Morgunblaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 22 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Alltaf á laugardögum Smáauglýsing á aðeins 500 kr.* Áskrifendum Morgunblaðsins býðst smáauglýsing fyrir aðeins 500 kr.* Almennt verð er 1.689 kr. Pantanafrestur er til kl. 12.00 á föstudögum. *5 línur; tilboðið gildir til 31. desember 2003. Hafðu samband! Auglýsingadeild Morgunblaðsins, sími 569 1111 eða augl@mbl.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M O R 21 22 0 0 9/ 20 03 Granda–Vogum | Vetnisvagninn er við fyrstu sýn ekki ólíkur öðrum strætisvögnum höf- uðborgarsvæðisins, langur, gulur og nokkuð þunglamalegur á að líta. Upp úr ofanverðum afturenda hans rýkur ekkert nema vatnsgufa, ólyktin er engin og hávaðinn í lágmarki. Þegar inn er komið blasir við fríður hópur ungs fólks á framhaldsskólaaldri sem notar vagninn í miklum mæli. Bílstjórinn, Sverrir Úlfsson, heilsar kumpánlega og svarar fúslega öllum forvitnisspurningum um vagninn. Hann segir vetnisvagninn á endanum ekki svo ólíkan þeim gömlu. Maður hafi stýrið og pedalana og hnappana, allt sé í grundvallaratriðum á sínum stað. „Hann er samt nokkuð mýkri í keyrslu, hann rífur ekki eins mikið í þegar maður tekur af stað, hann líður meira áfram. Krafturinn er samt alveg til staðar, hann er bara öðruvísi en í hinum vögnunum.“ Að verða vitni að framtíðinni Tvær ungar stúlkur sitja og skeggræða vetnisvagninn og leyndardóma hans við tvo drengi á svipuðu reki. Þau eru spennt fyrir vagninum og velta fyrir sér afleiðingum árekstra. Bílstjórinn fullvissar mig um að vetnisgeymarnir séu svo vel varðir að líkurnar á sprengingu séu hverfandi. „Það fara örugg- lega nokkrar götur í kring í rúst,“ segir annar strákurinn og hlær. Hin hlæja með, vagninn leggst ekki illa í þau. „Þetta er frábær vagn, hann er líka svo þægilegur,“ segir önnur stúlk- an. Gamall maður stingur því að að þetta sé framtíðin, það sé gaman að fá að verða vitni að framtíðinni. Við lítum út um gluggann, í bílnum við hlið- ina á vagninum situr kona og horfir með for- vitnisglampa í augum á vagninn. Við erum sammála um að henni finnist hann flottur. Valdimar Þórarinsson er nemi í Iðnskól- anum í Reykjavík og tekur strætó nokkrum sinnum á dag. Hann segist hafa nokkuð mikla reynslu af strætókerfinu og hlær. „Mér finnst hann mun hljóðlátari en hinir bílarnir, miklu þægilegri. Annað sem er mjög gott er að þegar hann stoppar hristist hann ekki allur eins og hinir strætóarnir, því rafmagnsvélin snýst bara þegar hún þarf að snúast. Það kemur allt- af svona leiðindatitringur í dísilbílunum.“ Blaðamaður samsinnir þessu enda hefur hann bitra reynslu af bílveiki þegar strætó titrar. Einungis orkumiðill Feðgarnir Haraldur Matthíasson og Orri Matthías Haraldsson nota strætó mikið, enda ekki á bíl. Þetta er samt bara í annað skiptið sem þeir prófa vetnisstrætó. Orri segir þetta mjög fínt þó að hann eigi eftir að finna það bet- ur. Haraldur samsinnir syni sínum. Þó finnist honum vagninn ekki alveg eins mjúkur og hann gæti verið. „En það kemur samt ekki að sök, sumir vagnarnir eru hvort eð er svo stirð- ir að þetta er alls ekkert verra.“ Kona á besta aldri spyr okkur út í hvernig vetni virki og miklar umræður spinnast um gildi þess í fram- tíðinni og hvernig hægt sé að framleiða það án þess að brenna jarðeldsneyti, enda sé það ekki nýr orkugjafi, heldur einungis orkumiðill. Hér á landi er vetnið framleitt með rafmagni sem fengið er úr vatnsafls- og jarðvarmavirkj- unum, en víða erlendis er enn þörf á nýtingu jarðefnaeldsneytis eins og kola, gass og olíu til að framleiða það. Það er dálítið skemmtilegt þegar bláókunnugt fólk fer að skeggræða mál- in í strætó. Yfir því hvílir viss stórborg- arsjarmi. Að minnsta kosti verða samræður sjaldnast svo kurteislegar milli fólksbíla. Vetnisvagnar komnir á fulla ferð Þeir sem ferðast með strætó hafa nú loks fengið að kynnast vetnisvögnunum, en þeir keyra nú leið 2. Svavar Knútur Kristinsson rúntaði með tvistinum og spjallaði við farþega. Morgunblaðið/Svavar Unga fólkið var hvergi bangið þrátt fyrir hálfkæringslegar heimsendaspár. Valdimar Þórarinsson nýtir sér þjónustu Strætó oft á dag, enda kemur hann víða við. Feðgarnir Haraldur og Orri Matthías fara allra sinna ferða í strætó. Sverrir Úlfsson bílstjóri er sérmenntaður í akstri og meðferð vetnisvagnsins. svavar@mbl.is Barnavernd | Félagsmálasvið Mosfellsbæjar og forvarnadeild lög- reglunnar hafa gefið út bæklinginn Börn og Netið. Í bæklingnum eru upplýsingar fyrir foreldra um Netið og spjallrásir, rætt er um hvers vegna börnum finnst netheimurinn spennandi, hvaða hættur geti leynst á Netinu og hvað foreldrar geti gert til að koma í veg fyrir að þessi tækni sé notuð til að skaða börnin þeirra. Í bæklingnum má finna öryggisreglur sem foreldrar eru hvattir til að fram- fylgja og stuðla eiga að öruggari net- notkun barna. Ráðist var í útgáfu bæklingsins vegna ábendinga um að börn í Mos- fellsbæ yrðu fyrir hótunum í gegn- um Netið/spjallrásir. Félagsráðgjafi félagsmálasviðs Mosfellsbæjar og hverfislögreglumaðurinn í Mos- fellsbæ unnu að gerð bæklingsins og kostaði félagsmálanefnd Mosfells- bæjar útgáfu hans. Bæklingnum var dreift til foreldra barna í 3., 4. og 5. bekk, um 420 bæklingum alls. For- eldrafélög skólanna höfðu umsjón með dreifingu bæklingsins. Garðabæ | Viðbygging Flataskóla var vígð á 45 ára afmæli skólans í vikunni. Nýja viðbyggingin er um tvö þúsund fermetrar að stærð og með henni stækkar hús- næði skólans úr þrjú þúsund í fimm þúsund fermetra. Í nýju viðbyggingunni er m.a. nýtt bókasafn sem er gjörbylting í starfi skólans bæði hvað varðar rými og kennslu. Í viðbygging- unni fæst líka gjörbreytt aðstaða til tónlistarkennslu, sem hefur alltaf verið í hávegum höfð í Flataskóla. Flataskóli hefur nú einnig í fyrsta skipti fengið raun- greinastofu og aðstaða til tölvu- kennslu er stórbætt. Viðbygging vígð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.