Morgunblaðið - 23.10.2003, Blaðsíða 26
LISTIR
26 FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Alltaf á laugardögum
Smáauglýsing
á aðeins 500 kr.*
Áskrifendum Morgunblaðsins býðst smáauglýsing fyrir aðeins 500 kr.*
Almennt verð er 1.689 kr.
Pantanafrestur er til kl. 12.00 á föstudögum.
*5 línur; tilboðið gildir til 31. desember 2003.
Hafðu samband! Auglýsingadeild Morgunblaðsins,
sími 569 1111 eða augl@mbl.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
O
R
21
22
0
0
9/
20
03
EINN þekktasti píanókonsert Mozarts, sá nr. 21, verður
leikin á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld
kl. 19.30. Einn mesti Mozart-túlkandi okkar daga, Phil-
ippe Entremont, leikur einleik og stjórnar píanókonsert-
inum á fyrri hluta tónleikanna en 5. sinfóníu Prókofíevs
eftir hlé.
Um píanókonserta Mozarts segir í efnisskrá: „...með
píanókonsertunum setti Mozart sér hið torvelda tak-
mark að ná til tveggja áheyrendahópa í einu: annars veg-
ar atvinnutónlistarfólks og vel kunnandi áhugamanna
(sem oft tilheyrðu aðlinum) og hins vegar hirðarinnar,
sem var oft illa að sér í tónlist og hafði litla þolinmæði
gagnvart nýstárlegum uppátækjum. Að þóknast báðum
var hægara sagt en gert ...
En úr þessum einfalda efniviði spinnur Mozart fegurð
í tónum sem seint verður jöfnuð.“
5. sinfónía Prókofíevs var síðasta verkið sem hann
stjórnaði sjálfur. Verkið sló í gegn strax við frumflutn-
inginn og segir í efnisskrá að það komi ekki á óvart.
Þrátt fyrir ýmsa sigra urðu örlög tónskáldsins ansi dap-
urleg.
„Árið 1948 var hann fordæmdur af Andrei Zhdanov og
öðrum forystukólfum menningarmála í Sovétríkjunum
fyrir alþýðufjandsamlegan „formalisma“ í verkum sín-
um. Ólíkt öðrum fórnarlömbum árásanna (t.d. Shostako-
vitsj) lifði Prokofíev það ekki að sjá nafn sitt hreinsað.
Verk hans voru sjaldan leikin eftir þetta, og þegar hann
lést 5. mars 1953 var hann bugaður maður. Ógæfan virt-
ist auk þess elta hann í dauða ekki síður en í lífi. Klukku-
stund eftir fráfall Prokofíevs lést Jósef Stalín, og andlát
hins mikla leiðtoga kommúnismans skyggði svo að segja
algjörlega á andlát eins mesta tónsnillings 20. ald-
arinnar. Þegar aprílhefti Sovietskaya Muzyka kom út
var minningargrein um Stalín á forsíðu, en klausa um
andlát Prokofíevs á síðu 117.“
Franski píanóleikarinn og stjórnandinn Philippe
Entremont kemur nú hingað til lands þriðja árið í röð til
þess að leika og stjórna. Á tónleikum síðasta árs lék
hann píanókonsert nr. 4 eftir Beethoven. Hann hefur afl-
að sér mikilla vinsælda á tónleikaferðum sínum um víða
veröld í ríflega hálfa öld með „heillandi framkomu, eld-
móði og djúpu tónlistarinnsæi,“ segir í efnisskrá.
Spinnur fegurð í tónum
Philippe Entremont stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni í
kvöld og leikur jafnframt einleik á píanó.
Morgunblaðið/Jim Smart
Lesið úr nýj-
um bókum á
Súfistanum
LJÁÐU þeim eyra nefnist upplestr-
ardagskrá þar sem kynntar eru út-
gáfubækur forlaganna sem mynda
Eddu útgáfu, en þau eru Mál og
menning, Vaka-Helgafell, Forlagið,
Iðunn og Almenna bókafélagið.
Kynningarnar fara oftast fram á
Súfistanum, bókakaffi í Bókabúð
Máls og menningar, Laugavegi og
verða fyrst í stað á fimmtudögum en
í nóvember bætast þriðjudagarnir
við. Einnig verða bókakynningar í
Iðnó við Tjörnina í nóvember og des-
ember.
Dagskráin hefur göngu sína í
kvöld kl. 20 með kynningu á nýrri ís-
lenskri teiknimyndasögu sem unnin
er úr síðasta hluta Njálssögu og heit-
ir Blóðregn. Höfundar bókarinnar,
þau Ingólfur Örn Björgvinsson og
Embla Ýr Bárudóttir, fjalla um til-
urð bókarinnar og vandann við það
að setja Íslendingasögu í svo knappt
form. Félagar úr víkingafélaginu
Rimmugýgi koma og sýna vopn sín
og klæði og bresta jafnvel í bardaga
eða söng. Einnig verður lesið upp úr
bókinni og teikningarnar sýndar á
tjaldi.
AUKASÝNING á leikritinu Ólafíu
eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur
verður á mánudagskvöld kl. 20.
Fyrri hluti sýningarinnar er sýnd-
ur í Fríkirkjunni en í hléi munu
leikarar og sýningargestir ganga
yfir í Iðnó og horfa á seinni helm-
ing leikritsins um Ólafíu Jóhanns-
dóttur.
Ólafía þykir ein merkasta kona
Íslands. Hún bjó í Noregi í 17 ár og
vann afrek sín á meðal hinna fá-
tækustu; götufólks, vændiskvenna,
róna og sýfilissjúkra. Norðmenn
hafa kallað hana, Móður Theresu
norðursins. Guðrún Ásmundsdóttir
hefur í mörg ár rannsakað ævi og
störf Ólafíu.
Ólafíu leikur Edda Björgvins-
dóttir og Þröstur Leó Gunnarsson
leikur Einar Benediktsson. Önnur
hlutverk leika Eyvindur Erlends-
son, Guðmundur Óskar Guðmunds-
son, Guðrún Ásmundsdóttir, Júlíus
Brjánsson, Katla Margrét Þor-
geirsdóttir, Kormákur Örn Ax-
elsson, Margrét Ákadóttir, Ragn-
heiður Harpa Leifsdóttir, Rakel
Mjöll Leifsdóttir og Snæbjörn Áki
Friðriksson.
Miðasala er í Iðnó. Uppselt er á
sýningarnar á þriðjudag og mið-
vikudag.
Aukasýning á Ólafíu
Edda Björgvinsdóttir í hlutverki
Ólafíu Jóhannsdóttur.
Íslendingar
á Norræn-
um dögum
ÞESSA vikuna standa yfir Norrænir
dagar í Stokkhólmi og koma margir
íslenskir listamenn við sögu. Verk
Guðbergs Bergssonar rithöfundar
verða kynnt. Heimir Pálsson lektor
kynnir rithöfundinn og verk hans,
Ylva Hellerud þýðandi les brot úr
verkum hans á sænsku og Helga
Brekkan sýnir kvikmynd eftir Guð-
berg. Hún vinnur nú að gerð heim-
ildakvikmyndar um skáldið.
Guðbergur
mun sækja mót-
töku með fulltrú-
um sænskra út-
gefenda og
fjölmiðla. Þá
munu leikararnir
Borgar Garðars-
son og María
Árnadóttir lýsa
lífinu í Reykjavík í
upphafi síðustu
aldar með leik-
lestri úr Brekku-
kotsannál sem
heitir á sænsku
„Tidens gång i
Backstugan“.
Báðir þessir
bókmenntavið-
burðir fara fram í
húsakynnum upp-
lýsingaskrifstofu
Norrænu ráð-
herranefndarinnar í Stokkhólmi,
„Norden i Fokus“. Auk þeirra verður
efnt til sýningar á tískufatnaði sem
norrænir tískuhönnuðir hafa hannað.
Þar sýnir m.a. Hjördís Ágústsdóttir
verk sín en hún er þekkt í Svíþjóð fyr-
ir hönnun sína. Þá verður frumsýnd
kvikmyndin Nói albinói í kvikmynda-
húsinu Zita Folkets Bio í Stokkhólmi.
Svavar Gestsson sendiherra flytur
erindi sem heitir Móðurmál og sjálfs-
mynd.
Hjördís
Ágústsdóttir
Guðbergur
Bergsson
Ibsen og
Kjartan
Ragnarsson
ANNAÐ hvert fimmtudagskvöld kl.
21 í Norræna húsinu kynna íslensk-
ir leikstjórar uppáhaldsleikskáldið
sitt á Norður-
löndum. Nú er
komið að Kjart-
ani Ragnarssyni.
Mun hann fjalla
um Henrik Ibsen
og verk hans Jón
Gabríel Bork-
mann. Leikararn-
ir Arnar Jónsson
og Anna Kristín
Arngrímsdóttir
munu leiklesa úr verkinu en það
verður sett upp í Þjóðleikhúsinu á
þessu leikári. Jón Gabríel Bork-
mann er eitt af þekktari leikritum
Ibsens og mun þetta vera í fyrsta
sinn sem það er sett upp í íslensku
leikhúsi.
Heimasíða Norræna hússins er á
slóðinni www.nordice.is.
Kjartan
Ragnarsson
Sýningum lýkur
Hafnarborg
Tveimur sýningum lýkur í Hafnar-
borg á mánudag. Í Sverrissal og Apó-
teki er sýning á leirlist Sigríðar Erlu
Guðmundsdóttur. Í Aðalsal er sýning
á verkum Péturs Halldórssonar.
Hafnarborg er opin kl. 11–17 alla
daga nema þriðjudaga.
Listasetrið Kirkjuhvoli,
Akranesi
Sýningu Þorsteins Helgasonar lýk-
ur á sunnudag. Þar sýnir hann 44 ol-
íumálverk. Listasetrið er opið dag-
lega frá kl. 15–18.
Gallerí Hlemmur
Sýning sænska listamannsins Jon
Brunberg lýkur á sunnudag.
Opið fimmtudaga til sunnudaga kl.
14–18. Aðgangur ókeypis.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦