Morgunblaðið - 24.10.2003, Blaðsíða 24
AKUREYRI
24 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Saw Palmetto
Styrkjandi blanda fyrir
blöðruhálskirtilinn
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Fjarðarkaupum
Árnesaptóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505,
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Stakir jakkar
Vesti
Polarskinnjakkar
Stuttkápur
Skinnjakkar
Kringlumýri 20
Ágæt 4ra herb. stórglæsilegt einbýlishús með bílskúr, 218
fm. Parket á öllu. 2 flísal. baðherb., kamína í stofu, eldhús
með gasi og stór verönd með potti.
Heiðarlundur 1D
Mjög gott raðhús á tveimur hæðum með stórum stakstæð-
um bílskúr. 4 svefnherb. Rúmgott eldhús. Parket á gólfum.
Góð staðsetning.
Furulundur 5A
Mjög gott 4ra herb. 117 fm raðhús á einni hæð. Flísar á
gólfum. Nýtt baðherbergi. Íbúðin er laus fljótt.
FASTEIGNASALA
AKUREYRI
Franz Jezorski, lögfr. og löggiltur fasteignasali
Vilhelm Jónsson
Sími 461 2010
Gsm 891 8363
hollak@simnet.is
Sjá einnig Fasteignablað
Morgunblaðsins
RÍFLEGA 30 tonn af stálbobbingum
voru nýlega flutt út til Kanada, Græn-
lands og Noregs, en það gera alls 218
bobbinga. Gúmmívinnslan á Akureyri
er eina fyrirtækið í landinu og eitt af
þremur í heiminum sem framleiðir
stálbobbinga. Gúmmívinnslan er 20
ára um þessar mundir en átta ár eru
frá því framleiðsla á stálbobbingum
hófst hjá fyrirtækinu.
Auk þess sem Gúmmívinnslan hef-
ur flutt út bobbinga til áðurnefndra
landa hafa þeir einnig verið seldir til
Færeyja, Danmerkur, Nýja-Sjálands
og Chile. Forráðamenn Gúmmí-
vinnslunnar telja að þeir sjái um allt
að 80% innanlandsmarkaðar, en út-
flutningur sé aðeins örlítið brot þess
markaðar eins og sakir standa. Ís-
lenska framleiðslan er dýrari en sú
útlenda, en hvað gæði varðar telja
Gúmmívinnslumenn sig standa fram-
arlega. Flutningskostnaður er
stærsta vandamálið varðandi verðið
og þá ekki hvað síst kostnaður við
flutninga innanlands.
Stálbobbingadeild fyrirtækisins
flytur um 200 tonn af stáli árlega til
framleiðslu sinnar og er um helming-
ur þess fluttur út aftur sem fullunnin
vara. Salan hefur sífellt verið að
aukast á liðnum árum.
Stálbobbingar eru notaðir í veiðar-
færi togara og eru þeir til í þremur
stærðum og nokkrum gerðum.
Gúmmívinnslan var stofnuð árið
1983 og auk þess sem þar eru fram-
leiddir stálbobbingar má nefna að þar
eru framleiddar gúmmíhellur úr end-
urunnum hjólbörðum, en sala hjól-
barða og þjónusta kringum þá er
stærsti þátturinn í starfsemi fyrir-
tækisins.
Flytja út um 30 tonn
af stálbobbingum
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Sigurður Kristjánssson og Steinþór Stefánsson voru að sjóða slitbönd og
gjarðir á bobbinga í gær, en bobbingarnir eru fluttir á erlenda markaði.
NÝ sýning hefur verið opnuð í
Minjasafninu á Akureyri, en þar
er um að ræða ljósmyndir Len-
harðar Helgasonar frá Akureyri.
Lenharður fæddist árið 1935, en
lést langt um aldur fram, 32 ára,
árið 1967.
Þrátt fyrir stutta ævi skildi
hann eftir sig mikinn fjarsjóð í
ljósmyndum. Hann hóf ungur
störf hjá KEA og þeyttist bæj-
arendanna á milli í matvörubíl
KEA, A-7. Í sendiferðunum var
myndavélin jafnan höfð með í för.
Í þessum ferðum festi hann á
filmu atburði líðandi stundar.
Þær 72 myndir sem gefur að líta
á sýningunni eru úr bæjarlífi Ak-
ureyrar frá árunum 1953–1954
og er myndefnið fólk við ýmis
tækifæri, í önnum hversdagsins,
við leik og skemmtun. „Í gegnum
ljósmyndir sínar hefur Lenharður
náð tíðarandanum svo næstum
má finna ilminn af jólaeplunum
eða heyra skrölt í keðjum bíla,“
segir í frétt um sýninguna.
Hún er opin alla laugardaga
frá 14–16 og aðra daga eftir sam-
komulagi.
Ljósmynd/Lenharður Helgason
Sýning á ljósmyndum eftir Lenharð
Helgason hefur verið opnuð í
Minjasafninu á Akureyri.
Festi atburði líðandi
stundar á filmu
Kvótanum skipt jafnt | Bæjarráð
Akureyrar fjallaði í gær um út-
hlutun á 5,5 þorskígildislestum sem
féllu í hlut Akureyrarbæjar við út-
hlutun á byggðakvóta á dögunum.
Samþykkt var á fundinum að taka
ekki við kvótanum.
Oddur Helgi Halldórsson lét á
fundinum bóka að hann væri þeirrar
skoðunar að „út frá því magni sem
við fengum úthlutað, 5,5 tonnum, að
best hefði verið að skipta þessu jafnt
á milli þeirra einstaklinga sem eru í
útgerð og eiga kvóta fyrir“. Val-
gerður H. Bjarnadóttir óskaði bókað
að hún sat hjá við afgreiðslu.
Harmonikuspil og pönnsur | Það
verður mikið um dýrðir í Galleríi
Grúsku þessa viku í tilefni 10 ára af-
mælis þess. Grúska er við Strand-
götu 19, sameiginlegur sölustaður
fólks sem stundar listhandverk á
Eyjafjarðarsvæðinu. 10% afslátt er
gefinn af öllum vörum þessa viku og
heppinn viðskiptavinur gæti dottið í
lukkupottinn. Boðið verður upp á
kaffi, djús og pönnukökur í versl-
uninni, leikið verður á harmoniku og
söng auk þess sem viðskiptavinir
geta spjallað við félagsmenn um þá
möguleika sem standa til boða varð-
andi sérunna eða sérmerkta vöru til
tækifæris- eða jólagjafa.
ALLS bárust sex tilboð í endur-
gerð lögreglustöðvarinnar á Ak-
ureyri, en þau voru opnuð hjá Rík-
iskaupum nú í vikunni.
Tilboðin voru öll yfir kostnaðar-
áætlun, en hún hljóðaði upp á 69,7
milljónir króna.
Hagleiksmenn áttu lægsta boð,
73,9 milljónir króna, þá kom boð
frá Timbursmiðjunni, 74 milljónir,
og fast á hæla henni kom tilboð frá
SS Byggi upp á 74,2 milljónir
króna. Gamlhús bauð 76,1 milljón,
Hyrna 81,8 milljónir og loks Virkni
en tilboð þess nam 91,3 milljónum
króna.
Um er að ræða breytingar á öll-
um hæðum lögreglustöðvarinnar,
m.a. þarf að rífa eldri veggi og
setja upp nýja, gips- og glerveggi,
endurnýja gólfefni, innréttingar og
búningsaðstöðu starfsmanna auk
þess sem endurnýja þarf raf-
magns- og tölvulagnir og mála.
Loks stendur til að endurnýja
fangagarð, sem er útigarður.
Verkinu á að vera lokið 1. nóv-
ember árið 2004.
Endurgerð lögreglu-
stöðvarinnar
Hagleiks-
menn með
lægsta boð
ÞAÐ dugar ekkert minna en að hafa skóflu í báðum
höndum áður en menn skella sér af alvöru í sandkass-
ann! Það virðist í það minnsta skoðun Alexanders sem
allvígalegur býr sig undir að taka þátt í sandkassaleik
barnanna á Iðavelli. Leikfélagarnir eru hins vegar önn-
um kafnir og láta ekkert raska ró sinni.
Sandkassaleikur Alexanders
Morgunblaðið/Kristján
Á léttu nótunum | Karlakór
Eyjafjarðar er að hefja vetrarstarfið
með tónleikum á Grenivík, en þeir
verða í kvöld, föstudagskvöldið 24.
október, í Gamla barnaskólanum og
hefst skemmtunin kl. 20.30.
Meðal annars verða sungin lög af
geisladiski kórsins, Gestaboð, auk
annars efnis sem kórinn hefur verið
að æfa. Félagar í Karlakór Eyja-
fjarðar eru nú 45 talsins, og að auki
leikur fjögurra manna hljómsveit-
undir stjórn Daníels Þorsteinssonar
píanóleikara. Einsöng syngja Har-
aldur Hauksson, Snorri Snorrason,
Stefán Birgisson og Þorsteinn Jós-
epsson. Kórinn er sem fyrr á léttu
nótunum og lagavalið fjölbreytt, þar
sem er að finna mikið af textum og
lögum eftir heimafólk af Eyjafjarð-
arsvæðinu. Stjórnandi kórsins er
Petra Björk Pálsdóttir.
Suðrænt og seiðandi | Hannes Þ.
Guðrúnarson gítarleikari leikur á
tónleikum á morgun, laugardaginn
25. október, kl. 15 í sal Tónlistarskól-
ans á Akureyri, Hvannavöllum 14.
Þar leikur Hannes suðræna og
seiðandi tónlist frá Paragvæ,
Mexíkó og Kúbu. Tónleikarnir
standa yfir í um klukkustund.
Hannes starfaði á Akureyri frá
1997 til ársins 2002, m.a. við kennslu
og undirleik, en hefur búið og starf-
aði í Reykjavík síðan.
Verði á Akureyri | Bæjarráð
Akureyrar samþykkti á fundi sín-
um í gær að skora á heilbrigð-
isráðherra að vanda vel faglegan
undirbúning Lýðheilsustöðvar svo
stofnunin hafi það vægi sem nauð-
syn ber til og taka þegar af skarið
með að aðalskrifstofa Lýð-
heilsustöðvar verði á Akureyri.
„Slík stofnun mundi njóta góðs af
nærveru við öflugar stofnanir á
heilbrigðissviði þar,“ segir í bókun
bæjarráðs.