Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 41
FÓLK
JUVENTUS hefur ákveðið að
hætta við að reyna fá hollenska
landsliðsmanninn Edgar Davids til
að skrifa undir nýjan samning, en
samningur hans við liðið rennur út
eftir keppnistímabilið. Davids er
ekki tilbúinn að skrifa undir samning
þessa dagana og er greinilegt að
hann ætlar sér að vera laus allra
mála er samningur hans við Juvent-
us rennur út.
MÖRG lið hafa sýnt Davids áhuga,
en líklegast er talið að hann yfirgefi
Juventus og gangi til liðs við ann-
aðhvort ítalska liðið Roma eða Inter
Mílanó. Þá er einnig hermt að Dav-
ids sé undir smásjánni hjá Chelsea,
en vart er sá knattspyrnumaður með
knattspyrnumönnum í dag að hann
sé ekki orðaður við Lúndúnaliðið.
ARGENTÍNSKI þjálfarinn Hector
Cuper, sem var látinn taka poka sinn
á dögunum hjá Inter á Ítalíu, er nú
orðaður við Tottenham, sem næsti
knattspyrnustjóri Lundúnaliðsins.
GULA spjaldið sem David Dunn
fékk í leik Bolton og Birmingham
um síðustu helgi hefur verið dregið
til baka. Dunn fékk gult spjald þegar
Ivan Campo braut á honum innan
vítateigs Bolton. Chris Foy taldi að
Dunn hefði leikið sér að því að falla í
þeim tilgangi að fiska vítaspyrnu.
Eftir að hafa skoðað atvikið gaum-
gæfilega af myndbandi ákvað Foy að
draga spjaldið til baka þar sem
greinilega má sjá að Campo felldi
Dunn, ekki var um að ræða leikara-
skap af hálfu Dunns.
KLAUS Toppmöller, 52 ára, ný-
ráðinn þjálfari Hamburger SV,
sagði í gær að það væri takmark sitt
að koma liðinu á þann stall sem það á
að vera á – í hópi bestu liða Þýska-
lands. Toppmöller náði mjög góðum
árangri með Bayer Leverkusen,
sem var ekki langt frá því að verða
bæði Þýskalandsmeistari og Evr-
ópumeistari undir hans stjórn.
ENSKA knattspyrnuliðið Leeds
United greindi frá því í gær að tap
á rekstri félagsins á ársgrundvelli
nema tæplega fimmtíu milljónum
punda, eða 6,5 milljörðum króna,
að því er segir í frétt BBC. Tapið
hefur ekki verið svo mikið áður og
er hið mesta í sögu úrvalsdeild-
arfélags í Englandi.
Tap fyrir skatta nemur 49,5
milljónum punda og er 25,4 millj-
ónir þegar tilfærslur hafa verið
teknar til greina. Þá staðfesti
kauphöllin í Lundúnum í gær að
Trevor Birch verði næsti fram-
kvæmdastjóri félagsins en hann
tekur við starfinu 1. nóvember nk.
Þá hefur BBC heimildir fyrir því
að Birch, sem er fyrrverandi yf-
irmaður hjá Chelsea, muni taka yf-
ir daglegan rekstur félagsins.
Þrátt fyrir miklar sparnaðar-
aðgerðir jukust skuldir Leeds í 78
milljónir punda. Inn í dæmið hafa
verið tekin sala á leikmönnum sem
numið hefur tugum milljóna
punda.
Staða félagsins er því afar veik
og líkegt að það verði enn að selja
leikmenn til viðbótar og draga auk
þess úr ýmsum kostnaði, s.s. vegna
launa. Leeds er um þessar mundir
í næstneðsta sæti ensku úrvals-
deildarinnar. Það slapp naumlega
við fall á síðustu leiktíð. Ekki eru
nema þrjú ár síðan allt var í blóma
hjá Leeds, það var í Meistaradeild
Evrópu, í hópi efstu liða í úrvals-
deildinni og smjör draup af hverju
strái.
Mettap hjá Leeds í Englandi
sigraði í Meistaradeildinni í vor.
Franska deildarkeppnin er mjög erf-
ið.“
Ekki eins skot-
glaður og áður
Á hverju byggjast framfarirnar
sem þú hefur tekið síðan þú lékst
með ÍR-liðinu á Íslandi?
„Ég held að ég sé orðinn töluvert
betri leikmaður, enda öðlast mikla
reynslu og gengið í gegnum erfiðan
skóla. Það er nokkuð ljóst að leikstíll
minn hefur breyst mikið til batnaðar,
því ég er meiri leikstjórnandi í dag,
en ég var fyrir nokkrum árum. Þá
var ég alltof skotglaður miðað við
leikstjórnanda, en nú hugsa ég fyrst
og síðast um að koma félögum mín-
um í gang og fá þá með mér. Auk
þess spila ég mun meira í vörninni nú
en ég gerði fyrstu tvö tímabilin hér í
Frakklandi. Ég hlýt að hafa bætt
mig sem varnarmaður, því Dunk-
erque-liðið er þekkt fyrir að leika
mjög sterkan varnarleik,“ sagði
Ragnar Óskarsson, sem verður í
sviðsljósinu með íslenska landsliðinu
um næstu helgi – í þremur lands-
leikjum gegn Pólverjum.
Morgunblaðið/Kristinn
Ragnar Óskarsson, landsliðsmaður í handknattleik, er samningsbundinn franska liðinu Dunk-
erque fram á sumarið 2004. Draumur hans er að leika á Spáni.
RAGNAR Óskarsson hefur
leikið 45 landsleiki í hand-
knattleik fyrir hönd Íslands
og skorað 105 mörk í þeim.
Ragnar lék sinn fyrsta lands-
leik gegn Norðmönnum í Nor-
egi 1998 – leik sem tapaðist
26:19 og hann skoraði sitt
fyrsta mark í leik gegn Nor-
egi í sömu ferð. Ragnar skor-
aði fjögur mörk í leiknum,
sem Norðmenn unnu 30:24.
Ragnar varð að fara til Jap-
ans til að fagna sínum fyrsta
sigri í landsliðsbúningi – þá í
leik gegn Kínverjum í júní
1998, 29:19. Ragnar skoraði
þrjú mörk í leiknum.
Ragnar var heldur betur
búinn að stilla fallbyssuna er
hann lék með landsliðinu í
móti í Haarlem í Hollandi
1999. Hann skoraði 45 mörk í
fimm leikjum á mótinu og
varð markahæstur. Ragnar
skoraði 11 mörk í leik gegn
Rúmeníu, 23.22, 13 mörk í leik
gegn Hollandi, 27:22, og 11
mörk í leik gegn Egyptalandi,
25:29.
Ragnar lék 8 landsleiki árið
2000 og skoraði 24 mörk.
2001 lék hann 13 leiki og
skoraði 15 mörk. Þá tók hann
þátt í HM í Frakklandi – fékk
að leika einn leik og skoraði
tvö mörk í honum; gegn Mar-
okkó 31:23.
Ragnar lék 13 leiki 2002 og
skoraði 10 mörk í leikjunum.
Sinn síðasta landsleik lék
hann í Laugardalshöllinni 9.
júní 2002, er Makedóníumenn
voru lagðir að velli, 33:28.
Hann skoraði sitt 100.
landsliðsmark í leik gegn
Dönum, sem tapaðist 29:21 á
móti í Danmörku.
Marka-
kóngur í
Belgíu
ÁKVEÐIÐ hefur verið að leika við
landslið Mexíkó vináttulandsleik í
knattspyrnu í San Francisco í Kali-
forníu 19. nóvember nk. „Það er
allt klárt og stefnt að því að fara
með það sterkasta lið sem við eig-
um völ á, við köllum alla þá bestu
til,“ sagði Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ í samtali við
Morgunblaðið. Geir sagði enn-
fremur að ekkert ætti að vera því
til fyrirstöðu að allir þeir leikmenn
sem Ásgeir Sigurvinsson og Logi
Ólafsson landsliðsþjálfarar óskuðu
eftir gæfu kost á sér í leikinn því
um væri að ræða alþjóðlegan leik-
dag.
Geir sagðist reikna með að ljóst
yrði fljótlega eftir næstu mán-
aðamót hvaða leikmenn verði vald-
ir til fararinnar. Nú stendur fyrir
dyrum að láta þau félög leikmanna
vita af því að þeir verði hugsanlega
valdir í leikinn, en slíkt þarf að til-
kynna a.m.k. fimmtán dögum fyrir
leikdag. „Við erum því vel innan
allra marka í þeim efnum,“ sagði
Geir sem ekki reiknar með að leik-
menn lendi í vandræðum hjá sínum
félagsliðum vegna leiksins. „Það
hjálpar okkur að um alþjóðlegan
leikdag er að ræða og við eigum
skýran rétt á mönnum í leiki á þeim
dögum,“ sagði Geir.
Leikið verður miðvikudaginn 19.
nóvember. Mexíkó er í 8. til 10. sæti
á styrkleikalista FIFA, Alþjóða-
knattspyrnusambandsins.
Ákveðið að leika við
Mexíkó í San Francisco