Morgunblaðið - 24.10.2003, Qupperneq 16
ERLENT
16 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
27 ÁRA farþegaflugi Concorde-þotn-
anna lýkur í dag þegar ein þeirra flýg-
ur í síðasta sinn á tvöföldum hraða
hljóðsins yfir Atlantshafið.
Ráðgert er að Concorde-þota Brit-
ish Airways lendi á Heathrow-flug-
velli í London klukkan 15 að íslensk-
um tíma eftir þriggja klukkustunda
og tuttugu mínútna flug frá New
York. Verður það síðasta farþegaflug
Concorde-þotunnar sem var álitin á
meðal mestu tækniafrekanna á öld-
inni sem leið og naut mikilla vinsælda
meðal ríka og fræga fólksins.
British Airways og Air France
voru einu flugfélögin sem ráku Con-
corde-þotur og öllum frönsku þotun-
um var lagt í maí. Búist er við að þús-
undir manna fari á Heathrow-flugvöll
til að kveðja fyrstu og einu hljóðfráu
þotuna í heiminum.
Franska fyrirtækið Aerospatiale
og British Aircraft Corporation
þróuðu Concorde-þotuna á sjöunda
áratugnum og hún var álitin ein af
helstu tækniundrunum á þeim tíma
og tákn um samstarf Breta og
Frakka. Fjórtán Concorde-þotur
voru teknar í notkun og fyrstu árin
var oft mikill mannfjöldi á flugvöll-
unum til að fylgjast með þeim lenda
eða taka á loft. Til að mynda söfn-
uðust um 750.000 manns á flugvell-
inum í Toronto þegar Concorde-þota
lenti þar í fyrsta skipti árið 1999.
Skilaði aldrei hagnaði
Flugslys í París 25. júlí 2000 mark-
aði upphafið að endalokum Concorde.
113 manns létu þá lífið þegar Con-
corde-þota hrapaði skömmu eftir
flugtak. Þoturnar voru teknar í notk-
un á ný sextán mánuðum síðar en
British Airways og Air France
ákváðu í apríl að leggja þeim öllum.
Rekstur Concorde-þotunnar hefur
aldrei skilað hagnaði vegna mikils
eldsneytiskostnaðar og reksturinn
hefur verið sérlega erfiður eftir slysið
í París og vegna samdráttar í farþega-
flugi. Þar sem flugfélög leggja nú
áherslu á að reka ódýrar og sparneyt-
nar þotur eru engin áform um að
smíða nýja hljóðfráa farþegaþotu.
!""#
98":
%"; < $:
"=
:
:
"#>?
.
$
%&&
'(
)
* &
%+
'
, (
' '
'
(
-
&
' (
.
&&
' (
+
/
-
,
0' '
'
1
'
&
'
& %
2
'
)
* &
34
'
(
%
&
&
6
@
=
"
3
'
,+
'2
5 &
%
2-
-
&
%
'
66#
7
-
&
%
&
&
%
&
'(
8
3 (
(
&&
3 (
(
2
A B
/
C
2!
; *
*4$
! 5 #>?5
D
)8'
+
+
)8'
+
+
A=
&'
(
)*
+
$
#) ,- EF'G
+ ./ $
#) ,-
+
&
+0 &
+
$
#) , E'9 HF(
(1 111
9I(
%
FJ91
Síðasta farþega-
flug Concorde
London. AFP.
NÚ í vikunni verður sýnd í sjón-
varpi mynd um einhverja mestu
uppákomu í þýskri stjórnmálsögu,
afsögn Willys Brandts kanslara eft-
ir að í ljós kom, að nánasti ráðgjafi
hans var njósnari kommúnista. Sá,
sem leikur njósnarann, Günter Gu-
illaume, er enginn annar en Matth-
ias, sonur Brandts.
„Ég hef alltaf verið dálítið hrif-
inn af Willy Brandt,“ sagði Matth-
ias er hann útskýrði hvers vegna
hann hefði sóst eftir að leika mann-
inn, sem eyðilagði stjórnmálaferil
föður síns. „Mér hefur líka alltaf
fundist það spennandi hve lítið var
vitað um Guillaume, sem starfaði
jöfnum höndum fyrir föður minn og
Austur-Þýskaland.“
Matthias Brandt var 12 ára er
hneykslið kom upp 1974 en þá og
áður vann Brandt ötullega að slök-
unarstefnunni, sem meðal annars
fól í sér viðurkenningu á A-
Þýskalandi sem sjálfstæðu ríki.
Fyrir það hafði hann verið sæmdur
friðarverðlaunum Nóbels 1971.
Willy Brandt
Matthias
Brandt
leikur
Guillaume
Berlín. AFP.
UM 16% danskra ökumanna
nota ekki bílbelti þótt það
hafi verið skylda í Danmörku
í tuttugu og fimm ár. Vegna
þess hafa sérfræðingar í um-
ferðaröryggismálum lagt til,
að komið verði fyrir raflás í
öllum bílum, sem komi í veg
fyrir, að unnt sé að aka þeim
ef beltin eru ekki spennt.
Sagði frá þessu á fréttavef
Berlingske Tidende.
Hugo Højgaard, talsmaður
dönsku umferðarslysanefnd-
arinnar, segir, að það séu
einkum ungir ökumenn, sem
noti ekki bílbeltin. Afleiðing-
arnar eru skelfilegar. Að mati
nefndarinnar hefðu átta af
hverjum tíu, sem létust í bíl-
slysum og notuðu ekki bíl-
belti, lifað af ef þeir hefðu
notað þau.
60% eru ekki
með bílbelti
Þar fyrir utan hefðu margir
þeirra, sem lifðu slysið af,
farið betur út úr því, hefðu
þeir aðeins haft bílbeltin
spennt. Rannsóknir umferða-
slysanefndarinnar dönsku
sýna, að um 60% ungra öku-
manna, sem lenda í alvarleg-
um slysum, eru ekki með bíl-
belti.
Højgaard sagði, að sú þjóð-
saga virtist vera nokkuð líf-
seig, að oft slyppi fólk vel frá
bílslysum vegna þess, að það
hefði ekki notað bílbelti.
Hann kvaðst hins vegar ekki
vita um eitt einasta dæmi,
sem styddi það.
Bílvél og
bílbelti
verði
samtengd