Morgunblaðið - 24.10.2003, Síða 51
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert glaðlynd/ur og kannt
að njóta lífsins. Þú átt þó
einnig þínar alvarlegri hliðar
og hættir jafnvel til full-
komnunaráráttu. Þú þarft
að taka mikilvæga ákvörðun
á næsta ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er góður dagur til að líta
inn á við og íhuga alvarleg
málefni. Notaðu tækifærið til
að ná sambandi við þinn innri
mann.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Á næstu vikum muntu fá góð
tækifæri til að útskýra hlutina
fyrir maka þínum og nánustu
vinum. Þetta er rétti tíminn til
að ræða erfiðleika í sam-
böndum þínum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú átt auðvelt með að einbeita
þér og því hentar dagurinn vel
til erfiðrar nákvæmnisvinnu.
Þú ættir að nota næstu vik-
urnar til að ræða vandamál og
deilur við samstarfsfólk þitt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er létt yfir þér og þig
langar til að leika þér og
stríða fólkinu í kringum þig.
Getur verið að þú sért ást-
fangin/n?
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Taktu til við breytingar og
endurbætur á heimilinu. Þú
munt eiga mikilvægar sam-
ræður við fjölskylduna á
næstu vikum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þetta er ekki rétti tíminn til
að vera heima og taka það ró-
lega. Það er mikið að gera hjá
þér og þú munt njóta þess að
sinna því sem fyrir liggur.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert óvenju upptekin/n af
fjármálum og viðskiptum. Á
sama tíma ertu óvenju eyðslu-
söm/samur. Haltu öllum kvitt-
unum til haga.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Bæði sólin og merkúr eru í
merkinu þínu og því hefurðu
mikla þörf fyrir að tala við
aðra. Nú er góður tími til að
koma skoðunum þínum á
framfæri.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú munt njóta þess að vera
ein/n með sjálfri/um þér og
sökkva þér niður í rannsóknir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Vertu óhrædd/ur við að deila
hugsunum þínum með öðrum.
Þú munt að öllum líkindum fá
hjálplegar athugasemdir frá
þeim sem þú segir frá vonum
þínum og framtíðardraumum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Gerðu áætlanir varðandi
starfsframa þinn. Endurskoð-
aðu það sem þú hefur verið að
gera og íhugaðu hvort það
hafi skilað tilætluðum árangri.
Hugaðu síðan að öðrum leið-
um.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Næstu vikurnar henta ein-
staklega vel til náms og rann-
sókna. Þú ert fróðleiksfús og
leitar svara við spurningum
þínum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 51
DAGBÓK
SVÍARNIR ungu, Nyström
og Bertheau, voru í góðu
formi í leiknum við Pólverja
í bikarkeppni bridsklúbba í
Róm. Hér vinna þeir vel
saman til að skapa stór-
sveiflu:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ D3
♥ 10
♦ ÁD10982
♣K842
Vestur Austur
♠ 92 ♠ 104
♥ ÁD6 ♥ KG9742
♦ K7543 ♦ --
♣Á65 ♣DG73
Suður
♠ ÁKG8765
♥ 83
♦ G6
♣109
Vestur Norður Austur Suður
Nyström Wojcick Bertheau Poletylo
1 grand Pass 4 hjörtu 4 spaðar
5 hjörtu 5 spaðar Dobl Pass
Pass Pass
Nyström vekur á 12–14
punkta grandi og Bertheau
stekkur beint í fjögur
hjörtu. Baráttan endar svo í
fimm spöðum dobluðum.
Eftir þessar sagnir gat
Nyström lagt niður hjarta-
ásinn í byrjun. Bertheau
vildi tígul og ekkert annað,
og „öskraði“ í litnum með
því að láta hjartakónginn
undir ásinn! Nyström lét
ekki segja sér þá sögu tvisv-
ar: hann spilaði smæsta tígl-
inum, fékk lauf til baka og
gaf makker aðra stungu.
Tveir niður og 500 til Sví-
anna.
Á hinu borðinu fengu
Sylvan og Sundelin að spila
fjóra spaða og vinna:
Vestur Norður Austur Suður
Kwiecien Sylvan Pszczola Sundelin
1 tígull Pass 1 hjarta 3 spaðar
Pass 4 spaðar Allir pass
Vestur kaus að trompa út
og þá var vandalaust fyrir
Sundelin að taka ellefu
slagi. 650 og 15 IMPar til
Svía.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
ÁRNAÐ HEILLA
LÍKAMI
Líkami þessi leiðist mér,
svo lengi sem ég hjari.
Honum kenni’ eg allt, sem er
illt í mínu fari.
Væri’ hann farinn fjandans til,
flygi sálin mín í gegn
um freistinganna fellibyl
sem fugl í gegnum þoku og regn.
Páll Ólafsson
LJÓÐABROT
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Rxe4 6. d4 b5 7.
Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9. c3 Bc5
10. Dd3 0-0 11. Rbd2 f5 12. exf6
Rxf6 13. a4 Hb8 14. axb5 axb5
15. Ha6 Dd7 16. Rg5 Bb6 17.
Rxe6 Dxe6.
Staðan kom upp í Evr-
ópukeppni landsliða. Hinn
gamalreyndi áskorandi,
Andrei Sokolov (2.584)
hafði hvítt gegn Glenn Fle-
ar (2.516). 18. Re4! Vinnur
peð og nokkru síðar skák-
ina. 18. – Dxe4 19. Dxe4
Rxe4 20. Bxd5+ Kh8 21.
Bxe4 Re5 22. Be3 Bxe3 23.
fxe3 Hxf1+ 24. Kxf1 Rc4
25. Ke2 Rxb2 26. Hc6 g6
27. Hxc7 b4 28. cxb4 Hxb4
29. Bd5 Ra4 30. e4 Rb6 31.
Ke3 g5 32. Be6 h6 33. Kf3
Ra4 34. Kg4 og svartur
gafst upp. Fyrri hluti Ís-
landsmóts skákfélaga hefst
í Menntaskólanum í
Hamrahlíð í kvöld kl. 20.
Allir skákáhugamenn eru
hvattir til að koma og fylgj-
ast með þessari miklu
skákhátíð.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, föstudaginn 24. október, eiga 50
ára brúðkaupsafmæli hjónin Guðrún M. Kristjánsdóttir og
Þorvaldur Snæbjörnsson, Kotárgerði 18, Akureyri. Þau
eru stödd í Portúgal.
90 ÁRA afmæli. 30.október nk. verður
níræður Sveinn Stefánsson,
fv. lögregluþjónn, til heim-
ilis að Hlíðarhúsum 5,
Reykjavík. Í tilefni afmæl-
isins tekur hann á móti vin-
um og vandamönnum
sunnudaginn 26. október kl.
15 í sal Flugvirkjafélagsins
að Borgartúni 22, 3. hæð.
70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 24. októ-
ber, er sjötugur Guð-
brandur Þórðarson, Sunnu-
braut 8, Búðardal. Hann
tekur á móti gestum laug-
ardaginn 25. október kl. 15–
18 í safnaðarheimili Bú-
staðakirkju.
70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 24. októ-
ber, er sjötug Hulda G. Sig-
urðardóttir, aðstoð-
arskólastjóri, Gauksási 2,
Hafnarfirði. Eiginmaður
hennar er Aðalsteinn Finn-
bogason, stýrimaður. Hún
verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 24. októ-
ber, er sjötug Helga Karls-
dóttir hjúkrunarkona, Of-
anleiti 19, Reykjavík. Hún
og eiginmaður hennar,
Gunnar Ingimarsson, taka
á móti gestum í félagsheim-
ili Rafveitunnar í Elliðaár-
dal í dag milli kl. 18 og 20.
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt
www.sokkar.is
Kynnum vetrartískuna
frá OROBLU
í dag kl. 14-18
í Lyf og heilsu Melhaga,
á morgun kl. 13-17
í Lyf og heilsu Kringlu.
20%
afsláttur
af öllum
Oroblu
vörum
20% afsláttur
í Domus föstudag
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju.
Hákon, sími 898 9396.
ÍBÚÐAREIGENDUR
Í BREIÐHOLTI
Ég hef verið beðinn um að leita eftir
4ra–5 herb. íbúð í Breiðholti. Æskilegt
að eignin sé í góðu ástandi að utan.
Verðhugmynd 11,0-12,5 millj. Áhuga-
samir vinsamlegast hafið samband og ég
mun fúslega veita nánari upplýsingar.
Með kveðju.
KYNNINGARFUNDUR UM
BORGARALEGA FERMINGINGU
Kynningarfundur fyrir unglinga, sem áhuga hafa á borgaralegri
fermingu vorið 2004 og aðstandendur þeirra, verður haldinn
laugardaginn 25. október kl. 11.00 - 12.00 í Kvennaskólanum,
Fríkirkjuvegi 9, nýbyggingu á 1. hæð.
Laugavegi 54, sími 552 5201
Peysur
2 fyrir 1
Buxur
áður 4.990
nú 2.990
Stærðir S-3XL
Gallabuxur
2.990
Þú nefnir þetta ekkert
við manninn minn.
Hann er svo hræði-
lega afbrýðisamur …