Morgunblaðið - 30.09.2003, Page 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ferðir blóðbankabílsins:
Þriðjud. 30. sept. Hveragerði við heilsugæsluna klukkan 9:00-12:30
þriðjud. 30. sept. Þorlákshöfn við Ráðhúsið klukkan 13:30-17:00
Miðvikud. 1.okt. Fjölbrautarskólinn í Breiðholti við Austurberg klukkan 9:00-14:30
www.blodbankinn.is
NÝR og endurbættur forsalur Al-
þingishússins verður tekinn í notk-
un í dag, að sögn Karls M. Krist-
jánssonar, fjármálastjóra Alþingis.
Endurbætur á salnum hafa staðið
yfir í sumar. Markmiðið var að færa
hann í sem næst upprunalegt horf.
Til þess var m.a. notast við upphaf-
legar teikningar af húsinu frá ár-
unum í kringum 1880. Þegar Morg-
unblaðið kom við í Alþingishúsinu í
gær var verið að þrífa forsalinn og
ganga frá „lausum endum“. Búið er
að stækka forsalinn með því að
sameina hann anddyri sem áður
var. Einnig er búið að skipta um
gólfefni og rífa niður salerni við
stigann í salnum. Nýrri salernis-
aðstöðu hefur verið komið fyrir í
kringlu hússins á fyrstu hæð. Að
sögn Karls er áætlað að endurbæt-
urnar kosti alls um 25 milljónir
króna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Breytingar hafa verið gerðar á forsal Alþingishússins og hefur hann verið færður í upprunalegt horf.
Áætlaður kostn-
aður 25 milljónir
Nýr og bættur forsalur
ALÞINGI Íslendinga, 130. löggjaf-
arþing, kemur saman á morgun,
miðvikudag. Þingsetningin fer venju
samkvæmt fram í Alþingishúsinu að
lokinni guðsþjónustu í Dómkirkj-
unni. Þingið sem verður sett á morg-
un er annað þingið eftir alþingis-
kosningarnar í vor. Það kom saman í
sumar skömmu eftir kosningarnar.
Átján nýir þingmenn tóku þá sæti á
Alþingi.
Þingsetningarathöfnin hefst með
guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl.
13.30. Forseti Íslands, ráðherrar og
alþingismenn ganga fylktu liði til
kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Séra
Ólafur Jóhannsson, sóknarprestur í
Grensásprestakalli, predikar og
þjónar fyrir altari ásamt Karli Sig-
urbjörnssyni, biskupi Íslands.
Að guðsþjónustu lokinni verður
gengið til þinghússins, þar sem for-
seti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms-
son, setur þingið. Að því loknu tekur
starfsaldursforseti þingsins, Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra, við
fundarstjórn og stjórnar kjöri for-
seta Alþingis. Þingsetningarfundi
verður frestað í um einn og hálfan
tíma en þegar honum verður fram
haldið verða kosnir varaforsetar Al-
þingis. Einnig verður kosið í fasta-
nefndir þingsins og til Íslandsdeilda
þeirra alþjóðasamtaka sem Alþingi
er aðili að. Að síðustu verður hlutað
um sæti þingmanna, annarra en ráð-
herra og forseta Alþingis.
Fjárlagaumræða
hefst á föstudag
Stefnt er að því forsætisráðherra,
Davíð Oddsson, flytji stefnuræðu
sína á Alþingi á fimmtudagskvöld, og
að í kjölfarið fari fram umræður um
hana. Ræðunni og umræðunum
verður útvarpað og sjónvarpað af
Ríkisútvarpinu og hefst útsending
kl. 19.50. Fyrsta umræða um frum-
varp til fjárlaga fyrir árið 2004 hefst
síðan kl. 10.30 á föstudag.
Alþingi sett
á morgun
Stefnt að því að forsætisráðherra
flytji stefnuræðu sína á fimmtudag
RÚMLEGA sextíu lögreglu-
menn taka þátt í setningar-
athöfn Alþingis á morgun;
hluti þeirra sér um öryggis-
gæslu og hluti um „virðing-
arþáttinn“ að sögn Karls Stein-
ars Valssonar aðstoðaryfir-
lögregluþjóns. Hann segir að
embætti ríkislögreglustjóra feli
lögreglustjóranum í Reykjavík
að sjá um löggæslu og ýmsa
þætti sem tengjast þingsetning-
unni.
Þrettán lögreglumenn, sem
allir eru í Lögregluskólanum,
mynda heiðursvörð við Alþingi
og Dómkirkjuna á morgun.
Verða þeir í hátíðarbúningi
lögreglunnar, sem einungis er
notaður við tækifæri sem þessi.
Þegar forseti, ráðherra og
þingmenn ganga milli þingsins
og kirkjunnar gefa þeir svo-
kallaða „lögreglukveðju“ með
því að bera hönd að enni. Karl
Steinar telur að sú hefð að
hafa heiðursvörð við þingsetn-
ingu hafi viðgengist í áratugi.
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglan undirbýr þingsetningu Alþingis. Á myndinni má sjá þá Aðalstein Bernharðsson og Guðbrand Sigurðsson, lögreglufulltrúa Lögregluskólans,
ásamt Karli Steinari Valssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni, auk nemenda Lögregluskólans sem sjást stilla sér upp á bak við þá.
Lögreglan
býr sig undir
setningu
Alþingis
FYRSTI fundur RUBIES, evrópsks
verkefnis um upplýsingatækni í
dreifbýli, er haldinn hér á landi um
þessar mundir. Tilgangurinn er að
miðla þekkingu í upplýsingatækni til
að auka verðmætasköpun í dreifbýli.
Sex stofnanir í fjórum löndum
standa að RUBIES-verkefninu. Eru
það meðal annars háskólar og rann-
sóknastofnanir í Skotlandi, Svíþjóð,
Finnlandi og Íslandi. Þátttakandi af
hálfu Íslands er átaksverkefnið Upp-
lýsingatækni í dreifbýli (UD) sem
starfar á vegum landbúnaðarráðu-
neytisins.
Árni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri UD, segir að þátttakendur í
verkefninu muni miðla þekkingu í
upplýsingatækni í þeim tilgangi að
auka verðmætasköpun í dreifbýli.
Nefnir hann sem dæmi að reiknað sé
með að UD leggi fram tvö verkefni, í
samvinnu við samstarfsaðila sína hér
á landi. Annars vegar er um að ræða
uppbyggingu Samtaka afurðastöðva
í landbúnaði á gagnagrunni á heima-
síðu sinni þar sem bændur geti jafn-
óðum fengið niðurstöður efnarann-
sókna á mjólkurinnleggi sínu og
þannig bætt mjólkurframleiðslu
sína. Hins vegar er um að ræða upp-
byggingu sameiginlegs bókunar-
kerfis bænda sem stunda ferðaþjón-
ustu á vegum Félags ferðaþjón-
ustubænda.
Áætlað er að RUBIES-verkefnið
standi yfir í hálft annað ár og að það
kosti alls rúmar 63 milljónir.
Notkun upplýsingatækni í dreifbýli
Miðla þekkingu til
að auka verðmæti