Morgunblaðið - 30.09.2003, Qupperneq 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 37
Elsku frænka. Ég þakka þér
fyrir allt og allt.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sig.)
Hvíl þú í friði.
Anna.
HINSTA KVEÐJAÉg hef aldrei átt því láni að fagna
að hafa kynnst ömmum mínum og öf-
um þar sem þau voru látin eða létust
þegar ég var mjög ung. Þetta ömmu-
og afaleysi skipti mig engu máli því
ég átti það sem í mínum huga var
miklu betra, hana frænku. Stefanía,
eða „frænka“ eins og við systkinin
kölluðum hana alltaf, var ein af
systrum mömmu. Í mínum huga átti
hún sess við hlið mömmu og pabba.
Þegar ég var yngri og var að biðja
bænirnar þá taldi ég upp alla þá sem
ég vildi að Guð passaði sérstaklega
vel fyrir mig og þá byrjaði ég alltaf á
mömmu, pabba og frænku og síðan
komu aðrir fjölskyldumeðlimir koll
af kolli. Frænka var alltaf mjög mik-
ilvæg innan fjölskyldunnar, kom
mikið í heimsókn þegar við systkinin
vorum yngri og ekki var hægt að
halda upp á neinn merkisviðburð
innan fjölskyldunnar án þess að hún
væri með.
Mér þótti alltaf ákaflega vænt um
frænku enda væri það óendanlegur
listi að ætla að telja upp allt það sem
hún var mér og minni fjölskyldu.
Þegar ég var yngri voru það alltaf
pakkarnir frá frænku sem voru mest
spennandi á jólum og afmælum. Þeg-
ar ég eltist þá var það ósjaldan sem
hún stakk upp á því að við færum
saman í bæinn að kíkja á kaffihús og
oftar en ekki kom ég heim með ein-
hverja tískuflíkina sem mig hafði
langað í lengi.
Eftir að ég komst á fullorðinsár og
var búin að eignast mína eigin fjöl-
skyldu kom frænka oft í heimsókn og
við spjölluðum yfir kaffibolla eða
fengum okkur göngutúr saman.
Fyrir þremur árum síðan ákvað
frænka að hún vildi eyða ævikvöld-
inu á bernskuslóðunum á Vopnafirði
og fluttist hún þangað haustið 2000.
Eftir að hún flutti vorum við dugleg-
ar að vera í símasambandi en síðan
þá hef ég aðeins hitt hana tvisvar,
sumarið 2001 þegar haldið var ætt-
armót á Vopnafirði og nú síðast í
sumar þegar við fjölskyldan ákváð-
um að heimsækja hana og sýna
henni yngsta fjölskyldumeðliminn
okkar. Þessi heimsókn er mér óend-
anlega dýrmæt núna þar sem ég náði
að hitta hana og faðma í síðasta sinn.
Ég ætla ekki hér að rekja ævi
frænku enda ekki tilgangurinn með
þessari kveðju. Ástæða skrifanna er
einungis sú að þakka fyrir dýrmæt
kynni af konu sem ávallt reyndist
mér og mínum vel og sem hefur ætíð
verið svo stór þáttur í mínu lífi.
Elsku frænka, hafðu þökk fyrir
allt og allt.
Erla S. Jensdóttir.
Stefanía Ásbjarnardóttir eða
frænka eins og hún var kölluð af fjöl-
skyldunni er búin að kveðja þennan
heim eftir langt og gifturíkt lífsstarf.
Okkar leiðir lágu fljótlega saman eftir
að við Anna systurdóttir hennar
kynntumst. Hún átti eftir að vera góð-
ur og sannur vinur alla tíð og mikil
stoð og stytta fyrstu árin við okkur
hjónaleysin og síðar við börnin okkar.
Það hefur verið mikil breyting á
daglegu lífi hennar, þegar hún tók
okkur Önnu, unga parið, inn á heimili
sitt heilan vetur á meðan við lukum
námi. Með því móti sýndi hún stuðn-
ing sinn og hafði ekki fleiri orð um
það.
Stefanía var ekki bara frænka,
hún var frænkan okkar og barnanna
okkar. Svo mikils mátum við Stef-
aníu að við fórum fram á það að fá að
skíra fyrstu dóttur okkar eftir henni
og var það auðsótt mál.
Við reyndum að heimsækja hana
sem oftast þegar við áttum leið til
Reykjavíkur og var ávallt gott og
þægileg að heimsækja hana. Eftir að
Stefanía flutti til Vopnafjarðar fyrir
nokkrum árum urðu heimsóknir
okkar stopulli, en við gerðum okkur
þó far um að heimsækja hana austur
á hverju ári. Nú síðast í byrjun ágúst
heimsóttum við hana og var hún þá
nýlega komin á sjúkradeildina í
Sundabúð og áttum við með henni
góða stund. Okkur fannst hún hafa
sama viljastyrkinn og taldi hún sig
þá komast fljótlega aftur upp í íbúð-
ina sína, þar sem henni leið vel.
Við Anna og börnin viljum þakka
frænku samfylgdina og biðjum guð
að varðveita minningu hennar.
Sigurður Viggósson.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Vesturbær
„amma“ óskast!
15 mánaða, blíðan strák vantar pössun 4—6
tíma á dag. Bæði kemur til greina að fá mann-
eskju heim eða að hann fari til „ömmu“/dag-
mömmu með fá börn. Uppl. í s. 864 2211.
LAUS STÖRF
• Skrifstofustjóra á framkvæmda- og
tæknisvið
• Stuðningsfulltrúa í Hjallaskóla
• Umsjónarkennara á yngsta stig í
Hjallaskóla
• Námsráðgjafa í Kársnesskóla
• Leikskólakennara í Álfatún v/Álfatún,
deildarstjóra
• Leikskólasérkennara með umsjón
• Talmeinafræðing í hlutastarf
Nánari upplýsingar á:
www.kopavogur.is
og www.job.is
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Skrifstofuherbergi/leiga
Til leigu rúmgóð, nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Reykjavík. Beintengt
öryggiskerfi. Sameiginleg kaffistofa.
Upplýsingar í síma 896 9629.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Aðalfundur Útvegsmannafélags Suðurnesja
verður haldinn í veitingasal Matarlystar, Iða-
völlum 1, Keflavík, í dag, þriðjudaginn 30. sept-
ember, kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ,
mætir á fundinn. Félagsmenn fjölmennum.
Útvegsmannafélag Suðurnesja.
ÓSKAST KEYPT
Vélsmiðjutæki
Óskum eftir notuðum vélum og verkfærum
til almenns vélsmiðjurekstrar.
Upplýsingar í síma 892 3250.
TIL SÖLU
Eignir þrotabús til sölu
Allar eignir þrotabús Íslenska vatnsfélagsins
ehf. eru til sölu. Meðal eigna eru tvær vélasam-
stæður (átöppunarvélar), lyftari árg. 1991 (JL
0928), plastpökkunarvél, loftpressa, verkfæra-
kassar, rafmagnsmótorar, umbúðir o.fl.
Tilboð óskast í eignirnar fyrir mánudaginn
6. október nk.
Nánari upplýsingar um eignirnar eru veittar
á skrifstofu skiptastjóra hjá LOGOS lög-
mannsþjónustu í síma 540 0300 eða með tölvu-
pósti heidar@logos.is.
F.h. Gunnars Sturlusonar hrl.,
skiptastjóra,
Heiðar Ásberg Atlason hdl.
Styrkur til listamanna
Með fyrirvara um að bæjarstjórn samþykki
framlag fyrir árið 2004, er Ryvarden-styrkurinn
auglýstur, að upphæð 20.000 norskar kr., sem
veittur er einum styrkþega. Styrkurinn er veitt-
ur í tengslum við Galleri Ryvarden, Ryvarden-
vitann og styrkþeginn þarf að dveljast og vinna
í vitanum 4—6 vikur, úthlutunarárið. Í vita-
varðarbústaðnum, sem er á landi, er vinnu-
stofa. Æskilegt er að styrkþeginn haldi sýningu
um páskana 2005.
Nánari upplýsingar um Ryvarden og úthlutun-
arreglur er hægt að fá hjá Sveio-bæjarfélaginu
í síma 00 53 74 80 00.
Um styrkinn geta sótt listmálarar, grafíklista-
menn og/eða teiknarar, sem eru meðlimir í
listamannasamtökum sem tengjast Norske
Billedkunstnere eða sambærilegum íslenskum
samtökum.
Umsókn, ásamt verkaskrá og ljósmyndum af
5 verkum, á að senda Sveio kommune, Post-
boks 40, 5559 Sveio, Noregi, fyrir 1. nóvem-
ber 2003. Umsóknir á að merkja: „Ryvarden-
stipendet“.
SMÁAUGLÝSINGAR
DULSPEKI
Miðill sem svarar þér í dag.
Hringdu og fáðu einkalestur og
svör við vandamálum í starfi
eða einkalífi í síma 001 352 624
1720.
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur,
Síðumúla 31,
s. 588 6060.
Miðlarnir, spámiðlarnir og hug-
læknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen, Ingibjörg Þeng-
ilsdóttir, Erla Alexanders-
dóttir, Katrín Sveinbjörns-
dóttir, Matthildur Sveins-
dóttir, tarrot-lesari og Garðar
Björgvinsson, michael-miðill,
starfa hjá félaginu og bjóða
félagsmönnum og öðrum upp á
einkatíma.
Upplýsingar um félagið, starf-
semi þess, einkatíma og tíma-
pantanir eru alla virka daga árs-
ins frá kl. 13—18. Utan þess
tíma er einnig hægt að skilja ef-
tir skilaboð á símsvara félagsins.
Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur
starfar í nánum tengslum við Sál-
arrannsóknarskólann á sama stað.
SRFR.
KENNSLA
www.nudd.is
FÉLAGSLÍF
EDDA 6003093019 III
FJÖLNIR 6003093019 I Fjhst.
Hamar 6003093019 I Fjhst.
HLÍN 6003093019 IV/V
Lækningasamkoma í kvöld
þriðjudagskvöldið 30. septemer
kl. 20.00 í Suðurhlíðarskóla,
Suðurhlíð 36, 105 Reykjavík.
Andrew Pearkes frá Englandi
predikar, kennir um heilagan
anda og biður fyrir sjúkum.
Væntum þess að heilagur andi
snerti við fólki á mjög sérstakan
hátt. Mikil lofgjörð.
Allir hjartanlega velkomnir.
Upplýsingar í síma 564 4303.
Vineyard christian
fellowship international.
ATVINNA
mbl.is