Morgunblaðið - 24.10.2003, Side 54

Morgunblaðið - 24.10.2003, Side 54
ÍÞRÓTTIR 54 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ RÚMENINN Ion Geolgau er ofarlega á blaði hjá Frömurum yfir mögulega þjálfara knatt- spyrnuliðs þeirra fyrir komandi keppn- istímabil. Geolgau er í hópi um 35 erlendra þjálfara sem sótt hafa um starfið hjá Fram og að sögn Brynjars Jóhannessonar, fram- kvæmdastjóra Fram, Fótboltafélags Reykja- víkur, þykir Geolgau einna álitlegastur. „Hann hefur þjálfað lengi á þessum slóðum og veit hvað knattspyrnan hérna gengur út á, auk þess sem hans ferilskrá lítur mjög vel út. Við munum ræða við hann innan tíðar,“ sagði Brynjar en Geolgau þjálfaði lið HB í Fær- eyjum árin 1998 til 2002. Umsóknir frá enskum þjálfurum hafa streymt til Framara síðustu daga og um 20 slíkir eru búnir að sækja um starfið. Þá hafa komið sex umsóknir frá Hollandi, fimm frá Danmörku og tvær frá Þýskalandi. Rúmeni líkleg- astur hjá Fram REGINA Jacobs, sem hefur keppt undanfarin ár með góðum árangri í millivegalengdum í frjálsíþróttum, er ein þeirra sem hefur notað hið nýja THG-steralyf en það var Washington Post sem greindi frá því að Jacobs hefði fallið á lyfjaprófi. Jacobs er fer- tug og hefur unnið bandaríska meist- aramótið 15 sinnum í ýmsum vega- lengdum en hún varð fyrst kvenna til þess að hlaupa 1500 metra undir 4 mínútum innandyra. Á heimsmeist- aramótinu í Birmingham hljóp hún á 3.59.98, mín. Bandaríska lyfjaeftirlitið hefur sagt að fjórir íþróttamenn hafi fallið á lyfjaprófi vegna THG en fram að þessu hafa aðeins nöfn kúluvarp- arans Kevin Toth og Jacobs verið nefnd. Jacobs sögð hafa fallið ÓLAFUR Jóhannesson og Leifur S. Garðarsson verða áfram þjálfarar karlaliðs FH í knattspyrnu. Samningar þeirra runnu út eftir tímabilið og undanfarna daga hafa þeir verið í viðræðum við FH-inga sem lauk í gær með því að þeir gerðu nýjan eins árs samning við liðið. Ólafur og Leifur náðu mjög góðum árangri með Hafnarfjarðarliðið á nýliðinni leiktíð en FH-ingar urðu í öðru sæti á Íslands- mótinu og komust í bikarúrslitin þar sem þeir töpuðu fyr- ir ÍA.FH-ingar hafa sömuleiðis gengið frá samningum við alla þá leikmenn sem léku með liðinu í sumar að und- anskildum Dananum Allan Borgvardt sem hyggst reyna fyrir sér á öðrum vígstöðvum. Takist það hins vegar ekki hefur Borgvardt gefið FH-ingum þau svör að hann leiki með þeim á næstu leiktíð. Jóhann til FH-inga? Jóhann Þórhallsson leikmaður Þórs á Akureyri gæti verið á leið til FH en hann hefur verið í viðræðum við for- ráðamenn FH-liðsins undanfarna daga. Ólafur og Leifur um kyrrt hjá FH STEVE Coppell, knattspyrnustjóri Read- ing, sagði í gær að talsverðar líkur væru á að Ívar Ingimarsson færi beint í byrj- unarlið sitt í kvöld en liðið sækir þá Shef- field United heim í ensku 1. deildinni. Ív- ar skrifaði undir samning við Reading í gær til vorsins 2006 en félagið keypti hann af Wolves fyrir 13 milljónir króna. „Vörnin hefur verið þunnskipuð hjá okkur síðan ég kom og Ívar færir okkur því aukna vigt þar. Ég vona að honum líði vel hjá okkur og þróist hratt í þann leikmann sem ég veit að hann getur orð- ið. Ég vann með Ívari í heilt ár hjá Brent- ford og hann lék þar frábærlega í stöðu miðvarðar. Síðan styrkti hann okkur mikið hjá Brighton í fyrravetur,“ sagði Coppell á heimasíðu Reading eftir að samningurinn var undirritaður. Ívar beint í lið Reading? FÓLK  ÁSTHILDUR Helgadóttur, fyrir- liði landsliðsins í knattspyrnu, kom Malmö FF á bragðið með marki þegar liðið lagði Landvetter í und- anúrslitum bikarkeppni kvenna í Svíþjóð, 3:1. Ásthildur og samherj- ar mæta Umeå í úrslitum.  JÓHANNES Harðarson, knatt- spyrnumaður frá Akranesi, er kom- inn til IFK Gautaborg í Svíþjóð þar sem hann verður til reynslu í viku. Jóhannes hefur verið í herbúðum hollenska úrvalsdeildarliðsins Groningen frá haustinu 2001 en að- eins spilað þrjá deildaleiki með því.  ZORAN Panic, knattspyrnumað- ur frá Serbíu-Svartfjallalandi sem hefur leikið með HK undanfarin þrjú ár, er genginn til liðs við 1. deildarlið Hauka. Panic, sem er 32 ára miðjumaður, skoraði 7 mörk fyrir HK í 1. deildinni í sumar, sex þeirra úr vítaspyrnum.  ÞÝSKU blöðin Berliner Zeitung og Kicker nefnir nafn Ásgeirs Sig- urvinssonar, sem einn af þeim sem hafa komið til tals sem þjálfari Herthu Berlín, ef Huub Stevens missir starf sitt. Norðmaðurinn Kjetil Rekdal, 34 ára, sem er fyrr- verandi leikmaður Herthu, hefur einnig verið nefndur.  ÁSGEIR Sigurvinsson sagði í við- tali við Kicker að hann hafi ekkert heyrt frá Herthu og hann væri samningsbundinn sem landsliðs- þjálfari Íslands til ársins 2005.  EIRÍKUR Önundarson gat ekki leikið með ÍR gegn Hamri í úrvals- deildinni í körfubolta í gærkvöld vegna veikinda.  TYRKNESKI knattspyrnumaður- inn Alpay var í gær leystur undan samningi sínum við enska úrvals- deildarfélagið Aston Villa, en hann átti að renna út næsta vor. Alpay lenti í útistöðum við David Beck- ham í landsleik Tyrklands og Eng- lands fyrr í þessum mánuði og er af þeim sökum afar óvinsæll í Eng- landi.  KURT Jara, þjálfara Hamburger SV, hefur verið leystur frá störfum. Klaus Toppmöller, fyrrverandi þjálfari Bayer Leverkusen hefur verið ráðinn í stað Jara.  PATRICK Vieira, fyrirliði Arsen- al, verður frá æfingum og keppni næstu tvær vikurnar, í það minnsta. Arsene Venger, stjóri Arsenal, segist ekki vita hvað hrjái fyrirliðann en að meiðsli hafi tekið sig upp og ljóst sé að hann verði frá næstu vikurnar.  MINDAUGAS Andriuska, lithá- íski handboltamaðurinn sem lék með ÍBV 2001–2002, hefur verið leigður frá Bjerringbro í Dan- mörku til sænska úrvalsdeildarliðs- ins IFK Malmö til áramóta. Þar leysir hann af hólmi örvhentu skyttuna Bastian Andersson, sem er frá keppni fram í janúar vegna meiðsla. HANDKNATTLEIKUR Íslandsmót karla, RE/MAX-deild, suður- riðill: Selfoss: Selfoss - HK.............................19.15 Norðurriðill: Seltjarnarn.: Grótta/KR - Víkingur.....19.15 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Intersportdeild: Grindavík: UMFG - KFÍ ......................19.15 Keflavík: Keflavík - Breiðablik ............19.15 Þorlákshöfn: Þór Þ. - UMFN...............19.15 1. deild karla: Ásgarður: Stjarnan - Árm./Þróttur .....19.15 Í KVÖLD KÖRFUKNATTLEIKUR KR - Snæfell 73:84 DHL-höllin, úrvalsdeild karla, Intersport- deildin, fimmtudagur 23. október 2003. Gangur leiksins: 7:0, 9:2, 9:7, 16:10, 20:12, 24:16, 26:19, 34:25, 40:30, 45:38, 49:40, 55:46, 59:50, 63:54, 63:64, 63:66, 67:72, 73:79, 73:84. Stig KR: Chris Woods 20, Steinar Kaldal 12, Helgi R. Guðmundsson 9, Baldur Ólafsson 8, Hjalti Kristinsson 8, Skarphéðinn Ingason 8, I. Magni Hafsteinsson 8. Fráköst: 28 í vörn, 10 í sókn. Stig Snæfells: Dondrell Whitmore 20, Corey Dickerson 19, Hlynur Bæringsson 12, Sig- urður Þorvaldsson 11, Hafþór Gunnarsson 10, Andrés Heiðarsson 7, Lýður Vignisson 5. Fráköst: 9 í vörn, 19 í sókn. Dómarar: Leifur S. Garðarsson og Eggert Þór Aðalsteinsson. Áhorfendur: Um 220. Hamar - ÍR 94:90 Hveragerði: Gangur leiksins: 4:0, 17:16, 17:25, 22:25, 30:28, 38:38, 40:48, 48:54, 53:59, 66:59, 66:66, 68:68, 74:80, 84:81, 86:85, 91:85, 93:89, 94:90. Stig Hamars: Faheem Nelson 26, Chris Dade 17, Svavar Pálss. 17, Hallgrímur Brynjólfss. 11, Marvin Valdimarss. 9, Lárus Jónss. 8, Pétur Ingvarss. 4, Óskar Péturs. 3. Fráköst: 24 í vörn - 12 í sókn. Stig ÍR: Kevin Grandberg 20, Reggi Jessie 19, Ómar Sævarsson 18, Ólafur Guðmunds- son 11, Ólafur Sigurðsson 8, Ólafur Þórisson 8, Benedikt Pálsson 4, Fannar Helgason 2. Fráköst: 31 í vörn - 12 í sókn. Dómarar: Helgi Bragason og Kristinn Ósk- arsson. Áhorfendur: Um 300. Tindastóll - Haukar 99:70 Sauðárkrókur: Gangur leiksins: 2:3, 6:5, 18:5, 24:10, 29:10, 33:20, 39:22, 46:27, 48:31, 53:33, 60:41, 65:45, 70:53, 77:55, 86:60, 91:66, 99:70. Stig Tindastóls. Kristinn Friðriksson 23, Adrian Parks 21, Clifton Cook 21, Nick Boyd 17, Axel Kárason 9, Helgi Rafn Viggósson 6, Einar Örn Aðalsteinsson 2, Fráköst: 28 í vörn, 12 í sókn.. Stig Hauka: Sævar Haraldsson 17, Mike Manciel 15, Kristinn Jónasson 11, Þórður Gunnþórsson 8, Marel Guðlaugsson 5, Vil- hjálmur Steinarsson 4, Sigurður Einarsson 4, Predrag Bojovic 4, Kjartan Kjartansson 2, Fráköst Hauka: 23 í vörn, 9 í sókn. Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson og Að- alsteinn Hjartarson, slakir. Áhorfendur: 360. Staðan: Tindastóll 3 2 1 296:268 4 Snæfell 3 2 1 238:223 4 Grindavík 2 2 0 170:165 4 Þór Þorl. 2 2 0 203:191 4 Haukar 3 2 1 237:253 4 Keflavík 2 1 1 207:183 2 Njarðvík 2 1 1 182:182 2 ÍR 3 1 2 307:313 2 Hamar 3 1 2 239:268 2 KR 3 1 2 266:258 2 KFÍ 2 0 2 187:201 0 Breiðablik 2 0 2 180:207 0 ÚRSLIT Auk Björgvins valdi Guðmundurnafna sinn Hrafnkelsson sem markvörð og þá kallaði hann í Reyni Þór Reynisson, markvörð úr Vík- ingi, en Reynir hefur ekki verið val- inn í landsliðið í tvö ár, eða frá vin- áttulandsleikjunum við Norðmenn hér heima. „Reynir hefur einfald- lega staðið sig best af þeim mark- vörðum sem leika hér heima í deild- inni,“ sagði Guðmundur spurður um valið á markvörðunum en mörgum kom á óvart að Birkir Ívar Guð- mundsson, markvörður Hauka, var ekki valinn. Guðmundur sagði Birki einfaldlega ekki hafa staðið sig sem skyldi í deildinni og í Meistaradeild- inni til að réttlætanlegt hefði verið að taka hann fram yfir Reyni Þór, að þessu sinni. Guðmundur segir að Brynjar Þór hafi vakið athygli sína á Íslands- mótinu til þessa, bæði hafi hann staðið sig vel í sókninni og eins sé ljóst að hann væri upprennandi varnarmaður. „Það má segja að með valinu á Björgvini og Brynjari haldi ég áfram á þeirri braut sem ég markaði þegar ég tók við landslið- inu, að velja unga og efnilega leik- menn í flest verkefni landsliðsins og gefa þeim tækifæri á að kynnast vinnubrögðum okkar og fá nasaþef- inn af því að vera í landsliðinu,“ sagði Guðmundur. „Ásgeir Örn [Hallgrímsson] flokkast einnig í þennan hóp ungra og efnilegra þótt hann hafi meiri reynslu en Björgvin og Brynjar.“ Aron Kristjánsson og Patrekur Jóhannesson gátu ekki gefið kost á sér að þessu sinni en báðir glíma þeir við meiðsli í hné. Patrekur er á góðum batavegi eftir aðgerð. Öðru máli gegnir um Aron sem er að kljást við mun erfiðari meiðsli og lík- lega verður hann ekki klár í slaginn fyrr en í lok þessa árs. „Aron hefur leikið afar vel með íslenska landslið- inu á undanförnum stórmótum og ég vonast því svo sannarlega eftir að hann verði orðinn góður þegar að EM kemur en um það er ekkert hægt að fullyrða á þessu stigi máls- ins,“ sagði Guðmundur sem á ný valdi Ragnar Óskarsson, leikmann Dunkerque í Frakklandi, í landslið- ið. Nærri tvö ár eru liðin síðan Ragnar lék með íslenska landsliðinu síðast. Hann var með á EM í Svíþjóð fyrir tveimur árum en sleit kross- band í hné fyrir rúmu ári og var úr leik af þeim sökum á síðasta vetri. „Vegna meiðsla Patreks og Arons gefst öðrum mönnum kostur á að sýna hvað í þeim býr. Þess vegna meðal annars valdi ég Ragnar í hóp- inn, hann og Snorri Steinn [Guð- jónsson] koma til með að leika á miðjunni gegn Pólverjum ásamt Degi Sigurðssyni. Spurður sagðist Guðmundur einn- ig hafa ákveðið að velja ekki Gunnar Berg Viktorsson, leikmann Wetzlar í Þýskalandi, í hópinn að þessu sinni. „Gunnar hefur fengið sín tækifæri með landsliðinu og hann er einn þeirra manna sem verður að sýna mér eitthvað meira en hann hefur gert til þess að verða valinn. Auðvitað loka ég engum mögu- leikum og það er ljóst að nokkrir leikmenn koma til greina. Enginn leikmaður getur gengið út frá því vísu að halda sæti í íslenska lands- liðinu og um leið þá útiloka ég ekki Guðmundur Þ. kallar á tvo nýliða TVEIR nýliðar eru í átján manna landsliðshópi í hand- knattleik sem Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálf- ari tilkynnti í gær, en lands- liðið leikur þrjá landsleiki við Pólverja hér á landi um aðra helgi. Nýliðarnir eru þeir Björgvin Gústavsson, mark- vörður HK, og Brynjar Þór Hreinsson, hornamaður úr Gróttu/KR. Leikirnir eru fyrsti liðurinn í undirbúningi ís- lenska landsliðsins fyrir Evr- ópumótið sem hefst í Slóveníu 22. janúar nk. Morgunblaðið/Golli Ragnar Óskarsson er ekki tekinn neinum vettlingatökum í leik gegn Marokkó í heimsmeistarakeppninni í Frakklandi 2001. nokkurn mann frá því heldur,“ sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson lands- liðsþjálfari. Leikið við Pólverja í Ólafsvík EINN þriggja vináttulandsleikjanna við Pólverja um aðra helgi fer fram í Ólafsvík. Þetta er í fyrsta skipti sem landsleikur í handknatt- leik verður leikinn þar í bæ. Hafa bæjaryfirvöld lagt sig alla fram um að gera umgjörð leiksins sem besta eftir því sem fram kom í máli forsvarsmanna Handknattleikssambands Íslands á blaða- mannafundi í gær. Fyrsti leikurinn við Pólverja verður háður í Kaplakrika í Hafn- arfirði föstudaginn 31. október, daginn eftir verður leikið í Ólafs- vík og á sunnudaginn 2. nóvember mætast þjóðirnar í Laugardals- höll. Heimsókn pólska landsliðsins nú er til að endurgjalda heimsókn íslenska landsliðsins til Póllands í árslok 2001, en þá voru þjóðirnar einnig að búa sigur undir EM í Slóveníu. Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson, K./Östringen Reynir Þór Reynisson, Víkingi Björgvin Gústavsson, HK Línu- og hornamenn: Guðjón Valur Sigurðsson, Essen Brynjar Hreinsson, Gróttu/KR Gylfi Gylfason, Wilhelmshavener Einar Örn Jónsson, Wallau Sigfús Sigurðsson, Magdeburg Róbert Sighvatsson, Wetzlar Róbert Gunnarsson, Århus GF Útileikmenn: Dagur Sigurðsson, Bregenz Jaliesky Garcia, Göppingen Snorri Guðjónsson, Grosswallstadt Rúnar Sigtryggsson, Wallau Heiðmar Felixson, Bidasoa Ólafur Stefánsson, Ciudad Real Ragnar Óskarsson, Dunkerque Ásgeir Hallgrímsson, Haukum Hópurinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.