Morgunblaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ                      BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. FLATUR fyrir mínum herra, var sagt á niðurlægingartímanum og það merkti auðmýkt fyrir útlandinu, undirgefni.Við erum ekki vaxin upp úr þessum stuttbuxum, nema síður sé, því að ekkert eyra er þynnra en það íslenzka, þegar það hlustar eftir umheiminum og afstöðu hans til okkar. Það var því að vonum menn tækju eftir því, hvað þýzka skáldið Günter Grass sagði, þegar talað var um að íslendinga sögurnar væru hinar fyrstu sinnar tegundar. Það er bara áróður, sagði Grass og það fór titr- ingur um þunna eyrað þarna í saln- um í Norræna húsinu! En argentínska skáldið Jorge Luis Borges hafði aðra skoðun. Og enginn þekkti fornsögur okkar bet- ur en hann. Þær voru honum eins- konar vegvísir. Að vísu leiddist hon- um skáldsögur, þótt hann kynni að meta sumar að verðleikum, og sagð- ist sannfærður um að íslendinga sögurnar væru saman settar úr þáttum og smásögum og væru þann- ig fyrstar sinnar tegundar og ein- stæðar. Það er engin rómantísk hérvilla að þessi forna ritmenning okkar stendur undir orðspori þjóðarinnar og er bezta vegnesti okkar inn í framtíðina; hvað sem öðru líður. Þessi arfur er einstæður og án hans vissum við ekki, hver við erum og værum að dröslast á alþjóðavett- vangi án einkenna, án markmiða. Það getur varla verið helzta hlut- verk okkar að syngja með sama nefi og allir aðrir, eignast leikfangaverzl- anir og banka í útlöndum, græða á jólunum; hlusta á hvert annað kvaka í fjölmiðlum. Og ekki getur það heldur verið neitt markmið í sjálfu sér að geðjast umheiminum og bukka sig og beygja í sífellu fyrir honum; eða dansa með æ nýjum jörundum hundadagakon- ungum og missa hárkolluna í ljósa- krónuna, ef ekki vill betur til. Metnaðurinn hlýtur að vera meiri og merkilegri. Og ekki sízt sá að ávaxta þann fjársjóð sem skiptir öllu máli í sögu þessarar litlu þjóðar, arf- leifðina. En það er eins og við séum sífelldlega að reyna að gleyma hver við erum og hvaða hlutverki við gegnum sem aðrir geta ekki sinnt. Það er einfaldlega að vera Íslend- ingar. Ekki flatir fyrir neinum herra, heldur þjóð sem hefur ástæðu til að bera höfuðið hátt og þá ekki sízt vegna arfleifðarinnar. Það er hún sem þessi margnefndi umheim- ur ber virðingu fyrir; tungan og ein- stæð ritsnilldargeymd sem á ekki sinn líka. Og við þessa arfleifð á að bæta andlegum, ekki síður en veraldleg- um verðmætum. Það hefur tekizt bærilega sem betur fer. Og þá er komið að erindi þessa bréfs; að benda á ummæli merkrar konu og viturrar sem var hér gestur fyrir ekki alllöngu, Adrienne Clark- son. Hún er landstjóri í Kanada, þar sem fleiri hafa fram að þessu talað íslenzku en í nokkru öðru landi, utan Íslands. Boðskapur hennar var einfaldlega sá að fortíð okkar sé nútíð okkar, eins og hún komst að orði. Sögurnar og forn kveðskapur veita okkur innsýn í fortíðina og eru vegvísir til framtíðar. Án hans yrð- um við einhvers konar óþjóð, án ein- kenna, án metnaðar og í raun án til- gangs. Rótlaus eins og þangið. Föst í lekabyttu peningahyggjunnar . Peningar eru að vísu ágætir til síns brúks; að láta okkur líða betur og vernda þau markmið sem máli skipta. Það er hægt að nota þá til annars en ýta undir íslenzka öfund. En það þarf meira til ef við ætlum ekki að vera eins og gulnað laufið sem fellur af trjánum og rotnar und- ir þungum sólum haustvindanna. Það þarf gott eyra til að hlusta á hvísl aldanna og skila því af stolt- aralegum metnaði til framtíðarinn- ar. „Íslendingasögurnar eru meðal stórkostlegustu bókmennta sem nokkurn tíma hafa verið skrifaðar,“ sagði Clarkson. „Það er einnig öf- undsverð staðreynd að Íslendingar geta enn í dag lesið og skilið þessi bókmenntaverk sem byrjað var að skrá fyrir meira en þúsund árum.“ Hún bætti því við að enginn enskumælandi maður hefði sama að- gang að engilsaxnesku eða miðalda- ensku og við að fornum arfi okkar og enginn Frakki hefði slíkan aðgang að þeirri frönsku sem Roman de la rose var rituð á, eins og hún komst að orði. Það sé vandamál margra þjóða að muna ekki hvað þær gerðu í fortíðinni og geta því ekki lært af henni. Þið hafið ekkert slíkt vandamál, sagði Clarkson. Forn arfur ykkar fjallar ekki aðeins um atburði, held- ur einnig tilfinningar, sársauka og þjáningar, „þar á meðal þjáningar annarra“. Sem sagt, ekki tilfinningaleysi hinnar stöðluðu einsmenningar sjón- varpsguðsins. Allt skerpir þetta skilning á hög- um annarra og þá ekki síður velferð þeirra. Mundi það ekki vera kjarn- inn í þeim þjóðfélagssáttmála sem við fengum úr byltingu franskra borgara á sínum tíma, en hafði skot- ið rótum í íslenzku umhverfi, þegar víkingasamfélagið smitaðist af mannúð kristins boðskapar? Þessi siðmenningarlegu gæði gagnast okkur enn mætavel. Samfylgd ríkis og kirkju gegnum tíðina hefur verið mikilvægur þáttur arfleifðarinnar og engum til góðs að rjúfa nú þessi tengsl, eins og ástand- ið er í heiminum. En hverjum og ein- um er í sjálfsvald sett, hvort hann er í þjóðkirkjunni eða ekki. Kirkjan er þjóðholl, hún hefur messað á íslenzku og varðveitt tung- una; rétt eins og rímur og sagnir. Hún hefur haft sinn Eystein, Odd, Guðbrand og Hallgrím á sínum snærum og ræktað málsmenningar- hefðina. Sjónvörpin íslenzku eru til samanburðar útlenzkir, einkum ensk-amrískir bastarðar og ógna tungunni. Og arfleifðinni. MATTHÍAS JOHANNESSEN, Reynimel 25A, 107 Reykjavík. Vitur kona og arfleifðin Frá Matthíasi Johannessen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.