Morgunblaðið - 30.09.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þú passar bara dagpeningana, Þórólfur minn.
Barna- og heilsugæsluhjúkrun
Umönnun
án veggja
Ráðstefnan NoSB,sem stendur fyrirNorrænt samstarf
hjúkrunarfræðinga um
börn, fer fram í Háskóla-
bíói helgina 3.–5. október.
Ráðstefnan, sem nú er
haldin í þriðja sinn, er
samstarfsverkefni fag-
deilda barnahjúkrunar-
fræðinga og heilsugæslu-
hjúkrunarfræðinga. Um
áttatíu fyrirlesarar verða
með erindi á ráðstefnunni
en níu aðalfyrirlesarar,
bæði íslenskir og erlendir,
verða með stærri fyrir-
lestra.
– Nú er yfirskrift ráð-
stefnunnar Börn í dag –
umönnun án veggja, hvað
felur það í sér?
„Yfirskriftin er sótt til
Florence Nightingale sem hélt
eitt sinn erindi þar sem hún
gerði ummönnum án veggja að
umtalsefni. Hún lagði þar
áherslu á að starfsemin sem fram
færi í þágu barna væri lykilatrið-
ið en ekki byggingarnar sem
slíkar, þó vissulega kunni að vera
gott að eignast góðar byggingar.
Á ráðstefnunni er lagt upp með
samstarf hjúkrunarfræðinga á
breiðum grundvelli, bæði
hjúkrunarfræðinga sem starfa í
stofnanaumhverfi en einnig
hjúkrunarfræðinga sem starfa
með börn utan stofnana. Mark-
mið okkar er að stuðla að sam-
ræðu fólks, að það einangrist
ekki innan sinna sérsviða og sé
opið fyrir samtali á víðari vett-
vangi. Þannig erum við bæði að
tala um veggi í eiginlegum og
óeiginlegum skilningi.“
– Má tala um að byggja þurfi
upp ákveðið net milli hjúkrunar-
fræðinga?
„Já, bæði hvað þjónustuna og
hina faglegu umræðu varðar. Við
erum oft að fást við sömu hluti,
en sjáum þá frá ólíku sjónar-
horni. Þær hjúkrunaraðgerðir
sem eru í gangi eru oft ólíkar eft-
ir því á hvaða vettvangi þær eru,
en börnin eru þau sömu. Og það
eru ýmsar aðgerðir sem þróast í
heilsugæslu sem gætu verið vel
nýtilegar inni á sjúkrahúsum og
öfugt. Svona ráðstefna er því vel
til þess fallin að fólk miðli þekk-
ingu sín í millum.“
– Ef ráðstefnan er hugsuð sem
ákveðinn samræðugrundvöllur,
hvernig myndir þú þá vilja sjá
framhaldið?
„Ég myndi vilja sjá reglubund-
ið samstarf og að fólk nýti sér
þekkingu sína á sviðum hvers
annars til þess að skoða mögu-
leika á samstarfi. Bæði í þjón-
ustu og rannsóknum, ekki síst til
að búa til nýja þekkingu um ferli
sem við viljum sjá að skjólstæð-
ingar okkar fari inn í. Mörgu full-
orðnu fólki finnst það ekki geta
farið til hjúkrunarfræðings og
við viljum gjarnan breyta því.
Við viljum að fólki finnist það
hafa aðgang að hjúkrunarfræð-
ingum almennt, en ekki bara
tímabundið inni á
stofnun. Að sama
skapi þurfa hjúkrun-
arfræðingar að átta
sig á því að þeir verða
að kynna þá þjónustu
sem þeir geta veitt mun betur,
bæði sín á milli svo þeir geti sent
skjólstæðinga sína áfram, en líka
að upplýsa skjólstæðinga hvert
þeir geti leitað.“
– Hverjir verða aðalfyrirlesar-
ar og hvað ætla þeir að gera að
umtalsefni?
„Páll Biering, lektor við hjúkr-
unarfræðideild HÍ og geðhjúkr-
unarfræðingur, fjallar um hina
auknu þörf á geðheilbrigðisþjón-
ustu fyrir unglinga. Bernie Cart-
er, prófessor í barnahjúkrun í
Bretlandi, gerir grein fyrir þeim
rannsóknaraðferðum sem hún
hefur beitt til þess að ná til
barna, hlusta á þau og ná fram
skoðunum barna á þeirri þjón-
ustu sem þau fá og vilja fá.
Danski hjúkrunarfræðingurinn
Hanne Lise Grønkjær fjallar um
prógram sem hún hefur þróað
sem miðar að því að fyrirbyggja
slys í leikskólum. Sóley S. Bend-
er dósent við hjúkrunarfræði-
deild HÍ ætlar að ræða um
hvernig kenna megi unglingum
um kynlíf og fjölskylduáætlana-
gerð og hvernig byggja megi upp
þjónustu kringum það. Suzanne
Thoyre, lektor við háskólann í
Norður-Karólínu, er frumkvöðull
að því að rannsaka ólíkar aðferð-
ir í því að slöngumata fyrirbura
og kenna þeim síðan að borða.
Margaret S. Miles, prófessor við
háskólann í Norður-Karólínu, er
frumkvöðull í barnahjúkrun í
Bandaríkjunum og einn af stofn-
endum bandaríska barnahjúkr-
unarfélagsins. Rannsóknir henn-
ar hafa snúist um það að aðstoða
foreldra barna á spítölum og
byggja upp stuðningsmódel fyrir
foreldra. Marcia Van Riper hefur
sérstaklega fengist við hjúkrun í
tengslum við meðfædd veikindi
og siðferðisleg mál sem því
tengjast. Í erindi sínu fjallar hún
um rannsóknir sínar á því hvað
gerist í lífi fólks þegar það eign-
ast barn með downs-
heilkenni. Geir Gunn-
laugsson barnalæknir
mun kynna þverfag-
legt samstarfsverkefni
varðandi lykla til þess
að meta heilbrigði hjá börnum í
Evrópu og hvernig megi nota þá
til þess að meta heilsufar barna á
Íslandi og Magnús Scheving mun
halda fyrirlestur um Latabæjar-
hugmyndafræði sína.“
Allar nánari upplýsingar um
ráðstefnuna má finna á vefsíð-
unni: ww.nosb2003.hi.is og þar er
einnig hægt að skrá sig, en ráð-
stefnan er öllum opin.
Dr. Guðrún Kristjánsdóttir
Dr. Guðrún Kristjánsdóttir
fæddist 1959 á Ólafsfirði. Hún
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1979, BS-
prófi í hjúkrunarfræði við Há-
skóla Íslands 1983, M.Sc.-prófi í
barna- og fjölskylduhjúkrun frá
Bostonháskóla 1986 og doktors-
prófi frá Norræna lýðheilsuhá-
skólanum í Gautaborg 1996.
Guðrún er prófessor í barna-
hjúkrun við hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands. Guðrún er gift
Rúnari Vilhjálmssyni prófessor í
félagsfræði við HÍ og eiga þau
þrjá syni.
Nauðsynlegt
að samræður
eigi sér stað
Í KRINGUM 300 manns tóku þátt í
hjartagöngu Landssamtaka hjarta-
sjúklinga á sunnudag, að sögn Ás-
geirs Þórs Árnasonar, fram-
kvæmdastjóra Landssamtaka
hjartasjúklinga, en gangan hófst
við Perluna í Reykjavík. Markmið
hennar var m.a. að minna á mik-
ilvægi hreyfingar og vekja athygli
á hjartasjúkdómum. Lands-
samtökin eiga 20 ára starfsafmæli
hinn 8. október nk. og halda upp á
þann áfanga með ýmsum hætti.
Magnús B. Einarson læknir var
m.a. sæmdur heiðursmerki samtak-
anna.
Landssamtökin notuðu einnig til-
efnið til að gefa hjartaskurðdeild
Landspítala-háskólasjúkrahúss
hjarta- og lungnadælu. Þá var
hjartadeild spítalans afhent bók,
svonefnd Hjartabók, með grunn-
upplýsingum um hjartasjúkdóma.
Er ætlunin að slík bók verði afhent
öllum þeim sem leggjast inn á
hjartadeild. Bókin er dönsk en
þýdd og staðfærð.
Um 300 manns tóku þátt í hjartagöngu Landssamtaka hjartasjúklinga á sunnudag.
Morgunblaðið/Þorkell
Vilhjálmur Vilhjálmsson, formaður Landssamtaka hjartasjúklinga, Sæunn
Stefánsdóttir, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, og Ásgeir Þór Árnason,
framkvæmdastjóri samtakanna, í Perlunni um helgina.
Um 300
manns í
hjarta-
göngu