Morgunblaðið - 24.10.2003, Page 25

Morgunblaðið - 24.10.2003, Page 25
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 25                                                    !"      !   " #     $        !  %  #   " &&& !   "      !     $          Keflavík | Keflvíkingurinn Gunnar Eyjólfsson og Njarðvíkingurinn Kristbjörg Kjeld leika aðal- hlutverkin í nýju verki Ólafs Hauks Símonarsonar og verður það frum- sýnt í Frumleikhúsinu í Keflavík vegna tengsla þeirra við Reykja- nesbæ. Verkið verður síðar flutt á litla sviðið í Þjóðleikhúsinu. „Verkið fjallar um mann sem brást í því sem var þýðingarmest; að rækta og hlúa að því sem honum var trúað fyrir, það er eigin fjölskyldu,“ segir Gunnar. „Hann reisti sér minn- isvarða með hæstu húsum sem reist voru, og veiddi stærstu laxana, en hann gleymdi þeim sem treystu á hann. Hann reynir í lokin að sættast við þetta fólk. Þetta verk fjallar um mann sem reis ekki undir því að vera það sem hann átti að vera; góð- ur eiginmaður, faðir og afi. Leikritið fjallar um ást.“ Kristbjörg leikur heimilishjálp frá borginni sem sinnir manninum og Björn leikur dótt- urson hans. Það er óvenjulegt að Þjóðleik- húsið frumsýni annars staðar en í Þjóðleikhúsinu, hvernig er að frum- sýna verkið í Keflavík? „Það er sérstakt og vekur ákaf- lega viðkvæm minningatengsl við bæinn og samfélagið sem var hér að þróast þegar ég var lítill drengur og byrjaði að leika hér. Fyrsta leiksýningin sem ég sá var skrautsýning á vegum Slysavarna- félags kvenna, þar lék móðir mín álfkonu sem bjargaði öllum. Ég man að það var lítill texti, ef nokkur, ég held það hafi bara verið uppstill- ingar og svoleiðis, en ég hef aldrei séð fallegri manneskju á sviði. Ég var svo stoltur af því að þetta væri mamma mín að ég labbaði upp að sviðinu og kippti neðst í faldinn á skautinu og sagði bara mjög lágt: „Mamma ég er hérna.“ Hún kippti þéttingsfast í skautið og sagði svo við mig heima: „Þetta máttu aldrei gera, þegar ég er að leika þá er ég ekki mamma þín heldur persónan sem ég er að leika.“ Ég sagði bara: „Það er gott að þú skulir vera álf- kona af og til mamma.““ „Kveikir svo í manni neistann“ Hvernig finnst þér verkið og per- sónan sem þú leikur? Eru þetta mikil átök? „Þetta verk kveikir svo í manni neistann. Ég vona að ég mæti ögr- uninni og geti tekist á við að leika þennan mann í þessu verki sem Ólaf- ur hefur verið svo elskulegur að skrifa. Ég vona að mér hafi tekist það, enda með gott fólk með mér. Ég held að það sé sama hvaða mann- eskju maður leikur, það eru átök að fara frá sjálfum sér og nálgast aðra persónu, og Kári er engin und- antekning þar. Annars finnst mér ég þekkja þessa kalla hans Ólafs, þetta er sá fjórði sem ég leik. Fyrst í Milli skinns og hörunds, svo í Þreki og tárum og svo í Hafinu. Þeir eru ná- skyldir allir.“ Hvernig er að leika í leikriti sem er skrifað með þig og Kristbjörgu í huga? Hefur samstarf ykkar í gegn- um árin áhrif á þetta verk? „Það er mikilvægt að reyna að rísa undir þeirri trú sem höfund- urinn virðist hafa á mér sem leikara. Það verður bara að gera það. En hann skrifaði ekki fyrir mig einan heldur fyrir Kristbjörgu líka. Ég held að hún sé sama sinnis. – Kristbjörg, hefur það áhrif á þetta verk að við erum þaulvant leikarapar?“ hrópar Gunnar bros- andi yfir búningsherbergið. „Alveg örugglega, þetta væri ekki svona brilljant ef það væri ekki fyrir það,“ hrópar Kristbjörg til baka hlæjandi. Vekur viðkvæm minningatengsl við Keflavík Þjóðleikhúsið frum- sýnir á laugardaginn Græna landið eftir Ólaf Hauk Símonarson í Frumleikhúsinu í Keflavík. Brjánn Jón- asson tók Gunnar Eyj- ólfsson leikara tali. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gunnar Eyjólfsson: Vonast til að sýningar gangi sem lengst í Keflavík, helst fram að jólum. Frumsýning: Aðstandendur Græna landsins ásamt höfundi eftir æfingu á miðvikudag, en verkið verður frumsýnt á laugardag. Keflavík | Tillögur að byggingu 14.500 fermetra verslunarmiðstöðv- ar á lóð í miðbæ Keflavíkur verða kynntar fyrir bæjarstjórn og skipu- lagsyfirvöldum á næstu dögum. Höf- undur tillögunnar segist vonast til að framkvæmdir hefjist innan árs, og að verslunarmiðstöðin verði tilbúin innan fimm ára. Samkvæmt tillögunum verður rúm fyrir á bilinu 20 til 30 misstórar verslanir í miðstöðinni, og hafa ein- hverjar verslanir af höfuðborgar- svæðinu lýst yfir áhuga á að opna verslun í húsnæðinu, verði það að veruleika, segir Steinþór Jónsson, hótelstjóri og bæjarfulltrúi, sem kom fram með tillögurnar. Hann segist einnig bjartsýnn um að fá verslanir erlendis frá sem ekki eru á landinu í dag. Húsið verður á þremur hæðum, auk bílakjallara fyrir um 100 bíla. Verslanir verða á tveimur hæðum en skrifstofur, íbúðahótel eða annað á þriðju hæðinni. Verslunarmiðstöðin mun verða björt, með þakgluggum yfir göngunum og glerinngöngum út að öðrum verslunum í miðbænum, segir Steinþór. Ekki ógn við miðbæinn „Það sem er best við þessa hug- mynd er að þetta gengur upp skipu- lagslega séð, þetta gengur upp án þess að trufla nokkuð annað og þetta mun styrkja miðbæinn sem er fyrir gríðarlega,“ segir Steinþór. Hann segir alveg ljóst að miðstöðin verði ekki ógn við miðbæinn heldur komi hún til með að styrkja hann, og hafi verslunareigendur í nágrenninu ver- ið mjög jákvæðir. Vinnuheiti á verslunarmiðstöðinni er „Gullmolinn“, og segir Steinþór að það hafi komið til vegna þess að lóðin þar sem miðstöðin kemur til með að rísa sé sannkallaður gullmoli. Einnig segir hann að tengja megi nafnið við enska orðið „moll“, sem er notað yfir verslunarmiðstöðvar. „Þetta er tækifæri sem mörg bæjarfélög myndu vilja hafa, að geta sett litla verslunarmiðstöð í miðbæinn.“ Í dag eru bílastæði á lóðinni, auk minni húsa sem mynda hring um lóð- ina. Samkvæmt tillögunni þurfa hús- in númer 22, 24 og 26 við Hafnargötu að víkja. Eitt hús á lóðinni verður notað sem hluti af verslunarmiðstöð- inni, og sé það með talið verður hún um 18.000 fermetrar. „Það er allt sem styður þessa hug- mynd. Framsækni bæjarins í dag og breytingarnar sem hafa orðið á bæn- um. Einnig jákvæðni bæjarbúa sem hjálpar svona hugmynd alveg gríð- arlega, og ég held að þetta sé mjög góður grunnur til að byggja á,“ segir Steinþór. Mun styrkja miðbæinn Gullmolinn: Tölvugerðar myndir af verslunarmiðstöðinni sem gæti risið í miðbæ Keflavíkur á næstu fimm árum ef hugmyndir ná fram að ganga. Útaf í hálku | Sex bílar fóru út af Reykjanesbraut við Kúagerði snemma í gærmorgun þegar öku- menn áttuðu sig ekki á hálku á braut- inni og reyndu að hemla. Einn af bíl- unum fór á staur og skemmdist eitthvað, en þess utan urðu engar skemmdir á bílum né slys á fólki. Einn bíll til viðbótar fór út af á Grindavíkurvegi við Seltjörn og fór tvær veltur. Ökumaður var einn í bílnum og slasaðist ekki, en bíllinn er talinn ónýtur. Lögregla vill brýna fyr- ir fólki að fara varlega á þessum árs- tíma, sérstaklega snemma morguns. eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson. Aðstoðarmaður leikstjóra: Helga E. Jónsdóttir. Leikmynd: Grétar Reynisson. Búningar: Grétar Reynisson og Margrét Sigurðardóttir. Tónlist: Gunnar Þórðarson. Lýsing: Ásmundur Karlsson. Leikarar: Gunnar Eyjólfsson, Kristbjörg Kjeld og Björn Thors. Frumleikhúsið í Keflavík laugardaginn 25. október. Græna landið Innbrot | Reynt var að brjótast inn í tölvufyrirtæki við Hringbraut í Reykjanesbæ aðfaranótt föstudags. Reynt hafði verið að spenna upp glugga og notaður glerskeri til að gera gat á gluggann. Viðvörunar- kerfi verslunarinnar fældi manninn frá og handtók lögreglan ungan pilt skammt frá. Í fórum hans fannst glerskeri og var hann handtekinn, grunaður um tilraun til innbrots.   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.