Morgunblaðið - 30.09.2003, Page 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KAUPÞING-BÚNAÐARBANKI
hefur eignast 30,35% hlutafjár í
finnska fjárfestingarfélaginu Nor-
vestia Oyj sem skráð er í kauphöllinni
í Helsinki. Kaupþing-Búnaðarbanki
fer með 54,44% atkvæðisréttar.
Bankinn greiðir fyrir Norvestia með
útgáfu 33,2 milljóna nýrra hluta og er
andvirði kaupanna um 5,5 milljarðar
króna. Gengi á hlutunum sem bank-
inn gefur út er meðalgengi Kaup-
þings-Búnaðarbanka síðustu þriggja
mánaða, eða 167. Seljandi hlutanna er
sænska fjárfestingarfélagið Havsfrun
AB sem skráð er á O-lista Kauphall-
arinnar í Stokkhólmi. Havsfrun á
enga hluti í Norvestia eftir söluna.
Salan er gerð með fyrirvara um sam-
þykki hluthafafundar Havsfrun en nú
þegar hafa eigendur meira en 50%
hlutafjár í Havsfrun skuldbundið sig
til að samþykkja söluna.
Í ræðu á blaðamannafundi sem
haldinn var í Helsinki í gær sagði Sig-
urður Einarsson stjórnarformaður
Kaupþings-Búnaðarbanka að kaupin
væru til hagsbóta fyrir aðra hluthafa
Norvestia enda hefði Kaupþing góða
reynslu af því að auka verðmæti
þeirra félaga sem bankinn hefði keypt
eða sameinast. Aðspurður hvort að
verðið sem bankinn væri að greiða
fyrir hlutinn væri ekki of hátt, sagði
Sigurður að inn í verðmatið hafi m.a.
verið tekin sú staðreynd að bankinn
fái ráðandi atkvæðamagn í félaginu,
auk þess sem tímasetningin vinni með
kaupunum, efnahagslífið í Finnlandi
sem og annar staðar væri að taka við
sér eftir að hafa náð botni, að mati
stjórnenda bankans, og Norvestia
ætti því framtíðina fyrir sér. Spurður
um viðbrögð minnihlutaeigenda í
Norvestia við því að bankinn sé að
borga einum hluthafa mun hærra
verð en verðið sem er á markaðnum,
sagði Sigurður að hluthafar væru
ánægðir, enda sæist það best í því að
verð bréfa Norvestia tóku kipp upp á
við þegar tilkynningin um kaupin
birtist í gærmorgun.
Jákvæð þróun fyrir Norvesta
Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri
Kaupþings-Búnaðarbanka sagði í
samtali við Morgunblaðið að kaupin á
Norvesta hefðu fengið jákvæðar við-
tökur hjá öðrum hluthöfum Norvesta.
„Þau skilaboð sem við fáum frá
stærstu eigendum í minnihluta er að
þeir líta á þetta sem mjög jákvæða
þróun fyrir Norvesta,“ sagði Hreiðar
Már. Hann sagði að næst á dagskrá í
Finnlandi væri að auka eigið fé Kaup-
þings Sofi, sem á næstunni verður
breytt í Kaupþing Bank Finnland, og
sækja síðan um bankaleyfi. Hann
sagði að viðskiptahugmynd bankans
væri að reka banka á öllum Norður-
löndunum og sú umgjörð sem félagið
væri búið að skapa sér í Svíþjóð í dag,
þar sem búið er að byggja upp fjöl-
þætta bankaþjónustu, sé sú umgjörð
sem eigi að skapa í Helsinki, Osló og
Kaupmannahöfn. „Hugmyndin er að
reka alhliða fjármálafyrirtæki á Ís-
landi og reka síðan fjárfestingar-
banka í Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og
Danmörku.
Nýir hlutir 7,5%
af heildarhlutafé
Eftir viðskiptin nema hinir nýút-
gefnu hlutir sem notaðir voru til
kaupanna um 7,5% af heildarhlutafé
Kaupþings-Búnaðarbanka. Sam-
komulag er um að Kaupþing-Búnað-
arbanki muni sjá um sölu þeirra hluta
sem Havsfrun fær frá bankanum og
mun það verða gert innan nokkurra
mánaða, að því er segir í fréttatil-
kynningu bankans. Eftir viðskiptin
verður Norvestia dótturfélag Kaup-
þings-Búnaðarbanka en mun þrátt
fyrir það vera áfram rekið sem sjálf-
stætt félag, skráð í Kauphöllinni í
Helsinki. Jafnframt er tekið fram að
bankinn hafi ekki í hyggju að auka
hlut sinn í Norvestia. „Kaupþing-
Búnaðarbanki mun þróa starfsemi
Norvestia í samræmi við stefnu bank-
ans og með hliðsjón af annarri starf-
semi bankans í Finnlandi, en þar á
bankinn fyrir dótturfélagið Kaup-
thing Sofi,“ segir í tilkynningunni.
„Með kaupunum á Norvestia
styrkjum við stöðu okkar umtalsvert í
Finnlandi og tryggjum okkur vett-
vang til að geta aukið umsvif bankans
þar. Kaupin eru annað skrefið í sókn
okkar inn á finnska fjármálamarkað-
inn í kjölfar kaupanna á Sofi í árslok
2001 og í samræmi við þá stefnu
bankans að vera leiðandi norrænn
fjárfestingarbanki.
Kaupþing-Búnaðarbanki hefur
tvöfaldast að stærð á hverju ári und-
anfarin fimm ár og á sama tíma hefur
arðsemi eigin fjár numið rúmlega
30% á ári, sem er vel yfir markmiðum
okkar um 15% arðsemi eigin fjár.
Horfur fyrir árið 2003 eru góðar og
við gerum ráð fyrir því að ná arðsem-
ismarkmiðum okkar,“ segir Sigurður
Einarsson í fréttatilkynningunni.
Í tilkynningunni segir ennfremur
að kaupin á Norvestia styrkja veru-
lega stöðu bankans á Norðurlöndum
og munu strax hafa þau áhrif árekst-
ur bankans að eignarstýring bankans
á Norðurlöndum muni eflast vegna
þekkingar starfsmanna Norvestia á
fjárfestingum á Norðurlöndum, og
hlutabréfasafn Norvestia muni auka
áhættudreifingu verðbréfasafns
Kaupþings-Búnaðarbanka um leið og
það endurspegli betur markaðs-
áhættu bankans í þeim löndum sem
hann starfar.
„Á sviði fjárfestingarbankastarf-
semi mun bankinn eftir kaupin hafa
aukið bolmagn til að vinna stærri ráð-
gjafar- og fjármögnunarverkefni fyr-
ir viðskiptavini, til dæmis í tengslum
við samruna, yfirtökur og verðbréfa-
útboð. Með öflugri efnahag munu
möguleikar bankans á að sölutryggja
útboð aukast,“ segir í tilkynningu
Kaupþings-Búnaðarbanka.
Kaupin á Norvestia munu auka eig-
ið fé Kaupþings-Búnaðarbanka um
rúmlega 5,5 milljarða króna, en eig-
infjárgrunnur bankans mun styrkjast
um 12,2 milljarða króna.
Greiða myndarlegan arð
Í tilkynningunni segir um Nor-
vestia að markmið félagsins sé að
ávaxta eigið fé til langs tíma fyrir
hluthafa sína og greiða út myndarleg-
an arð. Félagið fjárfestir nær ein-
göngu í skráðum norrænum hluta-
bréfum og sjóðum. Á blaðamanna-
fundinum var Sigurður inntur eftir
því hvort að stefnan um arðgreiðslur
félagsins yrði óbreytt. Sagði hann að
ákvörðun um það yrði í höndum nýrr-
ar stjórnar en hún verður kosin á
hluthafafundi í nóvember nk. að sögn
Sigurðar.
Eignir Norvestia skiptast að 40%
hluta í skuldabréf og víxla, vogunar-
sjóðir eru 31% af eignunum, hlutabréf
17%, hlutabréfasjóðir 10% og reiðufé
2%. Stærstu einstöku eignir félagsins
eru hlutabréf í finnskum símafyrir-
tækjum, sem dótturfélagið Neo-
markka er skráð fyrir, metin á um 1,5
milljarða króna.
Kaupþing-Búnaðarbanki kaupir 30,35% í Norvestia
Kaupverðið 5,5
milljarðar króna
Ljósmynd/Matias Uusikylä
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings-Búnaðarbanka, kynnti
kaup bankans á stórum hluta í finnska fjármálafyrirtækinu Norvestia Oyj
á blaðamannafundi í Helsinki í gær.
VIKA nýsköpunar hófst í gær.
Berglind Hallgrímsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Impru nýsköpunar-
miðstöðvar, segir að markmiðið með
viku nýsköpunar sé að efla umræðu
um nýsköpun og skapa vettvang
fyrir hana. Aðstandendur vikunnar
vilji vekja almenna umræðu í sam-
félaginu um gildi nýsköpunar fyrir
efnahagslífið og kynna þann stuðn-
ing sem í boði er til nýsköpunar,
rannsókna og þróunar.
Þeir sem standa að viku nýsköp-
unar eru Impra nýsköpunarmiðstöð,
Rannís, Rannsóknarþjónusta Há-
skóla Íslands, Háskólinn í Reykja-
vík og Samtök iðnaðarins. Haldnir
verða fundir alla virka daga vikunn-
ar þar sem fjallað verður um hin
ýmsu málefni er varða nýsköpun.
Vika nýsköpunar hófst með fundi
í gær þar sem fjallað var um gildi
nýsköpunar í hefðbundnum atvinnu-
rekstri og fjármögnun verkefna.
Fyrirlesarar komu víða að og fjöll-
uðu um þessa þætti frá mismunandi
sjónarhornum.
Í dag verður fundur þar sem
rannsóknir í þágu atvinnulífsins
verða til umfjöllunar. Á morgun
verður fjallað um starfsskilyrði
sprotafyrirtækja. Á fimmtudaginn
verður greint frá reynslu frum-
kvöðuls. Á föstudaginn verða síðan
tveir fundir. Þar verður greint frá
því sem svonefnd 6. rannsóknar-
áætlun ESB býður upp á, annars
vegar fyrir lítil og meðalstór fyrir-
tæki, og hins vegar til rannsókna í
þágu fyrirtækja.
Berglind segir mikilvægt að þeir
sem vinna að nýsköpun og þróun í
atvinnulífinu viti af þeirri aðstoð
sem í boði er. Þjónusta Impru í
þessum efnum hafi til að mynda
aukist talsvert á undanförnum miss-
erum og standi jafnt sprotafyrir-
tækjum og fyrirtækjum í hefð-
bundnum greinum til boða. Vika
nýsköpunar sé m.a. haldin til að
vekja athygli á þessu.
Vika nýsköpunar 29. september til 3. október
Markmiðið að efla umræðuna
ÚR VERINU
ICELANDIC USA verðlaunar ár-
lega framleiðendur sjávarafurða
á Íslandi fyrir góðan árangur í
vöruvöndun frystra sjávarafurða
og mikilvægan stuðning á síðasta
fiskveiðiári. Að þessu sinni fengu
verðlaunin frystihúsin Ísfiskur í
Kópavogi, Egilssíld á Siglufirði,
Þormóður Rammi-Sæberg í Þor-
lákshöfn og Aðgerðarþjónustan í
Vestmannaeyjum. Þá fengu
frystitogararnir Kleifarberg ÓF
frá Ólafsfirði, Sléttbakur EA frá
Akureyri, Arnar HU frá Skaga-
strönd og Júlíus Geirmundsson ÍS
Ísafirði viðurkenningu fyrir
vandaða framleiðslu á síðasta
fiskveiðiári.
SH verðlaunar
framleiðendur
BRESKA stórmarkaðskeðjan Morri-
sons hefur fengið grænt ljós frá sam-
keppnisyfirvöldum í Bretlandi til að
kaupa öll hlutabréf Safeway-stór-
markaðskeðjunnar. Samkeppnisyfir-
völd höfðu áður úrskurðað að stór-
markaðskeðjunum Asda, Sainsburys
og Tesco væri óheimilt að gera tilboð í
Safeway. Ekki er talið að þessi kaup
hafi neikvæð áhrif á viðskipti Cold-
water, dótturfyrirtækis SH, við stór-
markaðskeðjurnar, en Coldwater sel-
ur töluvert af tilbúnum afurðum til
þeirra.
Mikil samþjöppun hefur orðið á
breska smásölumarkaðnum á undan-
förnum árum og ráða nú 5 stærstu
stórmarkaðskeðjurnar; Tesco, Asda,
Sainsburys, Safeway og Morrisons
um 76% markaðarins. Þar af er Tesco
með langstærstu hlutdeildina eða
rúm 27%, Asda með tæp 17%, Sains-
bury með rúm 16%, Safeway með
rúm 9% og Morrisons um 6%.
Í úrskurði samkeppnisyfirvalda í
Bretlandi er Morrisons hinsvegar
gert að selja 53 verslanir Safeway
verði af yfirtökunni og nú eru að hefj-
ast viðræður við samkeppnisyfirvöld
um hvaða verslanir þarf að selja. Þeg-
ar það liggur fyrir hefur Morrisons 21
dag til að staðfesta tilboð sitt í Safe-
way eða leggja fram annað tilboð.
Ekki er búist við að málin skýrist end-
anlega fyrr en undir lok ársins.
Úrskurðurinn kemur ekki á óvart,
enda bjuggust fáir við því að Tesco,
Sainsbury eða Asda yrði leyft að
gleypa fjórðu stærstu stórmarkaðs-
keðju Bretlands. Morrisons gerði um
370 milljarða króna tilboð í Safeway í
janúar sl. en í ljósi úrskurðarins má
gera ráð fyrir að tilboðið muni lækka.
Þó er talið að aðrir aðilar muni sýna
Safeway áhuga, m.a. auðjöfurinn
Philip Green sem er sagður hafa beð-
ið úrskurðar samkeppnisyfirvalda.
Þá er talið að Tesco, Asda og Sains-
bury muni slást um þær 53 verslanir
sem Morrison verður gert að selja,
verði af yfirtökunni, auk þess sem
aðrir smærri aðilar hafa lýst yfir
áhuga á verslununum. Sérfræðingar
gera því einnig skóna að Asda muni
áfrýja úrskurði samkeppnisyfirvalda.
Mikilvægur markaður fyrir
íslenskar sjávarafurðir
Breski smásölumarkaðurinn selur
sjávarafurðir fyrir um 250 milljarða
króna á ári og er einn sá mikilvægasti
fyrir íslenskar sjávarafurðir. Cold-
water UK, dótturfélag Sölumiðstöðv-
ar hraðfrystihúsanna í Bretlandi, hef-
ur t.a.m. átt í umtalsverðum viðskipt-
um við bæði Morrisons og Safeway en
Agnar Friðriksson, forstjóri Coldwat-
er, á ekki von á að samruni þessara
fyrirtækja muni hafa mikil áhrif, að
minnsta kosti ekki hvað varðar söl-
una. „Við seljum til dæmis kældar af-
urðir í Morrisons en ekki í Safeway og
erum með ákveðnar vörur í Safeway
sem eru ekki í Morrisons. Samruni
þessara fyrirtækjan myndi því vænt-
anlega hafa einhverjar breytingar í
för með sér fyrir okkur en ég á ekki
von á því að þær verði til hins verra,“
segir Agnar en minnir á að þessi mál
skýrist ekki fyrr en seint á árinu.
!
Morrisons leyft að
kaupa Safeway
AÐALFUNDUR Samtaka fisk-
vinnslustöðva verður haldinn í
Skíðaskálanum í Hveradölum
föstudaginn 3. október nk. Fund-
urinn hefst kl. 10.30 en að loknum
hefðbundnum aðalfundarstörfum
flytur Árni M. Mathiesen, sjáv-
arútvegsráðherra, ávarp. Þá mun
Róbert Wessman, forstjóri
Pharmaco hf., flytja erindi sem
kallast „Við sækjum á erlend mið,“
Kristján G. Jóakimsson, vinnslu-
og markaðsstjóri Hraðfrystihúss-
ins – Gunnvarar hf., mun fjalla um
stöðu og möguleika þorskeldis á
Íslandi og Svavar Svavarsson,
framleiðslustjóri Granda hf., held-
ur erindi sem hann kallar „Fer
fiskurinn til Kína?“
Þá verða pallborðsumræður um
ógnanir og tækifæri í íslenskum
sjávarútvegi undir stjórn Ara Ed-
wald, framkvæmdastjóra Samtaka
atvinnulífsins. Þátttakendur í um-
ræðunum verða þeir Aðalsteinn
Helgason, framkvæmdastjóri land-
vinnslu Samherja hf., Gunnar Örn
Kristjánsson, forstjóri SÍF, Gunn-
ar Svavarsson forstjóri SH og
Þórður Már Jóhannesson fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingafélags-
ins Straums hf.
Ógnanir og tækifæri
rædd á aðalfundi SF