Morgunblaðið - 24.10.2003, Side 50
DAGBÓK
50 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag eru væntanleg
Richmold Park, Bjarni
Sæmundsson og Laug-
arnes.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og jóga,
kl. 14 bingó. Hársnyrt-
ing, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16.30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag í
mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 bað, kl. 9–12 vefn-
aður, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 13–16
vefnaður og spilað í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðslustofan
opin, kl. 14 söngstund.
kl. 9–16.30 púttvöll-
urinn opinn þegar veð-
ur leyfir.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, myndlist
o.fl., kl. 9.30 gönguhóp-
ur, kl. 14 spilað.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 „opið
hús“ spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 9 og 13
vinnuhópar, gler.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kl. 9
Moggi, rabb og kaffi.
Leikfimi í Bjarkarhúsi
kl. 11.30. Tréútskurður
og brids kl. 13.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Útvarp Saga
94,3 í dag kl. 12.20.
Þáttur um málefni eldri
borgara.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sími 575 7720. Kl. 9–
16.30 vinnustofur opn-
ar, m.a. almenn handa-
vinna og föndur. Kl. 10
„Gleðin léttir limina“,
létt ganga o.fl. Frá há-
degi spilasalur opinn.
Kl. 13.30 kóræfing.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 myndvefnaður,
kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan er
opin frá kl. 9–17 virka
daga. Gleðigjafarnir
syngja.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla.
Bingó kl. 14.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
14.30 Föstudagskaffi.
Hársnyrting. Fótaað-
gerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl.10–11
kántrídans. Kl. 13.30
sungið við flygilinn við
undirleik Sigurgeirs,
kl. 14.15 tískusýning,
vetrarfatnaður á dömur
frá versluninni Takt,
Laugavegi. Veislukaffi,
allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og myndlist, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl.
12.30 leir, kl. 13.30
bingó.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Borgfirðingafélagið í
Reykjavík. Spilum fé-
lagsvist á morgun,
laugardag, kl. 14 að
Síðumúla 37.
Framsóknarfélag Mos-
fellsbæjar. Fös. 17. okt.
kl. 20.30 verður spiluð
félagsvist í Framsókn-
arsalnum að Háholti 14,
2. hæð. Veglegir vinn-
ingar, allir velkomnir.
Minningarkort
Barnaspítala Hrings-
ins. Upplýsingar um
minningarkort Barna-
spítalasjóðs Hringsins
fást hjá Kvenfélagi
Hringsins í síma 551-
4080. Kortin fást í flest-
um apótekum á höf-
uðborgarsvæðinu.
Bergmál, líknar- og
vinafélag. Minning-
arkort til stuðnings or-
lofsvikna fyrir krabba-
meinssjúka og
langveika fást í síma
587-5566, alla daga fyr-
ir hádegi.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju.
Minningarkort Graf-
arvogskirkju eru til
sölu í kirkjunni í síma
587 9070
eða 587 9080. Einnig er
hægt að nálgast kortin í
Kirkjuhúsinu,
Laugavegi 31, Reykja-
vík.
Í dag er föstudagur 24. október,
297. dagur ársins 2003. Orð dags-
ins: Og orð hans býr ekki í yður,
því að þér trúið ekki þeim, sem
hann sendi.
(Jóh. 5, 38.)
Jóhanna Sigurðardóttiralþingismaður er
fyrsti flutningsmaður
frumvarps um að aldurs-
mörk til kaupa og neyslu
á léttvíni og bjór verði
lækkuð úr tuttugu árum í
átján.
Jóhanna færir rök fyrirefni frumvarpsins á
heimasíðu sinni. „Við 18
ára aldurinn ræður unga
fólkið sjálft öllum sínum
persónulegu högum og
löggjafinn hefur veitt því
fullt fjárræði og sjálf-
ræði. Unga fólkið hefur
fengið kosningarétt og
kjörgengi til Alþingis og
sveitarstjórna og getur
m.a. greitt atkvæði um
hvort opna eigi áfeng-
isútsölur. Átján ára getur
fólk gift sig og stofnað
heimili, en að vísu ekki
keypt kampavínið í brúð-
kaupsveisluna. Því er
einnig treyst fyrir þeirri
miklu ábyrgð sem felst í
uppeldi barna. Ekki vefst
fyrir löggjafanum að
heimila þeim að aka bíl
17 ára, og bera þannig
ábyrgð á öryggi fólks í
umferðinni, en flestar
þjóðir sem treyst hafa
unga fólkinu til að um-
gangast áfengi af skyn-
semi hafa þó ekki leyft
þeim að aka bíl fyrr en
við 18 ára aldur. Unga
fólkið má líka taka
bankalán, gerast ábyrgð-
armenn að fjárskuldbind-
ingum annarra og er
treyst fyrir kreditkorti.
Það má fara inn á vínveit-
ingastaði, en ekki kaupa
eða neyta áfengis þar, þó
unga fólkið megi selja
áfengi á slíkum stöðum.“
Með því að lækkaáfengiskaupaald-
urinn væri verið að
breyta lögum sem ekki er
farið eftir og erfitt er að
framfylgja. Lög sem ekki
er farið eftir, mörgum
finnst óréttlát og óskyn-
samleg og örðugt er að
framfylgja eru ekki góð
lög. Engin vörn er því í
þessu ákvæði áfengislag-
anna. Þvert á móti má
velta fyrir sér hvort þessi
ákvæði, sem fólk virðir
ekki, ýti undir ólöglegan
innflutning á áfengi,
aukna neyslu á bruggi og
landasölu og jafnvel
fíkniefnaneyslu ung-
menna. Í umsögn Lög-
reglustjórans í Reykjavík
um lækkun á áfeng-
iskaupaaldri kemur fram
að rannsóknir bendi til
þess að við 18 ára aldur
sé almenn drykkja ung-
menna þegar hafin og því
hefði breytingin senni-
lega lítil áhrif á það hve-
nær drykkja hefst.“
Þessi breyting á áfeng-islöggjöfinni sem nú
er lögð til felur í sér
traust til unga fólksins og
með henni væri verið að
stuðla að viðhorfsbreyt-
ingu með því að beina
neysluvenjum þeirra frá
sterku áfengi að veikara.
Auk þess er verið að veita
íslenskum ungmennum
sömu réttindi og ná-
grannaþjóðir okkar hafa
fyrir löngu gert og treyst
þar með unga fólkinu til
að umgangast áfengi af
skynsemi.“
STAKSTEINAR
Lækkun áfengis-
kaupaaldurs
Víkverji skrifar...
YFIRLEITT fer það í taug-arnar á Víkverja að sjá
áletranir og skilti á útlendum
tungumálum á Íslandi. Vík-
verja finnst að á Íslandi eigi
skilti að vera á íslenzku. Hins
vegar er svo komið, að skilti á
ensku eru úti um allt, ekki sízt í
búðum, þar sem varla virðist
vera hægt að halda útsölu
nema það standi „sale“ stórum
stöfum utan á búðinni – sér-
staklega ef um einhverja al-
þjóðlega keðju er að ræða.
Þess vegna gleður það nú
orðið hjarta Víkverja að sjá t.d.
skilti á einhverju skandinav-
ísku málanna, af því að það er
tilbreyting frá enskunni, jafn-
vel þótt íslenzkan verði út-
undan. Sums staðar eru skilti
með áletruninni „nu betjenes“
upp á dönsku og svo númeri næsta
manns í röðinni þar sem búið er að
koma upp biðraðakerfi með núm-
erum. Víkverja hefur raunar alltaf
fundizt einkar viðeigandi að þessi
skilaboð væru á máli gömlu herra-
þjóðarinnar, til að undirstrika hvað
biðraðamenningin er Íslendingum
framandi. Svo kættist Víkverji líka
þegar hann kom í Nóatún í Aust-
urveri, þar sem hægt er að draga út
skilti á afgreiðslukössunum með
sænsku áletruninni „Nästa kassa,
tack“. Þetta er auðvitað svo líkt ís-
lenzku að tekur því varla að þýða
það.
HITT þykir Víkverja verraþegar rangt er farið með
erlend tungumál á opinberum
vettvangi. Það heyrir t.d. til al-
gerra undantekninga ef heitið á
franska brauðinu, baguette, er
rétt skrifað. Í flestum búðum
og meira að segja líka á veit-
ingahúsum er það einhverra
hluta vegna kallað baquette.
Eins og Víkverji hefur áður
bent á, eru alveg nógu mörg q í
frönsku, þótt Íslendingar hjálpi
ekki Frökkum að bæta fleirum
við.
x x x
EN TALANDI um baguette-brauð: Til skamms tíma
fengust í samlokuborði Hag-
kaupa í Kringlunni baguette-
samlokur með ýmiss konar
fersku áleggi. Þetta voru vandaðar
samlokur úr nýbökuðu brauði (sem
reyndar var iðulega kallað baquette
á umbúðunum) og þær einu, sem
Víkverja fundust almennilega ætar í
þessu samlokuborði. Nú eru þær
horfnar og Víkverji hefur ekki fund-
ið aftur taktinn í samlokukaupum.
Morgunblaðið/Ásdís
Baguette, ekki baquette.
LÁRÉTT
1 dans, 4 fífla, 7 agnar, 8
slítum, 9 aukreitis, 11
samsull, 13 þjótum, 14
trylltur, 15 málmur, 17
sníkjudýr, 20 bókstafur,
22 sjófugl, 23 hátíðin, 24
nam, 25 miskunnin.
LÓÐRÉTT
1 óreglu, 2 silungur, 3
sleif, 4 gaffal, 5 örðug, 6
sárum, 10 umfang, 12
skaut, 13 sómi, 15 aldin,
16 rómar, 18 vitlaust, 19
hinn, 20 geðvonska, 21
rándýr.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 nautshaus, 8 sunna, 9 lesin, 10 ryk, 11 kompa,
13 sytra, 15 hatts, 18 endar, 21 kyn, 22 lesti, 23 gnótt, 24
niðurlúta.
Lóðrétt: 2 afnám, 3 tjara, 4 hólks, 5 umsát, 6 ósek, 7
unna, 12 pot, 14 yxn, 15 held, 16 tossi, 17 skinu, 18 engil,
19 drótt, 20 rétt.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Í VELVAKANDA mið-
vikudaginn 22. október birt-
ist stakan Éttu það sem úti
frýs. Nokkrir lesendur Vel-
vakanda hafa hringt inn og
vilja þeir koma á framfæri
sinni útgáfu af stökunni.
Guðbjörg sendi þessa út-
gáfu:
Éttu það sem úti frýs,
fyrir utan paradís,
þar er bæði maðkur og mýs,
mannaskítur og færilýs.
Og svo er þessi svona:
Hvað er það sem úti frýs
fyrir utan Paradís
það eru bæði maðkar og mýs
mannaskítur og færilýs.
Og einn lesandi sagðist
hafa lært sína útgáfu úr
Þjóðsögum Bjarna Þor-
steinssonar sem er svona:
Góður þykir mér grauturinn
hennar Þóru
þó í honum séu maðkar og mýs
mannaskítur og færilýs.
Dýrahald
Dimma er týnd
DIMMA er nett og grönn
læða, alveg svört með nokk-
ur hvít hár á hálsi. Hún var
ólarlaus og ómerkt. Hún
týndist frá Sigurhæð 7 í
Garðabæ þriðjudaginn 14.
okt. Þeir sem hafa orðið
hennar varir hafi samband
við Guðrúnu Evu í síma
565 7417 og 820 7417.
Fundarlaun.
Páfagaukur týndist
HVÍTUR og blár páfagauk-
ur flaug út um glugga í
Breiðholtinu laugardaginn
18. október. Þeir sem hafa
orðið varir við fuglinn hafi
samband í síma 567 3161 og
663 3084.
Músi er týndur
MÚSI er hvítur og gulur
fressköttur sem týndist frá
heimili sínu að Lálandi 6,
Fossi. Hann er vel merktur,
með endurskinsól þar sem
nafn hans, heimili og síma-
númer er tilgreint. Hann er
einnig eyrnamerktur. Ef
einhver hefur orðið hans
var þá vinsamlega látið vita
í síma 553-5100. Fundar-
laun.
Emil er týndur
STÓR, svartur og hvítur
fress hvarf frá Klettási 7,
Garðabæ sl. sunnudag.
Hann er merktur með gulri
ól og eyrnamerktur. Hann
er með skarð í báðum eyr-
um. Við viljum biðja fólk í
nýja Ásahverfinu að kíkja í
geymslur og vinnuskúra.
Hans er sárt saknað. Þeir
sem geta gefið upplýsingar
hafi samband við Dagrúnu í
síma 695 3454 eða 565 6682.
Maja er týnd
MAJA er hvít síðhærð sí-
amskisa með gráa grímu,
lappir og skott. Hún slapp
út á föstudagskvöld frá
heimili sínu að Brekkustíg
10 í vesturbænum í Reykja-
vík. Hún sást niður við
Vesturgötu á sunnudag en
þegar gáð var að henni var
hún farin. Ef einhver hefur
séð hana vinsamlegast
hringið í Möggu í síma
698 6244 hvenær sem er.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Éttu það sem
úti frýs
Morgunblaðið/Ásdís