Morgunblaðið - 30.09.2003, Síða 27
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 27
Í GEGNUM tíðina hefur Heim-
dallur barist fyrir hugsjónum Sjálf-
stæðisstefnunnar. Sú barátta hefur
borið ríkulegan ávöxt og verið þjóð-
inni til heilla. Árið 1947 sagði Ólafur
Thors í afmælisriti Heimdalls: ,,Er
ekki ofmælt, að hin frjálslynda fram-
farastefna Heimdallar hafi í ríkum
mæli fest og aukið fylgi flokksins.“
Þessi orð standast fyllilega tímans
tönn.
Við viljum halda baráttunni áfram
og tryggja að Heimdallur verði leið-
andi afl, jafnt innan Sjálfstæðis-
flokksins sem í þjóðfélagsumræð-
unni. Kraftmikil hugsjónabarátta er
öflugasta tækið til þess að laða að
áhugasamt fólk til fylgis við flokkinn.
Miðvikudaginn 1. október verður
aðalfundur Heimdallar haldinn í Val-
höll. Við undirritaðir bjóðum okkur
fram til stjórnarsetu, ásamt 10 öðrum
einstaklingum undir forystu Atla
Rafns Björnssonar. Ástæða þess að
við sækjumst eftir því að sitja í stjórn
Heimdallar er sú að við teljum að fé-
lagið sé mikilvægur vettvangur til að
koma á framfæri hugsjónum um auk-
ið frelsi einstaklingsins og minni af-
skipti hins opinbera. Að sjálfsögðu
gegnir Heimdallur einnig því mik-
ilvæga hlutverki að vekja áhuga ungs
fólks á stjórnmálastarfi – en leiðin að
því markmiði er sú að vekja áhuga
ungs fólks á málefnum og hug-
sjónum.
Við hvetjum unga sjálfstæðismenn
til að kynna sér málefnin okkar á
www.hugsjonir.is
Ungir sjálfstæðismenn hafa alltaf
þorað að segja hug sinn og standa
fast á skoðunum sínum. Stundum eru
þær skoðanir ekki í samræmi við
stefnu flokksforystunnar, en einmitt
þá er mikilvægast að Heimdallur
bregðist ekki. Almenningur gerir ráð
fyrir því að stjórnmálamenn þurfi
stundum að gera málamiðlanir, til
dæmis í stjórnarsamstarfi, en þeir
sem starfa í ungliðastarfi þurfa hins
vegar ekki að gera málamiðlanir.
Heimdallur þarf að vera rödd skyn-
seminnar og veita aðhald frá hægri
þegar aðrir þegja.
,,Nú er það trúin á boðskap og hug-
sjónir Heimdallar og baráttuhugur
liðsins, sem ræður.“ (Ólafur Thors,
1947).
Hugsjónir skipta máli! – Atla
Rafn sem formann Heimdallar
Eftir Ragnar Jónasson og
Kristin Má Ársælsson
Höfundar eru Heimdellingar.
Kristinn Ragnar
ÞAÐ getur verið erfitt að vera
kona. Við erum með lægri laun,
erum í færri stjórnunarstöðum og
þurfum í senn að vera gáfaðar,
myndarlegar, mæður, konur og fé-
lagar. Er alslæmt að vera kona?
Jú, sannanlega eigum við nokkuð í
land með að ná sömu hæðum og
karlmenn á vinnumarkaðnum en
er ójöfnuður forsvarsmanna fyr-
irtækja rót alls ills? Að dómi
greinarhöfunda er margt í sam-
félaginu sem sýnir fram á að skil-
yrðin eru til staðar fyrir konur til
að sækja í sig veðrið og grípa
tækifæri sem gefast. Þrennt má
benda á þessu til stuðnings.
Í fyrsta lagi hefur hlutfall
kvenna í háskólanámi aukist til
muna. Konur eru nú um 70% há-
skólastúdenta, sem sýnir að skil-
yrðin fyrir þátttöku kvenna í námi
eru betri en áður og konur hafa
nú meira sjálfstraust til að sækja
nám sem tengist áhugasviði en
ekki kyni þeirra líkt og e.t.v. var
áður. Námsbrautir sem nánast
undantekningalaust voru sóttar af
karlmönnum eru nú kynntar sér-
staklega fyrir konum og þær
hvattar og jafnvel styrktar til að
sækja það nám. Dæmi um þetta er
verkfræðinám við Háskóla Ís-
lands.
Í annan stað hafa fyrirtæki í
dag gert sér grein fyrir kostum
þess að hafa blandaðan hóp
stjórnenda. Staðreyndin er sú að
öflugar konur eru eftirsókn-
arverðir starfskraftar. Konur eru
metnar til jafns við karlmenn og
eftir lögleiðingu fæðingarorlofs
karla eru verðandi mæður ekki
lengur akkilesarhæll fyrirtækja.
Konur ættu því ekki að vera ragar
við að krefjast sömu starfa, launa
eða fríðinda og karlmenn því tæki-
færið er til staðar og konum ber
að grípa það.
Í þriðja lagi má benda á þá
ánægjulegu þróun að konur virð-
ast vera að sækja í auknum mæli í
starfsemi stjórnmálahreyfinganna.
Nefna má sem dæmi kynjahlutföll
innan Sjálfstæðisflokksins. Nú eru
skráðar konur um 46% flokks-
manna. En betur má ef duga skal!
Að vera flokksmaður eða virkur
flokksmaður er tvennt ólíkt. Því
miður virðast konur veigra sér við
að taka stefnuna út á vígvöll
stjórnmála og hvatning hreyfinga
mætti ugglaust vera meiri. Af
reynslu greinarhöfunda er starfið
innan Heimdallar í senn ögrandi,
lærdómsríkt og skemmtilegt. Virð-
ing og traust til karla og kvenna
er í jafnvægi og á hvorugt kynið
er hallað í þessu starfi. Innan
flokksins er togast á um hugsjónir
en aldrei kyn þess er ber hug-
mynd á borð. Slík þróun í grasrót-
arstarfsemi Sjálfstæðisflokksins á
vonandi eftir að skila sér í aukn-
um áhuga allra kvenna á stjórn-
málum og stjórnmálaþátttöku.
Næstkomandi miðvikudag er
aðalfundur Heimdallar og verður
þá kosið til stjórnar félagsins.
Greinarhöfundar eru í framboði
ásamt tíu öflugum einstaklingum.
Formannsefni hópsins er Atli
Rafn Björnsson, fráfarandi gjald-
keri félagsins. Þessir einstaklingar
hafa allir reynslu af starfsemi
Heimdallar og þeir munu leggja
sitt af mörkum til að auka enn
frekar þátttöku kvenna í stjórn-
málum. Þess verður í hvívetna
gætt að allir njóti sömu tækifæra
án tillits til kyns eða stöðu.
Áhugasömum er bent á heima-
síðu framboðsins www.hugsjon-
ir.is.
Konur og Heimdallur
Eftir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur
og Svanhildi Sigurðardóttur
Höfundar eru frambjóðendur
til stjórnar Heimdallar.
Svanhildur Heiðrún Lind
Á MORGUN miðvikudag verður
kosið til stjórnar Heimdalls. Þegar
félagsmenn ganga til kosninga er
mikilvægt að þeir hafi í huga
hvert hlutverk Heimdallar er,
hvernig hægt er að bæta starf
Heimdallar og vinna að því að
treysta og endurheimta fylgi ungs
fólks. Staðreyndin er sú að ungt
fólk, sem jafnan hefur verið sterk-
asti hópur Sjálfstæðisflokks í kosn-
ingum, skilaði sér ekki nægilega
vel í alþingiskosningunum nú í
vor. Heimdallur, sem er fjöl-
mennasta svæðisfélag ungra sjálf-
stæðismanna, hefur því verk að
vinna. Nú liggur fyrir hverju nú-
verandi stjórn hefur skilað. Af-
staða til einstakra stefnumála
skiptir að sjálfsögðu miklu, en eins
og við boðum þá skiptir ekki
minna máli að almennir fé-
lagsmenn fái tækifæri til að koma
að mótun stefnunnar og til þess þarf virkt félag.
Heimdallur þarf að verða sýnilegri, virkari í þjóð-
félagsumræðunni og aðgengilegri ungu fólki.
Tveir skýrir kostir
Nú standa félagsmenn frammi fyrir tveimur kost-
um. Að velja óbreytt ástand í starfi Heimdallar eða
breytingar. Við boðum breytingar. Við höfum lagt
fram og kynnt skýr markmið sem við ætlum að
vinna eftir til þess að Heimdallur verði á ný öfl-
ugasta félag sjálfstæðisfólks. Við viljum lágmarka
hlutverk ríkins, en standa vörð um það á sviðum
sem skipta máli: Þannig stöndum við fyrir hægri-
stefnu sem lítur svo á Samkeppnisstofnun sé af hinu
góða til þess að ná fram virkri og heilbrigðri sam-
keppni á markaði. Við stöndum fyrir hægristefnu
sem lítur svo á fæðingarorlofslöggjöfin hafi verið
jákvætt skref í átt til þess að koma í veg fyrir kyn-
bundinn launamun og styrkja stöðu feðra. Við vilj-
um umræðu um menntamál, skattamál og atvinnu-
mál, sem tekur mið af hagsmunum ungs fólks og
skattgreiðenda, en ekki sérhagsmunahópa. Við vilj-
um að Heimdallur sýni meira frumkvæði í því að
tala til ungs fólks, skýra og gera hægri stefnuna að-
laðandi fyrir ungt fólk. Við erum fólk sem hefur
víðtæku reynslu af félagsstarfi innan háskólanna
sem og menntaskóla. Við munum gefa út reglulegt
fréttablað um Heimdall, stefnu hans og starf. Við
ætlum að sækja markvisst inn í framhaldsskóla og
háskóla til að fá ungt fólk í ríkari mæli til að taka
þátt í starfinu. Málþing og umræðufundir verða
haldnir reglulega um mál sem eru á döfinni hverju
sinni og um þau mál sem Heimdallur ætlar að beita
sér fyrir.
Skemmtilegt starf
Við, sem bjóðum okkur fram á morgun miðvikudag,
með Bolla Thoroddsen sem formannsefni, viljum
skapa lifandi samfélag fyrir alla félagsmenn. Þann-
ig verður Heimdallur á ný öflugasta stjórn-
málahreyfing ungs fólks í Reykjavík.
Bolli Thoroddsen – skýr valkostur
fyrir Heimdall
Eftir Brynjar Harðarson og Stefaníu Sigurðardóttur
Brynjar er nemi í VÍ og frambjóð-
andi í stjórn Heimdallar. Stef-
anía er nemi í FB og frambjóð-
andi í stjórn Heimdallar.
Stefanía
Brynjar
Laugavegi 63 • sími 5512040
Pálmatré
Vönduðu silkiblómin
fást í
!
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111