Morgunblaðið - 24.10.2003, Qupperneq 26
AUSTURLAND
26 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
#6 HALLGRÍMSKIRKJA
ICELAND REVIEW
ÁSKRIFTARSÍMI 512-7517
askrift@icelandreview.com
HVERS VEGNA ÍSLAND?
40 ÁSTÆ‹UR
Borgarnesi | Sýningin Brot stendur
yfir í nýju galleríi, Galleríi Brák í
Brákarey. Þar eru sýnd verk Davíðs
Þórðarsonar sem er 88 ára gamall
en dóttir hans, Ólöf Sigríður, á og
rekur galleríið ásamt glervinnustofu
í Brákarsölum. Davíð starfaði við
múrverk lengst af og byrjaði að fást
við glerlist þegar hann hætti að
vinna sökum aldurs. Fyrstu kynni
hans af glervinnu voru hjá Fé-
lagsstarfi aldraðra í Kópavogi þar
sem hann lærði að vinna með tinað
gler. Fyrir sex árum lærði hann
glervinnslu hjá Ólöfu dóttur sinni
og hefur að sögn framleitt gífurlega
mikið af allskyns glerverki.
,,Ég hef aldrei lært neitt form-
lega, fór bara að fikta og fikra mig
áfram,“ segir Davíð, ,,og ég vil ekki
heyra talað um list.“ Þessi hógværi
listamaður segist aldrei vera
ánægður með verkin sín þegar hann
er að vinna þau en finnst þau í lagi
síðar. Þetta er fyrsta sýningin hans
og stendur Ólöf dóttir hans alfarið
fyrir sýningunni. ,,Fyrst var ég ekki
hrifinn af þessu en hef látið það af-
skiptalaust. Mér fannst þetta ekki
sýningarhæft en svo var þetta alls
staðar fyrir mér,“ segir Davíð.
Hann hefur síðustu 4–5 árin unnið í
gler nánast daglega og búið til allt
að fjóra hluti á dag.
Sýnir til mánaðamóta
,,Ég hef ekki hugmynd um
hversu mörg stykki ég hef unnið en
ég giska á að um tveir þriðju hlutar
séu hér á sýningunni.“ Allt hráefni
fær Davíð frá Ispan og endurvinnur
glerið í ýmiss konar form. Davíð
segist vera sterkur í höndunum en
fæturnir séu farnir að gefa sig. Þess
vegna hefur hann ekki getað stund-
að listiðn sína síðustu þrjá mánuði,
en glervinnan krefst þess að staðið
sé í fæturna. Davíð segir að sig
langi að byrja aftur að vinna með
tinað gler en veit ekki hvað verður
því hann sé orðinn skjálfhentur.
Honum finnst skemmtilegt að vinna
við glerið en segist ekki þola neinn
nálægt sér á meðan og vill þá helst
vera einn. Vinnuaðstaða Davíðs er í
Reykjavík og þar hefur hann
brennsluofn. Sýningin í Brák-
arsölum er opin virka daga frá kl.
17–20 og stendur formlega til mán-
aðamóta, en verk hans verða fáan-
leg áfram í galleríinu.
Vill ekki heyra talað um list
Ólöf Sigríður Davíðsdóttir ásamt föður sínum, Davíð Þórðarsyni. Davíð Þórðarson í Galleríi Brák.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
LANDIÐ
Enga biðlista | Bæjarstjórn
Fjarðabyggðar hefur ákveðið að
mynda starfshóp til að leysa úr
vanda vegna biðlista við leikskólann
í Neskaupstað.
Enn eru nokkur leikskólapláss
laus á Eskifirði en leikskólinn á
Reyðarfirði er fullsetinn, en annar
þó þörfum að svo komnu máli. Verið
er að hanna viðbyggingu við hann.
Fyrsti hafnafundurinn | Hafna-
fundurinn verður haldinn í Reykja-
vík 31. október næstkomandi. Er
þetta fyrsti hafnafundurinn, segir á
heimasíðu Sambands ísl. sveitarfé-
laga.
Á 33. ársfundi hafnasambandsins,
sem haldinn var á Akranesi í októ-
ber 2002, voru samþykktar laga-
breytingar sem gera ráð fyrir því að
hafnafundir séu haldnir annað hvert
ár á móti hafnasambandsþingum.
Í AUSTURBYGGÐ, sem áður var Búða-
hreppur á Fáskrúðsfirði, hefur eins og
annars staðar í fjórðungnum ríkt veð-
urlag eins og að vori væri, þó heldur sé
nú tekið að kólna. Þeir Guðmundur Jak-
obsson og Pétur Björgvinsson, starfs-
menn áhaldahúss bæjarins, voru að
vinna að lagfæringum á ruslakössum á
dögunum og létu vel af veðurblíðunni
enda í nógu að snúast.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Veðurlag eins og
að vori væri
Á SUNNUDAG frumsýnir Leik-
félag Fljótsdalshéraðs verðlauna-
leikritið Gaukshreiðrið í Valaskjálf
á Egilsstöðum. Leikstjóri er Odd-
ur Bjarni Þorkelsson, en um þrjá-
tíu manns taka þátt í sýningunni.
Tónlist er eftir Charles Ross og
Unnur Sveinsdóttir hannar leik-
mynd. Gaukshreiðrið (One Flew
Over the Cuckoo’s Nest) er leik-
verk eftir samnefndri bók Kens
Keseys í leikgerð Dales Wasser-
mans. Kesey öðlaðist heimsfrægð
fyrir skáldsöguna, sem hann skrif-
aði árið 1962, en leikgerð bók-
arinnar aflaði henni feikilegra vin-
sælda. Margir þekkja einnig hina
frábæru kvikmynd Milos Formans
sem hlaut fern Óskarsverðlaun ár-
ið 1975.
Endurspeglar uppreisnaranda
Gaukshreiðrið endurspeglar á
óviðjafnanlegan hátt þann upp-
reisnaranda sem ríkti í vestrænum
heimi á seinni helmingi sjöunda
áratugar síðustu aldar. Vistmaður
á ríkisreknu geðsjúkrahúsi espar
sjúklinga á stofnuninni með sér í
uppreisn gegn því sem hann telur
vera miskunnarlaust harðstjórn-
arkerfi. Kerfið bregst ókvæða við
og ekkert er látið ógert til að
brjóta uppreisnina á bak aftur,
hún fær vægast sagt óvæntan og
óhugnanlegan endi og verður upp-
hafsmanni hennar dýrkeypt.
Gaukshreiðrið er í senn ógn-
vekjandi, grátbroslegt og spreng-
hlægilegt og þetta samspil er fyrst
og fremst ástæðan fyrir hinum
feikimiklu vinsældum þessa heims-
fræga verks. Þetta er þriðja sýn-
ingin sem Oddur Bjarni Þorkels-
son leikstýrir hjá Leikfélagi
Fljótsdalshéraðs, en hann leik-
stýrði My Fair Lady árið 1999 og
Þreki og tárum árið 2002. Gauks-
hreiðrið er sýnt í Valaskjálf á Eg-
ilsstöðum og hefst frumsýningin á
sunnudag kl. 17.
Gaukshreiðrið í Valaskjálf
Ljósmynd/ÁÓ
„Þegar eitthvað brestur í fólki og það verður veikt á geði, glittir í eitthvað miklu eldra og djúpstæðara en við
viljum kannast við.“ Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir Gaukshreiðrið á sunnudag.
Ógnvekjandi, sprenghlægilegt og grátbroslegt
Lagarfljótsormurinn | Orms-
skrínið, félag um uppbyggingu starf-
semi sem grundvallast á sögu,
menningu og náttúrufari Fljótsdals-
héraðs, heldur aðalfund sinn á morg-
un. Félagið hefur látið hanna og
smíða upplýsingaskilti um Lag-
arfljótsorminn og eru þau á þremur
stöðum við Fljótið þar sem til orms-
ins hefur sést gegnum tíðina; við
Klifá, Hafursá og í Atlavík. Mun ætl-
unin að setja upp fleiri slík í framtíð-
inni. Félagið er einnig að opna
heimasíðu um Lagarfljótsorminn.
Fundurinn er haldinn í Skriðu-
klaustri og hefst kl. 14.
Tangi hf. | Afl-starfsgreinafélag
hyggst kaupa hlut í Tanga hf. á
Vopnafirði. Tilgangur kaupanna er
að renna stoðum undir atvinnu fé-
lagsmanna starfsgreinafélagsins á
Vopnafirði. Samkvæmt Jóni Inga
Kristjánssyni, formanni Afls, er um
einnar milljónar króna hlut að ræða
og verður hann seldur aftur við
fyrsta hentugleika. Eigendur Tanga
eru að kaupa hlut Eskju í félaginu til
baka og stendur lokagreiðsla fyrir
dyrum 1. nóvember, alls 275 millj-
ónir króna.
Útboð | Hætt hefur verið við útboð
á fjölnotasal við Íþróttamiðstöðina á
Egilsstöðum. Verkið hefur tvisvar
verið boðið út af Austur-Héraði. Í
fyrra skiptið barst ekkert tilboð og í
hið seinna tilboð sem þótti ekki við-
unandi. Hefur bæjarstjórn ákveðið
að semja beint við verktaka en
kostnaðaráætlun við verkið hljóðar
upp á 24 milljónir króna. Stefnt er að
því að hægt verði að taka salinn, sem
verður byggður ofan á áhorf-
endastúkur við sundlaug, í notkun
næsta sumar.
Vatnsréttindi | Sveitarstjórn Norður-
Héraðs heldur í kvöld fund um vatnsrétt-
indi í Jökulsá á Brú og Lagarfljóti. Í und-
irbúningi er að taka ákvörðun um verð-
mæti vatnsréttinda vegna byggingar
Kárahnjúkavirkjunar. Verður á fundinum
skoðuð réttarstaða og sjónarmið sem
koma til greina vegna væntanlegra bóta
varðandi vatnsréttindi og skiptingu þeirra
á milli landeigenda. Kynningarbæklingi
hefur verið dreift á öll heimili á Norður-
Héraði og í Fljótsdal, en þar verður sams-
konar fundur haldinn í næstu viku.
Vera |Leikhópurinn Vera á Fáskrúðs-
firði verður þátttakandi í stuttverkahátíð-
inni Margt smátt í Borgarleikhúsinu á
morgun. Á hátíðinni koma fram leikarar
frá ýmsum félögum Bandalags íslenskra
leikfélaga og sýna einþáttunga. Framlag
Veru er einþáttungurinn Einfalt ævintýr
eftir Guðjón Sigvaldason, í leikstjórn
Snorra Emilssonar. Leikarar eru Guð-
björg Steinsdóttir, Bergsteinn Ingólfsson,
Ásta Hlín Magnúsdóttir og Hafþór Eide
Hafþórsson.
Málbjörg |Félagið Málbjörg held-
ur á morgun fræðslufund í Grunn-
skólanum á Egilsstöðum kl. 14.30.
Málbjörg er félag um stam og er
fundurinn haldinn í tilefni alþjóðlegs
upplýsingadags um stam sem var 22.
október sl.