Morgunblaðið - 30.09.2003, Qupperneq 19
Gæti kostað
27 þúsund á
hvern íbúa
Sandgerði | Bæjarstjórn Sandgerð-
isbæjar ætlar að krefjast þess að
Fasteignamat ríkisins taki að ein-
hverju leyti þátt í kostnaði vegna ný-
fallins dóms Hæstaréttar þar sem
bæjarfélaginu er gert að endur-
greiða Flugstöð Leifs Eiríkssonar
rúmar 37 milljónir kr., auk vaxta.
Þurfi bæjarfélagið að greiða upp-
hæðina alla jafngildir það því að hver
íbúi bæjarins þurfi að greiða tæpar
27 þúsund kr., auk vaxta, en íbúar
Sandgerðisbæjar voru um 1.400 um
síðustu áramót.
Í dómi Hæstaréttar kom fram að
vegna oftekinna fasteignaskatta á
árunum 1998 til 2000 skuli Sand-
gerðisbær endurgreiða 37,4 milljónir
króna, en fyrir mistök Fasteigna-
mats ríkisins var álagningarstofn
fasteignaskatts flugstöðvarinnar
ákvarðaður 36,8% of hár.
Mistök Fasteignamats ríkisins
Sérstakur aukafundur var um
málið í bæjarstjórn á laugardag.
„Niðurstaða fundarins var sú að mér
og lögmanni bæjarins, Jóhannesi
Aðalbjörnssyni, var falið að hefja
viðræður við Fasteignamat ríkisins
um næstu skref,“ segir Sigurður
Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri.
Hann segir að ef það hefði verið
vitað að þessi fasteignagjöld væru of
há hefði álagningarprósenta miðast
við það og verið hærri sem því nem-
ur, svo hvernig sem á það er litið
hefði Sandgerði haft þessar tekjur.
Hann segir að í viðræðunum verði
farið fram á að Fasteignamatið deili
ábyrgð og taki þátt í kostnaðinum
sem sveitarfélagið sér fram á vegna
málsins.
Sandgerðisbær
greiði flugstöð-
inni 37 milljónir
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 19
Gluggagægir | Íbúi í Grindavík sá
einstakling með myndbandstökuvél
sem var að taka myndir inn um eld-
húsglugga íbúans um 4.30 aðfara-
nótt sunnudags. Heimilisfólkið sá
ekki hver var á ferð en sagði mann-
inn hafa verið í köflóttri skyrtu. Lög-
reglu var tilkynnt um atvikið, en hún
segir málið í rannsókn og óskar eftir
vitnum.
Handrukkari | Ætlaður handrukk-
ari vopnaður kylfu var handtekinn
við íbúðarhús í Njarðvík um hádegi
á sunnudag. Ekki hafði komið til
átaka er lögreglan kom á staðinn.
Maðurinn var færður til yfirheyrslu
á lögreglustöð, en hann mun hafa
komið við sögu lögreglu áður. Við yf-
irheyrslur neitaði maðurinn því að
hann væri handrukkari og var hon-
um sleppt að loknum yfirheyrslum.
78% nota heimasíðu | Hátt hlut-
fall foreldra barna í Njarðvíkurskóla
notar sér heimasíðu skólans, en sam-
kvæmt könnun meðal foreldra hafa
78% þeirra skoðað síðuna. Þeir sem
leita upplýsinga um skólastarfið á
síðunni eru 73% foreldra. Athuga-
semdir um síðuna eru yfirleitt já-
kvæðar, en meðal atriða sem nefnd
voru er skipulag, uppfærsla matseð-
ils, meiri upplýsingar, upplýsingar
um námið almennt, að því er fram
kemur á heimasíðu Njarðvíkurskóla.
Grindavík | Foreldrafélag Grunn-
skóla Grindavíkur bauð í heldur
óhefðbundna veislu á laugardag
þegar bæjarbúum var boðið að
hlusta og taka þátt í umræðum
um uppeldis- og menntamál í
grunnskólanum.
Meðal erinda voru innlegg frá
Vigdísi Finnbogadóttur, æskan er
okkar fólk, og erindi frá Bergi
Ingólfssyni leikara sem fór lip-
urlega yfir uppvaxtarár sín í
Grindavík fram til dagsins í dag.
Einnig voru kynnt viðhorf nem-
enda í 10. bekk grunnskólans,
eins og þau birtust í nýlegri
könnun, og rætt um framtíðarsýn
skólans.
Íþróttir og pylsuveisla
Á meðan foreldrar hlýddu á er-
indi hinna ýmsu einstaklinga og
gæddu sér á súpu í boði foreldra-
félagsins í hádeginu stóð körfu-
knattleiksdeild UMFG í stórræð-
um í íþróttahúsinu. Öllum
skólabörnum var boðið að koma
og keppa í þrír á þrjá körfubolta-
keppni eða taka þátt í leikjum
auk þess að heilmikið knatt-
spyrnumót var haldið. Krakk-
arnir tóku þessu boði vel og var
vel mætt í íþróttahúsið. Krakk-
arnir luku síðan degi sínum með
pylsuveislu og var á þeim að sjá
að þetta væri frábær dagur.
„Já, þetta er ágætismæting og
erindin mjög góð,“ segir Þor-
steinn Gunnar Kristjánsson, for-
maður foreldrafélagsins.
„Þetta hefur mælst mjög vel
fyrir hjá öllum og við í foreldra-
félaginu erum mjög ánægð með
daginn.
Það er búið að vera hreint út
sagt frábært að vinna að und-
irbúningnum að þessari fjöl-
skylduveislu og ótrúlegt hve mik-
ið af góðum hugmyndum skaut
upp kollinum.
Stjórn foreldrafélagsins vill
færa öllum bestu þakkir sem gátu
séð sér fært að taka þátt í þessu
með okkur.“
Morgunblaðið/Garðar
Rætt um menntamál: Vigdís Finnbogadóttir ræddi við foreldra barna í Grunnskóla Grindavíkur í hádegishléinu.
Ótrúlegur fjöldi góðra hugmynda
Víða komið við í umræðum um uppeldis- og menntamál
Keppt í körfu: Krakkarnir í Grindavík skemmtu sér vel í íþróttaveislunni
sem þeim var boðið til og kepptu í körfubolta í þriggja manna liðum.
Njarðvík | Það má ekki á milli sjá
hvor blómarósin var sælli í sól-
skininu í Reykjanesbæ í síðustu
viku. Forvitnin rak Lovísu, nem-
anda í 2. bekk í Njarðvíkurskóla,
að glugganum og í þann mund
sem hún guðaði á hann smellti
ljósmyndari af. Engu er líkara en
stæðileg tröllskessa sé á hælunum
á henni.
Alla jafna er mikið líf á skólalóð
Njarðvíkurskóla, bæði eftir skóla
og á skólatíma, enda mikið um
leiktæki og götuþrautir á lóðinni
sem laða unga fólkið að.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Tvær blómarósir í sólskini
Grindavík | Félag slökkviliðs-
manna í Grindavík varð þrítugt á
dögunum, og fékk af því tilefni
góðar gjafir. Gestum og gangandi
var boðið upp á veitingar og flutt
voru erindi til heiðurs afmælis-
barninu.
Ásmundur Jónsson, slökkviliðs-
stjóri í Grindavík, var ánægður
með daginn: „Þetta var fínn dagur
hjá okkur og töluvert af fólki sem
heimsótti okkur en reyndar flest
boðsgestir.
Í dag eru 20 manns í slökkvilið-
inu en þeir voru um 30 fyrir þrjá-
tíu árum. Sú fækkun kemur að-
allega til vegna þróunar í
slökkvitækni.“
Morgunblaðið/gpv
Boðið var upp á veitingar fyrir gesti og gangandi á afmælinu.
„Fínn dagur“
hjá slökkviliðinu
UM 96% nemenda í 9. og 10. bekk Grunnskóla Grindavíkur sögðust sátt við
að búa í Grindavík, og um 82% sögðu að þeim liði vel í Grunnskóla Grinda-
víkur. Þetta kom fram í könnun sem nemendur í 10. bekk grunnskólans
gerðu meðal samnemenda sinna, en niðurstöður könnunarinnar voru birt-
ar á laugardaginn.
„Það sem var aðallega spurt um var hvernig þeim [nemendum] líkaði
þjónustan, félagslífið og íþróttaaðstaðan í bænum,“ segir Guðrún Gunn-
arsdóttir, nemandi í 10. bekk Grunnskóla Grindavíkur, og einn af aðstand-
endum könnunarinnar.
Helmingur hefur tekið eftir einelti
Guðrún segir niðurstöðurnar almennt lofa góðu fyrir Grindavík sem
bæjarfélag. Skiptar skoðanir virðast þó vera um hvort nemendur geta
hugsað sér að búa áfram í Grindavík eða ekki, og voru hlutföllin nokkuð
jöfn milli þeirra sem gátu hugsað sér það og þeirra sem gátu það ekki.
„Það er voðalega jafnt í þessu hverjir segja já og hverjir segja nei.“ Að-
spurð hvort þau hefðu tekið eftir einelti í grunnskólanum sagði um helm-
ingur nemenda svo vera.
Nemendur sáttir við að búa í Grindavík
og flestum líður vel í skólanum