Morgunblaðið - 30.09.2003, Síða 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Doktor í
raforkufræði
KRISTJÁN Halldórsson varði ný-
lega doktorsritgerð sína „Decision
Support Mechanism for Renewable
Energy Trading“
við raforku-
fræðadeild há-
skólans í Darm-
stadt, Þýska-
landi. Kjarni
doktorsvinn-
unnar snerist um
hönnun líkans
sem auðveldar
orkumiðlara
ákvarðanatöku,
m.a. fyrir kaup og sölu raforku. Sér-
staklega voru þau vandamál, sem
lúta að sölu rafmagns unnu úr end-
urnýjanlegum orkugjöfum, tekin
fyrir. Við gerð módelsins var einkum
hinn þýski orkumarkaður hafður til
hliðsjónar.
Kristján er fæddur í Reykjavík 1.
okóber 1968. Foreldrar hans eru þau
Kristjana Kristjánsdóttir forvörður
og Halldór Ingi Hallgrímsson verk-
stjóri. Eftir stúdentspróf við
Menntaskólann við Hamrahlíð 1988
lagði Kristján stund á rafmagns-
verkfræði við Háskóla Íslands og
lauk þaðan prófi 1993. Ári síðar tók
hann lokapróf í tölvunarfræði við
sama skóla. Eftir það hélt hann til
náms í Darmstadt, þar sem hann
lauk diplomprófi í raforkufræðum
1998. Síðan þá og fram að dokt-
orsvörninni hefur Kristján starfað
við raforkufræðideild skólans jafn-
hliða því að vinna að doktorsverkefni
sínu. Kristján er nú fluttur heim til
Íslands og mun hefja störf við stjórn-
stöð Landsvirkjunar innan skamms.
Kristján
Halldórsson
AGNAR Guðmundsson varði
doktorsritgerð við Álaborgarháskóla
í Danmörku 16. september síðastlið-
inn. Heiti ritgerð-
arinnar er „Út-
færsla á eigin
stöðlum við
vöruþróun“
(Implementing
Standardized
Modules in the
Product Archi-
tecture).
„Á síðasta ára-
tug hefur verið
lögð aukin áhersla á vöruþróun hjá
framleiðslufyrirtækjum. Margar
ástæður liggja þar að baki en helst
mætti nefna að sérstaða markaða og
mikilvægi nýsköpunar hefur aukist,“
segir í fréttatilkynningu um dokt-
orsvörnina. Þar segir ennfremur:
„Ein af þeim úrlausnum sem fyr-
irtæki hafa stuðst við til að mæta
auknum kröfum um nýsköpun á
mörkuðum til að halda skilvirkni, er
að notast við eigin staðla fyrir vöru-
einingar. Þessir staðlar gera fyr-
irtækjum meðal annars kleift að nota
sömu framleiðslueiningar fyrir fleiri
vöruflokka.og þróa þær sífellt án
þess að breyta þurfi vöruhönnuninni.
Þessi lausn hefur aukið framleiðni og
fyrirtækin geta betur mætt vaxandi
kröfum. Vandamál við þessa lausn
eru hinsvegar þau að fyrirtæki hafa
átt í erfiðleikum með að útfæra eigin
staðla. Rannsókn doktorverkefnisins
beindist þess vegna að því að greina
hvaða þættir eru þess valdandi að
svo erfitt er fyrir fyrirtæki að útfæra
þessa lausn. Niðurstöðurnar sýndu
meðal annars fram á að hefðbundin
vöruþróunarferli eru ekki hentug
séu eigin staðlar notaðir í vöruþró-
uninni og nauðsyn þess að aðlaga
fyrirtækin breyttum aðstæðum við
notkun eigin vörustaðla. Þannig
þurfa fyrirtæki að læra að þróa ein-
ingar sem má nýta í margar vöruteg-
undir án þess að nauðsynlegt sé að
að gerðar séu breytingar á vöruteg-
undunum sjálfum. Einnig þarf að
breyta framleiðslufyrirkomulaginu
til þess að nýta þá möguleika sem
skapast til aukinnar skilvirkni.“
Doktorsritgerðin er hluti af
stærra rannsóknarverkefni sem Ála-
borgarháskóli stendur fyrir í sam-
vinnu við Tækniháskólann í Kaup-
mannahöfn. Við háskólann eru fjórar
aðalstofnanir; hugvísinda-, félags-,
verkfræði- og raunvísindastofnun.
Rekstrarverkfræðistofnunin stend-
ur að rannsóknarverkefninu, en á
hennar vegum eru mörg verkefni í
gangi í samvinnu við danskan iðnað.
Agnar Guðmundsson er 34 ára
gamall, sonur hjónanna Guðmundar
Sigþórssonar skrifstofustjóra og
Herborgu Árnadóttur viðskipta-
fræðings. Hann lauk námi árið 1995
við Tækniskóla Íslands og masters-
námi í rekstrarverkfræði við Ála-
borgarháskóla fjórum árum síðar.
Varði doktors-
ritgerð um
vöruþróun
Agnar
Guðmundsson
KRISTJÁN Magnús-
son ljósmyndari lést
laugardaginn 27. sept-
ember sl. á Landspítal-
anum við Hringbraut.
Hann fæddist í Reykja-
vík 14. janúar 1931, og
voru foreldrar hans
Helga Kristjánsdóttir
húsmóðir og Magnús
Ingimundarson húsa-
smíðameistari.
Kristján lauk sveins-
prófi í húsgagnabólstr-
un 1953, og einnig
meistararéttindum í
ljósmyndun 1969. Jafn-
framt stundaði hann nám í píanóleik
við tónlistarskóla og í einkatímum.
Á árunum 1948–1961 var hann
píanóleikari í KK-
sextettinum og hljóm-
sveit Björns R. Ein-
arssonar. Eftir það lék
hann með ýmsum
djasshópum og í eigin
djasskvartett frá
árinu 1981. Hann vann
við blaðaljósmyndun á
árunum 1958–1969, og
rak eigin ljósmynda-
stofu frá árinu 1967.
Þá var hann virkur
radíóamatör með
rekstrarleyfi frá árinu
1974.
Eftirlifandi eigin-
kona Kristjáns er Pálína Oddsdóttir.
Dóttir þeirra er Oddrún og er eig-
inmaður hennar Leifur Magnússon.
Andlát
KRISTJÁN
MAGNÚSSON
DANIR eru með dýrasta skatta-
kerfið á Norðurlöndunum en hin
Norðurlöndin, þ.m.t. Ísland, eru
með helmingi fleiri íbúa á hvern
skattastarfsmann, að því er fram
kemur í frétt á vefútgáfu Politiken
sem birt var fyrir skömmu. Sam-
kvæmt fréttinni voru 827 skattaað-
ilar á hvert ársverk hjá skatta-
yfirvöldum í Danmörku en þeir
voru 1.760 á hvert ársverk í Sví-
þjóð. Ekki er tilgreint sérstaklega
í fréttinni hversu margir eru um
hvern skattastarfsmann á Íslandi
en Ísland mun vera næst á eftir
Svíþjóð í röðinni.
Fleiri að innheimta og færri
í skattaeftirliti hér á landi
Að sögn Indriða H. Þorláksson-
ar ríkisskattstjóra var ákveðið á
fundi norrænu ríkisskattstjóranna
fyrir um ári að gera samanburð á
ýmsum sviðum skattaframkvæmd-
ar í löndunum. Sú vinna er enn í
gangi, að hans sögn. „Í heild þá
kemur Ísland mjög þokkalega út
[...] og við erum til þess að gera
sáttir við það sem þarna kemur
fram. Það kemur hins vegar fram
ýmis mismunun í báðar áttir. Það
virðist vera að í innheimtuhliðinni
sé meiri mannskapur hér en í hin-
um löndunum og sama er að segja
um virðisaukaskattinn en við erum
með minna af fólki í almennu
skattaeftirliti og almennri skatta-
framkvæmd.“ Indriði undirstrikar
að samanburður milli landanna sé
mjög háður skilgreiningu og
skipulagi á skattaumhverfi í ein-
stökum löndum.
Hjá embætti ríkisskattstjóra
starfa um 100 manns og 480-90
manns í það heila ef starfsmenn
skattstofanna og innheimtumenn
ríkissjóðs eru meðtaldir.
Milli 400 og 500
skattstofur í Danmörku
Skattgreiðendur, þ.e. einstak-
lingar, eru um 225 þúsund á skrá
að viðbættum 33 þúsund félögum
með virðisaukaskattsskráningu.
Spurður út í hið óhemju dýra
skattakerfi í Danmörku segir
Indriði að þar í landi sjái sveit-
arfélögin um álagninguna. Á milli
400 og 500 skattstofur séu í Dan-
mörku en hins vegar séu þær átta
í Svíþjóð, sex í Finnlandi og um
100 í Noregi.
Hér á landi eru skattaumdæmin
níu talsins.
Danir með flestar skattstofur og dýrasta skattakerfið á Norðurlöndunum
Helmingi fleiri
um hvern starfs-
mann á Íslandi
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
vakti athygli á framboði Íslands til
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í
viðræðum við forseta og forsætisráð-
herra Líbanons og óskaði eftir stuðn-
ingi ríkisins við þá aðild.
Fjármálaráðherra sótti Líbanon
heim fyrir helgi og er það fyrsta heim-
sókn íslensks ráðherra til landsins.
Geir ræddi við Emile Jamil Lahoud,
forseta landsins, og Rafic Hariri for-
sætisráðherra. Fóru þeir yfir sam-
skipti landanna og ástandið í Mið-
Austurlöndum.
Fjármálaráðherra átti einnig fundi
með Riad Salameh seðlabankastjóra
og Fuad Abdel Basset Siniora fjár-
málaráðherra. Í fréttatilkynningu frá
fjármálaráðuneytinu kemur fram að á
þeim fundum var meðal annars rætt
um stöðu efnahagsmála og uppbygg-
ingarstarfið sem staðið hefur yfir í
Líbanon frá lokum borgarastríðsins í
upphafi síðasta áratugar. Einnig
kemur fram að gagnkvæmur áhugi sé
á því að efla viðskipti landanna, ekki
síst samstarf og viðskipti á sviði
banka- og fjármálastarfsemi og ferða-
mannaiðnaðar.
Óskað eftir stuðningi Líb-
ana við framboð Íslands
Geir H. Haarde á fundi með Rafic Hariri, forsætisráðherra Líbanons.
STARFSMENN Raunvísinda-
stofnunar Háskóla Íslands flugu
yfir Vatnajökul fyrir helgi vegna
reglubundinna afkomumælinga
á jöklinum. Var snælínan könn-
uð og í þessari viku er ætlunin
að ganga á jökulinn til að lesa af
mælistikum sem þar eru á ein-
um 50 stöðum auk nokkurra
sjálfvirkra veðurstöðva.
Finnur Pálsson hjá Raunvís-
indastofnun sagði við Morgun-
blaðið að engar niðurstöður
væru komnar út úr þessum
mælingum. Unnið yrði úr þeim á
næstu vikum.
Með fluginu var tilgangurinn
að sjá hver skilin eru á milli
bráðnunar í sumar og þess sem
ekki hefur náð að bráðna alveg.
Mitt á milli er svonefnd snælína.
Finnur sagði niðurstöður flugs-
ins styðja við þær mælingar sem
færu fram á jörðu niðri með því
að lesa af stikum. Hann sagði
ekkert óvenjulegt hafa sést í
þessu könnunarflugi, sem fór
fram við bestu útsýnisskilyrði.
Snælínan
könnuð á
Vatnajökli
FULLTRÚAR stéttarfélaganna í
norrænu ríkisútvörpunum skora á
ríkisstjórnir landanna að tryggja
rekstrarlegan grundvöll útvarps
og sjónvarps í almannaþágu og að
sjálfstæði þess verði virt, það
styrkt og flokkspólitísk stjórnvöld
Norðurlandanna viðurkenni sjálf-
stæði almannaútvarps.
Þetta kemur fram í ályktunum
sem samþykktar voru á ráðstefnu
þessara aðila sem haldin var í
Munaðarnesi nýlega.
Fram kemur að niðurskurður og
minnkandi tekjumöguleikar leiði
til einhæfara dagskrárefnis, sem
þýði að framboð efnis sem höfði til
smærri hópa takmarkist. Til lengri
tíma dragi það úr tiltrúnni á út-
varp og sjónvarp í almannaþágu.
Í annarri ályktun frá ráðstefn-
unni segir að það valdi stéttar-
félögum í norrænu ríkisútvörpun-
um miklum áhyggjum að merkja
megi breytingu í viðhorfi stjórn-
valda til útvarps og sjónvarps í al-
mannaþágu.
„Pólitísk öfl reyna að hafa áhrif
á innihald dagskrárefnis. Slíkar
tilhneigingar eiga sér enga stoð í
hinni norrænu lýðræðishefð og eru
ögrun við sjálfstæði almannaút-
varps. Almannaútvarp verður að
halda sjálfstæðinu til að tryggja
trúverðugleika sinn í nútíma lýð-
ræðissamfélagi. Þess vegna krefj-
umst við þess að sjálfstæði útvarps
og sjónvarps í almannaþágu verði
virt, það styrkt og að flokkspóli-
tísk stjórnvöld Norðurlandanna
viðurkenni sjálfstæði almannaút-
varps.“
Rekstur útvarps
verði tryggður
BORIST hefur eftirfarandi yfirlýs-
ing frá fjölskyldu Halldórs Laxness:
„Að gefnu tilefni vill fjölskylda
Halldórs Laxness að eftirfarandi
komi fram: Síðastliðið eitt og hálft ár
hefur verið unnið að því á vegum
okkar og útgáfu Halldórs Laxness
að fara í gegnum bréfasafn Halldórs
Telja eðlilegt að loka bréfa-
safninu fyrir óviðkomandi
á handritadeild Þjóðarbókhlöðunn-
ar. Meðan verið er að fara í gegnum
safnið teljum við eðlilegt að því sé
lokað fyrir óviðkomandi, eins og
áréttað var með bréfi hinn 18. sept-
ember síðastliðinn.
Handrit Halldórs sem fyrir eru á
safninu er að sjálfsögðu heimilt að
skoða sem fyrr, en um birtingu
óprentaðs efnis gilda lög um höfund-
arrétt.
Þessi vinna tekur tíma og er vand-
meðfarin og því eðlilegt að við fáum
næði til þess að ljúka verkinu, en að
þurfa ekki að stjórnast af ævisagna-
riturum.“