Morgunblaðið - 30.09.2003, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 43
DAGBÓK
STYTTIST DAGUR
Styttist dagur, – styttist yndi,
stirðnar hagur, kólnar lyndi,
gleðin flýgur skökk með skyndi;
skraut og fegurð eyðast,
löndin mér leiðast!
mótlætis í sjó ég syndi,
sokkinn er ég nærri.
Betur ég héðan burtu kominn væri!
Lukkan bezt þá leikur blíða
og lofar gleði skemmtan fríða,
svikul hjartað særir kvíða
og sorgum myrðir greiðast,
löndin mér leiðast!
af henni því enginn lýða
sig ævi langa stæri.
Betur ég héðan burtu kominn væri!
Sigurður Pétursson
LJÓÐABROT
ESSOSVEITIN undir
stjórn Guðmundar Sv. Her-
mannssonar varð bikar-
meistari BSÍ um helgina
eftir sigur á Guðlaugi
Sveinssyni og félögum í
sveit Félagsþjónustunnar.
Úrslitaleikurinn var 64 spil
og fór 155-138 í IMPum. Í
undanúrslitum lagði Esso-
sveitin liðsmenn Íslenskra
aðalverktaka (131-99), en
Félagsþjónustan vann
Sparisjóð Siglufjarðar og
Mýrarsýslu (118-47). Í
Essosveitinni spila: Guðm.
Sv. Hermannsson, Björn
Eysteinsson, Helgi Jó-
hannsson, Ásmundur Páls-
son og Guðm. P. Arnarson.
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 8763
♥ Á8542
♦ K7
♣Á6
Vestur Austur
♠ KDG92 ♠ 5
♥ 9 ♥ D76
♦ 53 ♦ ÁDG9842
♣G8754 ♣32
Suður
♠ Á104
♥ KG103
♦ 106
♣KD109
Fram að úrslitakeppn-
inni var lið Félagsþjónust-
unnar skipað fjórmenning-
unum Guðlaugi Sveinssyni,
Páli Þór Bergssyni, Er-
lendi Jónssyni og Sveini
Rúnari Eiríkssyni, en í úr-
slitunum bættust við stór-
skyttur tvær, Magnús E.
Magnússon og Jónas P.
Erlingsson. Magnús kom
sérstaklega frá Svíþjóð til
að keppa í úrslitunum. Þeir
Magnús og Jónas náðu vel
saman, en í spilinu að ofan
réðu þeir engu um fram-
vindu mála. Guðmundur
Hermannsson varð sagn-
hafi í fjórum hjörtum eftir
þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
Jónas Helgi Magnús Guðm.
-- -- 3 tíglar Dobl
Pass 4 tíglar * Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspilið var tígull í gegn-
um kónginn og Magnús
skipti yfir í einspilið í spaða
eftir að hafa tekið tvo tíg-
ulslagi. Guðmundur drap
með ás og tók svo tvo efstu
í trompi, en ekki kom
drottningin. En það voru
möguleikar í stöðunni.
Austur átti greinilega að-
eins þrjú svört spil og Guð-
mundur spilaði næst lauftíu
og svínaði fyrir gosann.
Það heppnaðist. Þá kom
lauf á ásinn og hjarta til
austurs. Magnús átti ekk-
ert eftir nema tígul og varð
að spila út í tvöfalda eyðu.
Guðmundur trompaði
heima og henti spaða úr
borði, og síðan tveimur
spöðum í viðbót í KD í
laufi. Tíu slagir.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Fróðleiksþorsti þinn gerir
að verkum að þú ert vel að
þér. Þú kannt einnig að
hugsa um útlitið. Þú ert því
aðlaðandi bæði vegna and-
legs og ytra atgervis. Næsta
ár gæti orðið mikilvægt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ástandið í heimsmálunum
hefur sterk áhrif á þig í dag.
Aðrir menningarheimar eiga
greiðan aðgang að þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú veltir fyrir þér hvað þú
þarft mikla peninga eða að-
stoð til að lifa með þeim
hætti, sem þú telur að hæfi.
Stundum rætast óskir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það kann að vera að mann-
eskja, sem er hjálpar þurfi,
verði kynnt fyrir þér. Ef það
gerist hefur þú tilhneigingu
til að vilja hjálpa.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Samstarfsmenn koma til þín
með vandamál í dag og það
kemur ekki á óvart vegna
þess að það er í eðli þínu að
taka fólk upp á arma þína.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú gætir fengið skapandi
hugmyndir í dag, en ættir að
leyfa þér að kunna að meta
sköpunargáfu annarra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú gætir haft hug á að veita
þér einhvern munað í dag.
Allt sem þú gerir til að lífga
upp á heimilið kemur sér
vel.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú gætir laðast að ein-
hverjum í dag og smáskot er
í lagi. Það er gott að laðast
að þeim, sem þér þykir vænt
um. Það þýðir að þú ert lif-
andi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert fús til að leggja meiri
áherslu á gæði en flestir,
sérstaklega í mat og drykk.
Ef sú er raunin í dag er rétt
að láta það eftir sér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú gætir þurft að segja vini
frá vandamálum þínum, eða
hlusta á vandamál annarra.
Hvort heldur sem er mun
verða auðvelt að finna sam-
hug.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sjötta skilningarvitið verður
fyrirferðarmikið í dag. Best
er að treysta eðlisávísuninni,
hversu órökrétt, sem tilfinn-
ing þín kann að virðast.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Líklegt er að vinkona þín
vilji tala við þig í trúnaði í
dag. Annaðhvort munt þú
leysa frá skjóðunni eða sýna
skilning.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Einhver, sem skiptir máli,
kann að leita álits þíns í dag.
Ekki hika við að láta skoðun
þína í ljós. Það gæti bæði
hjálpað og leitt til stöðu-
hækkunar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
100 ÁRA afmæli. Ídag, þriðjudaginn
30. september, er 100 ára
Karvel Ögmundsson út-
gerðarmaður, Bjargi, Ytri-
Njarðvík. Hann dvelur á
Garðvangi í Garði og fagnar
þar ættingjum og vinum kl.
15–18 í dag.
60 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 30.
september, verður sextugur
Valur Haraldsson deildar-
stjóri, Heiðvangi 10, Hellu.
Eiginkona hans er Sigrún
Bjarnadóttir. Þau eru að
heiman.
1. d4 d6 2. Rf3 g6 3. c4 Bg7
4. Rc3 e5 5. e4 exd4 6. Rxd4
Rc6 7. Be3 Rge7 8. h4 f5 9.
h5 fxe4 10. hxg6 hxg6 11.
Hxh8+ Bxh8 12. Rxe4 Bf5
13. Rxf5 gxf5 14. Dh5+ Kd7
15. 0-0-0 Dg8 16. Rc5+ Kc8
17. Re6 Kd7 18. Rf4 Re5 19.
De2 He8 20. Kb1 Rg4 21.
Bc1 Rh2 22. c5 d5 23. Db5+
Kc8 24. Bd3 c6 25. Da4 Rg4
26. Dxa7 Rxf2 27. Bd2 Be5
28. Da8+ Bb8.
Staðan kom upp á Skák-
þingi Norðurlanda sem lauk
fyrir skömmu. Curt Hansen
(2.618), annar af sigurveg-
urum mótsins, hafði hvítt
gegn Heikki Lehtinen
(2.362). 29. Ba6!
bxa6 30. Ba5! Hd8
31. Dxa6+ Kd7
32. Db7+ Ke8 33.
Bxd8 Dg5 34. He1
og svartur gafst
upp enda fátt til
varnar. Lokastaða
mótsins varð
þessi: 1.–2. Curt
Hansen (2.618) og
Evgeny Agrest
(2.605) 8 vinninga
af 11 mögulegum.
3. Hannes Hlífar
Stefánsson (2.560)
7 v. 4.–5. Helgi
Ólafsson (2.498)
og Jonny Hector (2.538) 6 v.
6.–7. Davor Palo (2.518) og
Einar Gausel (2.533) 5½ v.
8.–10. Heikki Lehtinen
(2.362), Lars Schandorff
(2.525) og Heikki Kallio
(2.471) 5 v. 11. Kjetil Lie
(2.440) 4½ v. 12. Flóvín Þór
Næs (2.330) ½ v. 3. umferð
Evrópukeppni taflfélaga fer
fram í dag. Hægt er að
nálgast upplýsingar um
mótið og lesa pistla Hellis-
manna frá skákstað á hell-
ir.is.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Mynd/Ragnar Þorsteinsson
BRÚÐKAUP.
Hinn 29. júní sl.
voru gefin saman í
Grenjaðarstað-
arkirkju af séra
Örnólfi Jóhannesi
Ólafssyni, þau
Hulda Ösp
Ragnarsdóttir og
Guðlaugur Jó-
hannesson. Með
þeim á myndinni
eru börn þeirra
Arney Ósk og Ey-
þór Blær.
Við hittumst þá á torg-
inu á morgun. Þú getur
þekkt mig á hvíta kjóln-
um, slörinu og brúðar-
vendinum …
BIKARKEPPNI Bridssambands
Íslands lauk um helgina með sigri
Esso-sveitarinnar, áður sveit Guð-
mundar Sv. Hermannssonar, sem
þannig varði titilinn sem hún vann á
síðasta ári.
Sveitin spilaði við sveit Fé-
lagsþjónustunnar í úrslitaleik á
sunnudag. Úrslitaleikurinn virtist
um tíma ætla að verða einstefna því
eftir tvær lotur af fjórum höfðu bik-
armeistararnir náð 60 stiga forskoti.
Þriðja lotan var jöfn en í þeirri síð-
ustu tókst Félagsþjónustumönnum
að ná 43 stigum til baka. Úrslitin
urðu 155-138, Esso-sveitinni í vil
sem áður hafði unnið sveit Íslenskra
aðalverktaka í undanúrslitum en
sveit Félagsþjónustunnar vann
sveit Sparisjóðs Siglufjarðar &
Mýrasýslu.
Í sigursveitinni spiluðu Ásmund-
ur Pálsson, Björn Eysteinsson, Guð-
mundur Páll Arnarson, Guðmundur
Sv. Hermannsson og Helgi Jó-
hannsson. Í sveit Félagsþjónust-
unnar spiluðu Guðlaugur Sveinsson,
Erlendur Jónsson, Jónas P.
Erlingsson, Magnús Magnússon,
Páll Þór Bergsson og Sveinn R. Ei-
ríksson.
Á mjóum þvengjum
Þeir Ásmundur og Guðmundur
Páll spiluðu öll spil helgarinnar og
reyndust andstæðingum sínum erf-
iðir. Eins og tilheyrir höfðu þeir
einnig smá heppni með sér, svo sem
í þessu spili úr undanúrslitaleiknum
við sveit ÍAV.
Norður
♠ ÁD75
♥ G102
♦ ÁK9
♣Á96
Vestur Austur
♠ G63 ♠ 10842
♥ 9 ♥ KD7643
♦ D87652 ♦ 3
♣D105 ♣82
Suður
♠ K9
♥ Á85
♦ G104
♣KG743
Við annað borðið létu þeir Sævar
Þorbjörnsson og Matthías Þorvalds-
son sér nægja að spila 3 grönd á spil
NS enda aðeins um 30 punktar milli
handanna sem yfirleitt nægir ekki í
slemmu. Við hitt borðið enduðu Ás-
mundur og Guðmundur hins vegar í
6 gröndum.
Anton Haraldsson í vestur spilaði
út tígli og Ásmundur stakk upp ás
og setti tíuna undir, og tók síðan
laufaás og spilaði laufi á gosann. En
Anton drap með drottningu og spil-
aði meiri tígli og nú var útlitið ekki
sérlega gott. Aðeins 10 slagir sjáan-
legir, hugsanlega 11 ef tígulsvíning-
in gengi en sá 12 virtist víðsfjarri.
Ásmundur lét tígulníuna í blind-
um og þegar Sigurbjörn Haraldsson
í austur henti hjarta sá Ásmundur
skyndilega örlítinn möguleika. Það
var ljóst að austur átti lengd í hálit-
unum og hugsanlega átti hann
a.m.k. 4-lit í spaða og annaðhvort
hjónin sjöttu í hjarta eða KD9.
Ásmundur tók næst tígulkóng og
síðan laufaslagina og henti tveimur
hjörtum í blindum. Og viti menn:
Sigurbjörn var þvingaður í hálitun-
um. Hann mátti ekki henda spaða af
augljósum ástæðum og henti því öll-
um hjörtunum en þá gat Ásmundur
tekið hjartaás og gætt sér á áttunni.
Eins og sést má vinna slemmuna
gegn öllum útspilum. Þótt vestur
spili út hjarta og brjóti hjartaslag
fyrir vörnina dugar það ekki til því
austur kemst ekki inn. Spili vestur
út hjarta og skipti í spaða inni á
laufadrottningu getur sagnhafi
svínað tígli, tekið tígulslagina og síð-
an laufaslagina og hent hjörtum í
borði og austur er í sömu klemm-
unni. Lesendur geta hins vegar
skemmt sér við að reikna út hve
vinningslíkurnar eru miklar.
Bikarmeistararnir í brids. Frá vinstri eru Ásmundur Pálsson, Guðmundur
Sv. Hermannsson, Guðmundur Páll Arnarson, Helgi Jóhannsson, Björn
Eysteinsson og Jón Sigurbjörnsson, forseti Bridssambands Íslands.
Bikarmeistararn-
ir vörðu titilinn
Guðm. Sv. Hermannsson
BRIDS
Bridshöllin
BIKARKEPPNI BSÍ
Bikarkeppninni í brids lauk 28. sept-
ember. Undanúrslit og úrslit voru spiluð í
húsnæði Bridssambands Íslands við
Síðumúla.
Minni
vinna!
w w w . b e s t a . i s
Nýbýlavegi 18 • 200 Kópavogi • Sími: 510 0000
Brekkustíg 39 • 260 Njarðvík • Sími: 420 0000
Miðási 7 • 700 Egilsstöðum • Sími: 470 0000
Labbakúturinn!
•Enginn burður
•Hleður sig sjálfur