Morgunblaðið - 24.10.2003, Síða 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Barði Jóhannsson og Bang Gang eru eitt og njóta sér-
stakrar hylli Frakka. Árni Matthíasson ræddi við þenn-
an hógværa tónlistarmann úr Hlíðunum.
Hlutverk Evrópuráðsins
Evrópuráðið hefur átt þátt í þróun lýðræðis í Austur-
Evrópu en við stækkun Evrópusambandsins blasir við
tilvistarkreppa. Davíð Logi Sigurðsson var í Strasborg.
Í krossferð fyrir lax
Orri Vigfússon hefur verið óþreytandi í baráttu sinni
fyrir verndun villtra laxastofna. Helgi Mar Árnason
ræddi við hann um stöðu laxins.
Barði og Bang Gang
á sunnudaginn
GAMALT RÁN UPPLÝST
Skeljungsránið svokallaða frá því í
febrúar 1995 telst upplýst. Lög-
reglan hefur fengið fram játningar
að hluta til í yfirheyrslum yfir
nokkrum mönnum að undanförnu og
eru tveir menn grunaðir um rán á
5,2 milljónum króna við Íslands-
banka í Lækjargötu í Reykjavík, en
þeir flúðu á stolnum bíl, sem þriðji
maðurinn ók.
ASÍ spáir 3,7% verðbólgu
Að mati ASÍ skapast svigrúm fyr-
ir kaupmáttaraukningu á næstu ár-
um en vaxandi verðbólguþrýstingur
muni fylgja miklum framkvæmdum
og Seðlabankinn því grípa til vaxta-
hækkana.
Skv. grunnspá ASÍ verður verð-
bólga 3,7% á næsta ári og 5,7% 2005.
Nafnvextir verða 5,9% á næsta ári
og 9,2% árið 2005. Aukist samneysla
um 4% á hvoru ári munu verðbólga
og vextir aukast enn meira.
Hyggst snarlækka lyfjaverð
Danskt fyrirtæki stefnir að því að
rjúfa þann einkarétt sem lyfjaversl-
anir hafa haft á sölu lyfseðilsskyldra
lyfja. Hyggst fyrirtækið lækka lyfja-
verðið um allt að 30% með því að
leita ávallt að ódýrasta lyfinu í Evr-
ópu og selja það síðan neytandanum.
Rumsfeld fær bakþanka
Donald Rumsfeld, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna, læt-
ur í ljósi efasemdir um árangurinn af
stríðinu gegn hryðjuverkastarfsemi
í minnisblaði sem hann sendi helstu
samstarfsmönnum sínum nýlega.
Síðasta flug Concorde
27 ára farþegaflugi Concorde-
þotnanna lýkur í dag þegar ein
þeirra flýgur í síðasta sinn yfir Atl-
antshafið frá New York til London á
tvöföldum hraða hljóðsins.
Y f i r l i t
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir Dagskrá vikunnar. Blaðinu er
dreift á landsbyggðinni.
Tímarit um mat og vín fylgir Morgun-
blaðinu í dag til áskrifenda.
m
TÍMARIT UM MAT & VÍN 102003 4.TBL
blómarósir bregða á leik
vala matt velur desert
súkkulaðisæla
sæta parís
mjallhvít & eplin 7
kampavín
sígildir desertar
prinsessuuppskriftir
Í dag
Sigmund 8 Minningar 41/45
Viðskipti 12 Staksteinar 50
Erlent 14/17 Bréf 48
Höfuðborgin 22 Kirkjustarf 49
Akureyri 24 Dagbók 58/59
Suðurnes 25 Íþróttir 52/55
Landið 26 Leikhús 56
Listir 28/30 Fólk 58/61
Umræðan 31 Bíó 58/61
Forystugrein 32 Ljósvakamiðlar 62
Viðhorf 36 Veður 63
* * *
KONUR eru hvattar til að sækja um
launahækkun í dag, en þennan dag
fyrir 28 árum lögðu konur um allt
land niður vinnu til að krefjast jafn-
réttis. Femínistafélagið stendur fyr-
ir femínistaviku, sem hefst í dag, en
tilgangur hennar er að vekja athygli
á femínískum sjónarmiðum og stöðu
karla og kvenna í samfélaginu.
Að sögn Kristínar Ástgeirsdóttur,
ráðskonu í atvinnu- og efnahags-
málahópi Femínistafélagsins, hefur
því oft verið haldið fram að helsta
ástæða launamunar kynjanna sé að
konur fari hreinlega ekki fram á
hærri laun. Nú sé því tækifæri til að
afsanna það með því að allar konur
gangi á fund vinnuveitenda sinna í
dag og biðji um launahækkun.
„Við vitum auðvitað að málið er
miklu flóknara en þetta og á sér
djúpar og gamlar rætur í mati á
störfum kvenna og karla.“
Fjölbreytt dagskrá
Í dag verður morgunverðarfundur
á Grand Hóteli þar sem fjallað verð-
ur um launamun kynjanna. Krist-
jana Stella Blöndal mun halda erindi
og að því loknu verða pallborðsum-
ræður með þátttöku fulltrúa stétt-
arfélaga og atvinnulífsins.
Kristín segir að dagskráin í fem-
ínistavikunni verði fjölbreytt. „Við
lýsum mörgum hliðum á umræðunni.
Það eru listir, menning, launamál,
jafnrétti innan stofnana eins og
borgarinnar, kirkjunnar, heilbrigðis-
kerfisins og svo framvegis. Svo verð-
ur karlakvöld þar sem fjallað er um
fyrirmyndir og fleira,“ segir Kristín
og bætir við að yfirskrift vikunnar,
Byggjum brýr, megi túlka á marg-
víslegan hátt og vísi m.a. til þess að
byggja brýr milli kynslóða og kynja.
„Vikunni verður svo slitið laugar-
daginn 1. nóvember með málþingi
um útópíu eða draumsýn. Þá ræðum
við framtíðarsýnina og hvað það er
sem við viljum. Síðan verður rokkað
um kvöldið,“ segir Kristín. „Í
tengslum við vikuna er svo sýning í
Borgarbókasafninu um kvennabar-
áttu síðustu áratuga.“
Dagskrá Femínistavikunnar má
nálgast á síðunni http://my.cal-
endars.net/feministinn.
Femínistavikan hefst í dag með umræðum um launamál
Konur hvattar til að
biðja um launahækkun
HALLDÓR Ásgrímsson utanrík-
isráðherra skoðaði nýja heilsu-
gæslustöð í Hindane í Mósambík í
gær en heilsugæslan var byggð
með stuðningi Rauða kross Ís-
lands og Þróunarsamvinnustofn-
unar Íslands. Rauði krossinn hef-
ur að undanförnu staðið að
uppbyggingu heilsugæslunnar á
þessu svæði. Með tilkomu heilsu-
gæslustöðvarinnar og þjálfunar
um sjötíu sjálfboðaliða er vonast
til að minnka verulega ung-
barnadauða í héraðinu. Sjálf-
boðaliðum er einnig ætlað að upp-
lýsa fólk um smitleiðir alnæmis.
Sjálfboðaliðar við heilsugæsluna
og yfirsetukonur tóku á móti
Halldóri og eiginkonu hans, Sig-
urjónu Sigurðardóttur. Fremst á
myndinni er Hjördís Guðbjörns-
dóttir, sendifulltrúi Rauða kross
Íslands í Mósambík. Á myndinni
sést einnig í Björn Inga Hrafns-
son, aðstoðarmann utanrík-
isráðherra og stjórnarformann
Þróunarsamvinnustofnunar Ís-
lands.
Heimsækir heilsu-
gæslu í Mósambík
MYNDBANDI, sem hefur að
geyma fyrirlestur Stefáns
Karls Stefánssonar leikara
gegn einelti, verður dreift til
foreldra 10 ára barna í næstu
viku. Eimskip kostar fram-
leiðslu myndbandsins.
Í tilkynningu frá Eimskip
segir að Stefán Karl nálgist við-
fangsefnið út frá öðrum for-
sendum en algengt sé þar sem
hann miðli sinni eigin upplifun
og reynslu af einelti og uppeld-
ismálum almennt.
Myndbandinu sé ekki ætlað
að vera fræðileg úttekt á við-
fangsefninu og birti á engan
hátt skoðanir eða viðhorf Eim-
skips til þessara mála.
Myndband
til foreldra
10 ára barna
ER ÞAÐ óverjandi afstaða hjá
Dröfn Ösp Snorradóttur að láta sér
fátt um finnast um Bítlana, Radio-
head ogg Sigur Rós, eins og hún
gerir í Fólkinu í dag?
Davíð Ólafsson bassasöngvari
heldur því þar líka fram að hann
hafi lesið í Newsweek að óp-
erusöngur sé annað streitumesta
starf í heimi á eftir akstri í Formúlu
1 kappakstrinum.
Og forsvarsmenn áhang-
endakúbba helstu ensku knatt-
spyrnufélaganna hér á landi eru
látnir spreyta sig á því að halda
knettinum sem lengst á lofti. Hver
skyldi vinna?
Áhættu-
söngur og
fótbolti
Davíð Ólafsson óperusöngvari.