Morgunblaðið - 24.10.2003, Page 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 55
MARC Cuban, eigandi NBA-liðsins
Dallas Maverick, segir við dagblaðið
Star-Telegram að leikmannahópur
liðsins fyrir átökin í vetur verði skip-
aður 14 leikmönnum – ekki 15 eins
og áður og sé það gert til þess að
draga úr launakostnaði hjá liðinu.
Cuban segir að forráðamenn liðs-
ins muni byggja liðið á leikreyndum
leikmönnum og að auki hafi liðið
þrjá efnilega nýliða í röðum sínum
Josh Howard, Marquis Daniels og
Jón Arnór Stefánsson.
„Þeir níu leikmenn sem mest mun
mæða á í vetur eru mun sterkari
kjarni en við höfum haft áður. Og
við höfum að auki kjarna af ungum
leikmönnum, Jón, Marquis og Josh
en við munum einbeita okkur að því
að þeir þroskist sem leikmenn á
næstu misserum,“ segir Cuban.
Jón Arnór lék í Sacramento
Jón Arnór Stefánsson lék í 7 mín-
útur með Dallas Mavericks í æfinga-
leik á útivelli gegn Sacramento
Kings í NBA-deildinni aðfaranótt
föstudags en Dallas tapaði leiknum,
121:99. Jón Arnór skoraði 2 stig,
hitti öðru af tveimur skotum sínum,
gaf eina stoðsendingu, stal knett-
inum einu sinni, tók eitt frákast og
fékk þrjár villur.
Þetta var síðasti æfingaleikur
Dallas en NBA-deildin hefst þann 28.
okt., aðfaranótt miðvikudags, og þá
leikur Dallas gegn Lakers í Los Ang-
eles.
Eigandi Dallas segir að
Jón Arnór verði í liðinu
Fyrstu mínúturnar gáfu KR-ingarengin grið en tókst samt ekki að
hemja Hlyn Bæringsson, sem skoraði
7 fyrstu stig Hólm-
ara. Þá slógu heima-
menn aðeins af en
gestirnir úr Stykkis-
hólmi voru ekki nógu
góðir til að taka leikinn í sínar hend-
ur. KR-ingar náðu því aftur undirtök-
unum en nú voru það útlendingarnir í
liði gestanna, Corey Dickerson og
Dondrell Whitmore, sem komu í veg
fyrir að KR styngi af.
Í þriðja leikhluta vantaði alltaf
herslumuninn að Snæfell kæmist yfir
því alltaf þegar það var innan seil-
ingar slaknaði á einbeitingunni. Þeg-
ar tæpar fjórar mínútur voru eftir að
þriðja leikhluta snerist taflið við og
með 8 síðustu stigum þriðja leikhluta
og fyrstu fjórum í fjórða náði Snæfell
66:63 forystu. Það var helst vegna
þess að Snæfell breytti yfir í svæð-
isvörn, sem virtist koma KR-ingum
algerlega í opna skjöldu, þeir reyndu
að berjast en gestunum gekk allt í
haginn og KR átti aldrei möguleika.
„Við áttum ekkert svar við því þeg-
ar þeir fara í svæðisvörn, við förum á
taugum og þeir komast yfir hægt og
rólega og halda forystunni,“ sagði
Steinar Kaldal, fyrirliði KR, eftir
leikinn. „Þeir eru að taka sóknarfrá-
köst allan leikinn og halda sér þannig
inni í leiknum auk þess að hitta vel
fyrir utan teiginn. Við byrjuðum vel
en ég veit ekkert hvort um er að
kenna metnaðaleysi því það er með
ólíkindum hvernig okkur tekst að
klúðra leiknum.“ Enginn KR-ingar
átti góðan leik en Chris Woods var
þeirra bestur og tók 11 fráköst en
Baldur Ólafsson tók 7 og varði 3 skot.
Sem fyrr segir hélt Hlynur liði sínu
inni í leiknum en lenti í villuvandræð-
um og fékk sína fimmtu villu í upphafi
fjórða leikhluta. „Þetta var frábær
sigur og í fyrsta sinn, sem flestir okk-
ar vinna í KR-húsinu,“ sagði Hlynur
eftir leikinn. „KR er með frábært lið
en alveg eins og í fyrra skipti svæð-
isvörn okkar sköpum því þeir eru
með sterka menn inni í teig en þeir
geta ekki notið sín þegar við spilum
svæðisvörn og KR-ingar eiga ekki
þriggja stiga skyttur til að bregðast
við því. Við hittum mun verr en þeir í
fyrri hálfleik en þegar við fórum að
hitta sigum við framúr.“ Dickerson
og Whitmore létu til sín taka er leið á
leikinn en Hafþór Gunnarsson og
Sigurður Þorvaldsson áttu góða
spretti.
Tindastóll valtaði
yfir slaka Hauka
Það var ekki nema tvær fyrstumínúturnar á Sauðárkróki sem
leit út fyrir að um baráttuleik yrði að
ræða, þar sem liðin
skiptust á að skora.
Síðan skoruðu Hauk-
ar ekki í sex mínútur,
Tindastóll komst í
18:5 og eftir það var raunar aldrei vafi
á hvorum megin sigurinn lenti og
lokatölur urðu 99:70.
Ef Tindastólsliðið nær öðrum leikj-
um jafngóðum þeim sem liðið sýndi
að þessu sinni, eiga mörg stig eftir að
safnast í sarpinn áður en veturinn er
á enda, en hins ber einnig að gæta að
mótspyrnan var í minnsta lagi og vilja
Haukarnir örugglega gleyma þessum
leik sem fyrst.
Í liði Tindastóls fór Kristinn Frið-
riksson fyrir sínum mönnum og átti
stórleik, Adrian Parks og Clifton Co-
ok voru góðir og Nick Boyd var firna-
sterkur í vörninni en einnig góður
undir körfu andstæðinganna og hirti
fjölda frákasta. Hann fékk hinsvegar
tvær villur í fyrsta leikhluta, sína
fjórðu villu í upphafi þess þriðja og
var því lítið inná eftir það. Þá áttu
Helgi Rafn, Axel Kárason og Einar
Örn ágæta spretti.
Í liði Haukanna var Sævar Har-
aldsson raunar eini maðurinn sem
barðist. Mike Manciel virtist hrædd-
ur við Boyd og átti slakan dag, og
gamli refurinn Marel Guðlaugsson
man áreiðanlega betri daga.
Hamar hirti stigin gegn ÍR
Hamar vann sinn fyrsta sigur í úr-valsdeildinni í vetur þegar liðið
lagði ÍR með 94 stigum gegn 90. ÍR
náði ekki að fylgja
eftir góðum heima-
sigri á Keflvíkingum
í síðasta leik og var
þjálfari ÍR að vonum
óhress með úrslitin, tvö stig farinn í
súginn. Hamarsmenn virðast hafa
gott tak á ÍR-ingum en þeir unnu
einnig heimaleikinn gegn þeim á síð-
asta tímabili. Í hálfleik var staðan
40:48.
„Þetta var góður sigur en við börð-
umst í 40 mínútur og ef við gerum það
aukast líkurnar á sigri. Þetta var jafn
leikur frá upphafi til enda og gat sig-
urinn dottið beggja megin. Við erum
hins vegar erfiðir heim að sækja en
þeir hafa á móti að skipa hörkuliði í
ár,“ sagði Pétur Ingvarsson, spilandi
þjálfari Hamars, í lok leiks.
Þá sagðist Pétur hafa verið sáttur
við að Hallgrímur Brynjólfsson hafi
gert það sem hann getur í leiknum, en
hann átti frábæra innkomu í leikinn
undir lok hans þegar Chris Dade fór
út af með 5 villur þegar 2 mínútur
voru eftir. „Ég er einnig sáttur við að
nú vorum við að taka fráköstin sem
við þurftum að taka og vorum að berj-
ast fyrir þeim. Næsti leikur okkar er
við Breiðablik í Smáranum. Ingvar
bróðir vann síðast og ég hlýt að fá að
vinna núna, annars klaga ég í pabba.“
„Þetta eru alltaf jafnir leikir hér í
Hveragerði en við áttum að klára en
gerðum ekki. Ég er óhress með að við
náðum ekki að halda haus en við vor-
um með 8 stiga forskot í hálfleik og
leyfðum þeim að hirða það af okkur.
Við nýttum einfaldlega ekki þau færi
sem við höfðum til að klára leikinn.
Menn voru alls ekki með hugann við
sigurinn á móti Keflavík í síðasta leik,
en við vissum að þetta yrði erfiður
leikur. Þá munar einnig um fyrirlið-
ann, Eirík, og auðvitað best að geta
stillt upp sínu sterkasta liði en það
voru 10 leikmenn með í kvöld sem
áttu að klára þetta verkefni en gerðu
ekki,“ sagði Eggert Garðarsson,
þjálfari ÍR.
Morgunblaðið/Sverrir
Hlynur Bæringsson, leikmaður Snæfells úr Stykkishólmi, reynir að brjótast framhjá KR-ingunum
Helga R. Guðmundssyni og Skarphéðni Ingasyni í leiknum í gærkvöld.
Svæðisvörn Snæ-
fells var banabiti KR
SVÆÐISVÖRN Snæfells í þriðja leikhluta sló KR-inga rækilega útaf
laginu í vesturbænum í gærkvöldi og níu stiga forystu snerist upp í
níu stiga tap, 84:73. Á Sauðárkróki fengu Haukar að kenna á því eft-
ir 29 stiga sigur Tindastólsmanna, 99:70, og ÍR-ingar sóttu ekki gull
í greipar Hamars í Hveragerði, sem vann sinn fyrsta leik í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í vetur, 94:90.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Björn
Björnsson
skrifar
Helgi
Valberg
skrifar