Morgunblaðið - 24.10.2003, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
SAMTÖK eigenda sjávarjarða hafa sent
dómsmálaráðherra stjórnsýslukæru á
hendur ritstjóra Lögbirtingablaðins fyrir
að hafna að birta auglýsingu frá samtök-
unum um einkaeign á hafsvæðinu í netlög-
um, sem er ákveðið svæði í einkaeign í sjó
út af landi. Sam-
tökin telja að
sjávarjörðum
eigi að fylgja
eignarhlutdeild í
sjávarauðlind-
inni.
Í auglýsing-
unni, sem ekki
fékkst birt, er m.a. vísað til landleigubálks
Jónsbókar og samkvæmrar dómiðkunar
frá ómunatíð. Jónsbók, sem talin er hafa
fengið nafn sitt af Jóni Einarssyni lög-
manni, var lögtekin á Íslandi árið1283 og
er sniðin eftir norskum lögum en þó er í
henni allmikið af þjóðveldislögunum. Jóns-
bók gilti óbreytt að mestu fram á 16. öld og
enn hafa nokkur ákvæði hennar lagagildi.
Í svari ritstjóra Lögbirtingablaðsins,
þar sem hann hafnar að birta auglýs-
inguna, er vísað til þess að blaðið sé fyrst
og fremst vettvangur fyrir lögboðnar aug-
lýsingar stjórnvalda en þó er tekið fram að
blaðinu sé heimilt að birta auglýsingar eða
tilkynningar einstakra manna, einkum
þegar um sé að ræða efni sem varði al-
menning. Þessi heimild hafi þó mjög sjald-
an verið notuð og hún túlkuð þröngt. Í
auglýsingu Samtaka eigenda sjávarjarða
sé auk þess verið að halda fram sérstökum
eignarréttindum sem réttaróvissa ríki um
og birting hennar myndi ekki breyta þeirri
óvissu.
Vilja birta
auglýsingu
þar sem vísað
er í Jónsbók
ÞESSI fallegi rebbi var á leið til sjávar í ætisleit þegar
fréttaritari rakst á hann í gærmorgun. Fréttaritari var
að smala kindum og var engu líkara en að rebbi væri
að velta fyrir sér hvort hann myndi ráða við fullvaxnar
kindur. Eins getur verið að hann hafi bara verið að
leika. Refurinn var frekar smár og líklega kominn úr
goti frá því í sumar. Hann er þó orðinn fullbúinn undir
komandi vetur; orðinn snjóhvítur á feldinn.
Rebbi í ætisleit
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Tilbúinn að takast á við veturinn
GENGISHAGNAÐUR Landsbanka
Íslands á fyrstu níu mánuðum þessa
árs var jafn heildarhagnaði bankans
eftir skatta, eða 2.514 milljónir
króna. Gengishagnaðurinn jókst um
tæpa 2,5 milljarða milli ára, en hann
var 51 milljón á fyrstu níu mánuðum
síðasta árs. Heildarhagnaður bank-
ans var hins vegar um einum millj-
arði meiri en á sama tímabili í fyrra.
Heildareignir Landsbankans juk-
ust um 33% frá áramótum til loka
septembermánaðar en þá námu
eignirnar 368 milljörðum króna.
Arðsemi eigin fjár bankans á
fyrstu níu mánuðum ársins eftir
skatta var 21,3%, en var 12,8% fyrir
sama tímabil á síðasta ári. Þetta er
nokkuð yfir þeim markmiðum sem
bankinn hafði sett fram, en reiknað
hafði verið með 13–15% arðsemi eig-
in fjár.
Níu mánaða uppgjör Landsbanka Íslands
Gengishagnaður bankans
var jafnhár heildarhagnaði
Landsbankinn/6
FORSTJÓRAR Atlanta, Bláfugls,
Flugleiða og Íslandsflugs sögðu all-
ir á flugþingi í gær, er þeir ræddu
framtíðarsýn fyrirtækja sinna, að
sóknarfærin lægju helst í þátttöku
fyrirtækjanna í alþjóðlegri flug-
starfsemi. Þeir sögðu einnig brýnt
að íslenskum flugrekendum yrði
gert kleift að starfa í því alþjóðlega
umhverfi sem flugið væri og við
sömu skilyrði og erlend flugfélög.
Forstjóri Flugleiða sagði stefnt að
því að fyrirtækið yrði með um 20
B757-þotur í rekstri innan fárra ára,
en þær eru nú 11 og forstjóri Atl-
anta kvaðst helst sjá aukningu í
fraktflugi félagsins og sagði ráðgert
að opna á næsta ári markaðsskrif-
stofu í Asíu. Forstjóri Bláfugls sagði
félagið verða með 5–7 fraktþotur í
rekstri á næsta ári og forstjóri Ís-
landsflugs sagði félagið munu verða
með 16 þotur í rekstri á næsta ári.
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, ræddi framtíðarsýn fyrirtækis-
ins, og skýrði hvernig uppbyggingu
fyrirtækisins hefði verið breytt síð-
ustu misseri með stofnun dótturfyr-
irtækja. Flugleiðir væri nú fjárfest-
ingarfyrirtæki í ferðaþjónustu og
flugflutningum og sagði hann nauð-
synlegt að styrkja tekjumyndun fé-
lagsins og jafna sveiflu. Hafþór Haf-
steinsson, forstjóri Atlanta, sagði
fraktflug, sérstaklega í Asíu, vera
framtíðina. Árið 2001 hefðu tvær vél-
ar verið í fraktflugi, í ár væru þær
sjö og á næsta ári yrðu 10 B747-þot-
ur í fraktflugi. Hann sagði góð við-
skiptasambönd, langa reynslu í leigu
flugvéla og þekkingu á markaðnum
hafa gefið Atlanta nauðsynlegan
sveigjanleika.
Þórarinn Kjartansson, forstjóri
Bláfugls, sagði félagið byggjast á
sterkum grunni þar sem reynsla for-
ráðamanna þess væri löng af starfi
við flugfrakt. Fram að þessu hefði
reksturinn eingöngu beinst að 737-
fraktvélum á leiðum innan Evrópu
fyrir hraðsendingarfyrirtækin en
markmiðið væri útvíkkun. Ómar
Benediktsson, framkvæmdastjóri
Íslandsflugs, sagði aðgerðir stjórn-
valda skipta máli, tryggja verði að
Ísland verði aðili að nýrri flugmála-
stofnun Evrópu og Íslendingar gætu
tekið að sér verkefni á sviði þróun-
araðstoðar í flugrekstri. Hann sagði
mikinn mannauð í flugrekstri á Ís-
landi og að kjarasamningar væru
miðaðir við að starfað sé á Íslandi,
sem væri ekki til að dreifa lengur þar
sem svo mikill hluti flugs íslenskra
aðila færi fram ytra. Gera verði nýja
samninga með mið af því.
Sóknarfæri í alþjóð-
legri flugstarfsemi
Hefja á endurskoðun/11
VÆNTANLEGUR mynddiskur
með hljómsveitinni Foo Fighters
mun meðal annars innihalda upp-
tökur frá tónleikum sveitarinnar í
Reykjavík í endaðan ágúst sl.
Hljómsveitarmenn voru ósparir á
hrósyrðin í garð íslensku áhorfend-
anna og þær móttökur sem sveitin
fékk hérlendis. Auk myndskeiða
frá Íslandsævintýri Foo Fighters
mun fylgja með mynddisknum
hljómdiskur með upptökum frá
fyrstu tónleikum sveitarinnar í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Sverrir
Íslandsævintýri
Foo Fighters
á mynddiski
♦ ♦ ♦
LÖGREGLAN hefur lokið rannsókn
á umfangsmesta barnaklámsmáli
sem upp hefur komið hér á landi og
er niðurstaðan sú að karlmaður
verður kærður fyrir kynferðisafbrot
gagnvart að minnsta kosti sex
drengjum 16 ára og yngri á undan-
förnum þremur árum og vörslu mik-
ils magns af barnaklámi.
Við húsleit í byrjun júní síðastlið-
inn hjá tæplega fertugum karlmanni
fann lögreglan á fjórða hundrað
myndbandsspólur, yfir 200 DVD-
mynddiska og tvær tölvur sem inni-
héldu klámmyndir í tugþúsundatali.
Á nokkrum myndbandsspólum eru
upptökur af manninum þar sem
hann sést eiga í kynferðislegum at-
höfnum með ungmennum, en lög-
reglan fékk ábendingu í vor um að
maðurinn hefði reynt að tæla til sín
börn og unglinga á Netinu.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn, segir að maðurinn verði
kærður fyrir vörslu á talsvert miklu
magni af barnaklámi. Um sé að ræða
nokkur þúsund myndir í tölvutæku
formi, talsvert magn af vídeóskrám í
tölvu, efni sem taki tugi klukku-
stunda að horfa á, VHS-spólur með
svona efni og talsvert magn af
barnaklámsmyndum á pappír. Þetta
sé sjálfstætt brot en síðan verði mað-
urinn kærður fyrir ýmis kynferðis-
brot gagnvart a.m.k. sex drengjum
sem séu 16 ára og yngri.
Kærður
fyrir brot
gegn sex
drengjum