Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.10.2003, Blaðsíða 30
MINNINGAR 30 MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ É g er farin að halda að ég sé eina mann- eskjan á Íslandi sem ekki hefur fylgst með þætt- inum Idol – Stjörnuleit á Stöð 2. Alltént virðast ótrúlega margir fylgjast með þessum nýjasta raunveruleikaþætti okkar Íslend- inga. Ein vinkona mín er t.d. for- fallinn aðdáandi þáttanna. Og það versta sem ég geri henni þessar vikurnar er að hringja í hana á þeim tíma þegar þátturinn er sýndur. Þá segir hún bara humm … og ha … og greinilegt að hún er ekkert að hlusta á það sem ég er að reyna að segja. Því næst biður hún mig vin- samlegast að hringja eftir klukkutíma. (Fyrir þá sem ekki vilja trufla vini sína á sama hátt þá bendi ég á að þátturinn er sýndur á föstudagskvöldum klukkan átta … minnir mig … eða var það níu?) Ég hef lengi ætlað að bjóða mér í heimsókn til einhverra sem hafa aðgang að Stöð 2 á föstu- dagskvöldum, en ekkert hefur orðið úr því ennþá. Ég hef þó séð smábrot úr þættinum, en þar var Bubbi, minnir mig, að kvelja ein- hverja vesalings stúlku, sem hann taldi ekki hafa neina sönghæfi- leika. Stúlkan gekk því, að því er virtist, niðurbrotin af sviðinu og fór að gráta. Allt var þetta tekið upp og lagt á borð fyrir okkur sjónvarpsáhorfendur. Sem skemmtiefni. Annars ætla ég ekki að halda því fram hér í þessum pistli að ég sé eitthvað heilög í þessum efn- um. Ég myndi örugglega fylgjast spennt með því hver færi grát- andi heim næst – ef ég bara hefði aðgang að Stöð 2. Í þáttum sem þessum, þ.e. raunveruleikaþáttum, fær maður nefnilega að fylgjast grannt með viðbrögðum fólks við ýmsum að- stæðum. Fer hún að gráta? Reið- ist hann? Er henni alveg sama? Er hann að grínast? Mistekst honum? Vinnur hún? Og svo framvegis. Þannig fær maður um tíma að fylgjast með „drama- tískum“ og „raunverulegum“ uppákomum – liggja á gægjum – en að „sjóinu“ loknu stendur mað- ur upp, slekkur á sjónvarpinu og fer að sinna sínum eigin „raun- verulegu“ hugðarefnum og áhyggjum, sem eru þó sjaldan eins „dramatísk“ og í sjónvarpinu. Þeir sem gerst þekkja til segja mér að framleiðsla raunveru- leikaþáttanna hafi hafist undir lok síðustu aldar. Þetta byrjaði víst með vefmyndavélum á Netinu, þar sem hægt var að fylgjast með fólki víða um heim sinna sínum hversdagslegu störfum. Síðan var þetta „raunveruleikafyrirbæri“ tekið upp í sjónvarpinu. Þættir á borð við Stóra bróður litu dagsins ljós og urðu vinsælir um tíma, en aðrir þættir voru ekki „eins vel heppnaðir“, eins og t.d. megrunarþáttur einn sem sýndur var í Þýskalandi. Sá þáttur gekk út á að loka fólk í yfirþyngd inni í húsi með örlitlum garði í ein- hverjar vikur og sá sem missti hvað flest kíló stóð uppi sem sig- urvegari. Myndavélar voru síðan að sjálfsögðu uppi um alla veggi til að sjónvarpsáhorfendur gætu fylgst með baráttunni. Mér skilst reyndar að einhver þýskur grínisti hafi átt þátt í því að „eyðileggja“ orðspor þáttarins en sá greip til þess ráðs, af ill- kvittni einni saman, að henda snakkpokum yfir girðinguna til fólksins sem var í megrun! En áfram heldur framleiðsla raunveruleikaþáttanna; þeir eru örugglega eitt vinsælasta sjón- varpsefnið nú í upphafi 21. ald- arinnar. Sífellt fleiri þættir bæt- ast við „raunveruleikaflóruna“ með nýjum áskorunum og öðru- vísi áherslum. Það er reyndar eins og æ lengra sé gengið í því að ögra eða ganga fram af áhorfendunum, t.d. í þáttum á borð við Fear Factor – þar sem skordýr eru étin eins og ekkert sé – og maður veltir því stundum fyrir sér hvar þetta eigi eftir að enda. Verður kannski ein- hvern tíma framleitt alvöru Truman Show? Eins og margir eflaust vita fjallar sú kvikmynd um mann sem er stærsta sjón- varpsstjarna í heimi án þess að vita af því vegna þess að öll ævi hans hefur verið sýnd í beinni út- sendingu í þættinum Truman Show. Ég get ekki látið hjá líða í þess- ari umræðu að minnast á að raun- veruleikaþættirnir eru sennilega ekki eins raunverulegir og fram- leiðendur vilja vera láta. Þætt- irnir eru nefnilega fæstir sýndir í beinni útsendingu. Þegar við fáum að sjá þá er búið að klippa atburðarásina til; hún er því í raun hönnuð með neytendur og vinsældir í huga. Það má því segja að raunveruleikaþættirnir séu í þessu sambandi ákveðin blekking, eins og aðrir sjónvarpsþættir. Í báðum tilvikum eru handritshöf- undar eða „ritskoðendur“. Í hefð- bundnum sjónvarpsþáttum er handritið samið fyrirfram en í raunveruleikaþáttunum er hand- ritið að mestu samið efir á, þ.e. þegar stjórnendur fá efnið í hend- urnar; þeir skoða það og klippa síðan til samtöl og atburði – og búa kannski til, svo dæmi sé tekið, spennu milli fólks sem aldrei var til staðar. Að lokum er viðeigandi tónlist bætt við og hún hækkuð og lækkuð á „réttum“ stöðum. Ég tek þó fram að ég er ekkert að kvarta yfir því að raunveru- leikaþættirnir skuli ekki vera eins raunverulegir og í fyrstu mætti ætla. Það myndi t.d. algjörlega eyðileggja fyrir mér rómantísku stemmninguna ef ég fengi að sjá piparsveininn í samnefndum þátt- um gera eitthvað eins hversdags- legt og að fara á klósettið! Raunveruleikinn má því ekki verða of mikill eða of raunveru- legur. Já, þegar allt kemur til alls vill maður kannski ekki allan þennan raunveruleika úr sjón- varpinu. Maður fær a.m.k. nóg af honum sjálfur – í hinu raunveru- lega lífi. Of mikill raunveru- leiki? „Sá greip til þess ráðs, af illkvittni einni saman, að henda snakkpokum yfir girðinguna.“ VIÐHORF Eftir Örnu Schram arna@mbl.is ✝ Helga Barðadótt-ir var fædd á Suðureyri við Súg- andafjörð 7. október 1967. Hún lést á heimili sínu laugar- daginn 18. október síðastliðinn. Sex ára gömul flutti Helga ásamt foreldrum sín- um Barða Theódórs- syni og Elínu Giss- urardóttur og systk- inum, Ingibjörgu Barðadóttur og Theódóri Barðasyni, á Seltjarnarnesið þar sem hún átti að mestu heima alla ævi. Hinn 20. júlí 1991 giftist Helga Sveini Loga Björnssyni rafvirkjameistara. Börn þeirra eru: Atli Freyr, f. 5. apr- íl 1991, Axel Fann- ar, f. 23. janúar 1996, og Lovísa Birta, f. 23. janúar 1996. Fjölskyldan bjó lengstum á Mið- braut 21 á Seltjarn- arnesi. Útför Helgu fer fram frá Seltjarnar- neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Elsku Helga. Það var ægilega sárt að horfa á eftir þér. Þú varst alltof ung og alltof fögur kona til að kveðja heiminn svo snemma. Þú áttir eftir að upplifa allt of margt með fjölskyld- unni þinni sem saknar þín ákaft. Minningar sem áður þóttu léttvæg- ar hafa sótt mikið á okkur undanfarið, minningar sem urðu á svipstundu ómetanlegar. Við vorum börn þegar við sáum unga og fallega konu ganga inn í stofu. Af jafnfagurri og góðri konu sem þú varst, mátti hver sem er vera stoltur af þínum félagskap. Bróðir okkar og elskulegur eiginmaður þinn var það, þar sem hann augljóslega sá ekki sólina fyrir þér frá fyrsta degi til hins síðasta. Hrifningin sást iðulega í augnaráði ykkar beggja hvors til ann- ars. Sú gleði og hamingja sem fylgdi fæðingu frumburðarins ykkar, Atla Freys og svo giftingunni í kjölfarið var ástinni endanlega til staðfesting- ar. Í dag áttu að eilífu þrjú yndislega falleg og hraust börn, Atla, Axel og Lovísu sem eru bæði dugleg og hjarthlý. Kostir sem aðeins um- hyggjusöm móðir og góð fjölskylda geta mótað í hugum barna sinna. Okkar heitasta ósk væri sú að þú vær- ir hér til að fylgjast með þeim vaxa úr grasi. Hafðu engar áhyggjur, elsku Helga. Við munum gæta þeirra og þú verður með þeim alltaf í anda. Birgir og Viðar Björnssynir. Helga, mér finnst ég ekki hafa kvatt þig almennilega og það finnst mér óbærilega sárt. Þú komst inn í líf mitt á hárréttu augnabliki. Það var erfitt tímabil hjá fjölskyldunni þegar þú birtist. Þú lést mér hins vegar alltaf líða vel ef ég var djúpt sokkinn í vonlausar en barns- legar hugsanir sem nöguðu sálarlífið. Fyrir vikið mynduðust traust og órjúfanleg vináttutengsl sem héldust æ síðan. Það var alltaf svo gott að setjast niður með þér og Sveini og ræða sam- an. Ég gat alltaf leitað ráða hjá þér. Þú skildir hlutina alltaf fullkomlega og gafst mér ráðleggingar sem brugðust aldrei. Þú varst mér eins og systir en nú á ég enga. Mér þykir vænt um þig, elsku Helga. Viðar Björnsson. Kynni okkar af Helgu Barðadóttur hófust þegar Sveinn Logi, vinur og systursonur, kynnti hana fyrir fjöl- skyldufólkinu sínu fyrir rúmum 13 ár- um síðan. Þá voru þau bæði ung og tilbúin að takast á við allt sem fram- undan biði. Ekki duldist okkur að þau höfðu á þeirri stundu hvort um sig fundið sinn lífsförunaut. Þau hófu fljótlega búskap, giftu sig, lögðu hart að sér í því sem þau tóku sér fyrir hendur og voru samhent í öllu því sem máli skipti. Fyrir allnokkrum árum settust þau að á Miðbraut á Seltjarn- arnesi og héldu þar notalegt heimili með börnum sínum þremur, en þau eru Atli Freyr, og tvíburarnir Lovísa Birta og Axel Fannar. Lífið virtist fagurt og bjart við vinnu, heimilis- störf, leik og uppeldi ungra, hraustra og mannvænlegra barna. Ýmislegt í lífinu fer hins vegar öðruvísi en ætlað er, án skýringa, svara eða mikils fyrirboða. Fyrir tæpu tveimur og hálfu ári síðan greindist Helga með illvígan sjúkdóm sem læknavísindin ráða enn ekki við. Í fyrstu báru allir von í brjósti um bata en sjúkdómurinn ágerðist og varð að lokum óviðráðanlegur. Þó að við gerðum okkur grein fyrir að hverju stefndi er missirinn mikill og sár þegar hann verður staðreynd. Sérstaklega sár og erfiður er miss- irinn þegar hugsað er til þess að um er að ræða unga konu, sem við allar venjulegar aðstæður ætti að vera í blóma lífsins og eiga framtíðina fyrir sér, með öllum þeim tækifærum og möguleikum sem lífið býður venju- lega ungu fólki og ungum fjölskyldum upp á. Sveinn Logi ásamt fjölskyldu og vinum verður nú þess í stað og af fremsta megni að reyna að fylla það skarð sem myndast hefur svo svip- lega og snöggt. Helga var sterkur persónuleiki. Hún var raunsæ og ákveðin en um leið jákvæð og sjálfri sér samkvæm og trú. Í framkomu var hún kurteis, smekkvís, nákvæm og snyrtileg og gætti vel að þeim þáttum í barnaupp- eldi og heimilishaldi sínu. Veikindum sínum tók hún af miklu æðruleysi, ró og yfirvegun. Í umræðum um þau við vini og vandamenn sýndi hún stillingu og mikla staðfestu. Hún sótti styrk í trúna og kirkjulegt starf á Seltjarn- arnesi og naut þaðan í veikindum sín- um einstakrar hjartahlýju og velvild- ar bæði presta og safnaðar. Allt fram á síðustu stundu sýndi hún ótrúlega þrautseigju og viljastyrk og lét aldrei í orði bugast. Við sem eftir stöndum getum ekki annað en fyllst lotningu við að verða vitni að síku sjálfsöryggi og hugarró. Á þessari kveðjustund sendum við Sveini Loga, börnunum þremur, Atla Frey, Lovísu Birtu og Axeli Fannari, svo og foreldrum Helgu og systkin- um, okkar innilegustu samúðarkveðj- ur, Guðrún Magnúsdóttir og Jón Sveinsson. Okkar ástkæra Helga er fallin frá, langt fyrir aldur fram og dökkt ský hvílir yfir okkur öllum. Við skiljum ekki hvers vegna ung móðir er tekin frá börnum sínum, eiginmanni og öðr- um ástvinum. Baráttan við sjúkdóminn var ekki svo löng en engu að síður hetjuleg og aðdáunarverð. Við stóðum máttlausar hjá, fylgdumst með og vonuðum hið besta en veruleikinn er orðinn annar. Sorgin og söknuðurinn er ólýsanlegur en við huggum okkur við það að Helgu líði nú betur þegar hún er laus úr viðjum veikindanna. Þú sofnað hefur síðasta blund í sælli von um endurfund, nú englar drottins undurhljótt þér yfir vaki – sofðu rótt. (Aðalbj. Magnúsdóttir.) Kæra Helga, þakka þér fyrir sam- fylgdina. Okkar litla fjölskylda verður ekki söm án þín. Elsku Sveinn Logi, Atli, Axel og Lovísa, missir ykkar er mikill. Við sendum ykkur, foreldrum Helgu, systkinum hennar sem og öðrum að- standendum, okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Unnur Ýr, Kristín Ösp og Hildur Hlín Jónsdætur. Elsku Helga vinkona, það er sárt að þurfa að kveðja þig en ég verð að hugga mig við það að þjáningar þínar eru á enda og veit að þér líður betur núna. Það er bara svo mikill tómleiki hjá okkur sem eftir sitjum. Ég kynnt- ist Helgu árið 1987 þegar við fórum að vinna saman í Kringlunni. Þetta var stór stelpnahópur sem vann saman og við Helga urðum fljótt góðar vinkon- ur. Ári seinna fórum við að vinna á öðrum stöðum, Helga hjá VÍS þar sem hún kynntist manninum sínum, Sveini Loga. Mér fannst það hálf- skondið þegar ég frétti það þar sem ég þekkti til Sveins og hann búinn að vera vinur í fjölskyldu mannsins míns til margra ára. Árið 1990 var stofn- aður saumaklúbbur úr þessum stelpnahópi sem hafði unnið saman. Við Helga vorum þá báðar ófrískar að okkar fyrstu börnum og áttum von á okkur um svipað leyti, mars-apríl 1991. Alla meðgönguna vorum við mikið saman og áttum svo drengina okkar með þriggja vikna millibili, báða 20 merkur. Það leið ekki sá dag- ur að við töluðum ekki saman og bár- um saman bækur okkar í uppeldinu. Við vorum alveg þekktar á ferðinni með barnavagnana í Kringlunni og á Laugaveginum. Á næstu árum flutti litla fjölskyldan á milli staða, þau bjuggu í Reykjavík, Garðabæ og Kópavogi áður en Helga gat sannfært Svein um að það væri best að búa á nesinu. Við skildum aldrei þessa dýrkun á nesinu en ég hef komist að því síðustu daga hvað það er. Sam- heldnin hjá svona litlu bæjarfélagi er alveg ótrúleg. Þetta minnir einna helst á lítið sveitaþorp. Helga var sterkur persónuleiki og afburða góð móðir. Hún tók þátt í öllu með börnunum sínum. Þegar þau byrjuðu að stunda íþróttir fannst Helgu ekki nóg að skutla á æfingar og horfa á leiki heldur varð hún að kom- ast inn í allt á bakvið íþróttafélagið, vera í fjáröflun, gjaldkeri eða hvað sem þurfti. Þetta var ekta Helga, varð að kynnast öllu í þaula og þá sérstak- lega það sem við kom börnunum hennar. Nú tekur við erfitt verkefni fyrir Svein að komast inn í þetta skipulag. Sveinn hefur nú aldeilis reynst Helgu vel í veikindunum. Þeg- ar Helga veiktist fyrst um vorið 2001 þá fannst henni þetta vera verkefni sem hún þyrfti að takast á við. Helga var stolt og vildi meira halda veikind- unum fyrir sig og stundaði sína vinnu. Þegar hún svo veikist í annað sinn ári seinna var það Sveinn sem var stoð hennar og stytta og allt til enda. Helga var líka lánsöm að eiga svo ein- staka foreldra sem gerðu allt hvað þau gátu fyrir hana. Það er örugglega ekkert eins erfitt eins og fyrir for- eldra að horfa upp á barnið sitt svona veikt en þau stóðu hjá eins og klettar allan tímann. Ég trúi því ekki enn og sætti mig ekki við það að Helga sé farin. Sjötta september sl. mætti Helga í afmæl- isveislu heim til okkar þegar maður- inn minn varð fertugur. Helga ætlaði sko að mæta þrátt fyrir mikil veikindi og sú minning stendur uppúr þeirri veislu. Þegar ég svo kom í afmæli Helgu nú í október óraði mig ekki að það yrði í síðasta sinn sem við hitt- umst. Ég vil nota tækifærið og þakka fyrir að hafa átt svona góða vinkonu. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Við Marinó og fjölskylda vottum Sveini, Atla, Lovísu, Axel, Ellu, Barða, systkinum og öðrum aðstand- endum okkar dýpstu samúð. Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Guðbjörg E. Erlingsdóttir. Elsku besta Helga mín. Ég sit hér við kertaljós og hugsa um þig, fjöl- skylduna þína og okkur. Ég geri mér ekki ennþá grein fyrir hversu stórt gat er komið í hjartað mitt né hversu mikill söknuðurinn á eftir að verða. Eitt er víst að héðan í frá verður allt öðruvísi. Ég stend mig að því að kíkja út um gluggann minn og yfir til þín í von um að ég sjái þér bregða fyrir. Ég tek símann minn og næ í númerið þitt og man þá að talvinur minn er því miður ekki með símann sinn. Ég get seint fullþakkað þér fyrir einstaka vináttu og hversu nánar við vorum. Ég er ekki bara að missa bestu vinkonu mína, ég er að missa HELGA BARÐADÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.