Morgunblaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 36
UMRÆÐAN 36 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Þ egar sindrar á sæ og tunglið ber við nak- inn sjóndeildarhring- inn leiðir maðurinn hugann að tvíeðli sínu. Tvíeðli því, sem ráðið hefur gjörðum hans öldum saman. Tvíeðli rómantíkur og losta. Án lostans er rómantíkin orðið eitt, ofnotað innantómt hugtak sem hríslast niður vitundina eins og áleitin kona sem maður hélt að væri vinur en reynist svo vera ágirndin í dulargervi. Dul- argervið ásækir manninn; hann togast milli tvíeðlisins, innbyrðis, milli rómantíkur og losta. Á svip- stundu hverfur maðurinn í óm- inni tilfinninga og hræringa. Hann hristist eins og hrærivél á lóðaríi, í ofsa- fenginni leit að samastað hjartans. Samastaður hjartans er óræður. Hann er mitt á milli angistar og um- hyggju. Hann eltir ekki ólar við tísku, nýjustu strauma í mannlíf- inu, eða viðtekin viðhorf. Án mannlífs er fegurð samlífs- ins hjóm eitt. Hljómur, sem út- varpað er um víðerni alheimsins, án hlustanda. Án aðildar vitund- arinnar, sem speglast í áráttu al- mættisins, þess almættis sem getur allt. Almættið getur allt. Aflsmunur rómantíkur varpar nýju ljósi á lostann, því tvíeðlið sundrar samhyggju atgervisins undir ljóma samheldninnar. And- artak er sem eilífð, undir fossi tilfinninganna, sem líða fram undirlendið í átt til hins ókyrra hafsjávar sem við köllum tilfinn- ingalíf manneskjunnar. Roði sólar varpar skugga á litla barnið í okkur öllum. Við hverfum til æskunnar, um leið og tvíeðli rómantíkur og losta hætt- ir að berjast um yfirráðin og þá brestur stíflan. Við grátum þurr- um tárum, því það er ekki við hæfi að sýna tvíeðli sitt í sam- félagi nútímans, sem byggist á kaldranalegum ásetningi og fyr- irlitningu ágirndarinnar. Í miðjum ljóma lostans birtist ork- an, sem er sammannleg og knýr okkur áfram í viðleitni til hug- ljómunar. Andinn svífur á milli okkar, því hann er orka. Hann er sálin í okkur öllum. Hver segir að hugs- anir séu innilokaðar í skelinni sem við köllum hauskúpur? Ork- an flæðir í gegnum þessar þunnu brynjur, sem veita heilanum vörn gegn hnjaski en eru að öðru leyti tilgangslausar. Ef ekki væri fyrir þetta hlutverk höfuðkúp- unnar þyrftum við hana ekki. Í fullkomnum heimi væri hausinn svo mjúkur viðkomu, án höf- uðkúpunnar. Hauskúpan hefur verið mesti dragbítur á framfarir og þróun mannsins. Vissulega eru margir það tilfinningalega sterkir, að hugsanir þeirra brjótast í gegn- um varnarmúr kúpunnar, en allt of mörg okkar eru innilokuð með hugsanir okkar í þessum litla kringlótta fangaklefa sem við köllum höfuðrými. Hugrenning- arnar reyna í sífellu að brjóta sér leið í gegnum klefann, með þeim afleiðingum að við erum úr- vinda úr andlegri þreytu. Þreyt- an sligar manninn og stíflar sköpun og framfarir, sem sál- arleg og líkamleg velferð okkar byggist á. Hver hefur heyrt um áru til- finningasnauðs manns? Án ár- unnar er hamingjan fallvölt. Úfið hraun hamingjunnar er ekki slétt. Það er úfið. Leiðin um þetta hraun er vörðuð ákvörð- unum í líki misbeittra steina; sumra deigra, annarra hár- beittra. Ef manninum tekst að fóta sig framhjá þessum gildrum tilverunnar bíður hans ómæld hamingja við grafarbakkann. Þannig kemur tvíeðli róm- antíkur og losta fram í mann- inum. Rómantíkin og lostinn eru síamstvíburar sem hver og einn verður að gera upp við sig hvort beri að aðskilja eður ei. Séu þeir aðskildir í frumbernsku bíður þeirra farsælt líf í manninum, en aðeins ef skurðaðgerðin tekst. Slíkum aðgerðum fylgir ávallt mikil áhætta, því ef skurðarhníf- urinn rennur aðeins til er öllu lokið. Þá stendur maðurinn eftir, tilfinningalaus og kaldranalegur, án rómantíkur og losta. Ef aðgerðin ber hins vegar til- ætlaðan árangur má líkja því við eldgos í tveimur samhliða fjöll- um. Úr öðru eldfjallinu streymir sjóðandi heitt hraun rómantíkur. Úr hinu vellur lostinn, ennþá heitari og þrungnari líkamlegri spennu, sem byggst hefur upp og safnast saman í ámótlegum lík- ama þess holdgervings sálar- innar, sem við erum. Þvílíkur unaður, þvílík stund. Þvílík lausn. Á augnabliki sem þessu verður maðurinn mið- punktur alheimsins og þá hætta öll náttúruvísindi að skipta máli. Jörðin snýst ekki í kringum sól- ina. Sólin fer ekki í hringi um vetrarbrautina. Nei, alheimurinn snýst um manninn. Hann er. Ekkert annað skiptir máli. Ímyndunin er endurómur for- tíðar. Allt sem gerist í hug- arheimi okkar hefur einhvern tímann gerst. Annars bryti það sér ekki leið í undirmeðvitund okkar. Sálin er sarpur fyrir minningar alheimsins og almætt- ið safnar í þennan sarp eins og það ætti lífið að leysa. Þarna koma ákvarðanir, frjáls vilji eða einstaklingseðli ekki við sögu. Maðurinn er eins og sjáandi í þessu tilliti; miðill fyrir dulúð tímans. Í undirmeðvitund hans birtist raunveruleikinn eins og hann ómar um alheiminn, eirð- arlaus í leit að samastað. Þennan samastað á tvíeðlið einnig; rómantíkin og lostinn. Í þessum haug eru allar okkar þrár, allar okkar kenndir, allar okkar hugsanir, að finna. Hjart- að er stundum sagt vera helm- ingur mannsins. Hinn helming- urinn er sálin. Samastaður tilfinninga. Sían fyrir vondar hugrenningar og illar gjörðir. Ef allir væru svo lánsamir að ljá al- heiminum eyru sín, þótt ekki væri nema í augnablik eilífð- arinnar. Þá væri jafnvægi í hug- arheimi mannverunnar. Þá væri áran svo slétt og rauðleit, eins og flauel. Þá væri tilganginum náð. Tvíeðli mannsins Roði sólar varpar skugga á litla barnið í okkur öllum. Við hverfum til æsk- unnar, um leið og tvíeðli rómantíkur og losta hættir að berjast um yfirráðin og þá brestur stíflan. VIÐHORF eftir Ívar Pál Jónsson ivarpall@mbl.is Á UNDANFÖRNUM árum hef- ur stuðningur borgaryfirvalda við tónlistarskólana farið minnkandi og hefur það leitt nú til þess að náms- skilyrðin hafa versnað. Í haust dróReykjavík- urborg úr fjárhags- legum stuðningi sínum til flestra tónlistarskóla borg- arinnar og í kjölfarið var skólaárið stytt, skólagjöldin hækkuð og lág- markstímafjöldi kennara á viku í fullu starfi var aukinn. Það er í raun hægt að segja að tónlistar- skólarnir geti ekki fylgt aðalnáms- skrá tónlistarskólanna við núver- andi aðstæður. Menn spyrja sig hvað valdi því að tónlistarnám er ekki metið jafnt og annað nám í landi sem státar sig af ríkri tón- listarhefð og framúrskarandi lista- mönnum. Það virðist hins vegar vera stefna stjórnvalda að fjár- svelta tónlistarskólana og mætti túlka þessu lækkun sem aft- urköllun á launahækkun tónlistar- kennara sem samþykkt var á liðnu ári. Tónlistarnám er í mörgum til- vikum strangt nám sem miðar að því að þeir nemendur sem ljúki því útskrifist sem atvinnuhljóðfæra- leikarar. Í því felst að nemendur sæki tíma í aukafögum tengdum tónlistinni, samspili og einkatímum hjá kennara auk þess sem þeir þurfa að æfa sig í nokkrar klukku- stundir á dag. Það liggur í augum uppi að tónlistarnemendur taka nám sitt ekki síður alvarlega en nemendur í öðrum greinum og er því óskiljanlegt hvers vegna þeim er mismunað eins og raun ber vitni. Svo virðist sem tónlistarnám sé álitið vera eins konar tóm- stundagaman þeirra sem það stunda. Þó er námsferlið í grunn- inn eins og hefðbundið nám, því er skipt í grunnskólastig, framhalds- stig og háskólastig. Vegna aðgerða borgarstjórnar greiða tónlistar- nemendur sífellt hærri náms- kostnað og í staðinn er nám þeirra skert, en stytta varð skólaárið um einn mánuð. Í Nýja tónlistarskól- anum þar sem ég stunda nám var starfsemin skorin niður um 30% og því hefur nánast öllu samspili, kórastarfi og hljómsveitarstarfi verið sleppt. Hvernig er hægt að ætlast til að skólar sem útskrifa nemendur á framhalds- og há- skólastigi skeri niður starfsemi sína um tæplega þriðjung? Væru þetta skólar sem kenndu bóklegar greinar kæmi slíkt aldrei til greina. Einnig voru kennurum í aukafögum þröngar skorður settar hvað varðar tilhögun á sinni kennslu og leiðir það af sér að þeir geta ekki boðið nemendum upp á það nám sem þeir þarfnast. Þessir þættir eru ekki síður mikilvægir í tónlistarnámi heldur en einka- kennsla og er það réttmæt krafa hvers nemanda að fá skilyrðum tónlistarnáms síns fullnægt. Þó að aðgerðir Reykjavík- urborgar hafi komið illa niður á nemendum og aðstandendum þeirra voru þær ekki síður slæmar fyrir tónlistarkennara. Nú þurfa þeir að vinna lengur í hverri viku til að viðhalda þeim lágu launum sem þeim var boðin. Í flestum til- vikum yrðu þeir að vinna fram á kvöld vegna þess hve seint kennsla hefst á daginn. Tónlistarkennarar eru með verst launuðu stéttum landsins miðað við þá miklu menntun sem þeir hafa. Margir tónlistarmenn ljúka próf- um frá listaháskólum erlendis, þar sem námið er strangt og vistin dýr. Raunverulega greiða þeir margfalt hærri námskostnað en nemendur í bóklegum greinum t.a.m. í Háskóla Íslands. Þegar út á atvinnumarkaðinn er komið reynist hins vegar mörgum erfitt að lifa af laununum vegna þess hve lág þau eru. Vinnutíminn er langur og launin ekki í samræmi við álag- ið sem fylgir starfinu. Tónlistar- kennarar sinna því mikilvæga starfi að mennta komandi kyn- slóðir og án þeirra yrði engin tón- listaruppbygging á Íslandi. Ef af því yrði verður að lokum skortur á tónlistarmönnum og enginn til að sinna störfum þeirra. Þó að slík hugmynd gæti virst vera fáránleg er hún alls ekki óraunsæ. Tón- mennta- og hljóðfærakenn- aradeildir Tónlistarskólans í Reykjavík voru lagðar niður með tilkomu Listháskóla Íslands en engin ný deild var stofnuð þar og kemur nú að því að síðustu kenn- ararnir eru útskrifaðir í bili. Því er fyrirsjáanlegur skortur á fag- menntuðum tónlistarkennurum. Þá er illa búið að allri aðstöðu til tón- listarflutnings- og kennslu í höf- uðborginni og er það að mínu mati skammarlegt fyrir Reykjavík sem á að heita Menningarborg. Að Sin- fóníuhljómsveit Íslands skuli ennþá flytja tónleika sína í kvik- myndahúsi lýsir hversu mikils tón- list er metin hér á landi. Hvergi annars staðar í heiminum þekkist slíkt vanmat á störfum tónlistar- manna hjá jafnvelstæðri þjóð. Ljóst er að þörf er á verulegum breytingum ef nemendur og kenn- arar eiga að viðhalda því glæsta tónlistarstarfi sem hefur verið á liðinni öld. Þetta óviðunandi ástand hefur varað allt of lengi og skorað er á borgaryfirvöld að bæta það og sinna málefnum tónlistarskólanna mun meira en hingað til hefur ver- ið gert. Tónlistarkreppa í menning- arborginni Reykjavík Eftir Hrafnhildi Linnet Runólfsdóttur Höfundur stundar nám við Menntaskólann í Reykjavík og Nýja tónlistarskólann. VARÐANDI umræðu um aðskilnað þjóðkirkjunnar frá ríkinu og trúfrelsi á Íslandi langar mig til að leggja orð í belg, þar sem viðkomandi mál snerta starf mitt sem prestur innflytjenda. Þetta málefni snertir bæði trúmál, þjóðmenningarmál, stjórnmál og rétt- indamál. Það er því vel skiljanlegt að fólk sjái málið frá mismunandi sjón- arhóli og skoðanir séu skiptar. Mér sýn- ist að það séu a.m.k. þrjú mikilvæg at- riði í málinu. Þau eru: 1) trúarlegt gildi þess fyrir kirkjufólk að vera í þjóðkirkjunni, 2) trúfrelsi og 3) fjár- og skattamál, en ég mun ekki fjalla um síðasta flokkinn. Trúarlegt gildi þjóðkirkjunnar Ef við lítum fyrst á trúarlegt gildi þjóðkirkjunnar þá varðar það að sjálfsögðu aðallega fólk innan þjóðkirkj- unnar. Mér finnst nokkurs misskilnings gæta frá upp- hafi umræðunnar varðandi þetta atriði. Ég varð krist- inn í Japan og var vígður til prests þar. Ég ólst upp sem kristinn utan þjóðkirkjulegs menningarsvæðis. Því get ég fullyrt að hugtakið „þjóðkirkjan“ er alls ekki trúar- leg hugmynd. Það hefur ekki trúarlegt gildi hvort kirkjan er þjóðkirkja eða ekki. Í kristni er kirkjan ann- aðhvort sönn kirkja Jesú Krists eða ekki. „Þjóðkirkjan“ er frekar stjórnsýslu- og menningarleg hugmynd í ís- lensku þjóðfélagi. Þetta er atriði sem við þjóð- kirkjumenn þurfum að átta okkur á. Hér á ég þó ekki við að menningarlegt gildi þjóðkirkjunnar sé lítils virði. Trúfrelsi á Íslandi Ég er prestur á fullum launum innan þjóðkirkjunnar en grunnstefna starfs míns er að þjóna öllum án tillits til þess hvort sá sem leitar til mín sé kristinn eða ekki. Þetta er sama starfsstefna og hjá sjúkrahúsprestum. Aðalstarf mitt er ráðgjafaþjónusta og sálgæsla fyrir innflytjendur, en meira en helmingur þess fólks sem kemur til mín er ekki kristið. Ég hitti marga múslíma, búddista eða fólk sem ekki er trúrækið. Tilgangur þjónustu minnar er ekki að innræta skjólstæðingum mínum kristni, heldur að veita þeim aðstoð með virð- ingu fyrir lífsskoðun hvers og eins þeirra. Þar á ég einnig við að þeir geti rækt eigin trú. Í starfi mínu er trúfrelsi eða réttur til að iðka trú sína (þ.á m. að trúa engu) áþreifanlegt mál, ekki aðeins hugmyndafræði. Mig langar til að vitna í nokkur dæmi um raunveru- leika trúfrelsis. Fyrir nokkrum árum veitti ég aðstoð fjölskyldu sem missti ungt barn af slysförum. Fjöl- skyldan var búddistar og langaði að halda jarðarför á búddista vísu. Ég leitaði að búddistamunki og bað hann um að sinna athöfninni. Þá kom í ljós að munkurinn skildi ekki íslensku og hafði heldur enga þekkingu á því hvernig bæri að framkvæma jarðarför í samræmi við íslensk lög. Því tók ég að mér hlutverk einkaritara hans, ákvað tímasetningar, pantaði leigubíl fyrir munkinn, útskýrði nauðsynleg lagaleg og praktísk at- riði fyrir fjölskyldunni og fleira. Söfnuðurinn þar sem fjölskyldan bjó gerði líka mikið til að styðja hana. Annað dæmi er jarðarför fyrir útlenska konu sem lést skyndilega. Barn hennar var eftir, aleitt í sorg og einangrun. Barnið bað mig um að sinna útförinni en ekki á kristinn hátt, þar sem hin látna var trúleysingi. Ég gerði það, þar sem ég taldi að með því gerði ég rétt í augum Guðs líka. Þessi dæmi eru áþreifanleg vitneskja þess hvernig trúfrelsi rætist í raun. Trúfrelsi er ekki aðeins hug- myndafræði, það þarf að vera virkt í verki. Og að mínu mati er kirkjan enn best í stakk búin til að sinna þessu verki í raun, a.m.k. þangað til umhverfið fyrir trúfrelsi verður þróaðra. Hins vegar viðurkennum við kirkjumenn að það geti komið til árekstra milli trúariðkunar fólks utan kirkj- unnar og kristilegrar siðvenju, t.d. í skólum eða á spít- ölum. Þess vegna hélt kærleiksþjónustusvið Bisk- upsstofu fjögur málþing sl. ár um mismunandi trúarbrögð og siði á Íslandi og hyggst halda því áfram. Ef mál koma upp þar sem árekstrar verða milli krist- innar trúar sem meirihluta og trúariðkunar minni- hlutahópa verður að leggja í vinnu til að bæta stöðuna. En þessir árekstrar leysast ekki með því að gera þjóð- kirkjuna bara eitt af trúfélögum, þar sem hún verður áfram langstærst. Það gæti þvert á móti verið verra, því að kirkjan bæri þá enga sérábyrgð á að hafa frum- kvæði til að bæta stöðuna. Það væri ekki jákvætt fyrir trúfrelsi á Íslandi. Lokaorð Skoðun mín er sú að það sé ekki trúarlegt atriði hvort kirkjan sé þjóðkirkja eða ekki. Sem þjóðkirkja á hún samt meiri möguleika á að styðja við trúfrelsi á Ís- landi. Ef of hratt er gengið í að framfylgja aðskilnaði kirkjunnar frá ríkinu getur það komið í veg fyrir fram- gang trúfrelsis. Að sjálfsögðu er það mikilvægt að halda áfram á málinu með tilliti til aukins trúfrelsis. Hins vegar er ég alveg á móti viðhorfi fólks sem talar um aðskilnaðarmál eingöngu út frá sjónarhóli fjár- og skattamála án þekkingar á raunveruleika trúfrelsis og heldur fram tálsýn sem þeirri að ef kirkjan verði að- skilin frá ríkinu fylgi trúfrelsi sjálfkrafa. Aðskilnaðarmál kirkjunnar og trúfrelsi Eftir Toshiki Toma Höfundur er prestur innflytjenda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.