Morgunblaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 45
KEFLVÍKINGAR, sem unnu glæsi-
legan sigur í 1. deildinni á nýafstað-
inni leiktíð, eru í markvarðarleit en
Ómar Jóhannsson, markvörður
liðsins og 21 árs landsliðsins, er
fluttur til Malmö í Svíþjóð og ætlar
að setjast þar að með sænskri unn-
ustu sinni.
Ómar hefur leikið með Keflvík-
ingum undanfarin þrjú ár. Hann
kom til liðsins frá Malmö þar sem
hann var á samningi en var laus
allra mála hjá félaginu í árslok
2000. Ómar hyggst reyna fyrir sér í
sænsku knattspyrnunni en hann lék
alla leiki Keflvíkinga í 1. deildinni í
sumar og þá hefur hann varið mark
U-21 árs landsliðsins í öllum fimm
leikjum þess í undankeppni EM.
„Það er vissulega eftirsjá í Ómari
en þetta er hans ákvörðun og við
því er ekkert að gera. Við erum
svona rétt farnir að líta í kringum
okkur með að finna eftirmann Óm-
ars en vonandi verðum við búnir að
því fyrir áramót,“ sagði Rúnar Arn-
arson, formaður knattspyrnudeild-
ar Keflavíkur, við Morgunblaðið.
Ómar hættur
í Keflavík
Ómar Jóhannsson
ÖRN Ævar Hjartarson úr
Golfklúbbi Suðurnesja hafnaði
í öðru sæti á Norðurlandamóti
áhugamanna í golfi sem lauk í
Svíþjóð á sunnudagskvöldið.
Hann lék lokahringinn á 73
höggum og var fjórum högg-
um frá efsta sætinu.
Norðurlandameistari í
karlaflokki var Jonas Blixt frá
Svíþjóð sem lék á 216 höggum.
Örn Ævar lék samtals á 220
höggum og Finninn Roppe
Kakko varð þriðji á 221 höggi.
Heiðar Davíð Bragason varð í
10. sæti á 228 höggum, Rúnar
Óli Einarsson í 18. sæti á 235
höggum og Sigurður Rúnar
Ólafsson í 20. sæti af 20 kepp-
endum á 260 höggum.
Örn Ævar
annar
á NM
HRAFNHILDUR Skúladóttir var
markahæst í liði Tvis/Holstebro
þegar það vann Sindal í fyrstu um-
ferð vesturhluta 1. deildar kvenna í
danska handknattleik á sunnudags-
kvöldið. Hrafnhildur skoraði 5
mörk, Kristín Guðmundsdóttir
gerði tvö mörk og Hanna G. Stef-
ánsdóttir og Inga Fríða Tryggva-
dóttir 1 mark hvor. Þá stóð Helga
Torfadóttir landsliðsmarkvörður á
milli stanganna hjá Tvis/Holstebro.
ROAR Strand, leikmaður norska
meistaraliðsins Rosenborg, braut
blað í sögu norskrar knattspyrnu í
fyrradag þegar hann varð fyrsti
norski knattspyrnumaðurinn til að
verða norskur meistari í 12. sinn.
Strand hefur unnið alla meistaratitl-
ana með Rosenborg en liðið hefur
unnið titilinn óslitið frá árinu 1990
SIR Bobby Robson, knattspyrnu-
stjóri Newcastle, neitar þeim frétt-
um í enskum fjölmiðlum að liðið sé að
reyna að fá Brasilíumanninn Rivaldo
til liðs við sig.
MARTIN O’Neill, knattspyrnu-
stjóri Celtic, hefur viðurkennt að
hafa hitt forráðamenn Tottenham í
sumar, en á þeim fundi hefði ekki
verið rætt um hvort hann vildi taka
við knattspyrnustjórn félagsins.
O’Neill mun vera efstur á óskalista
Tottenham sem eftirmaður Glenn
Holddle, sem leystur var frá störfum
fyrir rúmri viku. O’Neill segir fund-
inn eingöngu hafa snúist um áhuga
Tottenham á tveimur leikmönnum
Celtic, Henrik Larsson og Craig
Beattie. Þeir hafi hins vegar ekki
verið til sölu.
VICENTE Del Bosque, fyrrum
þjálfari Real Madrid, er nú sterklega
orðaður við þjálfarastöðuna hjá rúss-
neska meistaraliðinu CSKA Moskva.
Liðinu mistókst að komast í Meist-
aradeildina þegar það tapaði óvænt
fyrir Vardar frá Makedóníu og í
kjölfarið hefur verið ákveðið að leysa
þjálfarann, Valeri Gazzaev, frá
störfum í lok tímabilsins sem verður
í desember.
FULHAM hefur verið gert af dóm-
stóli að greiða Jena Tigana, fyrrver-
andi knattspyrnustjóra 455.000
pund, tæpar 60 millj. kr., vegna
ógreiddra launa en honum var sagt
upp störfum tæpum tveimur mánuð-
um áður en samningi hans við félagið
rann út í vor.
RIVALDO var leystur undan
samningi við AC Milan sl. föstudag.
Nú hafa tvær grímur runnið á vara-
forseta AC Milan, Adriano Galliani,
sem segist vilja halda í Brasilíu-
manninn. Nú stendur til að umboðs-
maður Rivaldos hitti forsvarsmenn
AC Milan þar sem skoðað verður
hvort grundvöllur sé fyrir að leik-
maður gangi á ný í raðir Evrópu-
meistaranna.
FÓLK
stórveldunum í norðri undir uggum.
AS Roma er búið að eiga við svaka-
lega timburmenn að stríða frá því að
þeir unnu meistaratitilinn fyrir
þremur árum. Fabio Capello var tal-
inn hafa búið til liðs sem gæti orðið
stórveldi í evrópskri knattspyrnu
næstu árin en svo hefur ekki farið
hingað til. Í fyrra var árangurinn
hræðilegur og það ásamt slæmum
fjárhag félagsins boðaði ekki gott og
staða Capello var ótrygg. En hann
hékk í brúnni og nú virðist skútan
tilbúin í langsiglingu. Kaupin á
Christian Chivu frá Ajax eru talin
kaup sumarsins í ítalska boltanum
og hann hefur slegið í gegn með frá-
bærum mörkum af löngu færi. Þeim
tókst líka að halda í Emerson þrátt
fyrir gylliboð Chelsea, en hann var
einn besti leikmaðurinn í deildinni í
fyrra. Að auki virðist hinn ungi bras-
ilíski vængmaður með ítalska nafnið,
Alessandro Mancini, vera að springa
út og annar spennandi ungur leik-
maður er ítalski miðjumaðurinn
Daniele De Rossi. Capello er sókn-
djarfur þjálfari, en það er ekki hægt
að spila með þrjá menn frammi
endalaust nema þeir skori og Mont-
ella, Delvecchio, Carew og Cassano
verða að fara að setja hann reglulega
ef ekki á að endurtaka meðal-
mennsku undangenginar leiktíðar.
Léttara er yfir Laziomönnum nú
en í langa tíð. Roberto Mancini þykir
einn efnilegasti þjálfarinn í boltan-
um og mikið afrek hjá honum að
koma liðinu í Meistaradeildina eftir
allar þær fjárhagslegu hremmingar
sem það hefur gengið í gegnum.
Demetrio Albertini hefur gengið í
endurnýjun lífdaga á miðjunni eftir
að hafa lent í undarlegri krísu við
það að verða þrítugur! Albertini er
búinn að vera svo lengi í boltanum að
það er skrýtið að hugsa til þess að
hann sé einungis 32 ára gamall. Laz-
io gæti gert góða hluti í vetur.
Reuters
Hollenski leikmaðurinn Andy van der Meyde, Nígeríumaðurinn Obafemi Martins og Argentínu-
maðurinn Julio Cruz fagna marki gegn Arsenal á Highbury í leik í Meistaradeild Evrópu.
NÚ nýlega ritaði Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmað-
ur og Framari, bréf hér í Morgunblaðið og bryddaði
upp á því málefni hvort ekki ætti að sameina íþrótta-
félög hér í borginni. Einkanlega sneri þetta að því að
fá meistaraflokka félaganna til þess að sameinast og
þannig yrði aðeins eitt lið sem keppti fyrir hvert hverfi
í borginni. Þjálfun yngri flokka ætti að halda áfram í
nærumhverfi barnanna undir merkjum eldri félaga
eða sameinuðu nýju félagi.
Daginn eftir tók formaður íþróttabandalags
Reykjavíkur, Reynir Ragnarsson, undir þessar hug-
myndir hér í blaðinu. Íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur hefur á undanförnum árum reynt með
ýmsum hætti að koma að samstarfi/sameiningu
íþróttafélaga í borginn en uppskeran hefur verið held-
ur rýr. Samstarfi hefur reyndar verið komið á meðal
nokkura félaga í formi samstarfs á milli flokka og
deilda í einstökum íþróttagreinum en lengra hefur
ekki tekist að ganga í samstarfi félaganna.
Hvað kallar á slíkar breytingar?
Í borgarsamfélaginu eru sífeldar breytingar. Breyt-
ingar í byggðarsamsetningu, þétting eldri hverfa og
uppbygging nýrra hverfa, aldurssamsetning í hverf-
um og breyting á umferðarmannvirkjum verður til
þess að íþróttafélög sem áður áttu sín „hverfi“ hafa
ekki lengur sömu stöðu og áður. Á sama svæðinu eru
jafnvel mörg félög sem bjóða börnum og unglingum að
ganga til liðs við sig. Ný íþróttamannvirki rúmast ekki
á þeim svæðum sem afmörkuð hafa verið til afnota fyr-
ir félögin. Fjármálaleg staða margra íþróttafélaga er
með þeim hætti í dag að það hlýtur að verða gerð krafa
um endurskipulagningu hagræðingu samstarf og sam-
vinnu frá félagsmönnum þessara félaga. Og síðast en
ekki síst er rekstur meistaraflokka sá þáttur starfsemi
félagana sem er hvað fjárfrekastur.
Hvað er það sem hindrar sameiningar?
Ljóst er að ef til slíkrar sameiningar á að koma
verður það að gerast með þeim hætti að allir aðilar
komi jafnir til leiks. Ekki er hægt að ætla einu stóru
íþróttafélagi að yfirtaka annað minna. Nafnamál er
eitt af mörgum eldheitum tilfinningamálum sem hljóta
að koma upp og finna þyrfti skynsamlegar lausnir á.
Hugmynd Jóns Steinars um nafn á nýju sameinuð fé-
lagi Fram, Vals, og Þróttar FVÞ var ágæt byrjun á
slíkri umræðu.
ÍTR er tilbúið í slíkar viðræður
Íþrótta- og tómstundaráð hefur á liðnum mánuðum
unnið að stefnumótu í málefnum íþrótta- og æskulýðs-
mála. Gera má ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki á árinu
2004 og ekki er fjarri lagi að ætla að þar komi fram til-
lögur um sameiningar og flutning einhverra íþrótta-
félaga. Þvingaðar sameiningar verða hins vegar aldrei
og því verður allt frumkvæði til sameininga og/eða
aukinns samstafs að koma frá íþróttafélögunum sjálf-
um. Íþrótta- og tómstundaráð er og á ávallt að vera
reiðubúið til þátttöku í slíkri umræðu um sameiningu,
flutning eldri íþróttafélaga í ný borgarhverfi og aðrar
þær breytingar sem nauðsynlegar eru vegna þróunar
borgarsamfélagsins.
Anna Kristinsdóttir.
Er sameining
íþróttafélaga tálsýn
eða raunveruleiki?
Höfundur er borgarfulltrúi og formaður
íþrótta- og tómstundaráðs.