Morgunblaðið - 29.10.2003, Side 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIRVARAR VIÐ LÁN
Bæði Seðlabanki Íslands og Hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands setja
ákveðna fyrirvara við hækkun láns-
hlutfalls Íbúðalánasjóðs í 90%. Telur
bankinn að verði hækkunin á sama
tíma og stóriðjuframkvæmdir eru í
hámarki geti afleiðingarnar orðið
„alvarlegur óstöðuleiki með ófyr-
irsjáanlegum afleiðingum.“ Hag-
fræðistofnunin telur að fast-
eignaverð geti hækkað um 11–16%
umfram það sem ella hefði orðið.
Vantraust á Duncan Smith?
Þingmenn breska Íhaldsflokksins
greiða í kvöld atkvæði um hvort lýsa
beri vantrausti á leiðtoga flokksins,
Iain Duncan Smith. Hann kvaðst í
gær myndu berjast fyrir því að leiða
flokkinn áfram og hafa betur í þing-
kosningum er haldnar verða ekki
síðar en 2006.
Efling krefst jöfnunar
Formaður Eflingar – stétt-
arfélags segir að verkalýðshreyf-
ingin muni ekki ljúka viðræðum við
ríkið um gerð nýs kjarasamnings
fyrr en búið sé að jafna þann mun
sem sé á réttindum félaga í ASÍ sem
starfa hjá ríkinu og opinberra starfs-
manna. Efling hefur kynnt vinnu-
veitendum helstu áherslur sínar.
Útilokar ekkert
George W. Bush Bandaríkja-
forseti sagði í gær engin áform uppi
um að senda fleiri bandaríska her-
menn til Íraks. Útilokaði forsetinn
þetta þó ekki.
Engin áhrif á varnir
Varnarliðið segir m.a. í tilkynn-
ingu sem send var út í gær að nið-
urskurður í rekstri flotastöðvar-
innar hafi engin áhrif á varnar-
samning Íslands og Bandaríkjanna
og sé í engum tengslum við umræð-
ur um framtíð Varnarliðsins né end-
urskoðun á viðbúnaði Bandaríkja-
hers á heimsvísu sem nú sé til
athugunar.
BMW-MÓTORHJÓL
ÍSLENSKA BÍLAÖLDIN
PORSCHE CARRERA 4S
KÖRTUAKSTUR
PAJERO-JEPPAFERÐ
HESTÖFL ENDURMETIN
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI
SÍMI 555 6025 • www.kia.is
KIA ÍSLAND
Bílar sem borga sig!
Láttu flér ekki ver›a kalt!
Fjarstart með eða án þjófavarnar.
Hlýleg tilhugsun.
S u ð u r l a n d s b r a u t 2 2
S í m i 5 4 0 1 5 0 0
w w w. l y s i n g . i s
LÝSING
Alhliða
lausn í
bílafjármögnun
VANDAÐUR SPORT TOURER
STÓRBÆTTIR AKSTURSEIGINLEIKAR
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 26
Viðskipti 13 Viðhorf 30
Erlent 14/15 Minningar 31/34
Heima 16 Kirkjustarf 35
Höfuðborgin 17 Bréf 36
Akureyri 18 Dagbók 38/39
Suðurnes 19 Sport 40/43
Landið 20 Fólk 44/49
Daglegt líf 21/22 Bíó 46/49
Listir 22/24 Ljósvakamiðlar 50
Umræðan 25/30 Veður 51
* * *
Kynningar – Tímaritið Lifun fylgir
Morgunblaðinu í dag til áskrifenda.
EINN þyngsti dómur í kynferðis-
brotamáli, sem kveðinn hefur verið
upp hérlendis, féll í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær, þegar 43 ára
karlmaður var dæmdur í 5 og ½ árs
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
stjúpdóttur sinni. Brotin áttu sér
stað margítrekað á 12 ára tímabili
og hófust þegar barnið var sex ára
gamalt. Brotin áttu sér stað á heim-
ili ákærða, í bíl hans og vinnuvélum
sem hann hafði lagt á afviknum
stöðum, í fjallgöngum í nágrenni
Reykjavíkur og víðar.
Dómurinn segir um ákærða að
hann hafi gerst sekur um sérlega
grófa kynferðislega misnotkun
gagnvart stúlkunni og við ákvörðun
refsingar beri að líta til þess að hann
misnotaði sér freklega vald sitt yfir
henni sem stjúpfaðir hennar og
brást þannig trausti hennar og trún-
aðarskyldum sínum. Brotin höfðu
djúpstæð áhrif á líf stúlkunnar og
sálarheill og ákærða mátti vera það
ljóst.
Kynferðislega
ögrandi framkoma
Árið 1997 hafði Barnaverndar-
nefnd afskipti af málefnum stúlk-
unnar er tilkynning barst um hugs-
anlega kynferðislega áreitni.
Í skýrslu Sigtryggs Jónssonar
sálfræðings kom m.a. fram að vin-
konur hennar hefðu orðið vitni að
kynferðislega ögrandi framkomu og
umræðu af hendi ákærða gagnvart
henni.
Stúlkan lagði fram kæru á síðasta
ári, þá 19 ára gömul, en í kærunni
kom fram að ákærði hefði misnotað
stúlkuna frá því hún mundi eftir sér
og fram að þeim tíma er hún fór að
heiman 18 ára gömul. Ákærði neit-
aði eindregið sök en í tengslum við
málið var framkvæmd húsleit hjá
honum og fundust þar klámblöð og
myndbandsspólur.
Sif Konráðsdóttir hæstaréttarlög-
maður og réttargæslumaður stúlk-
unnar krafðist þriggja milljóna
króna miskabóta fyrir hönd skjól-
stæðings síns og dæmdi héraðsdóm-
ur henni 1,5 milljónir króna í bætur.
Í dóminum segir að brot ákærða
hafi verið til þess fallin að valda
stúlkunni sálrænum erfiðleikum
eins og staðfest var í skýrslu dr.
Jóns Friðriks Sigurðssonar sálfræð-
ings. Er þar bent á að hún eigi við
ýmis alvarleg vandamál að stríða
sem rekja megi á einn eða annan
hátt til kynferðislegrar misnotkun-
ar.
Ákærði var sýknaður af ákærulið
sem varðaði meint kynferðisbrot
gagnvart 12 ára frænku stúlkunnar í
ágúst 1996 þar sem sannanir skorti.
Ákærði hefur hlotið dóma fyrir
hegningarlagabrot s.s. þjófnað, fjár-
svik og nytjastuld. Síðast hlaut hann
2 mánaða skilorðsbundið fangelsi til
tveggja ára og rauf skilorðið með
broti sínu nú.
Málið dæmdu héraðsdómararnir
Valtýr Sigurðsson sem dómsfor-
maður, Pétur Guðgeirsson og Logi
Guðbrandsson. Dómurinn klofnaði í
afstöðu sinni gagnvart málinu og
vildi Logi sýkna ákærða á þeim
grundvelli m.a. að ekki nyti beinna
sannana um sekt hans, hvorki með
vitnum eða skjölum. Verjandi
ákærða var Ragnheiður Ólafsdóttir
hdl. Málið sótti Ragnheiður Harð-
ardóttir saksóknari hjá ríkissak-
sóknara.
Einn þyngsti dómur sem fallið hefur vegna kynferðisbrots hér á landi
5½ árs fangelsi fyrir kyn-
ferðisbrot gegn stjúpdóttur
TÍMI vetrardekkjanna er runninn upp og höfðu dekkjakarlar víða í nógu
að snúast í gær. Að loknum sunnanáttum heilsaði gærdagurinn með norð-
anátt, kulda og slyddu án þess að tala mætti um neinar vetrarhörkur. Þó
varð þessi fyrsti vetrarmorgunn til þess að bifreiðaeigendur skruppu á
dekkjaverkstæði og fengu umfelgun á bílinn til að forðast allt óþarfa spól í
vetur. Sumir velja negld vetrardekk en aðrir taka harðkornadekk, loft-
bóludekk eða naglalaus vetrardekk. Enn aðrir setja keðjur á bíla sína, þó
einkum atvinnubílstjórar á stórum bílum, sem aka landshluta á milli.
Tími vetrardekkjanna
runninn upp
Morgunblaðið/Þorkell
„VIÐ fengum íbúðina afhenta á
föstudag og vorum ekki komin svo
langt að skipta um læsingar. Við
fórum út á sunnudag, vorum frá í
rétt rúman hálftíma og þegar við
vorum að koma heim mætti ég karl-
manni á leiðinni út úr íbúðinni okkar
sem hafði komist þangað inn með
lykli,“ segir Dúi Grímur Sigurðsson,
sem ásamt konu sinni, Halldóru Sig-
urgeirsdóttur, var að flytja í íbúð í
Safamýrinni. „Mér brá svo við að sjá
einhvern koma út úr íbúðinni að ég
áttaði mig ekki á að stoppa hann og
spyrja hvað hann væri eiginlega að
gera. Hann labbaði framhjá mér,
spurði hvort ég ætti heima þarna
sem ég játaði og þá labbaði hann
bara út. Það var ekki fyrr en við fór-
um inn og tókum eftir að búið var að
stela fartölvunni að ég hljóp út á eft-
ir honum en þá var hann horfinn.“
Dúi segir að maðurinn hafi ekki
haldið á tölvunni þegar hann mætti
honum en gæti hafa falið hana innan
klæða. Hann sjái ekki að neinu öðru
hafi verið stolið en að vísu hafi ekki
verið tekið upp úr öllum kössum.
Erfitt sé að segja til um hvernig
maðurinn hafi komist yfir lykil, en
íbúðin hafi verið skráð á tveimur
fasteignasölum og á annarri sölunni,
ekki þeirri sem þau keyptu af, hafi
lykillinn verið lánaður þrisvar.
„Við erum búin að athuga vel að
lykillinn hefur ekki komist í rangar
hendur í gegnum fyrri eiganda sem
hefur gert allt sem í hans valdi
stendur til að hjálpa okkur að leysa
þetta mál,“ segir Dúi.
Fyrsta verk að smíða lykla
Hann segir að svo virðist sem
fasteignasalan sem hafði lyklana
undir höndum hafi ekki farið með
fólki sem þeir lánuðu lyklana að
skoða íbúðina. „Það er minnsta mál-
ið að afrita lykla, það tekur innan
við fimm mínútur.“ Dúi og Halldóra
voru fljót að fara og kaupa skrá og
nýja lykla eftir að lögreglan hafði
skoðað íbúðina. „Það er ekki spurn-
ing að þetta á að vera það fyrsta
sem fólk gerir þegar það kaupir
íbúð.“
Ókunnugur maður
með lykla að íbúðinni
Stal fartölvu er heimilisfólkið brá sér frá
Hjónin Dúi Grímur Sigurðsson og
Halldóra Sigurgeirsdóttir.
Morgunblaðið/Sverrir
árum. Þá sagði í tilkynningu frá Mó-
um að bygging hússins hefði kostað
550 milljónir og tækin 150 milljónir.
Tækin munu vera að stórum hluta í
eigu fjármögnunarfyrirtækisins
Lýsingar hf. og tekur Steinþór
Skúlason fram að þau hafi ekki verið
keypt enda áform um aðra starfsemi.
Kaupverð er ekki gefið upp.
Afhent um miðjan mánuð
Að sögn Steinþórs fá Ferskar
kjötvörur húsnæðið afhent um miðj-
an nóvember. Sigmundur Hannes-
son, lögmaður Móa, segir að stjórn-
endur félagsins hafi enn ekki áttað
sig á áhrifum frétta af sölu húsnæðis
afurðastöðvar félagsins en tekur
fram að Móastöðin sé órjúfanlegur
hluti af rekstri fyrirtækisins. Telur
hann líklegt að félagið eigi forkaups-
rétt að húsnæðinu samkvæmt
ákvæðum gildandi leigusamnings
sem gerður hafi verið til sjö ára.
Móar hafa áfrýjað til Hæstaréttar
höfnun Héraðsdóms Reykjavíkur á
heimild félagsins til að leita nauða-
samninga við kröfuhafa en fyrri
nauðasamningar voru felldir úr gildi
með úrskurði Hæstaréttar. Einnig
liggja fyrir kröfur um gjaldþrota-
skipti á búi félagsins.
FERSKAR kjötvörur hf. hafa keypt
húsnæði Móastöðvarinnar í Mos-
fellsbæ. Hyggst fyrirtækið flytja
þangað kjötvinnslu sína en þar er nú
kjúklingasláturhús og vinnsla. Lög-
maður Móa segir að í gildi sé leigu-
samningur til 2007 og telur fyrirtæk-
ið hafa forkaupsrétt að húsnæðinu.
Ferskar kjötvörur hf. er ein af
stærstu kjötvinnslum landsins í
vinnslu á fersku svína- og nautakjöti.
Fyrirtækið var stofnað upp úr kjöt-
vinnslu Hagkaups en er nú í eigu
Stjörnugríss á Vallá og Sláturfélags
Suðurlands. Steinþór Skúlason for-
stjóri SS, stjórnarmaður í Ferskum
kjötvörum, segir að Ferskar kjötvör-
ur, sem nú sé í leiguhúsnæði við
Síðumúla í Reykjavík, hafi haft
frumkvæði að kaupum á þessu hús-
næði, en gengið var frá samningum í
gær, og muni flytja starfsemi sína
þangað.
Seljandi er Landver ehf., sem er í
eigu Íslenskra aðalverktaka, Lands-
bankans og Framtaks fjárfestingar-
banka. Í húsinu, sem nefnt hefur
verið Móastöðin, er rekið kjúklinga-
sláturhús og vinnsla Móa hf. og
Ferskra kjúklinga ehf. Húsið var
byggt sérstaklega yfir þessa starf-
semi og tekið í notkun fyrir tveimur
Móastöðin seld
kjötvinnslu