Morgunblaðið - 30.09.2003, Page 17

Morgunblaðið - 30.09.2003, Page 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 17 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða þér ævintýraferð með sérflugi sínu til einnar fegurstu eyju Karíbahafsins, Dóminíska lýðveldisins. Hér getur þú valið um glæsilegan aðbúnað, spennandi kynnisferðir og notið lífsins við feg- urstu aðstæður. Glæsileg 4 og 5 stjörnu hótel í boði og í öllum tilfellum nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða sem bjóða þér spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. 13. nóv. - 7 nætur Verð kr. 79.950 Flugsæti og skattar. Verð kr. 98.590 Flug, skattar, gisting á Barcelo Talanquera – Allt innifalið íslensk fararstjórn. Dóminíska lýðveldið 13. nóvember frá kr. 79.950 Sérflug Heimsferða NEMENDUR Mennta-skólans Hraðbrautarhafa nú þegar lokið próf-um eftir fyrstu „önnina“, eða lotuna eins og tímabilið nefnist. Ólafur Haukur Johnson skólastjóri segir að Hraðbraut hafi farið vel af stað og var meðaleinkunn nemenda eftir fyrstu lotuna 7,4, sem Ólafur segir gott veganesti til áframhald- andi uppbyggingar skólans. Hraðbraut gefur nemendum kost á að ljúka stúdentsprófi á tveimur árum og voru 52 nemendur innrit- aðir í skólann þegar hann tók til starfa í ágúst. Nemendur skiptast í tvo bekki og eru tvær brautir í boði; náttúrufræðibraut og málabraut. Námið er byggt upp af lotum sem eru fimm til sex vikur hver og í hverri lotu læra nemendur það sem nemendur eru að læra í öðrum skól- um á heilli önn, að sögn Ólafs. „Hins vegar eru teknar fyrir færri námsgreinar í einu. Við erum með þrjár námsgreinar í hverri lotu og kennslumagnið í hverri námsgrein er helmingi minna en í venjulegum dagskólum, en u.þ.b. álíka mikið og í öldungadeildum. Það er kennt í fjór- ar vikur og síðan koma prófin. Á þessum fjórum vikum er kennt þrjá daga vikunnar en þriðjudaga og fimmtudaga mæta nemendur í skól- ann og vinna það sem þeir myndu í öðrum skólum vinna heima hjá sér. Þá sitja þeir að námi með yfirsetu- manneskju sem tryggir vinnufrið og á þessum dögum eru kennararnir til viðtals, ef nemendur stranda t.d. á dæmi í stærðfræðinni.“ Hann segir að nái nemendur próf- um fái þeir vikufrí að lokinni hverri lotu. Þá geta nemendur kastað mæð- inni og eftir fyrstu lotuna fóru nem- endur skólans m.a. saman í óvissu- ferð. Að sögn Ólafs hefur verið að þróast mjög öflugt og skemmtilegt félagslíf í skólanum og góður andi ríki meðal nemenda, þó að hópurinn sé lítill. Hann segir að slegist hafi verið um kosningu í öll embætti á vegum nemendafélagsins og ljóst að nemendur hafi góðan tíma aflögu fyrir utan námsbókalesturinn. „Það er ótrúlegt hvað svona vel skipulagðir einstaklingar geta komið fyrir miklu í sinni stundaskrá. Við munum leggja áherslu á að styðja vel við bakið á félagslífi nemenda og í fyrstu lotunni var kosin stjórn nemendafélagsins og henni hefur verið falið að búa til lög fyrir nem- endafélagið og annað slíkt. Síðan verður í þessari lotu kosið í ýmsar nefndir og skólinn mun m.a. taka þátt í keppnum eins og Gettu betur og Morfís,“ segir Ólafur. Menntaskólinn Hraðbraut er nú í bráðabirgðahúsnæði í gamla hús- næði Lækjarskólans í Hafnarfirði en flytur eftir áramót í uppgert hús- næði á Reykjavíkurvegi 74, þar sem áður var Iðnskóli Hafnarfjarðar. „Við stefnum að því að vera með fleiri nemendur í hverjum árgangi og fjóra bekki, en fengum ekki nógu margar góðar umsóknir að þessu sinni. Það sóttu reyndar 132 um en eftir að hafa skoðað umsóknirnar vandlega töldum við að þetta væri sá hópur sem hefði góðar forsendur til að ljúka þessu og þetta varð nið- urstaðan.“ Hugmyndin kviknaði út frá sumarskóla Að sögn Ólafs ræðst mat á um- sækjendum oftast af árangri í próf- um í grunnskóla og langflestir nem- endanna koma beint úr 10. bekk. Hins vegar voru teknir inn nokkrir eldri nemendur í upphafi og m.a. stunda tvær konur nálægt fimmtugu nám á Hraðbraut. „Ég hef nokkuð góða reynslu af því að kenna í öld- ungadeildum og við mátum nem- endur því einnig eftir öðrum viðmið- unum og reyndum að meta hvort nemandinn væri tilbúinn að takast á við verkefnið,“ segir Ólafur. Engir fastráðnir kennarar starfa við skólann en í hverri lotu eru yf- irleitt þrír til fjórir kennarar að störfum í skólanum. Sökum þess hver skólinn er lítill hefur verið ómögulegt að ráða kennara í fullt starf. „En það hefur gengið mjög vel að ráða hæfa kennara og við erum nú að ganga frá ráðningu fyrsta fasta starfsmannsins.“ Hugmyndin að stofnun Hrað- brautar kviknaði hjá Ólafi eftir að hann byrjaði með sumarskóla árið 1993. „Hann er í meginatriðum fyr- irmyndin að þessum skóla. Við vor- um þar með nám sem var einungis í júnímánuði og var þannig uppbyggt að nemendur komu í skólann og lærðu þar í fjórar vikur. Það gekk síðan svo vel að ég fór að skoða hvort hægt væri að útfæra þetta í heils- ársnám og sá að það væri hægt. Þá hvarflaði að mér að hægt væri að mæta þörfum nemenda sem hafa meiri getu en meðalnemandinn og eftir mikla yfirlegu varð þetta nið- urstaðan,“ segir Ólafur og er bjart- sýnn á framtíð skólans. Auk Ólafs eru eigendur skólans tveir; fyr- irtækið Nýsir, sem m.a. hefur sér- hæft sig í einkaframkvæmdum, og Verslunarmannafélag Reykjavíkur. Menntaskólinn Hraðbraut í Hafnarfirði fer vel af stað á upphafsári skólans Góður árangur í fyrstu prófum Menntaskólinn Hraðbraut hóf starfsemi í ágúst og hefur farið vel af stað. Eiríkur P. Jörundsson heimsótti skólann og ræddi við skólastjóra og nemendur. Ólafur skólastjóri: Ótrúlegt hvað vel skipulagðir nemar geta komið fyrir miklu í stundaskrá sinni. Morgunblaðið/Ásdís Fartölvur eru ómissandi þáttur í kennslustundum og námi við skólann. eirikur@mbl.is 52 NEMENDUR stunda nám við Menntaskólann Hrað- braut, flestir koma beint úr grunnskóla en nokkrir nemendanna eru eldri og hafa reynt fyrir sér í öðrum skólum. Þegar blaðamaður gekk um ganga skólans fyrsta dag annarrar lotu rakst hann á stúlku sem sat ein á bekk með fartölvu á hnjánum, á meðan aðrir nem- endur sátu í kennslustund. Aðspurð sagðist Berglind Ósk Böðvarsdóttir taka próf í sænsku en bekkjar- félagar hennar sátu í tíma í dönsku. Hún sagðist reynd- ar bara taka eitt fag í annarri lotu þar sem hún er búin með stærðfræðina. „Ég ætlaði í byrjun að fara í Menntaskólann við Hamrahlíð og taka stúdentinn á þremur árum en síðan kom þessi skóli og bauð að taka stúdentsprófið á tveim- ur árum. Mér fannst það mjög sniðugt og síðan er bara gaman að prófa eitthvað nýtt,“ sagði Berglind Ósk. Hún útskrifaðist úr grunnskóla frá Foldaskóla í Grafarvogi og býr þar í dag. En skyldi ekki vera langt að sækja skóla úr Grafarvogi í Hafnarfjörð? „Nei, strætókerfið er orðið voða þægilegt núna og það tekur í mesta lagi hálftíma að komast hingað,“ segir Berglind Ósk. Hvernig líst þér svo á skólann eftir fyrstu lotuna? „Ég byrjaði á svolítið léttum fögum og það var að- allega íslenskan sem var erfið. En það var voða gaman í fyrstu lotunni þó að reyndar hafi síðasta vikan verið strembin þegar maður var bæði að búa sig undir prófin og klára allar bækur.“ Nemendur skyldugir til að nota fartölvur Hvernig er félagslífið í skólanum? „Mér finnst rosalega gott félagslíf hérna í skólanum, það eru í raun bara allir vinir og ná voða vel saman. Hérna eru mjög skemmtilegir krakkar sem eru alls ekki alltaf á kafi í bókum. Eftir prófin í síðustu viku lot- unnar fórum við öll í ferðalag og þá var voða gaman,“ sagði Berglind Ósk. Í fyrstu frímínútum dagsins sátu margir nemend- anna við fartölvurnar sínar inni í kennslustofunni og biðu eftir næsta tíma, enda pásan stutt. Davíð Geir Jón- asson sat fremstur í gluggaröð og sagði það skyldu nemenda að vera með fartölvu þar sem nemendur fengju mikið af verkefnum og glósum sent í tölvupósti, en allir nemendurnir fá netfang hjá skólanum. Davíð Geir kemur úr Rimaskóla í Grafarvogi og er ánægður með nýja menntaskólann. „Ég ákvað að sækja um skóla hér því þetta er skemmtilegt námsfyrirkomulag, þetta gefur meiri möguleika og er markvissara og einbeittara. Líka vegna þess að þetta tekur bara tvö ár og þá fer ég mjög líklega í háskólanám.“ Að sögn Davíðs líst honum mjög vel á skólann og kennsluna eftir fyrstu lotuna og gekk vel í prófunum. Skemmtilegir krakkar sem eru ekki alltaf á kafi í bókum Morgunblaðið/Ásdís Davíð Geir og Berglind Ósk: Ánægð með mennta- skólann sinn, námsfyrirkomulagið og félagslífið. EKKI eru þó allir nemendur skól- ans að koma beint úr 10. bekk og í frímínútunum sat Bryndís Svav- arsdóttir, sem verður 47 ára í nóv- ember, meðal unglinganna. En hvað kom til að hún dreif sig á Hraðbraut? „Ég ætlaði að spara mér tíma, nú er maður orðinn svo gamall að maður má ekki vera að því að vera lengi að læra. Ég var byrjuð í dag- skóla í Flensborg, því mig langaði í háskólann að læra guðfræði, og var búin með eina önn þar.“ Að sögn Bryndísar hefur námið gengið vel og unglingarnir verið mjög góðir samnemendur. „Ég fór meira að segja með þeim í ferðalag eftir prófin og það var mjög gam- an.“ Hún reiknar þó ekki með að ljúka stúdentsprófinu en stefnir a.m.k. á að ljúka þeim einingum sem nauð- synlegar eru til að geta innritast í guðfræðideild HÍ. „Ég þarf reyndar ekki að ljúka stúdentsprófi, ég þarf 60 einingar til að komast í guðfræðina og ef mér nægir hér einn vetur hugsa ég að ég láti það duga. Í guðfræðinni held ég að maður þurfi bara fyrst og fremst að trúa og þurfi ekki hvíta húfu til þess að komast þar inn. Þá er ég ekkert að eyða öðru ári í húfuna.“ Morgunblaðið/Ásdís Bryndís: Má ekki vera að því að vera lengi að læra. Hún ætlar í guð- fræði að loknu menntaskólanámi. Hef ekki tíma til að vera lengi að læra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.