Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 39
un Kvenfélags og Ungmenna-
félags Njarðvíkur, einnig að stofn-
un Barnastúkunnar „Sumargjöf“
þar sem Karvel var gæslumaður í
15 ár.
Það væri lengi hægt að telja
upp þau félög og nefndir sem
hann starfaði í.
Það var þung sorg er Karvel
missti eiginkonu sína Önnu árið
1959 og yngsta soninn, Eggert,
1962.
Kannski þykir Karvel vænst um
störf sín með æskunni. Hann fór
að semja barnabækurnar á efri ár-
um, bækurnar um Refinn og sel-
ina þrjá. Hafa þær verið lesnar í
barnatíma útvarpsins. Á svipuðum
tíma eða í kringum 90 ára ald-
urinn var hann eftirsóttur í skóla-
heimsóknir til að fræða börnin og
segja þeim sögur frá liðinni tíð.
Fór hann bæði í skóla á Suð-
urnesjum og í Reykjavík. Það
voru hljóðir og prúðir hlustendur
sem afsönnuðu að nútímabörn
gætu ekki setið og hlustað lengur
en 45 mínútur í einu.
Árið 1963 hóf Karvel sambúð
með Þórunni Maggý Guðmunds-
dóttur og eignuðust þau saman
einn son. Afkomendur Karvels eru
nú orðnir 103.
Þrátt fyrir erilsama og við-
burðaríka ævi þá er alltaf sama
hlýja viðmótið hjá honum. Síðustu
árin hefur hann dvalið á Garð-
vangi við góða umönnun starfs-
fólks.
Ég vil árna honum heilla á þess-
um merku tímamótum með ósk
um að Guð gefi honum góða heilsu
í náinni framtíð og þakka honum
áratuga vináttu.
Áki Guðni Gränz.
Vinur minn kær, Karvel Ög-
mundsson, fyrrverandi skipstjóri
og útgerðarmaður á Bjargi í Ytri-
Njarðvík, er hundrað ára í dag.
Ekki er það ætlun mín að tíunda
æviferil hans í örstuttri afmæl-
isgrein. En ég get ekki látið hjá
líða að minnast hans með nokkr-
um fátæklegum þakkarorðum og
tjá honum lítið brot af því sem í
huga mínum bý, þegar ég lít til
liðinna samverustunda og minnist
okkar margþættu samskipta, eftir
að leiðir okkar fyrst lágu saman.
Hann var ungur að árum, þegar
ljóst var að hann var afburða sjó-
mannsefni. Þrettán ára gamall að-
eins keypti hann lítinn bát í félagi
við vin sinn og jafnaldra, Sigurð S.
Sigurjónsson. Var hann nefndur
Sigurkarfi, með vísan til nafna
þeirra félaga, Sigurður og Karvel.
Reyndist hann hin mesta happa-
fleyta og höfðu útgerðarmennirnir
ungu talsverðar tekjur og ómælda
ánægju af þessu framtaki sínu
Karvel kvæntist 20. apríl 1928
Önnu Margréti Olgeirsdóttur frá
Grundarfirði, mikilhæfri dugnað-
arkonu, sem stóð þétt við hlið eig-
inmanns síns og studdi hann með
ástúð og umhyggju á allan þann
hátt, sem í hennar valdi stóð. Þau
eignuðust sjö börn, sem öll náðu
fullorðinsaldri. Tvö þeirra eru nú
látin. Ester og Eggert, sem fórst
ungur ásamt tveimur frændum
sínum, bróðursonum Karvels, Ein-
ari og Sævari Þórarinssonum. Á
lífi eru: Olga María, Guðlaug
Svanfríður, Líneik Þórunn, Ög-
mundur og Solveig. Með seinni
konu sinni, Þórunni Maggí Guð-
mundsdóttur, eignaðist Karvel
einn son, sem var látinn heita
Eggert, í höfuðið á bróður sínum.
Karvel var afburða dugmikill
sjómaður, frábær skipstjóri og
farsæll í öllum sínum störfum.
Eftir að hann kom á Suðurnesin
margfölduðust umsvif hans, svo
hann virtist vart einhamur, hvort
sem um var að ræða störf á sjó
eða landi. Bræður hans voru nánir
samstarfsmenn hans, einkum Þór-
arinn, sem byggði með honum
Hraðfrystihús Ytri-Njarðvíkur,
sem þeir svo ráku saman ásamt
útgerðinni.
Brátt fór Karvel einnig að gefa
sig að félagsmálum á mörgum
sviðum og var jafnan í forystu-
sveit. Kom hann ótrúlega miklu í
verk þar sem hann lagði hönd á
plóginn og ekki er fjarstætt að
fullyrða, að öll góð mál hafi verið
hans mál. Hann var sístarfandi, en
samt var alltaf eins og hann hefði
nógan tíma. Hann var aldrei að
flýta sér. Alltaf gaf hann sér góð-
an tíma bæði fyrir fjölskyldu sína
og til að spjalla við vini og kunn-
ingja, sem urðu á vegi hans eða
sóttu hann heim, en þeir voru
margir.
Ég kynntist Karvel fljótlega eft-
ir að ég kom til starfa í Keflavík-
urprestakalli. Það var að nætur-
lagi síðla árs 1952 sem hann knúði
dyra hjá mér þeirra erinda að
biðja mig að koma og skíra dauð-
veika dótturdóttur sína. Ég brá
við skjótt, fór með honum heim til
dóttur hans og framkvæmdi hina
helgu athöfn. Þeirri næturstund
gleymi ég aldrei. Heitar bænir um
hjálp og styrk stigu til hæða. Og
þeim fylgdi blessun og bæn-
heyrsla. Litla stúlkan náði fullri
heilsu. Og þegar tímar liðu naut
ég þeirrar náðar og gleði að fá að
ferma hana á fögrum vordegi.
Karvel ók mér heim að athöfn lok-
inni. Á leiðinni ræddum við um
mátt og blessun bænarinnar. Þar
hafði Karvel frá margvíslegri
reynslu að segja. Hann var mikill
og einlægur trúmaður og var
sannfærður um, að í lífi og starfi
hefði bænin veitt sér ómælda
blessun.
Við Karvel urðum brátt félagar
í Rótarýklúbbi Keflavíkur. Hann
var framúrskarandi vel máli farinn
og var hrein unun að hlýða á hann
þegar flutti hann okkur erindi um
eitthvað af sínum mörgu hugð-
arefnum. Hann var fróður og fjöl-
lesinn, og flutti mál sitt á meitl-
aðri, íslenskri tungu. Ekki fór á
milli mála, að hann var stórvel
gefinn, gjörhugull og víðsýnn. Sú
staðreynd kemur skýrt í ljós í
þriggja binda sjálfsævisögu hans,
„Sjómannsævi“, sem út kom á ár-
unum 1981–1985. Sú bók er stór-
fróðleg, bráðskemmtileg og skrif-
uð á gullaldarmáli.
Þegar Karvel var 83 ára vann
hann til verðlauna í samkeppni á
vegum Námsgagnastofnunar fyrir
handrit að barnabókinni „Refir“,
sem kom út 1990. Og þegar hann
var níræður kom út barnabókin
„Þrír vinir. Ævintýri litlu selkóp-
anna“, eftir hann.
Hér verður starfsferill Karvels
Ögmundssonar ekki rakinn. Um
hann má fræðast í ævisögu hans
og ýmsum uppsláttarritum. En
fyrir störf sín og framlag allt til
góðra mála, til blessunar fyrir
byggðarlög sín og fyrir íslenska
þjóð hlaut hann margs konar við-
urkenningu hin síðari ár. Hann
var kjörinn fyrsti heiðursborgari
Njarðvíkurbæjar þegar hann var
75 ára. Árið 1968 var hann sæmd-
ur heiðursmerki Sjómannadags
Keflavíkur og 1976 hlaut hann
heiðursmerki Sjómannadags Hell-
issands. Einnig var hann sæmdur
riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu. Allar voru þessar við-
urkenningar mjög að verðleikum,
af því að það er mála sannast, að
hann stóð í flestu framar samtíð
sinni. Hann var afreksmaður í
starfi, farsæll í framkvæmdum, en
stærstur var hann í mótlætinu,
þegar sorgir og erfiðleikar sóttu
hann heim. Hann var víkingur
með gullhjarta. Einn besti og göf-
uglyndasti maður, sem ég hefi
kynnst og átt samleið með. Hið
samúðarríka hjarta hans varð þess
valdandi oftar en nokkur veit, að
hægri hönd hans vissi ei hvað sú
vinstri gjörði. Það er mér vel
kunnugt um.
Með einlæga þökk í hjarta óska
ég mínum elskulega og kæra vini,
hetjunni Karvel Ögmundssyni,
innilega til hamingju með aldaraf-
mælið og bið Guð og góða engla að
blessa hann og syngja honum hin
fegurstu sólsetursljóð.
Í dag, þriðjudaginn 30. septem-
ber, verður í tilefni dagsins opið
hús í Dvalarheimilinu Garðvangi
fyrir ættingja og vini Karvels kl.
15–18.
Björn Jónsson.
KIRKJUSTARF
SEXTÁN kyrrðardagar eru áform-
aðir í vetur í Skálholti og verða með
ýmsu sniði þannig að fólk getur val-
ið um þá eftir áhugasviði sínu.
Núna í október verða tvennir
kyrrðardagar og er skráning hafin.
Kyrrðardagar
tengdir útivist
HELGINA 10.–12. október verða
kyrrðardagar um haust sem sr.
Kristján Valur Ingólfsson stýrir.
Hann veitir leiðsögn bæði á göngu-
ferðum en nú eru fagrir haustlitir í
Skálholti sem og á stundunum inni
við. Stef þessara kyrrðardaga er:
Samhljómur hins heilaga í einkalífi
og helgihaldi. Sér Kristján Valur
var áður rektor í Skálholti en er nú
lektor við guðfræðideildina og jafn-
framt verkefnisstjóri á Biskups-
stofu.
Þessir kyrrðardagar verða
haldnir í Skálholtsbúðum sem eru
örstutt frá staðnum en henta vel
þegar áhersla kyrrðardaganna er á
útivist eins og að þessu sinni. Þar er
hlýlegur svefnskáli, þrjú smáhýsi
og Oddsstofa sem þjónar mest sem
tónlistarsalur en á kyrrðardög-
unum er þar kapella. Skálholts-
búðir eru heimili Sumartón-
leikanna í Skálholti á sumrin.
Kyrrðardagar
tengdir myndlist
HELGINA 17.–19. október verða
kyrrðardagar með öðrum svip. Þeir
verða haldnir í Skálholtsskóla og
verður áherzlan á myndlist. Stað-
arlistamenn í Skálholti þessa mán-
uðina eru hjónin Jón Reykdal og Jó-
hanna Þórðardóttir og munu þau
ásamt Benedikt Gunnarssyni, sem
var staðarlistamaður í fyrra, flytja
hugleiðingar um valin verk sín sem
verða til sýnis. Slíkir kyrrðardagar
tengdir myndlist voru haldnir í
fyrra og voru þátttakendum eft-
irminnilegir. Staðarlistamenn sýna
verk sín í húsakynnum Skálholts-
skóla í fjóra mánuði í senn. Í Skál-
holtsskóla eru 18 gistiherbergi og
er gert ráð fyrir að hver þátttak-
andi á kyrrðardögum hafi sitt eigið
herbergi, enda felst í Kyrrðar-
dögum að fara í hvarf, draga sig í
hlé frá amstri dægranna og hvílast
andlega og líkamlega. Reglubundið
helgihald fer fram í Skálholtskirkju
og boðið er upp á trúnaðarsamtöl.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðunni www.skalholt.is
/kyrrðardagar en skráning er í
Skálholtssskóla í síma 486 8870,
netfang skoli@skalholt.is
Kyrrðardagar
í Skálholti
á næstunni
Skálholt
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
milli kl. 10 og 14 í neðri safnaðarsal kirkj-
unnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12.
Að lokinni bænastund gefst þátttakend-
um kostur á léttum hádegisverði. Allir vel-
komnir. Opinn kynningarfundur á 12 spora
vinnunni – hinu andlega ferðalagi verður í
kvöld, þriðjudaginn 30. september, kl. 19
í neðri safnaðarsalnum. Allir velkomnir.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris-
ganga, fyrirbænastund. Léttur málsverður
á sanngjörnu verði að helgistund lokinni.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldriborg-
arastarf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og
spjall.
Háteigskirkja, eldri borgarar. Pútt alla
morgna ef veður leyfir frá kl. 10. Fé-
lagsvist mánudaga kl. 13, brids miðviku-
daga kl. 13. Þátttaka tilkynnist til Þórdísar
í síma 511 5405.
Laugarneskirkja. TTT-starfið kl. 16.15.
(5.–7. bekkur). Umsjón Þorkell Sigur-
björnsson, Sigurbjörn Þorkelsson og Andri
Bjarnason. Fullorðinsfræðsla Laugarnes-
kirkju kl. 19.30. (Athugið breyttan fund-
artíma!) Í kvöld fræðir sr. Bjarni Karlsson.
Gengið er inn um dyr, baka til, á aust-
urgafli kirkjunnar. Þriðjudagur með Þor-
valdi kl. 20.30. Þorvaldur Halldórsson
leiðir lofgjörðina við undirleik Gunnars
Gunnarssonar á flygilinn og Hannesar
Guðrúnarsonar sem leikur á klassískan
gítar. Gengið er inn um aðaldyr kirkju, eða
komið beint inn úr Fullorðinsfræðslunni.
Neskirkja: Fermingarfræðsla kl. 15.00.
Vetrarnámskeið. Litli kórinn–kór eldri
borgara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J.
Backman. Allir velkomnir. Alfa-námskeið
kl. 19.
Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgnar kl.
10–12. Kirkjuprakkarar kl. 16.00. Starf
fyrir 10–12 ára kl. 17.30.
Árbæjarkirkja. Kl. 10 foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf
með tíu til tólf ára börnum í safnaðarheim-
ilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf
ára börnum í Ártúnsskóla.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 19.30. Bænaefnum
má koma til sóknarprests í viðtalstímum
hans.
Digraneskirkja: Kirkjustarf aldraðra. Leik-
fimi ÍAK kl. 11.15. Léttur hádegisverður,
helgistund, sr. Magnús B. Björnsson,
samverustund og kaffi. KFUM&K fyrir 10–
12 ára börn kl. 17–18.15. Húsið opnað
kl. 16.30. Alfa-námskeið kl. 20. (Sjá nán-
ar www.digraneskirkja.is)
Fella- og Hólakirkja. Strákastarf fyrir
stráka í 3.–7. bekk kl. 16.30.
Grafarvogskirkja. Eldri borgarar. Opið
hús kl. 13.30. Helgistund, handavinna,
spil og spjall. Kaffiveitingar, alltaf eitt-
hvað gott með kaffinu. Kirkjukrakkar
með börn á aldrinum 7–9 ára kl. 17.30–
18.30. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 9.
og 10. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur prestar
kl. 9.15. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgnar í
Safnaðarheimili Lindasóknar, Uppsölum
3, kl. 10–12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10–12.
SELA yngri deild kl. 20–22.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8–9 ára í
dag kl. 15.30–16.30. Dagskrá fyrir 10–
12 ára (TTT) í dag kl. 17–18. Skemmti-
legar stundir fyrir hressa krakka. Æsku-
lýðsfélagið (Megas) heldur vikulegan fund
kl. 19.30–21 í kvöld. Umsjón með starfi
þessara hópa hafa Anna Hulda Einars-
dóttir og Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kl. 16.30–18 er
opið hús fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 20–22
er opið hús fyrir unglinga 13–15 ára.
Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13–16. Spilað
og spjallað. Nanna Guðrún mætt aftur eft-
ir frí galvösk að vanda.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl.
18.30–19.
Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl.
13.40.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15
kirkjuprakkarar, 6–8 ára krakkar í kirkj-
unni. Við höldum áfram með bænabókina
og bætum einni bæn á bænasnúruna.
Einnig verða söngur, leikir og ný biblíu-
mynd. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson og leiðtog-
arnir. Kl. 16 Litlir lærisveinar Landakirkju.
Kóræfing hjá yngri hóp 1.–4. bekkur. Þátt-
taka ókeypis. Kórstjóri Joanna Wlaszcsyk,
umsjónarmaður Sigurlína Guðjónsdóttir.
Kl. 17. Litlir lærisveinar Landakirkju. Kór-
æfing eldri hóps, 5. bekkur og eldri. Þátt-
taka ókeypis. Kór stjóri Joanna Wlaszcs-
yk, umsjónarmaður Sigurlína Guðjóns-
dóttir. Kl. 20.30 kyrrðarstund í Landa-
kirkju. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson og organisti
Guðmundur H. Guðjónsson. Góður vett-
vangur frá erli hversdagsins.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Skráning fermingarbarna kl. 15–16 í safn-
aðarheimili.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 18.30
Mannakorn fyrir 6. og 7. bekk.
Safnaðarstarf
FRÉTTIR
Sjö nýjar
námsbækur
í íslensku
ÚT eru komnar sjö nýjar kennslu-
bækur í íslensku fyrir framhalds-
skóla hjá útgáfufélaginu BláSkógum
ehf. Höfundur bókanna er Guð-
mundur Sæmundsson kennari til
margra ára. Fékk hann styrk
menntamálaráðuneytisins til verk-
efnisins en þess má geta að allt efni
bókanna er einnig aðgengilegt á
Netinu, auk kennarabóka með þeim.
Bækurnar heita: Viðhorf, ritun og
læsi, námsbók fyrir undirbúnings-
áfanga í Íslensku 193, Ritun, tjáning
og málfræði, námsbók fyrir Íslensku
103, Bókmenntir, mál og menning-
arsaga, námsbók fyrir Íslensku 203,
Læsi, ritun og tjáning, námsbók fyr-
ir Íslensku 102, Bókmenntir og mál-
fræði, námsbók fyrir Íslensku 202,
Mál og menningarsaga, námsbók
fyrir Íslensku 212, og Meistararitun,
námsbók í ritunaráfanga, skrifuð
fyrir nemendur í meistaranámi (ÍSL
242).
Landflutningar
– Samskip
og ÞÞÞ hefja
samstarf
LANDFLUTNINGAR – Samskip
og ÞÞÞ á Akranesi hafa gengið til
samstarfs um flutningaþjónustu
milli Reykjavíkur og Akraness. Jafn-
framt mun ÞÞÞ annast afgreiðslu
fyrir Landflutninga – Samskip á
Akranesi.
Farnar verða tvær ferðir daglega
úr Reykjavík, kl. 10 og 15.30 frá
mánudegi til fimmtudags og kl. 10 og
16 á föstudögum.
Afgreiðsla ÞÞÞ á Akranesi er á
Dalbraut 6 og er hún opin kl. 8–17
alla virka daga, segir í fréttatilkynn-
ingu.
NÝTT félag, SUT ehf., Slökkvi- og
Umhverfis-Tækni, hefur tekið við
þjónustu og sölu á slökkvibúnaði og
eiturefnabúnaði sem IB ehf. hefur
hingað til verið innflutnings- og
þjónustuaðili að.
Um er að ræða smíði, hönnun og
uppsetningu á slökkvibílum og inn-
anhússkerfum með ONE SEVEN-
tækni. Slökkvibúnaður þessi er
framleiddur af þýska fyrirtækinu
Schmitz?Fire og hefur SUT ehf.
umboð fyrir þetta fyrirtæki á Ís-
landi. Fyrirtækið er stofnað af fjór-
um aðilum á Selfossi og hefur verið
ráðinn einn starfsmaður til að byrja
með, segir í fréttatilkynningu.
Taka við
umboði á
slökkvibúnaði
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050