Morgunblaðið - 30.09.2003, Side 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 21
Alltaf á laugardögum
Smáauglýsing
á aðeins 500 kr.*
Áskrifendum Morgunblaðsins býðst smáauglýsing fyrir aðeins 500 kr.*
Almennt verð er 1.689 kr.
Pantanafrestur er til kl. 12.00 á föstudögum.
*5 línur; tilboðið gildir til 31. desember 2003.
Hafðu samband! Auglýsingadeild Morgunblaðsins,
sími 569 1111 eða augl@mbl.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
O
R
21
22
0
0
9/
20
03
Akranesi| Fjölbrautaskóli Vest-
urlands á Akranesi og Verk-
menntaskólinn IT IS Giorgi í Mílanó
hafa myndað með sér samstarf og nú
í september hafa 10 ungmenni frá
Ítalíu dvalið hér á landi. Þetta er í
annað sinn sem nemendur frá þess-
um skóla koma hingað til lands og í
nóvember fara nemendur frá FVA í
annað skipti til Mílanó.
Heimsóknir þessar eru styrktar af
Leonardo-starfsmenntaáætlun Evr-
ópusambandsins.
Í skóla og vinnu
Ítalirnir dvelja á heimilum í Borg-
arnesi og á Akranesi og fyrstu vik-
una stunduðu þeir nám við FVA. Að
sögn Kristjáns E. Guðmundssonar,
kennara í FVA, sem hefur umsjón
með erlendum samskiptum skólans,
var lögð megináhersla á tungu-
málanám. Eftir það voru gestirnir í
starfsþjálfun hjá ýmsum fyr-
irtækjum á Vesturlandi, t.d. hjá
Norðuráli og í Járnblendiverksmiðj-
unni á Grundartanga og einnig hjá
Orkuveitu Reykjavíkur, en að þessu
sinni komu rafvirkja- og raf-
eindanemar.
Kristján sagði að það væri svolítið
erfitt að finna vinnustaði fyrir svo
marga nemendur á svæðinu, en
þetta hefði þó allt gengið upp.„Þetta
eru mikil borgarbörn og óhætt að
segja að þau hafi upplifað margt sér-
stakt og óvenjulegt meðan á dvölinni
stendur. Þau fóru í ferð íslensku-
nema á slóðir Bárðar Snæfellsáss.
Við komum við hjá Hildibrandi
Bjarnasyni í Bjarnarhöfn þar sem
nokkrir hugrakkir Ítalir smökkuðu
hákarl. Hann samræmist ekki beint
hinni hefðbundnu ítölsku mat-
argerð!“
Fljótir að læra markið
Þá segir Kristján að það hafi verið
mikil upplifun fyrir Ítalina að kom-
ast í réttir en farið var með þá í
Þverárrétt í Borgarfirði. Tveir
þeirra ákváðu að prófa að draga fé.
Kolfinna Jóhannesdóttir í Norð-
tungu kenndi þeim markið sitt og
voru þeir fljótir að læra það og
skemmtu sér við að draga kind-
urnar.
Nemendunum er líka boðið í ferð í
Landmannalaugar auk þess sem
þeir heimsækja orkuverið að Nesja-
völlum og fyrirtækið Marel í
Reykjavík. Auk nemendanna komu
tveir kennarar frá ITIS Giorgi og
dvelja í vikutíma hvor. Þeir kynna
sér skólahald hér á Skaga og eru
nemendunum til halds og trausts.
Hinn 11. október halda 10 nem-
endur frá FVA til Mílanó þar sem
þeir dvelja í þrjár vikur auk fjögurra
kennara sem dvelja í viku í senn, en
það er hluti af Leonardo-áætluninni
að hafa slík starfsmannaskipti.
„Það er verið að skipuleggja hjá
hvaða fyrirtækjum nemendurnir
verða og er örugglega auðveldara að
finna þau í stórborginni en hér á
Vesturlandi. Ein þeirra sem fer til
Mílanó er t.d. að læra söðlasmíði og
ég vona að það takist að finna vinnu-
stað fyrir hana.“
Ítalskir nemendur í heimsókn hjá Fjölbrautaskóla Vesturlands
Smökkuðu
hákarl og drógu
fé í réttum
Ljósmynd/Kolfinna Jóhannesdóttir
Það er leikur að læra: Þessi ítalski piltur var ekki lengi að komast upp á lag-
ið með að draga fé eftir að hafa lært markið á fénu frá Norðtungu.
Hrunamannahreppi | Unnið er að
uppbyggingu vegarkafla á Kjalvegi
í framhaldi af því sem gert var fyrir
tveimur árum en þá voru byggðir
upp um 5 km frá afréttargirðingu
Biskupstungnamanna, skammt inn-
an við Gullfoss.
Að þessu sinni er um að ræða 4,1
km kafla sem nær inn að Sandá.
Hún er vatnsmikil þverá sem var
brúuð fyrir allmörgum árum og
kemur úr Sandvatni en rennsli í það
kemur úr Hagavatni við Langjökul.
Það er verktakafyrirtækið Nesey
ehf. í Skeiða- og Gnúpverjaheppi
sem annast verkið. Nesey ehf. var
með lægsta tilboðið af 12 verktök-
um, sem buðu í þessar vegafram-
kvæmdir, sem var innan við 14
millj. króna. Vinna við verkið hófst
um miðjan ágúst og verklok eru
áætluð í byrjun október.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Uppbygging
Kjalvegar
Nýtt útibú | Íslandsbanki mun opna
nýtt útibú í Ráðhúsinu á Reyðarfirði
í byrjun nóvember og verður auglýst
eftir starfsfólki í útibúið á næstu
dögum. Í tilkynningu frá bankanum
segir að markmið bankans með opn-
un útibús á Reyðarfirði sé að auka
og efla fjármálaþjónustu á Austur-
landi. Auk þess vilji bankinn leggja
sitt af mörkum til uppbyggingar at-
vinnu- og efnahagslífs eystra.
„Íslandsbanki hefur ekki verið
með útibú á Austurlandi um nokkurt
skeið, en um 2.000 einstaklingar og á
þriðja hundrað fyrirtæki á svæðinu
eru þegar í viðskiptum við bank-
ann.“
Bruðl að borga | Blönduósbær,
Höfðahreppur og Húnaþing vestra
hafa leitað eftir sameiginlegu tilboði
frá Halli Hilmarssyni vegna aksturs
með nemendur sem stunda nám í
Fjölbrautaskólanum á Sauðarkróki í
vetur.
Í fundargerð má sjá að bæjarráð
Blönduóss samþykkir samninginn
og felur bæjarstjóra að undirrita
hann. Einn bæjarráðsmaður, Hjör-
dís Blöndal, greiddi atkvæði á móti
og það varð Ágústi Þór Bragasyni
bæjarráðsmanni tilefni til að láta
bóka eftirfarandi skoðun:
Í Fjölbraut er gaman að vera
og koma heim í rútu frá Halli
en Hjördís telur það vera
bruðl að bærinn borgi með kalli.
Flotlokalausn | Þær endurbætur
hafa verið gerðar á dreifikerfi
Hitaveitu Reykdæla að smíðað
hefur verið inntaksrör í tankinn og
í rörinu er loki sem tengdur er við
flotholt. Þegar nægilegt vatn er
komið í tankinn og flotholtið þar
með komið í efstu stöðu hefur það
snúið sveif sem fest er við lokann
þannig að rennsli í tankinn stöðv-
ast. Þegar vatnsborðið lækkar og
flotholtið sígur opnast inntaksrörið
á nýjan leik. Á þennan hátt er
tryggt að ekki sé gengið meira á
auðlindina en þörf krefur hverju
sinni. Höfundur þessara breytinga
er Snæbjörn Kristjánsson, einn
upphafsmanna hitaveitunnar. Á
heimasíðu Þingeyjarsveitar er
spurt hvort hiti á vatninu lækki
ekki þegar notkun sé lítil og vatn
standi lengi í tanknum. Því er
svarað til, að notkun sé það mikil,
og þá um leið gegnumstreymi, að
hitatap sé vart mælanlegt.