Morgunblaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ GERA má ráð fyrir því að verðbólga verði 3,7% á næsta ári og 5,7% á árinu 2005, nafnvextir fari úr 5,9% á næsta ári og hækki í 9,2% á árinu 2005, skv. spálíkani hagdeildar ASÍ sem kynnt var á ársfundi sambands- ins í gær. Þessi spá er þó með mörg- um fyrirvörum vegna óvissu um framvindu efnahagsmála næstu árin en í spánni er gengið út frá svipuðum forsendum og Seðlabanki og fjár- málaráðuneytið gerðu í sínum spám fyrr á árinu. Er m.a. gert ráð fyrir byggingu Fjarðaráls og Kárahnjúka- virkjunar í þessu spálíkani en ekki að ráðist verði í stækkun Norðuráls á árunum sem um ræðir. Ólafur Darri Andrason, hagfræð- ingur ASÍ, kynnti spá hagdeildarinn- ar um þróun helstu hagstærða á næstu tveimur árum en hún er að mestu byggð á frumgerð spálíkans sem hagdeildin er að vinna að í sam- vinnu við Hagfræðistofnun HÍ. Hag- deildin hefur sett fram nokkrar mis- munandi spár miðað við ólíkar forsendur sem settar eru fram sem mismunandi sviðsmyndir um líklega þróun efnahagsmála á næstu tveim- ur árum. Spáin fyrir árin 2004 og 2005 skv. grunndæmi sem Ólafur Darri setti fram gerir einnig ráð fyrir að hag- vöxtur verði 2,2% á næsta ári og 3,7% 2005. Atvinnuleysi yrði skv. þessu 3,4% á næsta ári og 2,6% árið 2005. Hærri vextir og verðbólga ef samneyslan vex um 4% á ári Ólafur Darri lagði einnig fram ým- is dæmi um frávik frá þessari spá miðað við aðrar forsendur. Ef t.d. er gert ráð fyrir að samneyslan vaxi að magni til um 4% hvort árið um sig, sem er sami vöxtur og á undanförnu ári, í stað 1% vaxtar 2004 og 2% árið 2005 sem gert er ráð fyrir í þjóð- hagsspá og fjárlagafrumvarpi, breyt- ist spáin umtalsvert. Verðbólga verð- ur þá til muna meiri á tímabilinu eða 3,6% á næsta ári og 5,9% árið 2005 og nafnvextir 6,2% á næsta ári en 9,5% seinna árið. Ólafur Darri segir að í þessu dæmi sé greinilegt að aukin opinber útgjöld muni leiða til auk- innar spennu í hagkerfinu og því muni Seðlabankinn þurfa að grípa til mótvægisaðgera og hækka vexti enn frekar. Lagði hann áherslu á að hag- deildin gengi ekki út frá því að verð- bólga færi upp fyrir efri mörk verð- mólgumarkmiðs Seðlabankans, því gera yrði ráð fyrir að Seðlabankinn gripi til aðgerða ef efnahagsþróunin verður í þessa veru. Verði einnig ráðist í stækkun Norðuráls á næstu tveimur árum samhliða aukinni samneyslu má gera ráð fyrir skv. dæmi hagdeildar ASÍ að hagvöxtur verði mun meiri eða 4,2% á næsta ári og 6,2% árið 2005, verðbólga verði 3,5% 2004 og 5,6% árið 2005. Vaxtastigið hækkar hins vegar enn meira og má gera ráð fyrir 6,4% nafnvöxtum á næsta ári en 10,2% vöxtum á árinu 2005. Atvinnu- leysi verður hins vegar minna en í öðrum dæmum sem sett eru upp í spálíkani ASÍ eða 3,5% á næsta ári og 2,9% árið 2005. Kynntar efnahagsráðstafanir duga ekki til á móti þenslunni Í greinargerð hagdeildarinnar sem lögð var fram á ársfundinum segir að hversu mikið muni reyna á peningamálastefnu Seðlabankans ráðist af stefnu ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálunum. Kynntar efna- hagsráðstafanir dugi ekki til að spenna á móti þensluáhrifum vegna Kárahnjúkavirkjunar. „Þróun samneyslu síðustu ára gef- ur til kynna að hún muni aukast meira en fram kemur í nýframlögðu fjárlagafrumvarpi. […] mun aukin eftirspurn hins opinbera á innan- landsmarkaði leiða til meiri þenslu í hagkerfinu. Afleiðingin er aukin verðbólga og hærri vextir. Þetta mun flytja aukna ábyrgð á herðar peningamálastefnu og þar með Seðlabankann. Seðla- bankinn mun þurfa að hækka vexti til að verðbólgumarkmiðið haldi. Hann mun því sporna gegn þensl- unni með því að hækka vexti og það mun leiða til enn meiri styrkingar á krónunni. Meiri styrking krónunnar og hækkun vaxta mun aftur leiða til enn meiri ruðningsáhrifa og það veldur meira atvinnuleysi en ella hefði orðið. Mikið mun velta á því hvernig tekst að samhæfa stjórn ríkisfjár- mála og peningamála,“ segir í grein- argerð ASÍ um horfur í efnahags- málum árin 2004 og 2005, sem rædd er á ársfundi ASÍ í tengslum við um- ræður um undirbúning launþega- hreyfingarinnar í komandi kjara- samningum, sem samningar flestra félaga og sambanda innan ASÍ renna út um eða fljótlega eftir næstu ára- mót. Greinargerð hagdeildar Alþýðusambands Íslands um efnahagsþróun á árunum 2004 og 2005 Spá meiri verðbólgu og hærri vöxtum UNDIRBÚNINGUR fyrir kom- andi kjarasamninga og áherslur launþegahreyfingarinnar í atvinnu- og byggðamálum einkennir umræð- ur á ársfundi Alþýðusambands Ís- lands sem hófst í gær. Í drögum að uppleggi í kjara- og efnahagsmálum sem lögð voru fyrir ársfundinn segir að skoða þurfi kosti og galla þess að landssam- bönd ASÍ geri sín í milli samstarfs- samning í tengslum við komandi kjaraviðræður um að fela ASÍ til- tekin verkefni sem snúa að sam- skiptum við stjórnvöld og sam- eignileg verkefni við gerð kjarasamninga. Lagt til að atvinnuleysisbætur verði tengdar við fyrri tekjur Sett er fram forgangsröðun vel- ferðartillagna sem ASÍ mun leggja áherslu á, þ.á m. að dregið verði úr lyfjakostnaði almennings með því að leggja til að tekið verði upp það fyrirkomulag að enginn greiði meira en sem nemur ákveðnu há- marki á ári fyrir lyfseðilsskyld lyf. Slíkt fyrirkomulag mætti t.d. út- færa með lyfjakorti að danskri fyr- irmynd. „ASÍ leggur áherslu á að hafin verði skoðun á kostum þess að tengja atvinnuleysisbætur við fyrri tekjur einstaklings og þá með hvaða hætti slíkt gæti gerst,“ segir m.a. í drögunum. Verkalýðshreyf- ingin mun einnig setja í forgang að framlög verði aukin til félagslegs íbúðarhúsnæðis skv. drögunum. Þá er lögð áhersla á að bæta stöðu barnafólks. Eru brýnustu aðgerðir m.a. sagðar þær að barnabætur verði hækkaðar, dregið verði úr tekjuskerðingum og þær greiddar með börnum að 18 ára aldri. Réttur foreldra til launa meðan þau sinna veikum börnum verði þróaður áfram og réttur foreldra langveikra barna verði bættur þannig að þeim verði tryggð 80% af fyrri launum. Í drögunum er lagt til að hafnar verði formlegar viðræður milli aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda um skýrari verkaskiptingu milli al- mannatrygginga og lífeyrissjóða vegna lífeyris og örorkubóta. „Mikilvægt er að auka getu al- mennu lífeyrissjóðanna til greiðslu eftirlauna, með því að jafna núver- andi áhættutryggingu betur milli sjóðanna innbyrðis með frekari þátttöku almannatrygginga í þeim tryggingum. Afkomuvanda eldri borgara sem hafa lítinn rétt í lífeyrissjóðum eða hafa ekki myndað þann rétt vegna heimilisstarfa, örorku eða veikinda, verði mætt með hækkun á tekju- tryggðum greiðslum frá almanna- tryggingum. Sá mismunur, sem er á milli réttinda lífeyrissjóða sem veita rétt eftir fastréttindum og sjóðssöfnun verði leiðréttur í áföngum,“ segir þar. Forseti gagnrýnir skerðingu atvinnuleysisbóta Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, sagðist í setningarræðu sinni eiga von á því að fjárlagafrumvarpið kæmi til umræðu í tengslum við kjaramálin. Sagðist Grétar ekki geta látið hjá líða að minnast á þau áform að skerða atvinnuleysisbæt- urnar. „Að mínu viti er það með hreinum ólíkindum að menn skuli láta sér detta þetta í hug,“ sagði Grétar. „Hér er ríkisstjórnin einnig að velta kostnaði yfir á sveitar- félögin, því það segir sig sjálft að þetta þýðir aukin útgjöld hjá fé- lagsþjónustu sveitarfélaganna,“ sagði hann. Ráðherra boðar umbætur á atvinnuleysistryggingakerfinu Árni Magnússon félagsmálaráð- herra flutti ávarp við setningu árs- þings ASÍ í gærmorgun og fjallaði m.a. um málefni Atvinnuleysis- tryggingassjóðs. „Ljóst er að at- vinnuleysisbætur hafa þróast með öðrum hætti en t.d. bætur al- mannatrygginga,“ sagði Árni. Sagðist ráðherra hafa fullan hug á að ná fram umbótum á atvinnuleys- istryggingakerfinu og sagðist ætla að skoða kosti varðandi fyrirkomu- lag atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerðir. ,,Þar koma sérstaklega til athugunar þættir eins og stjórnsýsla og bótafjárhæð- ir. Markmiðið er að sjálfsögðu það að auka ennfrekar skilvirkni og sveigjanleika þessara kerfa,“ sagði hann. Árni sagðist vera þess meðvit- aður að breytingar yrðu ekki gerð- ar á núverandi fyrirkomulagi nema um þær ríki samstaða og sátt. ,,Ég legg því áherslu á að takast megi að finna grundvöll fyrir samstarfi stjórnvalda og samtaka aðila vinnu- markaðarins sem leiði til breytinga sem hljóti samþykki Alþingis,“ sagði Árni. Ræða aðkomu heildarsamtak- anna að mótun launastefnu Töluverðar umræður urðu um efnahags- og kjaramál á ársfund- inum í gær en þeim verður haldið áfram í dag þegar afgreiða á tillögu fundarins um þau mál. Sigurður Bessason, formaður Eflingar, var framsögumaður í umfjöllun um kjaramálin og fór yfir reynsluna af síðustu samningum. Fram kom í máli hans að flest markmið síðustu samninga hafa náðst, kaupmáttur hefur aukist á samningstímanum, kaupmáttur lægstu launa hefur aukist umtalsvert og böndum var komið á verðbólguna. Hins vegar gagnrýndi hann að ríkið hefði met- ið launasvigrúmið meira þegar samið var við starfsmenn opinberu félaganna en á almenna markaðin- um. Þá sagði Sigurður að lægstu laun væru enn allt of lág eða 93 þúsund kr. á mánuði. Einnig kom fram í máli hans að vinnutími meðal verkafólks jókst um 3,3% á samningstímanum. Sig- urður sagði æskilegt að ná víðtækri sátt milli félaga og landssambanda ASÍ um markmið tryggingar- ákvæða í næstu samningum. Ræddi hann einnig um samstarf félaga og sambanda í næstu samningum og aðkomu heildarsamtakanna að því. Sigurður spurði einnig fundarfull- trúa hvort ekki væri rétt að láta umræðuna þroskast úti í landssam- böndunum áður en ákveðið verður hvort launþegahreyfingin mótar sameiginlega launastefnu fyrir næstu samninga. Fleiri ræðumenn tóku undir það í gær. Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðar- sambandsins, sagði skynsamlegt að láta þessi mál þróast út í lands- samböndunum t.d. fram að áramót- um áður en farið yrði út í mótun sameiginlegrar launastefnu þegar sest verður að samningaborðinu eftir áramótin. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, sagði ljóst að efnahagsaðstæð- urnar sem hreyfingin stæði frammi fyrir væru snúnar, þrátt fyrir spár um góðæri á næstu árum. „Ég tel að við eigum að reyna að vinna saman,“ sagði hann, „og reyna allt til þess að ná fram sameiginlegri launastefnu, sameiginlegum trygg- ingaákvæðum,“ sagði hann. Á ársfundinum fer einnig fram umræða um atvinnu- og byggðamál og er stefnt að afgreiðslu ályktana um þau mál í dag að lokinni síðari umræðu um tillögu um þann mála- flokk. Þá fer m.a. fram kosning sjö fulltrúa í miðstjórn og fimm vara- manna á síðari degi ársfundar Al- þýðusambandsins í dag. INGIBJÖRG R. Guðmundsdóttir, for- maður Landsambands íslenskra versl- unarmanna, var kjörin varaforseti Al- þýðusambands Íslands til næstu tveggja ára á ársfundi sambandsins í gær. Mjög naumt var á munum er kos- ið var á milli hennar og Kristjáns Gunnarssonar, formanns Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og ná- grennis. Ingibjörg hlaut 50,23% at- kvæða en Kristján 49,76%. Alls kusu 243 ársfundarfulltrúar en þeir fara með atkvæði félagsmanna í ASÍ og skiptust atkvæðin þannig að Ingibjörg hlaut stuðning 32.740 félagsmanna en Kristján 32.438. Halldór Björnsson gaf ekki kost á sér áfram sem varaforseti ASÍ og komu þá fram framboð Ingibjargar og Kristjáns og fór kosning fram í hádeg- inu í gær að loknum framboðsræðum frambjóðendanna. Ingibjörg lagði m.a. áherslu á jafnréttissjónarmið og að bæði kynin væru í forystu Alþýðu- sambandsins. Sagði hún kosninguna ekki vera á milli fylkinga versl- unarfólks og Starfsgreinasambandsins og því síður snerist hún um pólitík. Kristján lagði áherslu á langa reynslu sína af verkalýðsmálum í framboðs- ræðu sinni. Þegar úrslit lágu fyrir kom Kristján í pontu og sagðist mundu una úrslitunum möglunarlaust. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir kjörin varaforseti ASÍ Ingibjörg R. Guðmundsdóttir fagnar úrslitum kosninganna og þakkar stuðningsmönnum sínum á ársfundinum. Miklar umræður um undirbúning kjarasamninga og efnahagsþróun næstu ára á ársfundi ASÍ Áhersla verð- ur lögð á um- bætur í vel- ferðarmálum Morgunblaðið/KristinnNálægt 250 fulltrúar sitja tveggja daga ársfund ASÍ, sem haldinn er á Hótel Nordica í Reykjavík. Á myndinni mám.a. sjá Magnús L. Sveinsson, fyrrverandi formann VR, og fleiri fulltrúa verslunarmanna á fundinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.