Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ráðstefna talmeinafræðinga Röddin er atvinnutæki RÁÐSTEFNA tal-meinafræðingaverður haldin á Hótel Nordica nk. föstu- dag, 31. október, og hefst hún klukkan 8.30 að morgni. Morgunblaðið ræddi við Valdísi Ingi- björgu Jónsdóttur, tal- meinafræðing á Akureyri, sem er í forsvari fyrir ráð- stefnuna. Lagði hún áherslu á að meginþema ráðstefnunnar væri að raddveilur væru ekki sjálf- skaparvíti heldur dæmi um að rödd hefði verið ofgert. Yrði fjallað um málið á þeim nótum. – Hvert er verksvið talmeinafræðinga? „Það má segja að tal- meinafræðingar takist á við alla brotalöm í máli og rödd hjá fólki á öllum aldri. Sjálfsagt eru þeir þekktastir fyrir að fást við brotalöm í framburði og máli barna þó að það sé ekki nema brot af þeirra starfssviði. Svo dæmi séu tekin þá fást þeir líka við málstol, þ.e. ef einhver glatar málgetu af völdum heilaáfalls, málhelti af völdum sjúkdóma eins og Parkin- sons og MS, kyngingarörðugleika, stam og raddmein. Yfirleitt sér- hæfa talmeinafræðingar sig meira eða minna á einhverju ákveðnu sviði talmeina.“ – Tilefni og markmið? „Tilefni ráðstefnunnar er að vekja athygli á röddinni sem at- vinnutæki. Það er talað um að þriðjungur vinnuafls sé fólk sem hefur atvinnu af rödd sinni þ.e. að miðla með röddinni hinu talaða eða sungna orði. Hins vegar má segja að fæstir geri sér grein fyrir því að röddin er atvinnutæki sem við- komandi er að leigja út og á allt sitt atvinnuöryggi undir. Flestir taka röddinni sem sjálfsögðum hlut sem annaðhvort er í lagi eða ekki. Það er ekki fyrr en í óefni er komið að fólk leitar sér hjálpar. Ástæðan fyrir þessu er sjálfsagt fyrst og fremst þekkingarleysi. Fólk áttar sig því ekki á því að ein- kenni eins og þrálátur þurrkur, ræskingarþörf, hæsi án kvefs, kökktilfinning og raddþreyta geta stafað af því að það er búið að of- bjóða raddböndunum. Vegna þess að litla sem enga fræðslu er hægt að hafa um röddina er erfitt að koma í veg fyrir að þessu mikil- væga atvinnutæki sé ofgert. Það er því lítil furða þó víða sé illa að henni búið og fólk leigi hana út í kringumstæður sem beinlínis geta skaðað hana eins og t.d. kennarar og talsímaverðir. Hins vegar má líka geta þess að fólk virðist eiga erfitt með að átta sig á því að rödd- in er hljóð sem fellur undir sömu lögmál og birtan. Það dofnar með fjarlægð og raddveilur eins og t.d. hæsi deyfa raddstyrkinn. Vegna þess að fólk heyrir vel til sjálfs síns hættir því til að ofmeta hvernig rödd berst eða hugnast öðrum. Hás eða skemmd rödd getur farið í taugarnar á fólki og í raun verður að líta á slíka rödd sem óheil- brigða rödd sem þarfn- ast endurhæfingar. Reyndar er slík rödd ekki boðleg sem vinnutæki sem á að hugnast neytendum, þ.e. hlust- endum.“ – Hvert er þema ráðstefnunn- ar? „Að fjalla um röddina sem at- vinnutæki sem enn er ekki viður- kennt sem slíkt og nýtur þar af leiðandi engrar vinnuverndar. Það verður fjallað um raddvandamál sem falið heilsuvandamál í þjóð- félaginu og í raun sem atvinnu- sjúkdóm. Hér þarf að koma til stefnubreyting. Það er viðurkennt um allan heim að raddvandamál eru vaxandi vandamál og kostar bæði þjóðfélagið og einstaklinginn bæði óþægindi og fjárútlát. Þannig hefur verið reiknað út að tapaðir vinnudagar vegna raddvandamála kennara kosti bandaríska þjóðfé- lagið tvær og hálfa billjón dollara á ári. Við ætlum með ráðstefnu þess- ari að vekja til umræðu almennt ástand raddar sem atvinnutækis og benda á hve staða hennar er bágborin, nauðsyn þess að fólk fræðist meira um hvernig það get- ur beitt röddinni og verndað hana og hvað annað sé hægt að gera til úrlausna. Fyrst og fremst þarf að taka til alvarlegrar athugunar hvernig hægt sé að fela rödd undir vinnuvernd. Erlendis er að verða vakning um þessi mál, t.d. er nú gert ráð fyrir því í Bretlandi og Póllandi að fræðsla um rödd, radd- beitingu og raddvernd verði felld sem fastur liður inn í námskrá kennaranema. Hér á landi hefur þetta t.d. ekki enn komist á.“ – Hvað um dagskrána? „Finninn Erkki Vilkman, háls-, nef- og eyrnalæknir, sérhæfður í raddvísindum, fjallar um röddina sem atvinnutæki. Marketta Sihvo, doktor í raddvísindum og mennt- aður talmeinafræðingur talar fyrst um hvað í umhverfinu geti skaðað röddina og síðan um áhrifaríka að- ferð til að losa um raddmein. Dr. Anita McAllister frá Svíþjóð ræðir um áhrif umhverfis á raddvanda- mál barna. Dr. Hannes Petersen verður með erindi um bakflæði á rödd og Einar Thorodd- sen fjallar um deyfingu við raddþreytu. Eftir hádegið fjallar Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðing- ur um gildi raddverndar, Helga Jóakimsdóttir kynnir Alexand- ertæknina sem vinnur að losun raddar og ég mun síðan ræða um hlustunargetu, hlustunarskilyrði og rödd kennarans. Þá verður stutt námskeið í raddbeitingu, slökunaræfingum fyrir rödd, radd- þekkingu og raddbeitingu.“ Valdís Jónsdóttir  Valdís Ingibjörg Jónsdóttir er fædd 6. nóvember 1946. Grunn- skólakennari frá KÍ 1968 og heyrnar- og talmeinafræðingur frá Danmarks Lærerhojskole 1974. Hefur meistarapróf í radd- vísindum frá Jordan Hill College í Skotlandi 1997 og er að ljúka doktorsprófi frá Háskólanum í Tampere í Finnlandi. Rekur eig- in talmeinastofu á Akureyri. Val- dís á þrjú börn með Óla Aðal- steini Jakobssyni. Erlendis er að verða vakning um þessi mál HARALDUR Örn Ólafsson, lög- fræðingur og pólfari, dregur í efa að reglur sem Þingvallanefnd hefur sett um siglingar á Þingvallavatni standist ákvæði vatnalaga. Sam- kvæmt reglunum, sem nefndin sam- þykkti fyrir tæplega þremur árum, er óheimilt „að leggja á bátum út frá landi þjóðgarðsins“. Tilgangur bannsins er að vernda hagsmuni þeirra sem stunda silungsveiði við vatnið. Landverðir í þjóðgarðinum mein- uðu Haraldi Erni og félaga hans að sigla á kajak á Þingvallavatni í sum- ar. „Eins og allir vita er náttúran þarna einstök og við félagarnir ætl- uðum að njóta hennar á góðum degi. Við teljum að það sé mjög góð leið til að skoða náttúruna að róa á vatninu.“ Haraldur Örn sagðist telja að frjáls för almennings um lönd og vötn skipti sífellt meira máli þegar þéttbýli stækkaði og mikilvægt væri að landeigendur virtu þann rétt. Hann sagði að sér hefði komið þetta bann á óvart, ekki í síst í ljósi þess að á árum áður hefði verið báta- og kajakleiga við Þingvalla- vatn. „Í vatnalögum eru alveg skýr ákvæði um rétt manna til að ferðast um vötn. Manni finnst nokkuð ein- kennilegt að í þjóðgarði sé þessi réttur ekki virtur, sem er tryggður á öllum vötnum.“ Bannið sett með hagsmuni veiðimanna í huga Sigurður Oddsson, framkvæmda- stjóri þjóðgarðsins á Þingvöllum, sagði að bannið væri sett í þeim til- gangi að verja hagsmuni þeirra sem stunda silungsveiði í Þingvallavatni. „Það er rétt, að samkvæmt reglum þjóðgarðsins er ekki leyfi- legt að setja út bát út frá landi þjóð- garðsins. Það stafar mikið til út af því að við seljum veiðileyfi með landi þjóðgarðsins. Það er mjög vin- sælt, en það er mikil truflun ef menn eru á bátum rétt fyrir framan þar sem menn eru að veiða. Við telj- um því að þetta fari ekki saman og þess vegna höfum við ekki heimilað að menn séu á bátum þarna fyrir framan.“ Aðspurður sagði Sigurður að þetta væri búið að vera vandamál og í reynd ættu landverðir erfitt með að framfylgja þessu banni. Þjóðgarðurinn hefði ekki aðgang að báti til að sinna eftirlitsstörfum. „Það hefur verið mikið kvartað und- an þessu og við höfum reynt að benda fólki á að vera ekki á báti þarna fyrir framan.“ Sigurður sagði að á Þingvalla- vatni væri ekki „almenningur“, þ.e.a.s. vatninu væri öllu skipt á milli landeigenda. Það væri því á valdi hvers landeiganda eða ábú- anda að heimila að farið sé frá landi út á vatnið. Haraldur Örn er ekki sáttur við þau rök að banninu sé ætlað að verja hagsmuni þeirra sem veiða í vatninu. Hann benti á að silungs- veiði væri ekki stunduð í þjóðgarð- inum nema frá landi og því ætti ekki að þurfa að banna umferð um allt vatnið. Hann sagði að auk þess virtist vera gengið út frá því í vatnalögum að umferð um vötnin gengi fyrir og ef landeigendur yrðu fyrir tjóni gætu þeir gert kröfu á ríkið um bætur. „Í þessu máli er ríkið beggja vegna borðsins. Það er bæði að selja veiðileyfi og setur reglur um umferð um vatnið. Ég dreg mjög í efa að þetta bann standist,“ sagði Haraldur Örn. Lögfræðingur telur reglur ekki standast Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þó ekki megi leggja frá landi innan þjóðgarðs Þingvalla er alltaf eitthvað um að menn sigli á Þingvallavatni. Bannað að leggja bátum út frá þjóðgarði Þingvalla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.