 50 bækur og er svo ekkert að vesenast í því meir,“ seg- ir Bragi. Um 20 tonn af bókum á markaði Morgunblaðið/Árni Sæberg Hægt er að gera góð kaup á bókamarkaði Bókavörðunnar en hér velja þær Magnea Rannveig og Guðrún sér ljóða- bækur í einni gömlu gjaldkerastúkunni í fyrrum Íslandsbanka við Hlemmtorg í Reykjavík. SKÁKFÉLAGIÐ Hrókurinn gengst fyrir alþjóðlegri skákhátíð á Suður- landi 28. október til 7. nóvember. Tvö sterk skákmót verða á Hótel Selfossi og er annað þeirra eitt sterkasta skákmót sem haldið hefur verið á Íslandi. Friðrik Ólafsson verður verndari mótsins og Daninn Bent Larsen skákskýrandi, en hátíð- in er tileinkuð sunnlenskum börnum og meðal annars verður efnt til risa- fjölteflis og barnaskákmóts. „Það er sérstakt fagnaðarefni að Selfoss skuli annað árið í röð vera vettvangur stórmóts í skák,“ segir Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins. „Gamall draumur skákáhuga- manna um árlegt stórmót er nú að rætast. Þökk sé afar góðri sam- vinnu við bæjaryfirvöld í Árborg og fleiri sveitarfélögum á Suðurlandi og staðarhaldara á hinu glæsilega hóteli sem er eins og kjörið fyrir al- þjóðlega stórviðburði.“ Á alþjóðlega mótinu verður keppt í meistaraflokki og áskor- endaflokki og eru tíu skákmenn í hvorum flokki. Í meistaraflokknum verða m.a. sigurvegararnir á Mjólkurskákmótinu á Hótel Selfossi 2002, Ivan Sokolov og Predrag Nikolic, rússneski stórmeistarinn Vladimir Malakhov sem er aðeins 21 árs en kominn með tæplega 2.700 Elo-stig, Victor Bologan, sig- urvegarinn á sterkasta skákmóti heims á árinu, og íslensku stór- meistararnir Hannes Hlífar Stef- ánsson og Þröstur Þórhallsson. Í áskorendaflokki verða á meðal keppenda tékkneski stórmeistarinn Tomas Oral og skákdrottning Hróksins, Regina Pokorna. Aldurs- forseti á Hótel Selfossi verður Ingv- ar Ásmundsson, en meðal annarra keppenda verða Stefán Krist- jánsson og Ingvar Þór Jóhann- esson. Skákhátíð um allt Suðurland „Við leggjum áherslu á að hér verður ekki einvörðungu um tvö sterk alþjóðleg skákmót að ræða heldur skákhátíð sem teygir sig allt frá Þorlákshöfn til Hafnar í Hornafirði,“ segir Hrafn, en liðs- menn Hróksins eru um þessar mundir að heimsækja skóla á Suð- urlandi og færa þriðjubekkingum að gjöf, frá Hróknum og Eddu út- gáfu hf., bókina Skák og mát. „Við munum heimsækja og virkja skólana á þessu svæði og vonumst til þess að mörg hundruð börn taki þátt í viðburðum Hróksins í tengslum við alþjóðlega mótið á Hótel Selfossi.“ Alþjóðleg skákhátíð á Suðurlandi undirbúin Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Skákhátíð er ráðgerð á Selfossi og víðar um Suðurland í næsta mánuði. Myndin er frá skákmóti Hróksins á Selfossi í fyrra.SENDINEFND frá ríkisþingi Kaliforníu er í opinberri heimsókn á Íslandi í boði Alþingis og verður hér til föstudags. Þingmennirnir þrír hófu heim- sóknina á Akureyri á laugardag, en komu til Reykjavíkur í gær og munu meðal annars kynna sér orkumál, sjávarútvegsmál og al- mannavarnir. Þeir verða við þing- setninguna á morgun og munu eiga fundi með fulltrúum þing- flokka og efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis auk þess sem þeir hitta forseta Íslands og for- sætisráðherra. Á Akureyri heimsóttu þing- mennirnir meðal annars háskólann og var myndin tekin við það tæki- færi en á henni eru frá vinstri Þor- steinn Gunnarsson, rektor Háskól- ans á Akureyri, Debra Bowen, Dede Alpert, Bruce McPherson og Halldór Blöndal, forseti Alþingis. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þingmenn frá Kali- forníu í heimsókn MEINT innherjasvik fyrrverandi hluthafa í bresku verslanakeðjunni Iceland með hlutabréf í félaginu verða tekin til rannsóknar hjá opin- berri stofnun í Bretlandi, sem rann- sakar efnahagsbrot. Verslanakeðjan Iceland er nú hluti af verslanakeðj- unni Big Food Group, sem Baugur Group á 22% hlut í. Framkvæmda- stjóri hjá Baugi ID telur ekki að rannsóknin hafi nein áhrif á fyrir- tækið sjálft þar sem hún beinist að fyrrverandi eiganda þess sem fyrir löngu hafi hætt öllum afskiptum af rekstrinum. Í apríl síðastliðinum var sagt frá því að breska viðskipta- og iðnaðar- ráðuneytið hafi þá í tvö ár rannsakað meint innherjasvik Malcolm Walker, stofnanda og fyrrverandi stjórnar- formanns verslunarkeðjunnar Ice- land, í tengslum við sölu hans á hlutabréfum í fyrirtækinu. Jafn- framt kom fram að ráðuneytið hefði vísað málinu til opinberrar stofnunar sem rannsakar fjársvik. Breska blaðið Mail on Sunday greinir frá því að stofnunin hafi nú tekið málið til rannsóknar. Segir Mail on Sunday að rannsókn viðskiptaráðuneytisins hafi hafist eftir að Malcolm Walker, stofnandi og fyrrverandi stjórnarformaður Iceland, seldi hlutabréf í fyrirtækinu fyrir 13,5 milljónir punda, rúmlega 1,7 milljarða króna, í desember árið 2000. Verð bréfanna hafi þá verið mjög hátt. Mánuði síðar hafi fyrir- tækið hins vegar gefið út afkomu- viðvörun og í kjölfarið hafi gengi hlutabréfanna hrunið. Walker hætti störfum vegna uppnáms sem varð vegna hlutabréfasölu hans. Blaðið segir að einnig hafi verið rannsökuð fjármál Iceland áður en ný stjórn tók við fyrirtækinu í árs- byrjun 2001. Hinir nýju stjórnendur fyrirtækisins hafi upplýst að hagn- aður Iceland allt árið 2000 hafi num- ið 26 milljónum punda. Fyrri stjórn- endur hafi hins vegar áður haldið því fram að hagnaðurinn á fyrri hluta ársins 2000 hafi numið tæpum 40 milljónum punda. Engin áhrif Iceland er nú hluti af verslunar- keðjunni Big Food Group sem Baug- ur Group á liðlega 22% hlut í. Meg- inhluta bréfanna keypti Baugur í október 2002, fyrir hluta andvirðis seldra hlutabréfa í verslunarkeðj- unni Arcadia. Jón Scheving Thorsteinsson, framkvæmdastjóri hjá Baugi ID, fjárfestingarfyrirtæki Baugs Group, telur að rannsóknin hafi ekki nein áhrif á fyrirtækið sjálft. Það beinist gegn fyrrverandi eiganda þess sem fyrir löngu hafi hætt afskiptum af því og málið sé því alveg ótengt nú- verandi rekstri. Meint innherjasvik hjá Iceland rannsökuð HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra átti fund í gær með Kofi Annan, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í höfuðstöðv- um samtakanna í New York. Í frétt frá utanríkisráðuneytinu segir að þeir hafi rætt tillögur aðalfram- kvæmdastjórans um endurskipu- lagningu á stofnunum Sameinuðu þjóðanna, einkum hugmynd hans um að setja á fót ráðgjafahóp virtra ein- staklinga til að greina ástand og horfur og gera tillögur um þetta mál fyrir næsta allsherjarþing. Þeir ræddu einnig ástandið í Írak og Afganistan, og fyrirhugaðan fund utanríkisráðherra Norðurlanda með utanríkisráðherrum ríkja í sunnan- verðri Afríku sem haldinn verður í Mósambík í október nk. Aðalfram- kvæmdastjórinn taldi Ísland hafa mikið fram að færa á sviði þróun- armála, ekki síst á sviði sjávarútvegs í krafti sérþekkingar. Halldór Ás- grímsson ræddi við Kofi Annan ÍSLENSKIR eigendur flaks Guð- rúnar Gísladóttur hafa gefist upp á tilraunum við að lyfta skipinu af hafsbotni við Lófóten og er ástæð- an fjárskortur að því er segir á fréttavef norska ríkisútvarpsins (NRK). Haft er eftir Henry Bertheussen, yfirmanni strandgæslunnar, að norska sjávarútvegsráðuneytið muni greiða fyrir verkið og senda reikninginn síðan til íslenskra eig- enda skipsins. Strandgæslan hefur fengið þrjú tilboð í verkið Á fréttavef Avisa Nordland segir Bertheussen að þrjú fyrirtæki hafi þegar boðist til þess að ná skipinu upp og Seløy Undervannsservice sem unnið hefur að björguninni fyr- ir Íslendingana sé eitt þeirra. Bert- heussen segir nokkurn mun vera á tilboðunum, bæði hvað varðar upp- hæðir og þann tíma sem fyrirtækin ætla sér til verksins. Guðjón Jónsson, forsvarsmaður GGKE-15 hópsins sem freistað hef- ur þess að bjarga skipinu, segist ekkert hafa heyrt frá Norðmönn- unum frá því á föstudag en þá hafi þeir sagst ætla að taka sér þessa viku til að fara yfir málið. „Við stöndum í þeirri trú að við höfum þessa viku til að koma málum á hreint,“ segir Guðjón. Trond Eilertsen, lögmaður út- gerðarfélagsins Festi í Noregi, seg- ir á NRK að íslensku eigendurnir séu við því búnir að fá sendan reikning, ábyrgð á flakinu sé hjá Festi. NRK segir Festi að hámarki vera ábyrgt fyrir tólf milljónum norskra króna, jafngildi um 130 milljónum íslenskra króna, ábyrgð- arupphæðin ráðist af tonnafjölda skipsins. Þá segir NRK að Seløy Under- vannsservice, sem fengið var til að lyfta skipinu, íhugi að höfða mál gegn Íslendingunum til að inn- heimta þær liðlega 80 milljónir ís- lenskra króna sem fyrirtækið telur sig eiga hjá þeim. Norska strand- gæslan tekur yfir björgun Guðrúnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.