Morgunblaðið - 30.09.2003, Síða 33

Morgunblaðið - 30.09.2003, Síða 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 33 skarð sem erfitt verður að fylla upp í. Við sem eftir erum yljum okkur við fallegar minningar og kveðjum góðan mann með fallegt hjarta sem er í huga okkar algjör perla. Ingi sagði mér að hann hefði ekki komist í gegnum þessi veikindi án Gunnu sinnar. Við skulum passa hana fyrir þig, Ingi minn. Elsku Gunna, Heiða, Inger Birta, Anna Kristín, Óli og Berglind litla, Ágúst og Inger Birthe, við vottum ykkur öllum dýpstu samúð. Guð verði með ykk- ur. Rúna, Ragnar, börn og fjölskyldur þeirra. Hann Pétur Ingi er látinn langt fyrir aldur fram, aðeins 49 ára. Ég kynntist Inga, eins og hann var alltaf kallaður, árið 1973 þegar Gunna systir mín kynnti hann fyr- ir okkur á Grýtubakkanum. Ekki get ég gleymt þeirri stundu þegar hann mætti þar með vatnsgreiðslu og skipt í miðju og í krump- leðurjakkanum og oft hefur verði hlegið að þessu síðan. Það verður skrítið að koma í Deildarás 9, sem alltaf hefur stað- ið opið bæði fyrir fjölskyldu mína og vini, getsrisnin í fyrirrúmi hjá ykkur Gunnu. Það verður skrítið að heyra þig ekki segja: Hvað er að frétta? Segja okkur fréttir af Faxa Re. Segja við Rósu dóttur mína með stríðnisglampa í aug- unum: „Nú sefur þú hjá mér.“ Að heyra þig hlæja. Ef mikið gekk á, þá stappaðirðu niður fótum og tókst bakföll. Hvað við hlógum oft mikið saman, því það var aldrei leiðinlegt að vera nálægt þér. Þú spurðir alltaf um krakkana mína og hvort Jónsi væri að fiska. Þú hafðir alltaf svo mikinn áhuga á öllu sem ég sagði eða gerði. Hlust- aðir af athygli, því ekkert var þér óviðkomandi sem sneri að fjöl- skyldu þinni. Enda varstu svolítið forvitinn, með sjónvarpið í gangi og hlustaðir á fréttir í útvarpi af öllum rásum. Ég á eftir að sakna allra sum- arfríanna sem við fórum í saman, hvort sem það var í sumarbústað, sem þér fannst ekkert sérstakt því það var ekki nóg að gera, bara borða og sofa. Enda hef ég aldrei kynnst eins vinnusömum manni og þér. Eða gönguferðirnar sem við fórum um Ísland. Ég man hvað þú sagðir í okkar fyrstu göngu saman sumarið 1997, þegar við lögðum á stað með fimm daga birgðir á bakinu frá Hornsvík á Hornströndum og þú sagðir: „Hvað er maður að gera, ég sem á þennan fína jeppa?“ Við gengum meira að segja saman á Ítalíu í Dolimida-fjöllum La dolce vita (líf- ið er yndislegt). Manstu hvað við hlógum mikið við Gardavatnið? sem átti að vera svo góð afslöppun eftir erfiða göngu, þegar við vor- um að stikna úr hita og þorna upp af þorsta í 37°C hita og við ósk- uðum þess að vera komin heim til Íslands í rok og rigningu. Þá sagð- ir þú: „Og við sem borgum fyrir þetta.“ Þú komst seinast til Eyja um seinustu áramót. Ekki fannst mér þú vera alveg eins og þú áttir að þér að vera. Og svo nú í mars fékkstu úr því skorið að þú værir með krabbamein. En samt léstu þig ekki vanta í gönguna nú í sumar þótt fárveikur værir, enda mikið hreystimenni, eins og sagt var um þig þegar þú hjólaðir hringinn rétt fyrir 40 ára afmælið þitt. Hver hjólar hringinn annar en Ingi hreystimenni í Deildrási 9? Hvað það var gaman að sjá ykk- ur Gunnu, hve þið áttuð vel saman og tryggðina, vináttuna og hvað þið voruð hamingjusöm. Stundum sagðir þú: „Við hugsum m.a.s. eins, ég ætlaði einmitt að fara að segja þetta.“ Þú varst svo ánægð- ur með fjölskylduna þína og hún með þig. Og alltaf varstu svo raunsær. Þegar okkur öllum fannst þetta allt svo óréttlát þá sagðir þú: „Er það ekki óréttlátt að ungt fólk deyi í bílslysum eða börn úr krabba- meini?“ En nú get ég ímyndað mér fagn- aðarlætin þegar þú hittir hana mömmu, tengdamóður þína, eitt- hvað hljótið þið að faðmast, kyss- ast og hlæja, þið sem voruð alltaf svo miklir vinir. Ingi, þú varst svo mikil persóna og ekki bara mágur minn heldur mikill vinur, mikið á ég erfitt með að hugsa um lífið án þín. Já, án Inga verður stórt skarð í lífi okkar allra sem þekktum hann. Ég mun ætíð geyma minningu þína í hjarta mínu. Elsku Gunna, Heiða, Anna Kristín, Inger Birta, Óli og Berg- lind, megi Guð hjálpa ykkur í þess- ari miklu sorg. Þórlaug Steingrímsdóttir. Í Spámanninum stendur: „Skoð- aðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Spámaðurinn, Kahlil Gibr- an.) Þessi orð eiga svo sannarlega við þegar við grátum Inga nú, því hann var okkur mikill gleðigjafi. Þær eru ófáar stundirnar sem við fjölskyldurnar höfum átt saman þar sem Ingi hefur látið okkur veltast um af hlátri og hlegið manna mest sjálfur þessum ein- staka smitandi hlátri sem enginn gat staðist. Það var alveg sama hvert umræðuefnið, var Ingi gat séð spaugilegu hliðarnar á öllu. Oftar en ekki gerði hann grín að sjálfum sér því hann tók sjálfan sig ekki of hátíðlega og sögur hans af samferðafólki sínu fengu okkur til að emja af hlátri þar sem lýs- ingarnar voru svo sjónrænar og húmorinn mjög léttur og krydd- aður, en aldrei var þetta gert með þeim hætti að það særði neinn því það var ekki Inga háttur að tala illa um nokkra manneskju. Það var gott að eiga hann að sem samferðamann og forréttindi að eiga hann sem bróður og mág því betri mann var ekki hægt að eiga að ef á hjálp þurfti að halda hvort sem það var til að kíkja á bílgarmana í gamla daga eða þeg- ar staðið var í stórræðum því Ingi var úrræðagóður og snjall við lausnir á tæknilegum málum, ekk- ert vafstur, heldur málunum redd- að á einstaklega laginn hátt og gert góðlátlegt grín að okkur hin- um sem stóðum og horfðum á hann í aðdáun vinna verk sín. Þeir eru ófáir samferðamenn hans sem hafa fengið Inga til liðs við sig með loftpressuna og séð hann handleika hana af miklli snilld. Ingi hefur kennt okkur sam- ferðamönnum sínum eitt og annað hér á lífsleiðinni án þess að vera meðvitaður um það sjálfur, t.d. var eyðslusemi ekki hans stíll, besta dæmið er þegar hann kornungur maður byggði húsið í Deildarási 9, eljusemin og dugnaðurinn var með ólíkindum, hann hafðir gaman af því að eiga góða bíla, en nýr bíll var ekki keyptur fyrr en búið var að vinna fyrir honum. Hann kenndi okkur einnig að það er gott að eiga sér drauma og láta þá rætast einhvern tímann á lífsleiðinni þegar hann keypti sér splunkunýtt silfurlitað mótorhjól í fyrrahaust og ljómaði eins og 16 ára peyi þegar hann sýndi okkur gripinn. Hann kenndi okkur nýtni og sparsemi án þess að vera nísk- ur. Hann kenndi okkur að ham- ingjuna er ekki að finna í því að eignast allt sem hugurinn girnist heldur því að vera samkvæmur sjálfum sér og öfunda ekki nokkra manneskju af velgengni hennar heldur samgleðjast. Hann kenndi okkur líka að það eru forréttindi að vinna við það sem gefur manni mestu gleðina, ekki vera að eltast við peninga og völd, en það duldist engum sem til Inga þekktu að starfið hans hjá Faxamjöl átti hug hans allan og honum leið hvergi betur en í vinnunni að fjölskyldu sinni og heimili undanskildu, því það var hans líf eins og svo vel kom fram í veikindum hans. Hann kenndi okkur síðast en ekki síst að lifa lífinu lifandi og njóta augna- bliksins. Elsku Gunna mín, við vitum að þú og fjölskyldan voruð honum allt, við vitum líka að hann var þakklátur fyrir að fá að kveðja heima en þar sýnduð þið ást ykkar og kærleika til hinstu stundar og var ómetanlegt fyrir okkur að fá að vera með ykkur þessa síðustu daga hans. Elsku Heiða, Anna Kristín, Ing- er Birta, Óli og litla Berglind, við biðjum góðan Guð að vera með ykkur á þessum erfiðu tímum. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæll á ljóssins friðarströnd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóh.) Hafðu þökk fyrir lífið sem þú gafst okkur. Erik og Jónína.  Fleiri minningargreinar um Pét- ur Inga Schweitz Ágústsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR RAFN GUÐMUNDSSON málarameistari, Naustahlein 30, Garðabæ, sem lést mánudaginn 15. september, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 1. október kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd. Ásdís Guðmundsdóttir, Jón Bjarnarson, Pétur Guðmundsson, Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir, Guðmundur K. Guðmundsson, Svanlaug Sigurðardóttir og barnabörn. ÁRNI KRISTJÁNSSON, Holti, Þistilfirði, sem lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Húsavík, mánudaginn 22. september, verður jarðsunginn frá Svalbarðskirkju laugardaginn 4. október kl. 14.00. Arnbjörg Kristjánsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Þórhalla Kristjánsdóttir, Guðbjörg Kristjánsdóttir, Hólmfríður Kristjánsdóttir, Þórunn Aðalsteinsdóttir og fjölskyldur. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, ÁSLAUGAR ELLU HELGADÓTTUR frá Kothúsum, Akranesi, til heimilis á dvalarheimilinu Höfða. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilis- ins Höfða og Sjúkrahúss Akraness fyrir góða umönnun, skilning og hlýhug. Helgi Friðrik Leifsson, Dóra Hervarsdóttir, Oddbjörg Leifsdóttir, Gísli Jónsson, Jón Þórir Leifsson, Jenný Á. Magnúsdóttir, Jófríður Leifsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR SVERRISSON frá Hvammi, Borgarbraut 65a, Borgarnesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 27. september. Sigurlaug Guðmundsdóttir, Indriði Valdimarsson, Sigríður Herdís Guðmundsdóttir, Sverrir Guðmundsson, Sigþrúður Margrét Þórðardóttir, Guðmundur Stefán Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR ÞÓRARINSDÓTTIR, Hvassaleiti 37, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar- daginn 27. september. Þórarinn B. Kjartansson, Þorbjörg Kr. Kjartansdóttir, Jónas Gunnar Einarsson, Kjartan J. Kjartansson, Lilja Einarsdóttir og barnabörn. GUNNAR ALBERTSSON, Thyrasgade 4, Kaupmannahöfn, lést á Bisbebjerg spítalanum í Kaupmannahöfn föstudaginn 19. septem- ber síðastliðinn. Útförin hefur farið fram. Börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.