Morgunblaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 11 HÆGT er að skera niður ríkisút- gjöld um tæpa 63 milljarða án þess að hreyfa við útgjöldum til heil- brigðis- og menntamála. Þetta er mat Heimdallar, félags ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, sem telja að hægt sé að skera niður um einn milljarð fyrir hvern þingmann sem situr á Alþingi. Heimdellingar kynntu í gær árlegar tillögur fé- lagsins um niðurskurð í fjárlaga- frumvarpi ríkisstjórnarinnar. Magnús Stefánsson, formaður fjár- laganefndar Alþingis, tók við tillög- unum og gullfiski í búri úr höndum Atla Rafns Björnssonar, nýkjörnum formanni Heimdallar. Gullfiskurinn, segja Heimdellingar, að sé tákn- rænn fyrir gegndarlausa eyðslu, því hann borði stanslaust sé matur í búrinu. Niðurskurðartillögur ungra sjálf- stæðismanna hljóðar upp á 23% af ríkisútgjöldum. Þeir vilja sjá út- gjöld vegna Ríkisútvarpsins, Byggðastofnunar, Útflutningsráðs Íslands, sendiráðs Íslands í Ottawa og Sinfóníuhljómsveitarinnar felld út úr frumvarpinu, þar sem ein- staklingar geti sjálfir séð um þau mál og eigi að geta ráðið hvaða menningarstarfsemi þeir styrkja. Einnig vilja þeir að 7 milljarða greiðslum vegna sauðfjár-, mjólk- ur-, og grænmetisframleiðslu verði hætt. Þeir benda á útgjaldaþenslu ráðuneyta, sem að meðaltali sé rúm 10% á raunverðlagi og allt að 28,6% í umhverfisráðuneytinu, á sama tíma og verðbólga sé aðeins 2,2%. Magnús Stefánsson segir að hann þekki ekki til þess að farið hafi verið að sparnaðartillögum ungra sjálfstæðismanna. „Það væri praktískara á allan hátt að fá þess- ar tillögur áður en ráðist er í gerð fjárlagafrumvarpsins.“ Atli Rafn Björnsson, formaður Heimdallar, segist ekki hafa séð mikinn sýnilegan árangur af þess- um árlegu tillögum Heimdellinga. „En við teljum okkar hlutverk og skyldu að halda þessu málefni á lofti fyrir okkar félagsmenn og okk- ur sjálf sem viljum að ríkisútgjöld dragist saman. Við vonum að til- lögur okkar styrki þá sem hafa þessa sýn í brjósti og veiti mönnum aðhald í útgjaldaaukningu ríkisins. Við erum ekkert endilega á móti öllum þessum hlutum sem við leggjum til að verði sparað í, heldur er yfirskrift okkar að treysta ein- staklingnum til að ráðstafa fjár- munum og reka mikið af þeim stofnunum sem að ríkið er að vas- ast í,“ segir Atli Rafn. Einar Oddur Kristjánsson, vara- formaður fjárlaganefndar, og Helgi Hjörvar, sem situr í nefndinni fyrir hönd Samfylkingarinnar, voru við- staddir þegar Heimdellingar af- hentu tillögurnar. Helgi sagði að það lýsti vel ástandinu í ríkisfjármálum þegar ungir sjálfstæðismenn þyrftu að fara til fundar við þingmann Fram- sóknarflokksins til að fá hann til að skera niður útgjaldatillögur ráð- herra Sjálfstæðisflokksins. Einar Oddur svaraði og sagði að þetta væru tillögur ríkisstjórnarinnar. Ráðherrarnir ynnu að þessu saman. Tólf manna stjórn Heimdallar setti tillögurnar saman, en um 20– 30 manns koma að gerð tillagna ungra sjálfstæðismanna. Heimdallur lagði í gær fram tillögur um niðurskurð á útgjöldum ríkissjóðs Milljarðs sparnaður á hvern þingmann Morgunblaðið/Ásdís Helgi Hjörvar alþingismaður ræðir við Magnús Stefánsson, formann fjár- laganefndar, og Atla Rafn Björnsson, formann Heimdallar, um tillögurnar. ÓLAFUR G. Einarsson, fyrr- verandi ráðherra og forseti Al- þingis, hefur verið skipaður for- maður orðunefndar hinnar íslensku fálkaorðu í stað Huldu Valtýsdóttur blaðamanns, sem lætur af störfum að eigin ósk. Sæti Huldu tekur Jón Páll Hall- dórsson framkvæmdastjóri. Auk þeirra er nefndin skipuð Jóni Helgasyni fyrrverandi ráð- herra, Sigmundi Guðbjarnasyni prófessor og Stefáni L. Stefáns- syni forsetaritara, sem jafn- framt er orðuritari. Varamaður er Guðný Guðmundsdóttir kons- ertmeistari. Nýr for- maður orðunefndar STURLA Böðvarsson samgönguráð- herra hefur ákveðið að hefja vinnu við endurskoðun á stjórnsýslu og þjónustu Flugmálastjórnar. Hilmar Baldursson, fyrrverandi formaður Flugráðs, mun hafa umsjón með verkefninu og stefnir ráðherra að því að leggja fyrir ríkisstjórnina og síðar Alþingi tillögur um breytingar haust- ið 2004. Einnig gerir hann ráð fyrir að leggja fram frumvarp um rann- sóknir flugslysa á yfirstandandi þingi en vinna við það er langt komin. Sturla Böðvarsson sagði heiminn vera kominn langan veg frá fyrstu dvergvöxnu flugvél Wright-bræðra þegar litið væri til tækni breiðþotu nútímans. Hann sagði að tekist hefði að snúa vörn í sókn í flugi og ferða- þjónustu eftir atburðina 11. septem- ber 2001 með aðgerðum flugfélaga og stjórnvalda. Nýjar kvaðir og ný tæki- færi yrðu með nýjum loftferðasamn- ingum Íslands við fjarlæg lönd og markaður væri nú allur heimurinn. Ráðherra þakkaði stuðning við end- urbyggingu Reykjavíkurflugvallar, kvaðst hafa mátt sæta árásum frá andstæðingum flugvallarins vegna verkefnisins og fram hafi komið þau furðulegu sjónarmið að ráðherra flugmála ætti ekki að hafa skoðun á framtíð Reykjavíkurflugvallar vegna þess að hann væri ekki þingmaður Reykvíkinga. Þakkaði stuðning frá flugheiminum í þeirri baráttu. Sagði hann endurnýjun vallarins eitt mik- ilvægasta skrefið í flugöryggismálum á síðari árum. Flugnemum fækkar en vélum fjölgar Gísli Baldur Garðarsson, formaður flugráðs, sagði Íslendinga hafa lagt rækt við flugið sem atvinnugrein öðr- um þjóðum fremur. Héðan væru gerðar út kringum 50 stórar þotur auk smærri véla. Gísli sagði einnig að þeir sem störfuðu að flugmálum þyrftu að gera sér grein fyrir því að eðlisbreyting hefði orðið á atvinnu- greininni. „Úreltar reglur um sér- réttindi mega ekki verða til þess að fólk á Íslandi eigi þess ekki kost að koma til starfa í flugi. Það er eitthvað bogið við það þegar nemum í flugi fækkar verulega á sama tíma og flug- floti þjóðarinnar vex sem aldrei fyrr. Fjöldinn allur af ungu fólki á sér þann draum að geta búið og starfað erlendis einhvern hluta af starfsævi sinni. Þetta þarf að gera flugliðum kleift á sama hátt og fólk fer til tíma- bundinnar dvalar við störf fyrir sjáv- arútveg, fjármálafyrirtæki eða lyfja- framleiðslu á vegum Íslendinga í útlöndum. Ég tel að það sé brýnt hagsmunamál fyrir ungt fólk í land- inu og ekki síður fyrir flugfélögin að þeirri þróun verði snúið við sem leitt hefur til þess að erlendir flugliðar nálgast að vera meirihluti í flugflot- anum. Að þessu viðfangsefni verða menn að koma með opnum huga á báða bóga,“ sagði Gísli. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri fór yfir íslenska flugsögu og skipti henni í fjögur 20 ára tímabil og nefndi nöfn helstu frumkvöðla í þeirri sögu. Það fyrsta frá 1919 til 1939 sem hann sagði hafa einkennst af tilraunum til flugreksturs. Árin 1940 til 1959 stóð yfir uppbygging á flugsamgöngum innanlands og milli landa og á næsta tímabili til 1979 nær flugið yfir Norð- ur-Atlantshafið hámarki og þotuöld hefst. Síðustu árin sagði hann síðan hafa einkennst af nýskipan í flug- rekstri og uppbyggingu flugsam- göngukerfis. Í lokaorðum sínum sagði flugmálastjóri að íslensk flug- starfsemi væri án landamæra og nefndi hann sem dæmi að á hverjum degi stigju 12 þúsund farþegar um borð í íslensk skráðar flugvélar víða um heim. Samgönguráðherra telur aukin tækifæri skapast með nýjum loftferðasamningum Hefja á endurskoðun á stjórnsýslu Flugmálastjórnar Fjölmenni var á flugþingi í gær. Fremst sitja Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, Gísli Baldur Garðarsson, formaður Flugráðs, Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. JÓNAS Hallsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn, vill ekki kannast við að lögreglusamþykkt um einkadans á nektardansstöðum sé brotin eins og fram kom í skýrslunni Kynlífsmark- aður í mótun sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær. Í skýrslunni segir að samkvæmt heimildarmönnum sé hægt að nálgast einkasýningar í lokuðu rými á báðum nektardansstöðunum í Reykjavík en eins og kunnugt er eru slíkar sýning- ar bannaðar samkvæmt lögreglusam- þykkt Reykjavíkurborgar. Heimsækja staðina einu sinni til tvisvar í viku Jónas hefur eftirlit með allri leyfa- skyldri starfsemi og að hans sögn eru nektardansstaðirnir heimsóttir einu sinni til tvisvar í viku í reglubundnu eftirliti. „Við höfum ekki orðið varir við neitt sem flokka megi undir einka- sýningu í lokuðu rými. Ég leitaði eftir því við eftirlitsmennina um daginn hvort það væri eitthvað breyttur bragur á þessum stöðum en hann hef- ur frekar lagast heldur en hitt,“ segir Jónas. Hann bendir þó á að það séu sýn- ingar á svæðum sem sé dýrara að borga sig inn á en að þær séu ekki túlkaðar sem einkasýningar. Telur lög- reglusam- þykkt ekki brotna KRISTINN Gylfi Jónsson, stjórnarformaður kjúklinga- búsins Móa, segir að ákveðið hafi verið að fá úrskurð Hæsta- réttar um hvort fyrirtækinu sé heimilt að reyna á ný að gera nauðasamninga við kröfuhafa. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í síðustu viku að veita Móum slíka heimild. Samkomulag náðist í gær á milli kjúklingabúsins Móa og Orkuveitu Reykjavíkur um greiðslu orkureiknings upp á rúmar fjórar milljónir króna. Kristinn Gylfi sagði að OR hafði tilkynnt að lokað yrði fyr- ir rafmagn til kjúklingabúsins yrði þessi skuld ekki greidd eða um hana samið. Til þess kemur ekki. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni var skuldin komin til eftir að fyrirtækið fór í greiðslustöðvun um síðustu áramót. Áður en Móar fóru í greiðslustöðvun var skuld fyr- irtækisins við OR orðin rúm- lega 16 milljónir króna. Móar ætla að áfrýja til Hæsta- réttar SJÓBLEIKJUVEIÐI var afar misjöfn hér á landi á nýlokinni vertíð og sums staðar var hún sú lakasta sem menn muna um árabil, t.d. í Vatnsdalsá þar sem hvert hollið af öðru kom, sá og veiddi lítið. Hins vegar greindi Pétur Pétursson, leigu- taki laxasvæðisins, frá því á áliðnu sumri að nóg væri af vænni bleikju í ánni of- anverðri. Sums staðar viðunandi Sjóbleikjuveiðin var sums staðar vel viðunandi, t.d. í Hvolsá og Stað- arhólsá, þar sem um 500 bleikjur voru skráðar í veiðibók. Það er talsvert minna en það sem best gerist í ánum, en allþokkalegt samt og auk þess var áin illa nýtt seint á veiðitíma sem er iðulega góður tími. Sjóbleikjuveiði í Breið- dalsá var ennfremur mjög góð og var 631 bleikja bókuð og margar mjög vænar. Þær stærstu 5 pund og talsvert af 3–4 punda. Laxa- fluga nokkur, sem lítið er notuð í sjóbleikju utan Breiðdalsár, appelsínugul Krafla, sló í gegn og gaf þó nokkrar stórar hrúg- ur. Eins og fram hefur komið er fremur slakri sjóbirtingsvertíð lokið. Sums staðar var veiði vel viðunandi, en mjög víða var hún lakari en menn höfðu vonast eftir. Var það breytilegt frá einni á til annarrar hversu al- gengir stórir fiskar voru í aflanum. Líklega er þó Tungulækur með hlutfallslega bestu útkom- una í þeim efnum. Haustveiðin þar var upp á um 200 birtinga, en af þeim voru 30 á bilinu 10 til 18 pund. Í lok veiðitíma var síðan dregið á Breiðuna, efsta veiðistaðinn, og fiskur tekinn til kreistingar og sleppingar fyrir ofan fossinn. Náðist yfrið nóg af fiski og var það allt bolta- fiskur, 8 til 13 pund. Þessar fallegu sjóbleikjur veiddust í Breiðdalsá. Sjóbleikjugangan upp og ofan ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.